Morgunblaðið - 29.04.2007, Blaðsíða 86
86 SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
www.mpm.is
Nýr og spennandi kostur fyrir þá sem hafa
áhuga á mjög hagnýtu stjórnunarnámi.
TVEGGJA ÁRA NÁM SAMHLIÐA STARFI
MEÐAL NÁMSEFNIS Á 1. ÁRI
• BA/BS/B.ed. eða sambærilegt
• Minnst þriggja ára reynsla úr atvinnulífinu
• Reynsla við verkefnavinnu æskileg
Þ Á T T T Ö K U S K I L Y R Ð I :
Alþjóðleg vottun í verkefnastjórnun í umboði
alþjóðasamtaka verkefnastjórnunarfélaga (IPMA).
MEÐAL NÁMSEFNIS Á 2. ÁRI
• Ferli og ferlisvæðing
• Hópurinn og hópdýnamík
• Stjórnandinn og skipulag
• Fjármál verkefna
• Stefnumótun
• Áætlanagerð
• Leiðtoginn og sjálfið
• Samningar og deilur
• Upplýsingatækni
KYNNINGARFUNDUR
Þriðjudaginn 3. maí kl. 17:00 í Elju sal Endurmenntunar HÍ, Dunhaga 3.
Umsóknarfrestur er til 22. maí.
FJALAKÖTTURINN sýnir þrjár
myndir byggðar á sögum Astrid
Lindgren nú um helgina, auk þess
sem síðustu sýningar á myndum
franska kvikmyndagerðarmannsins
Raymonds Depardons fara fram. Þá
verður boðið upp á úrval franskra
stuttmynda.
Þorvaldur Davíð Kristjánsson,
sem komst nýverið inn í leiklist-
ardeild Juilliard-listaháskólans í
New York, mun kynna barnamynd-
irnar og bregða á leik með börn-
unum.
Frönsk kvikmyndagerð hefur ver-
ið í forgrunni síðustu vikur vegna
fransks vors og nú um helgina verð-
ur endapunkturinn settur með því
að sýna sex franskar stuttmyndir í
tveimur hlutum. Íslenski leikarinn
Tómas Lemarquis leikur hlutverk í
einni þeirra, Daydreamer, sem verð-
ur sýnd í dag klukkan 19 ásamt
tveimur öðrum myndum.
Sunnudagur, 29. apríl
15.00 Ronja ræningjadóttir
17.00 Börnin í Ólátagarði
19.00 Franskar stuttmyndir I 1: Af-
ter The Rain 2: Daydreamers
3: Life vest under your seat
21.15 Ketill Larsen (brot) og Blaða-
menn (Reporters)
Mánudagur, 30. apríl
17.00 Bróðir minn Ljónshjarta
19.00 Hvað er nýtt í Garet? (Quoi de
neuf au Garet?) og Svipmynd
úr sveitinni: Hið daglega líf
(Profils paysans : Le Quoti-
dien)
21.15 Franskar stuttmyndir II 1:
Sale Boulot 2: Luluboy 3:
DirtyHandz
Barnvænn köttur
Bróðir minn Ljónshjarta Snúður er kominn til Nangijala.
Fjalakötturinn
með fjölbreytta
dagskrá
ÞEIR Baggalútar hafa nú boðið upp
á þá nýjung á vef sínum að gefa les-
endum innsýn í blogg helstu mik-
ilmenna íslenskrar samtímasögu
auk Egils Skallagrímssonar.
Þarna pára niður athugasemdir
sínar ekki ómerkari menn en Jón
forseti Sigurðsson, Einar Bene-
diktsson, Jónas Hallgrímsson, Hall-
dór Laxness og Hallgrímur Pét-
ursson, svo fáeinir séu nefndir.
Sr. Hallgrímur bloggar undir
slóðinni uppupp.blogmasters.ru og
veltir meðal annars fyrir sér hvers
vegna ekki sé lögð meiri áhersla á
málefni holdsveikra hér á landi.
Reykjavíkurskáldið Tómas Guð-
mundsson (tommiskald.blog.is) er
trúr sínum heimaslóðum: „Mikið lif-
andis ósköp er Reykjavíkin mín
alltaf falleg. Vesturbærinn ilmar.
Perluna ber við himin. Fuglar
syngja. Það er vor í lofti. En mikið
djöfulli sökkar Kópavogurinn …“
Jónas Hallgrímsson skrifar svo
hjá sér minnispunkta: „Note to self:
Ekki drekka rakspíra áður en mað-
ur fer í rauðvínspartí í mennta-
málaráðuneytinu.“
Elsti bloggarinn er áðurnefndur
Egill og hann segir farir sínar ekki
sléttar af bílastæðamálum: „Æi
krapp! Ek hjó einn í morgun. Var
frekar messí. Lagði í stæði vort.
Skíthæll. Ek var alveg hellaðr. Far-
ið hefr fé betra.“
Jóhannes S. Kjarval skrifar svo
hugrenningar sínar á 2kkall-
inn.blogspot.com og segir þar frá
nýrri uppfinningu: „Það er allt ann-
að líf að mála uppi á Þingvöllum,
eftir að ég fékk mér iPodinn. Hlust-
aði á Duran Duran á blastinu með-
an ég málaði fullt, fullt af hrauni og
tvær rjúpur …“
Hallgrímur Pétursson.
Jón Sigurðsson.
Jónas Hallgrímsson.
Einar Ben
bloggar
Baggalútur vitnar
í blogg sögufrægra
einstaklinga
baggalutur.is