Morgunblaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VEÐUR
Nái Sjálfstæðisflokkurinn nálægt40% fylgi í þingkosningunum í
maí yrði það verulegur sigur fyrir
flokkinn.
Slíkar fylg-istölur eru
þekktar í sögu
flokksins en þá
fyrst og fremst
við óvenjulegar
aðstæður eins og í
kjölfar óvinsælla
vinstri stjórna.
Í þingkosningunum 2003 fékk Sjálf-stæðisflokkurinn 33,7% fylgi og
var með Samfylkinguna fast á hæl-
um sér með 31% fylgi.
Hið mikla fylgi, sem Sjálfstæð-isflokkurinn fær í síðustu könn-
un Capacent Gallup er merkileg í
ljósi þess, að flokkurinn hefur verið
samfellt í ríkisstjórn í 16 ár.
Svo virðist sem kjósendur séu ekkiað þreytast á langri stjórnarsetu
Sjálfstæðisflokksins heldur þvert á
móti að þjappa sér að baki flokknum
sem bendir til að flokknum hafi tek-
izt að endurnýja sig.
Skoðanakannanir í vetur hafa benttil þess að Sjálfstæðisflokkurinn
stæði höllum fæti meðal kvenna.
Nú virðist það vera að breytast.Samkvæmt nýjustu könnun
Capacent Gallup er fylgi kvenna við
flokkinn að aukast.
Hver er helzta skýringin á sterkristöðu Sjálfstæðisflokksins í
skoðanakönnunum nú?
Meginskýringin hlýtur að sjálf-sögðu að vera sú, að kjósendur
hafa aldrei haft það jafn gott og nú
og þakka Sjálfstæðisflokknum það
umfram aðra.
STAKSTEINAR
Geir Haarde
Sjálfstæðisflokkur í sókn
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!"#
!"#
$
:
*$;<
!"#
$ %
$
&
'(
) *!
$$; *!
% &
' # & # ! $#
($
=2
=! =2
=! =2
% !#' ) *+,"$-
<
$
;
%$ $ ." $ /
&'$ #"#& $
*
0$ #+"1**
!"# " & $ *$/
"#
(
$#2 /
1
/
0$ #+"1**
!"# " & $ *$/
"#
(
$#2 /
1
31$44$#
5 $"
$) *
3'45 >4
>*=5? @A
*B./A=5? @A
,5C0B ).A
/
./
6 6 6 6 6
/
/
/
/
/
/
./
/
/
/
/
/
/
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Sigmar Guðmundsson | 18. apríl 2007
Ofsahræðsla
Eftir fjölmargar
ábendingar frá heima-
mönnum, flugmönnum,
flugtæknifræðingum,
flugverkfræðingum,
flugfreyjum, flug-
rekstrarsérfræðingum
og reyndar nokkrum furðufuglum,
hef ég uppgötvað hversvegna ég
varð svona hræddur. Sú uppgötvun
sýknar flugmennina algerlega í
þessu máli en sannfærir mig hins-
vegar endanlega um að það sé góð
fjárfesting að kaupa ný gleraugu.
Meira: sigmarg.blog.is
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
| 19. apríl 2007
Það má ekki…
„Hvern djö… haldið
þið að þið séuð að
gera,“ öskraði hann og
í kjölfarið fylgdi ræða
um það hvort við átt-
uðum okkur ekki á því
að við stæðum hopp-
andi og skríkjandi við eina mestu
laxveiðiá landsins og fældum alla
fiskana burtu meðan veiðimennirnir
hefðu skroppið í hádegismat.
Meira: gyda.blog.is
Anna Ólafsdóttir (anno) | 18. apríl
Bruninn
Ef ég skil rétt er
Pravda ekki matsölu-
staður heldur staður
sem fyrst og fremst er
opinn á kvöldin… Veit
ekki hvernig eldvörn-
um er háttað í þessu
húsi en þegar staðir eins og þessir
eru fullir af fólki og eldur kemur upp
skapast oft ringulreið sem getur
haft skelfilegar afleiðingar.
Það er mikill léttir að lesa að eng-
inn skuli hafa slasast eða fengið
reykeitrun.
Meira: anno.blog.is
Guðmundur Steingrímsson | 18. apríl
Samfylking á uppleið
Könnun Félagsvís-
indastofnunar fyrir
oddvitadebattið í Krag-
anum á Stöð 2 sýndi
Samfylkinguna í 25
prósentum í kjördæm-
inu. Ég verð að játa að
mér líður þó nokkuð betur með þá
tölu heldur en bévítans 18% sem við
vorum sokkin niður í um daginn í
einhverri Gallup-könnuninni. Þetta
er klárlega uppleið, þótt þetta sé
vissulega nokkuð minna en við feng-
um í síðustu kosningum.
Upp miðað við Gallup, niður miðað
við kosningar. Svona er upp og niður
afstætt. Eins og félagi Gunnar Svav-
arsson benti á í þættinum erum við
núna í nákvæmlega sömu stöðu í
mælingum og við vorum fyrir síð-
ustu kosningar á þessum tíma. Þá
náðum við flugi á lokasprettinum.
Mér finnst ég skynja meðbyr, en
hvað veit maður svosem. Allir segj-
ast finna meðbyr. Það stendur í
stjórnmálahandbókinni, 1. kafla:
„Alltaf segja að þú finnir meðbyr.“
En ég meina það. Það er meðbyr.
Í fyrsta skipti núna í nokkurn tíma
er fólk farið að koma til mín að fyrra
bragði og segjast ætla að kjósa Sam-
fylkinguna og er beinlínis grjóthart
á því. Fólk hefur nefnilega núna
nokkuð lengi haldið að sér höndum
varðandi Samfylkinguna, verið í
vafa, efast. Ekkert endilega verið að
taka slagi á vinnustöðunum fyrir
okkar hönd.
Þetta er að breytast. Samfylk-
ingin er enginn 18% flokkur. Enginn
18% flokkur heldur landsfund eins
og þennan sem við héldum síðustu
helgi. Ég hef heyrt mikinn kosn-
ingafræðimann spá því að Samfylk-
ingin muni enda í kringum 30%.
Annar maður, gamall refur í brans-
anum, spáir 28%. Við sjáum til.
Gunnar Svavars stóð sig vel í
kvöld. Yfirvegaður og glaðbeittur.
Einbeitti sér að því að kynna okkar
málefni og stefnu. Þátturinn var hins
vegar almennt ekkert spes. Sex
manna pallborð er barasta alls ekki
besta uppskriftin að snörpum og
upplýsandi rökræðum, svo vægt sé
til orða tekið. Eitt svar á mann í
hverju máli. Svo tekið fyrir næsta.
Get ekki ímyndað mér að þeir sem
eru ekkert inni í málum séu mikið
nær.
Meira: gummisteingrims.blog.is
BLOG.IS
PARKET & GÓLF • ÁRMÚLA 23
SÍMI: 568 1888 • FAX: 568 1866
WWW.PARKETGOLF.IS
PARKET@PARKETGOLF.IS
ÁRATUGA ÞEKKING, ÞJÓNUSTA OG RÁÐGJÖF
ClickBoard
BYLTINGARKENNDAR
VEGG- OG LOFTPLÖTUR
Parket & Gólf býður einstaka lausn fyrir vegg- og
loftplötur frá þýska framleiðandanum Parador
HDF plöturnar frá Parador
hafa nær engin sýnileg
samskeyti og eru einstaklega
auðveldar í uppsetningu.
KOSTIRNIR ERU AUGLJÓSIR
Hagkvæm og ódýr lausn • einföld uppsetning - 50% fljótlegra
höggþolið • auðvelt að þrífa • lítil eða engin sparslvinna
losnar við allt ryk • 50 kg. burðarþol á skrúfu
stílhreint og nútímalegt útlit • 10 ára ábyrgð
Komdu við í verslun okkar og kynntu þér
þessa einstöku lausn - við tökum vel á móti þér
ka
ld
al
jó
s
20
06