Morgunblaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
E
itt er víst; metin munu
falla, flest ef ekki öll.
Baráttan fyrir forseta-
kosningarnar í Banda-
ríkjunum haustið 2008
verður sú dýrasta í sögunni. Giskað
hefur verið á að frambjóðendur muni
alls hafa varið einum milljarði
Bandaríkjadala, rúmum 65 millj-
örðum króna, þegar kjördagur renn-
ur upp vestra. Nú beinist hins vegar
athyglin að árangri frambjóðenda á
sviði fjáröflunar; peningar eru afl
þeirra hluta sem gjöra skal í banda-
rískum stjórnmálum og árangur á
þeim vettvangi þykir gefa mik-
ilvægar vísbendingar um stöðu og
sigurlíkur þeirra sem ákveðið hafa að
gefa kost á sér.
Frá því var skýrt um liðna helgi að
Hillary Rodham Clinton, öldunga-
deildarþingmaður Demókrataflokks-
ins og fyrrum forsetafrú, hefði náð að
safna 36 milljónum Bandaríkjadala,
um 2.350 milljónum króna, á fyrsta
fjórðungi ársins. Clinton, sem nýtur
mests fylgis frambjóðenda demó-
krata ef marka má skoðanakannanir,
setti með þessu nýtt met í bandarísk-
um stjórnmálum.
Starfsmenn framboðsins fengu
ekki leynt gleði sinni er þeir gerðu
grein fyrir þessari niðurstöðu. Fram
kom að 26 milljóna dala hefði verið
aflað frá því að framboðinu var
hleypt af stokkunum síðla í jan-
úarmánuði og fram til 31. mars. Tíu
milljónir dala til viðbótar hefðu verið
færðar af reikningum, sem opnaðir
voru er öldungadeildarþingmaðurinn
sóttist eftir endurkjöri í fyrra. Fimm
milljónum dala hefði þegar verið var-
ið í þágu framboðsins og hefði frúin
því 31 milljón dala, rétt rúmar 2.000
milljónir króna, tiltæka.
„Tölur þessar sýna þann gríð-
armikla stuðning sem Clinton öld-
ungadeildarþingmaður nýtur innan
allra hópa og alls staðar í Bandaríkj-
unum og tryggja um leið að við mun-
um ráða yfir þeim fjármunum sem
nauðsynlegir eru til að taka þátt og
vinna,“ sagði Patti Solis Doyle, kosn-
ingastjóri Hillary Clinton, af þessu
tilefni.
Raunar höfðu fregnir af ótrúlegu
gengi Hillary Clinton á sviði fjáröfl-
unar borist í byrjun mánaðarins. Þar
ræddi um herbragð, sem viðtekið er í
því skyni að sýna fram á sterka stöðu
frambjóðandans; gengi í skoð-
anakönnunum í nokkrum lykilríkjum
og árangur á sviði fjáröflunar er haft
til marks um stöðu frambjóðenda á
upphafsstigum kosningabarátt-
unnar. Í bandarískum stjórnmálum
hafa peningarnir einnig tilhneigingu
til að leita þangað þar sem þeir eru
fyrir. Reynslan sýnir að miklu getur
skipt að ná forystu á þessum sviðum
svo snemma og viðkomandi getur
jafnvel náð að hrista nokkra keppi-
nauta af sér. Verulegar líkur eru á að
sá frambjóðandi sem efst stendur að
þessu leyti við lok þessa árs hljóti út-
nefningu flokks síns sem forseta-
frambjóðandi. Ljóst er að eigi þessi
viðteknu sannindi við nú um stundir
er staða Hillary Clinton afar sterk.
Mikill stuðningur við Obama
En örugg er hún engan veginn.
Hafi árangur forsetafrúarinnar fyrr-
verandi komið á óvart ráku menn
ekki síður upp stór augu þegar upp-
lýst var að Barack Obama, öld-
ungadeildarþingmaður frá Illinois,
hefði náð að raka saman 25,8 millj-
ónum Bandaríkjadala, tæplega 1.700
milljónum króna, til að fjármagna
baráttuna vegna forkosninga innan
Demókrataflokksins. Tilkynningunni
fylgdi að Obama hefði nú varið 6,6,
milljónum dala og hefði því til reiðu
19,2 milljónir, rúmar 1.200 milljónir
króna. Þessi árangur er lyginni lík-
astur þegar horft er til þess að
Obama er nýgræðingur á sviði lands-
mála, hefur t.a.m. aðeins rúmlega
tveggja ára reynslu af setu í öld-
ungadeildinni.
Ekki vakti síður athygli að um
104.000 manns höfðu styrkt framboð
Obama samanborið við um 60.000,
sem höfðu látið fé af hendi rakna til
Hillary Clinton. Þetta telst mik-
ilvægt og er haft til marks um að
Obama hafði öðrum frambjóðendum
fremur náð að tryggja stöðu sína í
grasrót Demókrataflokksins. Þriðji
maðurinn í forkosningum Demó-
krataflokksins, John Edwards, fyrr-
um öldungadeildarþingmaður og
varaforsetaefni flokksins árið 2004,
hefur nú tiltækar rúmlega tíu millj-
ónir Bandaríkjadala, um 650 millj-
ónir króna, og hefur þegar varið 3,3,
milljónum dala til að kynna framboð
sitt.
Giuliani efstur repúblíkana
Á meðal repúblíkana er staðan um
margt óskýr. Mitt Romney, fyrrum
ríkisstjóri Massachusetts, náði að
safna 21 milljón dala, tæpum 1.400
milljónum króna, á fyrstu þremur
mánuðum ársins. Næstur kemur
Rudolph Giuliani, fyrrum borgar-
stjóri New York, með 15 milljónir
dala og þriðji er John McCain, stríðs-
hetja og öldungadeildarþingmaður
frá Arizona, með 12,5 miljónir dala. Í
skoðanakönnunum mælist forskot
Giulianis yfirleitt nokkuð traust en
þó er þess að geta að McCain hefur
naumt forskot samkvæmt könnunum
í New Hampshire. Staðan í New
Hampshire vekur jafnan athygli og
umtal þar sem fyrstu forkosningarn-
ar fara fram þar. Gott gengi Romn-
eys á sviði fjáröflunar hefur enn ekki
skilað sér í skoðanakönnunum og
vera má að svo verði einfaldlega ekki.
Almennt nægir auðurinn einn og sér
ekki til að tryggja árangur. Nokkuð
kemur á óvart hversu erfið staða
Johns McCains virðist vera á upp-
hafsstigum baráttunnar. Vera kann
að stuðningur við innrásina í Írak
valdi nokkru þar um þótt tæpast dugi
sú skýring ein og sér.
Strangar reglur gilda um fjár-
söfnun frambjóðenda og mega ein-
staklingar t.a.m. aðeins styrkja
hvern frambjóðanda um 2.300 dali,
um 150 þúsund krónur. Á hinn
bóginn geta fyrirtæki og ein-
staklingar farið framhjá reglum
þessum með ýmsu móti t.a.m. með
því að styrkja svonefndar „stjórn-
málanefndir“ (e. „Political Action
Committee“) frambjóðenda. Há-
marksframlag er þá 10.000 dalir.
Opinber stuðningur
sennilega afþakkaður
Rúm 30 ár eru nú liðin frá því að
komið var á opinberum stuðningi við
forsetaframbjóðendur í Bandaríkj-
unum og á það við um forkosningar
flokkanna (með ákveðnum takmörk-
unum þó), styrk vegna flokksþinga
og kostnað við kosningarnar sjálfar,
þ.e. þegar ferli forkosninga er lokið
og fyrir liggur hverjir verða fram-
bjóðendur stóru flokkanna tveggja.
Kerfið virkar á þann veg, að fram-
bjóðendur gefa upp hversu mikils
fjár þeir hafa aflað og leggur rík-
isvaldið síðan fram upphæð á móti,
þó ekki meira en sem nemur 100 döl-
um fyrir hvert einstakt framlag.
Gegn því að þiggja framlag þetta
skuldbinda frambjóðendur sig til að
halda í heiðri þær reglur sem fylgja
stuðningnum. Víst þykir nú að helstu
frambjóðendur muni afþakka styrk
þennan. Með því móti verða engar
hömlur lagðar á þá fjármuni sem
frambjóðendum er heimilt að verja í
kosningabaráttunni.
Ýmsir hafa áhyggjur af sívaxandi
vægi fjármuna í bandarískum stjórn-
málum. Ekki verður sagt að slíkar at-
hugasemdir teljist nýlunda. Athygli
vekur hversu vel frambjóðendum
Demókrataflokksins gengur á sviði
fjáröflunar; nærri lætur að þeir hafi
náð að safna átta dölum fyrir hverja
fimm, sem repúblíkönum hefur tekist
að krækja í. Barack Obama, sem
forðum varð tíðrætt um neikvæð
áhrif peninga í bandarískum stjórn-
málum, hefur komist nærri því að
biðjast afsökunar á velgengni sinni á
þessu sviði og í röðum fjenda hans
sem samherja heyrast þær raddir að
honum kunni að reynast erfitt að við-
halda þeirri ímynd sinni að hann sé
„óspilltur“ nýliði með óhefðbundna
sýn til samfélags og stjórnmála.
Hið sama á raunar við um Hillary
Clinton; andstæðingar hennar vísa til
þess að hún hafi stutt innrásina í Írak
og hyggist sýnilega taka fullan þátt í
hinum karllægu stjórnmálum pen-
inga og auglýsingamennsku. Á móti
hljóta menn að spyrja hvort fram-
bjóðendur í Bandaríkjunum geti gert
sér nokkra von um árangur ákveði
þeir hinir sömu að hundsa hinn póli-
tíska veruleika.
Árangur Hillary Clinton á pen-
ingasviðinu sem og í skoðanakönn-
unum þýðir að hún hefur náð forystu
á upphafsstigum baráttunnar innan
Demókrataflokksins. Ljóst er að hún
nýtur góðs af því að andstaðan er
klofin í tvær fylkingar þeirra Obama
og Edwards. Að auki er það svo að
hún er þekktust frambjóðenda og
flestar umdeildari hliðar persónu
hennar og ferils liggja fyrir. Það mun
svo aftur gera andstæðingunum erf-
itt fyrir þegar blásið verður til við-
tekinna auglýsingaherferða í því
skyni að sverta hana í augum al-
mennings.
Öll met slegin í fjáröflun
Frambjóðendur í forsetakosningunum í Bandaríkjunum raka nú saman áður óþekktum fjár-
hæðum og ljóst er að útgjöldin verða með öllu hömlulaus fram að kjördegi á næsta ári
Reuters
Kosningavél Barátta Hillary Rodham Clinton þykir afar skilvirk og hún
ræður nú þegar yfir gríðarlegum fjármunum.
Reuters
Nýliðinn Barack Obama þykir öflugur frambjóðandi þótt ekki búi hann
yfir mikilli reynslu, hefur aðeins setið tvö ár í öldungadeildinni.