Morgunblaðið - 20.04.2007, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
ÞEGAR skýrsla Hafrannsókna-
stofnunar um ástand og horfur
helztu nytjastofna frá síðasta ári er
skoðuð, þarf engum að koma á
óvart að stofnvísitala þorsks við Ís-
land sé 17% minni en í fyrra. Það
þarf heldur engum að koma á óvart
að mjög góð veiði hafi verið í marz-
mánuði síðastliðnum, þegar gaf á
sjó. Inn í veiðina eru að koma af
fullum krafti síðustu þokkalegu ár-
gangarnir frá því fyrir aldamót.
Allir árgangar frá árinu 2000 eru
lélegir eða mjög lélegir. Það er því
eðlilegt að eldri árgangarnir séu
hlutfallslega stærri hluti stofnsins
en áður.
Niðurstaðan úr togararallinu nú
er mun nær endanlegri niðurstöðu
en áður hefur verið. Skýringin á
því er að nú er aldursgreining með
í matinu en til þessa hefur verið
byggt á lengdardreifingu sem er
ekki eins nákvæm. Það er annað,
sem hefur áhrif á það að veiðistofn-
inn er nú metinn 10 til 15% minni
en áður. Meðalþyngd er nánast í
sögulegu lágmarki. Það er því fátt
sem bendir til annars en að leyfi-
legur heildarafli á næsta fiskveiði-
ári verði mun minni en á þessu.
Of hátt veiðihlutfall
Þegar rýnt er í skýrslu Hafrann-
sóknastofnunarinnar er rauði þráð-
urinn of mikil veiði. Á árunum 1986
til 1993, áður en aflareglan var tek-
in upp, var veiðidánartala að með-
altali 0,81 og veiðihlutfall 42%.
Hvort tveggja var það hæsta í sögu
þorskveiða við Ísland. Eftir að afla-
reglan var tekin upp lækkaði veiði-
hlutfall verulega, en hækkaði síðan
á ný. Að meðaltali hefur veiðihlut-
fallið verið 31% í stað þeirra 25%
sem stefnt var að.
Það er ljóst að veiðin hefur
lengst af verið langt umfram það
sem Hafrannsóknastofnunin hefur
talið ráðlegt. Á árunum frá 1984 til
1995, fyrir aflareglu voru veidd
750.000 tonn umfram ráðleggingar
fiskifræðinga. Öll árin heimiluðu
stjórnvöld meiri veiðar en fiski-
fræðingar lögðu til og veiðarnar
voru ávallt meiri en heimilt var.
Umframveiðin var að meðaltali um
70.000 tonn á ári. Eftir aflaregluna
1995 og þar til í fyrra var veiðum
umfram tillögur miklu minni eða
aðeins 126.000 tonn, ríflega 10.000
tonn að meðaltali á ári.
Vilja breyta aflareglunni
Í síðustu skýrslu var lagt til að
aflareglu yrði breytt og hlutfall
veiða yrði lækkað í 22%. Þá var
sýnd uppsöfnuð líkindadreifing á
stærð hrygningarstofnsins árið
2010 miðað við aflaregluna 25% og
hærra og lægra hlutfall. Hún sýndi
að samkvæmt núgildandi aflareglu
væru verulegar líkur á að stofninn
minnkaði á tímabilinu, en með 18%
veiðihlutfalli og lægra væru yfir-
gnæfandi líkur á að hrygningar-
stofninn stækkaði og með 16%
veiðihlutfalli væru góðar líkur á að
hrygningarstofn yrði stærri en
300.000 tonn árið 2010.
„Á árunum 1960-1984 þegar
hrygningarstofn þorsks var að
meðaltali um 300 þús. tonn var
meðalárgangastærð um 210 millj-
ónir þriggja ára nýliða sem gaf af
sér um 370 þús. tonna ársafla að
meðaltali.
Frá 1985 hefur hrygningarstofn
verið á bilinu 123-235 þús. tonn, að
meðaltali um 188 þús. tonn og með-
alárgangastærð 134 milljónir ný-
liða, sem gefið hefur um 230 þús.
tonna ársafla. Frá 1985 hafa allir
árgangar verið undir langtímameð-
altali og þar af 6 undir 100 millj-
ónum og tveir minni en 70 millj-
ónir.
Fyrir 1985 var minnsta metna
árgangastærð um 125 milljónir
þriggja ára nýliða. Á árunum 1955-
1980 var hlutfall 10 ára og eldri
þorsks í hrygningarstofni að með-
altali 22% af þyngd en þá var með-
alnýliðun um 200 milljónir það
tímabil. Frá árinu 2000 hefur þetta
hlutfall verið að meðaltali um 4,4%
og hefur einkennst af slakri nýlið-
un,“ segir meðal annars í skýrsl-
unni.
55% veidd fyrir hrygningu
Þar kemur fram að undanfarna
áratugi hefur verið veitt langt um-
fram afrakstursgetu stofnsins.
Miðað við núverandi sóknarþunga,
veiðimynstur og kynþroska hafi um
55% þorsks úr hverjum árgangi
verið veidd áður en hann náði að
hrygna.
„Í ljósi framangreinds og þess að
ekki hefur tekist að ná markmiðum
um nýtingu þorskstofnsins á und-
anförnum árum, m.a. vegna hærra
veiðihlutfalls en mælt hefur verið
með, er ástæða til að benda á nauð-
syn þess að grípa til aðgerða svo
von sé á að betri árangur náist og
stofninn nái fyrri styrk. Eðlilegt er
í þessu sambandi að stjórnvöld
setji sér markmið við endurreisn
stofnsins og dragi úr afla næstu
ára svo hrygningarstofn nái að
vaxa í þá stærð sem gefur langtíma
hámarksafrakstur, 350-400 þús.
tonn. Þessu markmiði er hægt að
ná eftir mismunandi leiðum.
150.000 tonna jafnstöðuafli?
Eðlilegt er að haga útreikning-
um á aflamarki samkvæmt tillögu
aflareglunefndar eins og fyrr var
lýst.
Ef það yrði gert og veiðihlut-
fallið fram til ársins 2010 yrði 16%
af veiðistofni í stað 25% eins og nú,
reiknaðist aflamark næsta fisk-
veiðiárs um 160 þús. tonn og yrði
það á bilinu 130-150 þús. tonn á
næstu fjórum fiskveiðiárum. Þetta
gæfi þá niðurstöðu að hrygning-
arstofn stefndi í um 300 þús. tonn
með um 90% líkum árið 2010 og
nálægt 400 þús. tonnum með um
50% líkum. Einnig væri mögulegt
að ná sama markmiði með því að
festa aflamarkið við 150 þús. tonn
fram til ársins 2010. Að því búnu
yrði aflamark ákvarðað sem með-
altal aflamarks síðasta fiskveiðiárs
og 22% hlutfall af viðmiðunarstofni
í upphafi úttektarárs eins og lagt
hefur verið til af nefnd sjávarút-
vegsráðherra um langtímanýtingu
fiskstofna,“ segir ennfremur í
skýrslu stofnunarinnar.
Miðað við þær aðferðir sem Haf-
rannsóknastofnunin beitir við
stofnstærðarmat er ljóst að nauð-
synlegt er að draga úr veiðiálagi á
þorskstofninn.
Nauðsynlegt að draga
úr veiðum á þorski
Niðurstaðan úr togararallinu
í samræmi við síðustu ástandsskýrslu
Hafrannsóknastofnunarinnar
! ! "
!
#
#$
#%
#
#
& #'
)(
*(#'!
$(
%(
Í HNOTSKURN
»Á árunum frá 1984 til1995, fyrir aflareglu voru
veidd 750.000 tonn umfram
ráðleggingar fiskifræðinga.
»Öll árin heimiluðu stjórn-völd meiri veiðar en fiski-
fræðingar lögðu til og veið-
arnar voru ávallt meiri en
heimilt var
»Miðað við núverandi sókn-arþunga, veiðimynstur og
kynþroska hafi um 55% þorsks
úr hverjum árgangi verið
veidd áður en hann náði að
hrygna.
ÚR VERINU
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„ÉG HELD vissulega að þetta veki
nemendur til umhugsunar því verk-
efnin sem þau kljást við eru hin
sömu og bíða þeirra þegar út í lífið
kemur,“ segir Margrét Theodórs-
dóttir, skólastjóri Tjarnaskóla, en
skólinn sigraði í bekkjarkeppni
Raunveruleiksins, gagnvirks hermi-
leiks fyrir tíundu bekki grunnskóla
sem fram fer á Netinu. Í einstakl-
ingskeppni sigraði Unnur Svava
Sigurðardóttir, nemandi í Hvassa-
leitisskóla.
Raunveruleikurinn fer þannig
fram að í upphafi fær leikmaður,
sem 20 ára ungmenni á leið út í lífið
eftir framhaldsskóla, ákveðna byrj-
unarupphæð á bankareikning. Í
kjölfarið hefst keppni þar sem þátt-
takendur eiga að komast af og
þekkja og skilja hvernig lífið gengur
fyrir sig. Leikurinn er með fjár-
málaívafi og er tilgangurinn m.a. að
fræða nemendur um ábyrga með-
ferð fjármuna og neytendamál. Í
hverri viku þurfa þátttakendur að
leysa verkefni, finna sér vinnu eða
leggja stund á nám, kaupa í matinn
og láta enda ná saman. „Þau þurfa
að hafa fjármuni til að eiga fyrir
nauðsynjum og ef ekki er farið vel
með peningana gætu þau t.d. þurft
að sækja um yfirdráttarheimild.
Annars eru þau nú hvött til að
spara,“ segir Margrét og bætir við
að krakkarnir þurfi því t.a.m. að
sækja um námslán og reikna út
hversu mikið þau þurfa að greiða að
námi loknu. Þá er þeim jafnframt
gert að kynna sér fæðingarorlof,
barnabætur, rekstur bifreiða og
heimilis. „Þau eru því sett í þá stöðu
að þurfa að velta fyrir sér hvernig
hlutirnir ganga fyrir sig í raunveru-
leikanum.“
Kynbundinn launamunur eykst
Leiknum er ætlað að svara þörf
fyrir nútímalegt og vandað náms-
efni í lífsleikni – sem nefnist mann-
rækt í Tjarnaskóla – og tóku 86 tí-
undu bekkir úr 53 skólum þátt í ár,
alls 1.627 nemendur. Margrét segir
mikla ánægju með leikinn í skól-
anum, hvort sem er hjá nemendum
eða kennurum, og er hann dæmi um
námsgögn sem vantað hafa á þessu
sviði. „Þetta er svo einfalt, allt gert
rafrænt sem hentar nemendum afar
vel sem og að leikurinn hefur fallið
vel að skólastarfinu.“
Óhætt er að segja að athygl-
isverðar niðurstöður hafi komið
fram að leik loknum, ekki síst ef
borið er saman við fyrri ár. Þannig
voru meðaltekjur þátttakenda um
177 þúsund krónur á mánuði, sem
er sama upphæð og á síðasta ári.
Hins vegar hækkuðu tekjur karl-
kyns nemenda lítillega frá fyrra ári
og voru 182 þúsund krónur en kven-
kyns nemendur sættu sig hins vegar
við um 170 þúsund krónur á mánuði.
Það kemur því greinilega í ljós að
Raunveruleikurinn endurspeglar
raunveruleikann nokkuð vel.
„Kannski kemur það manni á óvart
að þetta skuli vera svona því þetta
er jú leikur og maður skyldi ætla að
næsta kynslóð kvenna ætti að vera
aðeins framsæknari,“ segir Mar-
grét.
Þegar litið er á hvaða starfs-
greinar nemendur völdu sér voru
flestir, eða 134, sem störfuðu sem
verkamenn og 89 þátttakendur
völdu að starfa sem lögfræðingar.
Þá voru um fimmtíu starfsmenn á
hóteli og fjörutíu lagerstarfsmenn.
Langflestir gengu hins vegar
menntaveginn og voru á náms-
lánum.
Aðspurð um hvað Unnur Svava
gerði til að sigra í leiknum segist
hún hafa verið nokkuð heppin. „Ég
fékk vinnu alveg strax auk þess sem
ég opnaði sparnaðarreikning sem
hjálpaði mér ábyggilega eitthvað.“
Kljást við raunveruleg verkefni
Morgunblaðið/G. Rúnar
Allir verðlaunahafar Landsbankinn veitti verðlaun fyrir góðan árangur, bæði í einstaklings- og bekkjarkeppni. Í
verðlaun voru Ipod Nano-tónhlaða og fékk sigurvegarinn í einstaklingskeppni einnig hátalara fyrir tónhlöðuna.
Í HNOTSKURN
»Raunveruleikurinn er gagn-virkur hermileikur á netinu
sem fræðir nemendur 10. bekkj-
ar um ábyrga meðferð fjármála
og neytendamál.
»Höfundur leiksins er ÓmarÖrn Magnússon, kennari í
Hagaskóla, og var hann upp-
haflega Excel-töflureiknings-
skjal og nýttur í lífsleikni í skól-
anum.
»Fyrir fimm árum hóf Ómarsamstarf við Landsbankann
um þróun á leiknum og liggur að
baki margra ára rannsóknar-,
hönnunar- og forritunarvinna
sem unnin hefur verið af vefdeild
Landsbankans.
»Fjöldi þátttakenda í leiknumvar 1.627 í 84 tíundu bekkj-
um grunnskóla.