Morgunblaðið - 20.04.2007, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2007 51
Skartgripir
Fjallkonunnar
Reynomatic
Café Mílanó
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30. Vinnustofan opin
kl. 9-16.30. Bingó kl. 14. Söngstund við píanóið kl.
15.30.
Árskógar 4 | Kl. 8.15-16 baðþjónusta. Kl. 9-12 opin
handavinnustofa. Kl. 9-16.30 opin smíðastofa. Kl.
13.30 bingó, ekki í dag (2. og 4. föstudag í mánuði).
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, almenn
handavinna, morgunkaffi/dagblöð, fótaaðgerð, há-
degisverður, frjálst að spila í sal, kaffi. Opið hús
verður í Bólstaðarhlíð laugardaginn 5. maí og
sunnudaginn 6. maí kl. 13, nánar auglýst síðar. Upp-
lýsingar í síma 535-2760.
FEBÁ, Álftanesi | Gönguhópurinn hittist þriðju-
dags- og föstudagsmorgna kl. 10 við Litlakot. Geng-
ið í u.þ.b. klst. á hraða sem hentar öllum. Kaffi í
Litlakoti eftir gönguna. Nýtt fólk velkomið. Litlakot
föstudaginn 20. apríl og mánudaginn 23.apríl. Vil-
borgardagur. Spreytum okkur á að gera dúkkur og
aðrar taufígúrur. Gott úrval af sniðum á staðnum
og eitthvað af efni. Akstur annast Auður og Lindi.
Sími 565-0952.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Munið aðalfund
Seyðfirðingafélagsins, sem haldinn verður í Gull-
smára 13, sal eldri borgara í Kópavogi, laugardag-
inn 21. apríl klukkan 14. FEBK. Skvettuball verður í
félagsheimilinu Gullsmára, Gullsmára 13, laug-
ardaginn 21. apríl kl. 20-23. Miðaverð 500 krónur.
Þorvaldur Halldórsson leikur og syngur fyrir dansi.
Síðasta Skvettuballið í vetur.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferðanefnd | Ævin-
týri í Póllandi: Félag eldri borgara í Kópavogi efnir
til vorferðar 23.-28. maí undir fararstjórn dr. Þor-
leifs Friðrikssonar, sagnfræðings. Upplýsingar og
skráningarlistar á töflum í Gjábakka og Gullsmára.
Kynningarfundir verða föstudaginn 20. apríl í Gjá-
bakka kl. 15.45 og Gullsmára kl. 15. Ath. breyttan
tíma.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Almennur fé-
lagsfundur um réttindamál aldraðra verður í
Stangarhyl 4, á morgunn, laugardag 21. apríl, kl.14.
Brynhildur Flóvenz lögfr. og form stjórnar Mann-
réttindaskrifstofu mun ræða um réttindamál aldr-
aðra. Vorfagnaður verður haldinn föstudaginn 27.
apríl kl. 20. Fjölbreytt dagskrá, kaffiveitingar og
dans.
Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl. 9.30. Jóga kl.
10.50. Málm- og silfursmíði kl. 13. Fjölbreytt dag-
skrá í tilefni sumarkomu kl. 14, m.a. einsöngur,
sumri fagnað, tónlistaratriði, ferðakynning FEBK á
Póllandsferð í maí. Vöfflukaffi, kr. 400. Allir vel-
komnir. Félagsvist kl. 20.30.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9 vefnaður, kl.
9.30 jóga, kl. 10 ganga, kl. 10.30 leikfimi, kl. 11.40
hádegisverður, kl. 14 söngur gleðigjafanna. Eldri
borgarar syngja saman undir stjórn Guðmundar
Magnússon. Að loknum söngnum, um kl. 15 kynnir
Félag eldri borgara áætlaðar sumarferðir félagsins
þetta árið.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl.
12 í Mýri. Bútasaumur og ullarþæfing kl. 13 í Kirkju-
hvoli. Síðasta félagsvist fyrir sumarfrí í Garðabergi
kl.13, Garðaberg opið til kl. 16.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9-16.30 vinnustofur
opnar m.a. bókband e.hádegi. Kl. 10.30 lancier
dans, undirbúningur fyrir Landsmót UMFÍ. Allir vel-
komnir (karlmenn vantar til þátttöku). Kl. 10.30 létt
ganga um nágrennið. Frá hádegi spilasalur opinn.
Kl. 13 kóræfing. Uppl.á staðnum og s. 575–7720.
Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 9, aðstoð við
böðun, smíðar. Kl. 14, messa, prestur sr. Guðný
Hallgrímsdóttir. Furugerðiskórinn syngur undir
stjórn Ingunnar Guðmundsdóttur. Kaffiveitingar
eftir messu.
Hraunbær 105 | Kl. 9-12.30 handavinna. Kl. 9.15-
10.15 göngu/skokkhópur. Kl. 9 baðþjónusta. Kl. 9-12
útskurður. Kl. 12-12.30 hádegismatur. Kl. 14.45
bókabíllinn. Kl. 14 bingó. Kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9-12.15, Björg F. Opin
vinnustofa kl. 9-12, postulínsmálning. Bingó kl.
13.30, spilaðar 6 umferðir, kaffi og meðlæti í hléi.
Hársnyrting 517-3005/ 849-8029.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Leikfimi í salnum kl.
11. „Opið hús“, spilað á spil, vist/brids kl. 13.
Kaffiveitingar kl. 14.30. Upplýsingar í síma 552-
4161.
Vesturgata 7 | Kl. 13.30-14.30 sungið við flygilinn
við undirleik Sigurgeirs Björgvinssonar. Kl. 14.30-16
dansað í aðalsal við lagaval Sigurgeirs. Rjómaterta
í kaffitímanum. Allir velkomnir.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9-12.30, leir-
mótun kl. 9-13, morgunstund kl. 9.30-10, hár-
greiðslu og fótaaðgerðarstofa opnar frá kl. 9, leik-
fimi kl. 10-11, Bingó kl. 13.30, allir velkomnir.
Félagsmiðstöðin er opin fyrir alla aldurshópa.
Þórðarsveigur 3 | Kl. 13 opinn salur.
Kirkjustarf
Áskirkja | Djákni Áskirkju verður með samveru-
stund, hreyfingu og bæn á Dalbraut 27, kl. 10.15 í
dag.
Fríkirkjan Kefas | Unglingasamkoma kl. 20. Biblíu-
fræðsla, söngur og samvera. Allir unglingar vel-
komnir.
50ára afmæli. Guð-mundur Sigþórsson
framkvæmdastjóri, Laugar-
nesvegi 86, 105 Reykjavík, er
fimmtugur í dag. Hann er með
opið hús í kvöld og tekur á
móti ættingjum, vinum og
samferðafólki í Tónlistarhús-
inu Ými við Skógarhlíð kl. 20–
23. Boðið verður upp á léttar
veitingar, söng og gamanmál.
50ára afmæli. Ævar Ein-arsson, verkefnastjóri
og mansavinur, Hlíðarvegi 4,
430 Suðureyri, er fimmtugur í
dag. Hann og fjölskylda hans
taka á móti vinum og vanda-
mönnum í nýuppgerðum
frystiklefa Íslandssögu frá kl.
19.
dagbók
Í dag er föstudagur 20. apríl, 110. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Þú hefur breytt eftir mér í kenningu, hegðun, ásetningi, trú, langlyndi, kærleika, þolgæði. (Tím. 3, 10.)
Ferðamál til framtíðar er yfir-skrift málþings um ferðamálí Dalvíkurbyggð sem haldiðverður 21. apríl næstkom-
andi. Að málþinginu standa Ferðatröll
– ferðamálafélag Dalvíkurbyggðar í
samvinnu við Ferðamálasetur Íslands,
Framfarafélag Dalvíkurbyggðar og At-
vinnumálanefnd Dalvíkurbyggðar.
„Eins og yfirskriftin gefur til kynna
er tilgangur málþingsins að skoða
framtíðarmöguleika ferðaþjónustu í
Dalvíkurbyggð og Tröllaskaganum,“
segir Selma Dögg Sigurjónsdóttir,
upplýsingafulltrúi Dalvíkurbyggðar.
„Við viljum efla tengsl ferðaþjónust-
unnar við aðrar atvinnugreinar á svæð-
inu og fá skýrari mynd af hagrænum
áhrifum ferðamennsku fyrir sam-
félagið á svæðinu í heild sinni.“
Málþingið er haldið í aðalsal Dalvík-
urskóla og stendur frá 11 til 16. „Fyrri
helmingur þingsins er helgaður fyrir-
lestrum. Kolbrún Reynisdóttir formað-
ur Ferðatrölla opnar þingið og Svan-
fríður Inga Jónasdóttir bæjarstjóri
Dalvíkurbyggðar heldur ávarp,“ segir
Selma Dögg. „Guðrún Þóra Gunnars-
dóttir deildarstjóri ferðamáladeildar
Hólaháskóla fjallar um ferðaþjónustu í
dreifbýli, Edward Huijbens forstöðu-
maður Ferðamálaseturs fjallar um
hagræn áhrif ferðaþjónustu og teng-
ingu við atvinnulíf og Svarfdælingurinn
Kristján Eldjárn fjallar um sögu og
náttúrufar svæðisins.“ Á seinni hluta
dagskrárinnar verður m.a. kynning á
matvælum úr héraði, sýnd stuttmynd
um fjallaskíðamennsku á Tröllaskag-
anum og sömuleiðis kynnt heilsutengd
ferðaþjónusta á svæðinu. „Að loknum
fyrirlestrum verða myndaðir 5 til 6 um-
ræðuhópar um misjöfn áherslusvið.
Allir eru velkomnir á málþingið og vilj-
um við sérstaklega bjóða velkomna að-
ila utan ferðaþjónustunnar, því ferða-
maðurinn heimsækir oft marga staði og
nýtir sér margskonar þjónustu,“ segir
Selma Dögg. „Ljóst er að mörg eru
sóknarfærin, og munu t.d. Héðinsfjarð-
argöng og væntanleg ný Grímseyjar-
ferja gefa marga spennandi möguleika
í ferðaþjónustu á svæðinu. Tröllaskag-
inn er frábært útivistarsvæði á öllum
árstímum, með gönguleiðum við allra
hæfi í sláandi náttúru og margskonar
spennandi viðkomustaði.“ Finna má
nánari upplýsingar á slóðinni www.dal-
vik.is.
Ferðalög | Málþing um framtíðarmöguleika ferðaþjónustu
Ferðaperla á Tröllaskaga
Selma Dögg Sig-
urjónsdóttir fædd-
ist á Akureyri
1979. Hún lauk
námi frá Verk-
menntaskólanum á
Akureyri 1999,
B.Sc. í viðskipta-
fræði frá Háskól-
anum á Akureyri
2003 og meistaranámi í viðskiptafræði
og stjórnun frá Oxford Brooks Uni-
versity 2006. Selma Dögg tók við
starfi upplýsingafulltrúa Dalvíkur-
byggðar 2006.
Tónlist
Grand Rokk | Dr. Spock og Drep í kvöld kl. 23.
Norræna húsið | Tónleikar norska karlakórs-
ins Mosjøen Mannskor í kvöld kl. 20. Mosjøen
Mannskor og Karlakór Kópavogs flytja nokkur
vel valin lög. Aðgangseyrir er 1000 kr.
Tónlistarskóli Garðabæjar| Kl. 20-22. Yngsta
jazzfólk Garðabæjar. María Magnúsdóttir og
Jóhannes Þorleiksson eru Garðbæingar og
langt komnir afburðanemendur við Tónlistar-
skóla FÍH. Þau leiða dagskrá í sal Tónlistar-
skólans í Garðabæ. Hljómsveit Jóhannesar,
Tepokinn leikur með þeim. Ókeypis aðgangur.
Myndlist
Art-Iceland.com | Árni Rúnar Sverrisson sýn-
ir Fléttur í Art-Iceland.com. Opið kl.12-18.
Skaftfell | Sýningin El Grillo er afrakstur sam-
vinnu Dieter Roth Akademíunnar, útskriftar-
nema frá LHÍ og Skaftfells menningarmið-
stöðvar á Seyðisfirði. Sýningin stendur til 5.
maí. Opið kl. 13-18.
Fyrirlestrar og fundir
Aðalþjónustuskrifstofa Al-Anon | Svæðis-
fundur Rvk.svæðis verður haldinn laugardag-
inn 21. apríl nk. í safnaðarheimili Grensás-
kirkju kl. 10-16. Fundurinn er öllum Al-Anon
félögum opinn. Verð ca. 500-800 kr. Látið
vita uppá veitingar og vinnugögn á
draco999@hive.is.
Ketilhúsið Listagili | Dr. Ágúst Einarsson,
rektor Háskólans á Bifröst, heldur fyrirlestur í
dag kl. 14.50 um Menningarfræði-skapandi at-
vinnugrein 21. aldar. Ágúst hefur víða vakið
athygli fyrir umfjöllun um hagrænt gildi lista
og menningar. Allir velkomnir. Aðgangur
ókeypis.
FYRIRSÆTA sýnir sundföt á tískusýningu í Búdapest á sumardaginn fyrsta.
Ósagt skal látið hvort þessi sundföt gagnast í íslensku sumarveðri.
Sundföt fyrir sumarið
Reuters
70 ára afmæli. Laugar-daginn 21. apríl verður
séra Auður Eir Vilhjálms-
dóttir, prestur Kvennakirkj-
unnar, Kastalagerði 11,
Kópavogi, sjötug. Af því til-
efni heldur Kvennakirkjan
morgunmessu í Neskirkju við
Hagatorg, klukkan 10 á af-
mælisdaginn og Auður Eir
býður í morgunkaffi í safn-
aðarheimilinu á eftir.
ALÞJÓÐA Rauði krossinn mun
veita um 500,000 Írökum sem flúið
hafa til Sýrlands og Jórdaníu nauð-
synlega heilbrigðisþjónustu og
nauðþurftir næstu 12 mánuði. Rauði
krossinn hefur sent út neyðarbeiðni
fyrir um 18,2 milljónir svissneskra
franka (tæplega einn milljarð króna)
til að aðstoða 100 þúsund íraskar
fjölskyldur (60 þúsund í Sýrlandi og
40 þúsund í Jórdaníu), að því er seg-
ir í frétt frá Rauða krossinum.
Fjármunirnir munu hjálpa Rauða
hálfmánanum í Sýrlandi og Jórd-
aníu að veita flóttamönnunum
margvíslega aðstoð fyrir utan heil-
brigðisþjónustu svo sem mat, bús-
áhöld, dýnur, rúmföt og hreinlæt-
isvörur, og einnig skólavörur fyrir
börnin.
Elín Jónasdóttir sálfræðingur var
fulltrúi Rauða kross Íslands í al-
þjóðlegu teymi sem hélt námskeið
um sálrænan stuðning fyrir starfs-
fólk og sjálfboðaliða Rauða hálf-
mánans í Sýrlandi nú í febrúar. Þeir
sem sátu námskeiðið vinna nú að
þjálfun annarra sjálfboðaliða í að
veita flóttamönnum sálrænan stuðn-
ing.
Aðstoða
500.000 Íraka
í Sýrlandi
og Jórdaníu
FRÉTTIR
ALLS reyndust 42% bifreiða vera á
nagladekkjum samkvæmt talningu
sem gerð var í Reykjavík 11. apríl
sl. skv. upplýsingum umhverfis-
sviðs Reykjavíkurborgar.
„Á árunum 2001, 2002 og 2003
mældust 44–45% bifreiða í Reykja-
vík á nöglum en þau ár fór mæling
fram í 16. viku ársins eða eftir 15.
apríl. Svifryk fór aðeins tvisvar yfir
heilsuverndarmörk í marsmánuði
2007 en sá tími hefur oft reynst við-
kvæmur fyrir svifryksmengun ef
götur eru auðar og veður stillt.
„Árið 2006 var þurrviðri í mars-
mánuði og fór svifryk tíu sinnum
yfir heilsuverndarmörk. Mars
reyndist hins vegar óvenju úrkomu-
samur þetta árið og fór úrkoma
57% yfir meðaltal frá árinu 2000.
Svifryk hefur alls farið átta sinnum
yfir heilsuverndarmörk á þessu
ári,“ segir í frétt umhverfissviðs.
Færri á nagla-
dekkjum og
minna svifryk
FÖSTUDAGINN 13. apríl síðastlið-
inn um klukkan 14.15 varð umferð-
aróhapp á mótum Grensásvegar og
Skeifunnar í Reykjavík.
Eru tildrög óhappsins þau að
fólksbifreið, sennilega af VW Golf-
gerð, rauðri að lit, var ekið aftan á
fólksbifreið af Opel Astra-gerð,
ljósblárri að lit, sem síðan kastaðist
aftan á aðra fólksbifreið af Audi
A4-gerð, ljósgrárri að lit, en öllum
bifreiðum var ekið vestur Skeifuna.
Höfðu ökumenn Opel Astra- og
Audi A4-bifreiðanna stöðvað við
rautt umferðarljós gegnt þeirra
akstursstefnu.
Eru þeir vegfarendur sem kunna
að hafa orðið vitni að óhappinu eða
geta gefið frekari upplýsingar um
þessa rauðu VW Golf-fólksbifreið
beðnir um að hafa samband við lög-
reglu í síma 444 1000.
Lýst eftir
vitnum