Morgunblaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2007 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MP Fjárfestingarbanki hf. birtir í dag grunnlýsingu vegna útgáfu
víxla í Kauphöll Íslands. Á grundvelli lýsingarinnar verða skráðir
6 flokkar þann 20. apríl 2007, samtals að fjárhæð allt að 30
milljörðum króna í Kauphöll Íslands. Hver flokkur sem gefinn
verður út er að fjárhæð allt að 5 milljörðum króna. Víxlarnir eru
gefnir út í 5.000.000 kr. einingum og eru til allt að sex mánaða.
Það ræðst af upphafssölu hvers flokks hvort hann verður opinn
eða ekki.
Fyrirhugað er að allir víxilflokkarnir verði skráðir eigi síðar en
3. desember 2007.
Lýsingin er aðgengileg á heimasíðu bankans, www.mp.is, og
jafnframt má nálgast eintak af henni á skrifstofu bankans að
Skipholti 50d, 2. hæð, 105 Reykjavík, sími 540 3200, á tímabilinu
20. apríl 2007 til 20. apríl 2008.
Reykjavík, 20. apríl 2007
MP Fjárfestingarbanki hf.
TILKYNNING UM BIRTINGU LÝSINGAR
-
.
/
VIÐSKIPTIN með hlutabréfin í
Glitni um páskana, er félög tengd
Einari Sveinssyni og Karli Werners-
syni seldu mest alla sína hluti, eru
enn til meðferðar hjá Fjármálaeft-
irlitinu og yfirtökunefnd kauphallar-
innar. Viðar Már Matthíasson, for-
maður yfirtökunefndar, segir að
öflun gagna og samtöl við málsaðila
standi enn yfir. Nýbúið sé að færa
viðskiptin í hluthafaskrá Glitnis og
fljótlega muni skýrast hvort við-
skiptin þarfnist sérstakrar rann-
sóknar í ljósi yfirtökureglna kaup-
hallarinnar.
Eftir lok viðskipta á miðvikudag
var nýr listi birtur yfir 20 stærstu
hluthafa Glitnis. Þar eru félög á veg-
um FL Group skráð með alls 26,3%
hlut en með framvirkum samningum
við ýmsa banka má ætla að hluturinn
sé í kringum 30%, líkt og hann er
sagður í ársskýrslu FL Group hafa
verið um síðustu áramót. Á listanum
eru komnir nýir hluthafar eins og
Saxbygg Invest og Jötunn Holding,
sem er í eigu Baugs, Fons og Skot-
ans Toms Hunter.
Á meðfylgjandi lista eru 14
stærstu hluthafar en þar fyrir neðan
koma Lífeyrissjóður verslunar-
manna, Alnus, Gildi-lífeyrissjóður,
Seppo Juhani Sairanen, Elliðahamar
og Landsýn. Tuttugu stærstu eiga
samanlagt 71,8% hlut í Glitni. Hlut-
hafafundur hefur verið boðaður 30.
apríl nk. þar sem tillaga verður gerð
um nýja stjórn.
Viðskiptin í Glitni
enn til skoðunar
<
D
E
F
G
H
I
<
D
E
=/./+
=/.$+%(
6;B
(8
.-
(8
*
J-1
B(8
57+
(8
*+
(8
=/.$(8
8
4
$"
-
(8
*
K
;
10L,M
-
/ 812
((
8
*
2$
2$$
● HRANNAR Pét-
ursson, sem hef-
ur verið upplýs-
ingafulltrúi Alcan
í Straumsvík und-
anfarin átta ár,
hefur verið ráðinn
til sambærilegra
starfa hjá Voda-
fone á Íslandi
sem for-
stöðumaður al-
mannatengsla. Hætti Hrannar störf-
um í Straumsvík síðasta vetrardag. Í
tilkynningu frá Vodafone kemur fram
að gengið hafi verið frá ráðningunni
snemma árs en samkomulag gert
um að Hrannar lyki ákveðnum verk-
efnum hjá Alcan áður en hann kæmi
til starfa hjá Vodafone. Er þar vænt-
anlega m.a. átt við íbúakosningarnar
í Hafnarfirði.
Frá Alcan í Straums-
vík til Vodafone
Hrannar
Pétursson
● EIGENDUR danska útgáfufyrirtæk-
isins Berlingske Officin hafa ákveðið
að hætta útgáfu fríblaðsins Dato og
sameina það undir merkjum Urban,
sem einnig er dreift frítt. Haft er eftir
Lasse Bolander hjá Berlingske Offic-
in að ekki hafi reynst markaður fyrir
blað eins og Dato. Stærsta vanda-
málið hafi verið morgundreifing
blaðsins. Hvorki lesendum né auglýs-
endum hafi hugnast Dato en meiri
vonir séu bundnar við Urban eftir
samrunann. Um helmingi starfs-
manna Dato hefur verið sagt upp.
Keppinautarnir á fríblaðamarkaðnum
gráta ekki örlög Dato. David Trads,
ritstjóri Nyhedsavisen, sagði í dönsk-
um fjölmiðlum í gær að endalok Dato
kæmu sér ekki á óvart.
Danska fríblaðið Dato
hættir að koma út
● HAFT er eftir
Hreiðari Má Sig-
urðssyni, for-
stjóra Kaupþings,
í norska við-
skiptablaðinu
Dagens Nærings-
liv í gær að bank-
inn hafi ekki uppi
áform um að eign-
ast Storebrand
að fullu og sækist
ekki eftir stjórnarsæti. Bankinn ætli
sér ekki meira en þau 20% sem
hann hefur heimild fyrir frá norska
fjármálaeftirlitinu en bankinn á rúm
15% í Storebrand. Þá segist Hreiðar
Már ekki vera sömu skoðunar og eft-
irlitið um að Kaupþing sé of áhættu-
sækinn banki og reynslulítill í trygg-
ingastarfsemi til að eignast 25% hlut
í Storebrand. Er haft eftir Hreiðari Má
að Kaupþing sé ekki íslenskur banki
heldur norður-evrópskur.
Kaupþing mun ekki
eignast Storebrand
Hreiðar Már
Sigurðsson
FYRIRTÆKIÐ Lýsi hf. fékk í gær
Útflutningsverðlaun forseta Íslands
árið 2007. Ólafur Ragnar Grímsson
afhenti Katrínu Pétursdóttur, for-
stjóra Lýsis, verðlaunin en þau
voru veitt í nítjánda sinn.
Valur Valsson, formaður úthlut-
unarnefndar, sagði m.a. í ávarpi
sínu að Lýsi fengi verðlaunin fyrir
einstakan árangur sem fyrirtækið
hefði náð í sölu- og markaðsmálum
á afurðum úr lýsi. Fyrirtækið væri
góður fulltrúi fyrir þann vaxandi
fjölda íslenskra fyrirtækja, sem
haslaði sér völl á alþjóðlegum neyt-
endamarkaði. Áætluð sala Lýsis á
árinu losar tvo milljarða króna og
vörurnar eru í boði í 67 löndum.
Fyrir fjórum árum var velta Lýsis
um 800 milljónir króna.
Verðlaunagripurinn í ár var
gerður af Leifi Breiðfjörð myndlist-
armanni og nefnist Kjarni.
Útflutningsverðlaunin til Lýsis
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
ÞETTA HELST ...
● VEGNA sumardagsins fyrsta var
lokað í kauphöll OMX á Íslandi og því
engin viðskipti þar í gær. Hins vegar
voru allar aðrar kauphallir heims
opnar. Í flestum þeirra urðu óveru-
legar breytingar á hlutabréfaverði. Í
kauphöllunum í Kaupmannahöfn og
Helsinki urðu lítilsháttar hækkanir á
hlutabréfavísitölunum en lækkanir í
Stokkhólmi og Osló.
Lokað í kauphöll
TEKIST hefur samkomulag milli Ís-
lands og Indlands um gerð tvískött-
unarsamnings, að því er fram kemur
í vefriti utanríkisráðuneytisins,
Stiklum. Þar segir að samningsdrög-
in hafi verið árituð af formönnum
samninganefndanna á fundi sem
haldinn var í Reykjavík í lok mars
síðastliðins.
Stefnt er að því að samningurinn
verði undirritaður eins fljótt og auðið
er. Nær hann aðeins til tekjuskatta
og helstu efnisatriði samningsins
varða 10% afdráttarskatt af arði,
vöxtum og þóknunum.
Í Stiklum segir að Indland hafi
tekið upp sérstakt takmarkandi
ákvæði sem ætlað sé að tryggja að
einungis þeir skattaðilar sem upp-
fylla skilyrði njóti ívilnana samn-
ingsins.
Jafnframt var samið um upplýs-
ingaskipti á milli landanna varðandi
þá skatta sem samningurinn nær til,
svo og um aðstoð við innheimtu
skatta. Samkvæmt samningsdrög-
unum verður svonefndri frádráttar-
aðferð beitt í því skyni að koma í veg
fyrir tvísköttun tekna.
Talið er að gerð samningsins geti
skipt miklu fyrir útrás íslenskra fyr-
irtækja til Indlands.
Samið
um tví-
sköttun
Drög að samningi
gerð við Indland
Tvísköttun Með samningi við Ind-
verja gætu viðskipti við þá aukist.
● AÐ mati Fjármálaeftirlitsins (FME)
er regluvarsla almennt í góðu lagi hjá
Akureyrarbæ og KEA. FME gerði fyrr
á árinu reglubundna úttekt á fram-
kvæmd reglna um meðferð inn-
herjaupplýsinga og viðskipta inn-
herja vegna skráðra skuldabréfa hjá
báðum þessum fyrirtækjum. Það
kemur hins vegar fram í úttektinni að
bent hafi verið á nokkur atriði sem
betur mega fara, einkum hjá Akureyr-
arbæ.
Regluvarsla í lagi