Morgunblaðið - 20.04.2007, Síða 54

Morgunblaðið - 20.04.2007, Síða 54
SJÓÐHEITUR KLASSAKRIMMI! „Ein ánægjulegasta uppgötvun mín á vígvelli afþreyingarbókmennta … ... skemmtilegt og fimlega fléttað ... og persónurnar bráðskemmtilegar ...“ Úlfhildur Dagsdóttir Bókmenntavefurinn, www.bokmenntir.is NÝ BÓK EFTIRMETSÖLU-HÖFUNDINNFRED VARGAS Slíkur var hitinn að nærfötum var kastað upp á sviðið… 58 » reykjavíkreykjavík Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is ÞÁTTASTJÓRNANDINN Jón Ólafsson kynnti til leiks „fjóra káta þresti“ í sjónvarpsþætti sínum í Sjónvarpinu síðastliðinn laug- ardag. Umræddir þrestir gerðu sér lítið fyrir og endurhönnuðu sviðsmynd þáttarins með sínu nefi enda nem- endur í hönnun í Listaháskóla Ís- lands. Fjórmenningarnir nefnast Högni Valur Högnason, Kristinn Gunnar Atlason, Frosti Gnarr og Brynjar Sigurðarson. Sá síðast- nefndi er nemandi í vöruhönnun en hinir þrír nema grafíska hönnun. „Prófessorinn okkar hann Guð- mundur Oddur (Magnússon) hafði samband við okkur og bað okkur að endurhanna sviðsmynd í þáttinn sem fjallaði um myndlist, hönnun og tónlist,“ upplýsir Högni í sam- tali við Morgunblaðið í vikunni. „Okkur datt strax í hug að nota bara lituð límbönd og búa til nokk- urskonar flæðandi þrívíddarrými úr því.“ Lituðu límböndin límdu þeir svo á svarta veggi en það gekk reynd- ar ekki vandræðalaust fyrir sig. „Við máttum ekki nota mjög sterkt límband svo þegar við kom- um aftur að fyrsta dagsverkinu hafði allt límbandið losnað og við þurftum að hefta það allt á,“ segir Högni hress. Það er nóg að gera Félagarnir fjórir vinna mikið saman að sögn Högna. „Við reynum að prófa nýja hluti og finna nýja vinkla á hönnun okk- ar,“ segir hann. Þeir eru þó ekki enn komnir með yfirlýst heiti hópsins en eru að vinna í slíku en „ef fólk hefur áhuga getur það haft samband við okkur, netfangið er jack@hive.is eða hognih06@lhi.is,“ segir Högni. Aðspurður um lífið sem ungur listamaður á Íslandi í dag svarar Högni: „Þetta fer allt eftir per- sónuleika. Maður þarf að vera duglegur að bera sig eftir hlutunum og láta eitthvað gerast því það er nóg að gera. Það gerist ekkert ef maður situr bara heima.“ Morgunblaðið/Ásdís Fjórmenningar Högni Valur Högnason, Kristinn Gunnar Atlason, Frosti Gnarr og Brynjar Sigurðarson stunda allir nám við Listaháskóla Íslands og gerðu sviðsmynd fyrir Sjónvarpið. Gerist ekkert þegar maður situr heima Fjórir kátir þrestir unnu sviðsmynd fyrir sjónvarpsþátt Jóns Ólafssonar með límböndum setti sig strax í samband við Zol- berg, söngvara sveitarinnar. Sign mun spila á tuttugu tón- leikum alls en ferðinni lýkur í Leic- ester 17. maí næstkomandi. Fyrstu tónleikar Sign í þessari Bretlandsferð fara fram á Koko þar sem Kerrang! tímaritið stendur fyr- ir reglulegu klúbbakvöldi. Í nýjasta tölublaði Kerrang! er greint frá komu íslensku rokkaranna jafn- framt því sem plakat er birt af Sign í miðju ritsins. Sign eru þar í góðum félagsskap með Black Sabbath, Bul- let for my Valentine og Nine Inch Nails. MÁNAÐARTÓNLEIKAFERÐ hljómsveitarinnar Sign um Bret- land hefst á morgun, laugardaginn 21. apríl. Sign er aðal upphitunarhljóm- sveit fyrir rokkarana í The Wild- hearts sem eru með frægari rokk- hundum Breta. Ginger, söngvari The Wildhearts, sá Sign á tón- leikum í London í nóvember og Rokkarar Sign er á leiðinni í tónleikatúr um Bretland í mánuð með hljómsveitinni The Wildhearts. Sign fer í mánaðar tónleikaferð Frekari upplýsingar um túrinn má finna í www.myspace.com/sign

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.