Morgunblaðið - 20.04.2007, Síða 58
58 FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Krakkadagar í Smárabíó 450 kr.
sýningartímar merktir með grænum lit
SÓLIN ER AÐ DEYJA. ER HÆGT
AÐ BJARGA HENNI?
- Miðasala í Smárabíó og Regnbogann
Vinkona hennar er myrt og ekki er allt sem sýnist
Magnaður spennutryllir með súperstjörnunum
Halle Berry og Bruce Willis ásamt Giovanni Ribisi
Hve langt
myndir þú
ganga?
Ein Svakalegasta
hrollvekja til þessa.
Enn meira brútal
en fyrri myndin.
Alls ekki fyrir viðkvæma.
Stranglega bönnuð innan 18 ára!
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Bardagafimu skjaldbökurnar eru mættar aftur
í flottustu ævintýrastórmynd ársins
MÖGNUÐ SPENNUMYND MEÐ MARK WAHLBERG
FRÁ LEIKSTJÓRA "TRAINING DAY"
Í GÆR VAR ÞAÐ HEIÐURINN
Í DAG ER ÞAÐ RÉTTLÆTIÐ
Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
Aðei
ns ön
nur
bíóm
yndi
n frá
upp
hafi
sem
er bö
nnuð
inna
n
18 á
ra!
Þeir heppnu
deyja hratt
The Hills Have Eyes 2 kl. 5.50, 8, og 10.10 B.i. 18 ára
The Hills Have Eyes 2 LÚXUS kl. 3.40, 5.50, 8, og 10.10
Perfect Stranger kl. 5.30, 8, og 10.30 B.i. 16 ára
Mr. Bean’s Holiday kl. 3, 5, 7, 9 og 11
Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 3.45
Sunshine kl. 8 og 10.10 B.i. 16 ára
TMNT kl. 4 og 6 B.i. 7 ára
School for Scoundrels kl. 3.45
M A R K W A H L B E R G
Shooter kl. 8 og 10:20 B.i. 16 ára
Perfect Stranger kl. 8 og 10:10 B.i. 16 ára
Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 6
eeee
“Magnþrunginn spen-
nutryllir og sjónarspil sem
gefur ekkert eftir”
- V.J.V. Topp5.is
eee
“Sólskin er vel þess
virði að sjá.”
H.J. MVL
“Besta sci-fi mynd
síðustu tíu ára.”
D.Ö.J. Kvikmyndir.com
eee
Ó.H.T. Rás2
eeee
- Empire
Eftir Stefán Ólaf Sigurðsson
stolafur@gmail.com
VETRARLOKUM var fagnað í
Kaupmannahöfn með stæl. Hótel-
bókanir í Kaupmannahöfn –
www.kaupmannahofn.dk stóðu fyrir
stórtónleikum með Stuðmönnum og
Sálinni í Sirkusbyggingunni við Ax-
eltorv í Kaupmannahöfn. Þessir ris-
ar í íslensku tónlistarlífi hafa ekki
áður spilað saman, svo segja má að
sögulegur atburður hafi átt sér stað
þetta síðasta kvöld vetrar.
Fyrstu gestirnir mættu á svæðið
upp úr kl. 18:30 og tekið var á móti
þeim með leik lúðrasveitar. Mikil
eftirvænting var meðal gesta enda
uppselt á tónleikana og enn verið að
sækjast eftir miðum á tónleikadag-
inn sjálfan. Um klukkan 19:30
gengu gestir inn í stórglæsilegan
salinn þar sem lagt hafði verið á
borð fyrir meira en 850 manns. Sal-
urinn var smekklega skreyttur og
beggja vegna sviðsins voru risaskjá-
ir svo öruggt væri að allir gætu séð
listamennina á sviðinu. Greinilegt
að Sigurður K. Kolbeinsson skipu-
leggjandi tónleikanna hefur unnið
gott og öflugt undirbúningsstarf því
aðstæður voru allar hinar glæsileg-
ustu. Góður andi var í loftinu og
ljóst að allir gestir voru komnir til
að njóta kvöldsins, ekki síst hinir
stórskemmtilegu sessunautar mínir
frá Patreksfirði. Byrjað var að
þjóna til borðs um leið komið var í
salinn og gómsætur veislumatur á
borðum til að japla á undir tónlist
kónga íslenskrar balltónlistar.
Þorvaldur Flemming veislustjóri
bauð gesti velkomna og kynnti svo
Stuðmenn til leiks rétt fyrir kl. 20.
Stuðmenn léku blöndu af eldri og
yngri lögum meðan gestir nutu mat-
arins. Ýmsir tónlistarmenn stigu á
stokk með Stuðmönnum en Birgitta
Haukdal, Valgeir Guðjónsson og
meira segja kóngurinn Björgvin
Halldórsson voru meðal þeirra sem
léku og sungu með Stuðmönnum við
mikla ánægju veislugesta.
Rúmum klukkutíma síðar kynnti
Þorvaldur veislustjóri ókrýnda inn-
anhússmeistara í sveitaböllum á
svið og Sálin hóf leik með laginu
„Okkar nótt“. Þeir spiluðu lög í ró-
legri kantinum, að eigin sögn, yfir
matnum og ætluðu greinilega að
geyma rokkið fyrir ballið. Sennilega
til að fólk ætti ekki í erfiðleikum
með að borða matinn sinn vegna
óviðráðanlegra danshreyfinga. Há-
punktur fyrri hluta tónleikanna var
svo þegar stórþróttarinn Eyjólfur
Kristjánsson steig á svið og spilaði
lögin „Nína“ og „Danska lagið“ með
Sálinni. Þá stóðu veislugestir á fæt-
ur og sungu með af mikilli innlifun.
Eftir að Sálin hafði spilað fyrir mat-
argesti var svo gert hlé á tónleik-
unum þangað til ballið byrjaði og
þeir sem einungis höfðu keypt miða
á ball voru komnir í hús.
Nærföt upp á svið
Uppúr kl. 23 mættu svo Stuð-
menn aftur á sviðið með hárkollur
sem líktust hárgreiðslu hins eina
sanna kóngs rokks og róls, Elvis
Presley. Þá var skipt um gír og
hver smellurinn á fætur öðrum
hljómaði í á aðra klukkustund fyrir
á 12. hundrað ballgesta. Eins og á
fyrri hluta tónleikanna fengu Stuð-
menn aðstoð frá m.a. Birgittu, Val-
geiri, Björgvini, Stefáni Hilmars og
Jóni Karli Ólafssyni forstjóra Ice-
landair. Troðfullt var á dansgólfinu
meðan Stuðmenn spiluðu og stemn-
ingin gríðargóð.
Sálin tók svo við og endaði tón-
leikana. Þeir spiluðu gömlu smellina
auk þess að spila nýtt lag, nefnt
„Handrit lífsins“, við frábærar und-
irtektir ballgesta. Á þessum tíma
kvöldsins var stemningin í hámarki
og fólk virtist skemmta sér frábær-
lega. Slíkur var hitinn að nærfötum
var kastað upp á sviðið, hvort sem
það var vegna stemningar eða losta-
fullra hreyfinga Guðmundar Jóns-
sonar gítarleikara Sálarinnar veit
ég ekki en eitt er víst að nærföt
enduðu á sviðinu. Hápunktur balls-
ins að mati undirritaðs var svo þeg-
ar Sálin tók lögin „Sódóma“ og
„Kanínan“ en þá var hreinlega allt á
suðupunkti.
Kvöldið í heild var einstaklega vel
heppnað. Maturinn var lostæti,
hljómsveitirnar stóðu sig frábær-
lega og allir virtust skemmta sér
konunglega. Fram kom að fyr-
irhugað er að standa fyrir þessum
viðburði árlega og ef miða má við
þetta fyrsta skipti verður enginn
svikinn af því að fara í vorferð til út-
landa og skemmta sér.
Kóngar í Köben Ljósmynd/Sigurjón RagnarHeitt „Hápunktur ballsins var svo þegar Sálin tók lögin Sódóma og Kan-
ínan en þá var hreinlega allt á suðupunkti.“
Fjör Svavar Gestsson og Guðrún Ágústsdóttir ásamt Steinari Berg.
Stuðmennirnir Egill og Tómas með Elviskollur og heilan hest á milli sín
baksviðs fyrir ballið í Kaupmannahöfn.
Gestur Sjálfur Björgvin Hall-
dórsson söng með Stuðmönnum.