Morgunblaðið - 20.04.2007, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
3.000kr.SPARAÐU 3.000kr.SPARAÐU 3.000SPARAÐU
3.000kr.SPARAÐU 3.000kr.SPARAÐU
Vnr.65744655
Hrærivél
BOSCH hrærivél og matvinnsluvél með 3 blöðum,
hakkavél, blandara og fylgihlutum. Mjög hljóðlát, 500W.
12.995
15.995
Aðeins ein hrærivél á mann GÆÐI Á LÆGRA VERÐI
GI
LD
IR
AÐ
EINS
Í DAG
á m
eða
n birgði
r endast!
Í DAG heldur Andrew Talle
fyrirlestur í Listaháskóla Ís-
lands sem nefnist; „Audience
Demographics for J. S. Bach’s
Most Popular Music: The Six
Keyboard Partitas, Opus 1“ og
fjallar um útgáfu Bachs á sex
hljómborðspartítum sínum
sem komu út á prenti árið 1731
og voru fyrsta verk hans til að
ná verulegri útbreiðslu á
nótnamarkaði. Talle er tónlist-
arfræðingur og prófessor við Peabody-tónlist-
arháskólann í Baltimore.
Fyrirlesturinn hefst kl. 12 á 3. hæð Listahá-
skóla Íslands, Sölvhólsgötu 13, og er opinn öllum.
Fyrirlestur
Fjallar um einleiks-
partítur Bachs
Tónskáldið
Bach.
HELGINA 20.–22. apríl stend-
ur bókmenntahópur og fram-
sagnarhópur félagsmiðstöðv-
arinnar Hæðargarði 31 fyrir
menningarferð að Hala í Suð-
ursveit ásamt Tungubrjótum
félagsmiðstöðvarinnar Dal-
braut 18–20 og bókmennta-
klúbbi Hana-nú sem starfar á
vegum Bókasafns Kópavogs.
Hluti þessa hóps stendur
fyrir opinberri dagskrá um
Þórberg Þórðarson að Hala laugardagskvöldið
21. apríl sem hefst kl. 20:30. Dagskránni stýra
leikararnir Soffía Jakobsdóttir og Guðný Helga-
dóttir.
Menningarreisa
Opin dagskrá um
Þórberg Þórðarson
Þórbergur
Þórðarson
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ stendur
fyrir kynningu á Sædýrasafn-
inu, nýju leikriti eftir frönsku
skáldkonuna Marie Darrieus-
secq, í Leikhúskjallaranum á
morgun, 21. apríl, kl. 15. Dag-
skráin er einn af viðburðum í
Viku bókarinnar og liður í
frönsku menningarkynning-
unni Pourquoi Pas – Franskt
vor á Íslandi.
Sædýrasafnið er nýtt leikrit
sem Darrieussecq skrifaði sérstaklega fyrir Þjóð-
leikhúsið og verður sýnt árið 2008.
Aðgangur að dagskránni er ókeypis og öllum
opinn.
Leikhús
Kynning á leikrit-
inu Sædýrasafnið
Marie
Darrieussecq
einleik með hljómsveitinni; ég hef
ekki komið fram á stórtónleikum á
hverju ári, en næstum því, svo ég
held ég skjóti á 25 skipti.“
Rómantík og
sígaunahasar
Á tónleikunum á föstudagskvöldið
leikur Guðný Rómönsu í f-moll op. 11
eftir Antonín Dvorák og Sígaunann
eftir Maurice Ravel.
„Það má segja að það hafi verið
kynslóð á milli þessara manna,“ segir
Guðný. „Dvorák fæddist 1841 og
Ravel var 34 árum yngri.
Tónlist Dvorák er mjög lituð af
þjóðlögum, hún er lagræn og falleg.
Þar sem þetta verk er opus 11 hefur
hann samið það ungur og eins og
Rómönsunafnið bendir til er það
Eftir Freystein Jóhannsson
freysteinn@mbl.is
Guðný Guðmundsdóttir fiðlu-leikari leikur einleik meðSinfóníuhljómsveit Íslandsí kvöld; föstudagskvöld. Í
kynningu hljómsveitarinnar segir, að
saga sinfóníunnar síðustu áratugi sé
að miklu leyti líka saga Guðnýjar.
„Hún er að mörgu leyti ásjóna Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands og í þau 33
ár sem hún hefur verið konsertmeist-
ari hefur hún leikið einleik með
hljómsveitinni svo oft að varla verður
tölu á komið.“
„Já, þetta er orðinn nokkur tími,
sem ég hef verið viðloðandi hljóm-
sveitina,“ segir Guðný. „Ég hef nú
ekki talið þau skipti, sem ég hef leikið
mjög rómantískt, hugljúft og fullt af
fallegum laglínum. En það er í því
sterkur dramatískur undirtónn.
Ég er búin að þekkja þetta verk frá
því ég var unglingur. Ég hef aldrei
leikið það á sinfóníutónleikum áður,
en fyrir 20 árum spilaði ég það með
sinfóníuhljómsveit fyrir útvarpið. Ég
hef hins vegar oft flutt það með
píanóundirleik. En auðvitað er allt
annað að hafa heila hljómsveit með
sér á tónleikum og ég hlakka svo
sannarlega til þess.
Sígauninn eftir Ravel er líka vin-
sælt fiðluverk. Það var gefið út 1924,
en Ravel dó 1937. Í þessu verki notar
hann öll bellibrögð sem hægt er að
gera á fiðlu þannig að þetta er ekta
sígaunatónlist, mjög fjörug! Reyndar
er inngangurinn hægur á köflum, en
fullur af ýmsum hundakúnstum og
miklum skapbrigðum, þar sem fiðlan
hljómar ein í fimm mínútur. Svo kem-
ur hljómsveitin til sögunnar og þá
æsist nú leikurinn! Þar leikur harpan
stórt hlutverk. Og stígandinn eykst
og eykst. Vonandi haldast allir á baki
í endasprettinum!“
Guðný hefur leikið þetta verk „einu
sinni eða tvisvar“ með sinfóníu-
hljómsveitinni, síðast fyrir um 20 ár-
um. En eins og með Rómönsu
Dvoráks hefur hún haft það oft á efn-
isskránni með píanóundirleik.
Spilar undir hjá San
Fransiskó-ballettinum
Guðný Guðmundsdóttir hefur ekki
einasta lagt íslenzku tónlistarlífi lið
með fiðluleik sínum, heldur hefur hún
og kennt fjölda fiðluleikara, þar á
meðal Sigrúnu Eðvaldsdóttur sem nú
deilir konsertmeistarastöðunni með
Guðnýju.
Ætli hún beri ábyrgð á öllum fiðlu-
leikurunum í sinfóníuhljómsveitinni?
„Ég ber töluverða ábyrgð, en ekki á
öllum. Það hefur nokkrum tekizt að
verða góðir fiðluleikarar án mín. Sem
betur fer!“ segir hún og hlær. En hún
skorast ekki undan því að kons-
ertmeistarinn beri ábyrgð á þeim öll-
um!
Í þann stól verður hún komin aftur
strax í næstu viku, þegar æfingar
hefjast fyrir næstu sinfóníutónleika.
Maður skyldi ætla að fátt gæti orðið í
fyrsta sinni hjá manneskju með
hennar reynslu, en framundan er að
spila með San Fransiskó-ballettinum
á Listahátíð. „Það verður nýtt að
spila undir fyrir ballett,“ segir hún og
getur ekki leynt tilhlökkuninni. „Þeir
koma með sinn eigin píanóleikara
sem ég get leitað í smiðju til, því við
verðum uppi á sviði, þar sem dans-
ararnir dansa. Mér finnst þetta af-
skaplega spennandi!“
Hún nefnir líka tónlistarhátíðina
Bjartar sumarnætur í Hveragerði og
í júní fer hún til Texas, á tónlist-
arhátíð, þar sem hún bæði kennir og
spilar. Sumarfrí? „Það stendur í
dagatalinu við einhverja daga í júlí.
Sennilega tekst mér að standa við
þá!“
Forleikur úr óperu Rossinis
Auk einleiks Guðnýjar verða á tón-
leikunum í kvöld forleikurinn úr
óperu Rossinis; La gazza ladra, og
sinfónía nr. 1 eftir Sergej Rhakman-
ínov. Hljómsveitarstjóri er Bretinn
Owain Arwell Hughes.
Guðný Guðmundsdóttir konsertmeistari leikur einleik með Sinfóníuhljómsveitinni
Öll bellibrögð fiðlunnar
Tilbúin Guðný Guðmundsdóttir er hvergi smeyk við Sígauna Ravels, þó hún megi hafa sig alla við til að klára verkið.
Morgunblaðið/Ásdís
KVIKMYNDA- og sviðsleikkonan
Kitty Carlisle Hart er látin, 96 ára
að aldri. Hart er frægust fyrir hlut-
verk sitt í kvikmyndinni A Night at
the Opera árið 1935 og fyrir að
vera meðlimur dómnefndar í
bandaríska sjónvarpsþættinum To
Tell the Truth á fimmta og sjötta
áratugnum.
Eiginmaður Hart var Pulitzer-
verðlaunahafinn og leikritaskáldið
Moss Hart.
Kitty
Carlisle Hart
er látin
Þótti innblásinn
skemmtikraftur