Morgunblaðið - 27.05.2007, Page 1

Morgunblaðið - 27.05.2007, Page 1
STOFNAÐ 1913 142. TBL. 95. ÁRG. SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is SUNNUDAGUR NÝIR ÍS- LENDINGAR ÚTLENDINGAR OG ANNARSKONAR FÓLK KRISTÍN LOFTSDÓTTIR Á VIT ÁA Í KANADA ÞÓRA HALLGRÍMSSON OG BJÖRGÓLFUR ÍSLENDINGABYGGÐIR HEILLA HAMINGJA Í KYRRÐINNI Í HVANNDÖLUM OG HÉÐINSFIRÐI GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR ÍSLAND stendur á tímamótum í öryggismál- um, að mati Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra. „Brotthvarf Bandaríkjahers voru söguleg tímamót, útrásin og viðskipta- tengsl Íslands um heim allan eru nýr veruleiki og sama á við um umhverfisvána, sem er al- þjóðamál. Nú skiptir öllu að skilgreina stöðu og rödd Íslands rétt og skynsamlega og takast á við það verkefni af alvöru og vandvirkni.“ Sumir bjuggust við að Ingibjörg Sólrún veldi annað ráðuneyti, þar sem mikil ferðalög fylgja starfi utanríkisráðherra og því gæti reynst erfitt að hafa stjórn á þingflokknum. En hún gefur lít- ið fyrir það. „Ég hef engar sérstakar áhyggjur af þingflokknum. Ferðalög eru hluti af störfum allra ráðherra í nútímanum og ég held að óttinn við þetta sé arfur gamals tíma.“ Öryggismálin heyra undir utanríkisráðuneyt- ið, þó að forsætisráðherra hafi farið með fyr- irsvarið í varnarviðræðunum við Bandaríkin. „Þeim viðræðum er nú lokið,“ segir Ingibjörg Sólrún. „Framganga Bandaríkjanna gagnvart Íslendingum var óheppileg og af því verðum við að draga lærdóm. Allir vita að ég hef ekki verið aðdáandi utanríkisstefnu Bush-stjórnarinnar en hún á sér heldur ekki marga aðdáendur í Evrópu yfirleitt. En Bandaríkjastjórnir koma og fara og sem utanríkisráðherra mun ég auðvitað alltaf kappkosta að tryggja hagsmuni Íslands með góðu sambandi við þetta mikilvæga viðskipta- land og granna í vestri.“ Hún segir framboð Íslands í öryggisráðið í far- vegi í ráðuneytinu, hún muni taka stöðuna á því og ákveða framhaldið. Og hún hefur engin áform um fjölgun sendiráða, þó að hún útiloki ekki breytingar. „Það er hlutverk stjórnandans að huga að því hvar bæta megi starfsemina og þjón- ustuna og þá um leið hvað megi leggja af sem þjónar ekki lengur mikilvægum tilgangi.“ | 28 Á tímamótum í öryggismálum  Nýr utanríkisráðherra hefur engin áform um að fjölga sendiráðum  Ekki aðdáandi utanríkisstefnu Bush-stjórnarinnar en segir þörf á góðu sambandi við þetta mikilvæga viðskiptaland og granna í vestri Í HNOTSKURN » Í stjórnarsáttmála segir að mannrétt-indi, aukin þróunarsamvinna og áhersla á friðsamlega úrlausn deilumála verði nýir hornsteinar í utanríkismálum. »Stefnan byggist á grundvallargildumsamvinnu vestrænna lýðræðisríkja, norræns samstarfs og viðleitni þjóða heims til að auka frelsi í alþjóðlegum viðskiptum. »Ríkisstjórnin stofnar samráðsvettvangstjórnmálaflokka um öryggismál. Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is MIKIL gróska er í starfsemi Þjóð- minjasafns Íslands sem gestir eru mjög ánægðir með, samkvæmt ný- legri könnun. Þjóðminjasafnið fékk nýlega arf frá breskum velunnara safnsins, Philip Verall. Um er að ræða háa upphæð, um 80 milljónir króna, sem að sögn Margrétar Hallgrímsdóttur þjóðminjavarðar verður notuð til að kosta vandaðar sýningar og tilheyr- andi útgáfu þannig að gestir safnsins geti notið góðs af. Stofnaður hefur verið minningar- sjóður Verall af þessu tilefni. Þjóðminjasafnið hefur einnig gert samninga við Svía um afhendingu á 800 íslenskum gripum sem safnað var hér á landi á 19. öld og safnið fær í haust til framtíðarvarðveislu. Þess- ir endurheimtu munir verða sýndir í Bogasal á næsta ári. Frá ýmsu öðru merkilegu í sam- bandi við starfsemi safnsins og þjóð- minjavörslu segir Margrét í viðtali sem birtist hér í blaðinu í dag. Þar koma einnig fram áherslur hennar í safnastarfi og skoðanir, t.d. í sam- bandi við húsin sem brunnu í Austur- stræti. | 42 Fékk breskan arf Þjóðminjasafnið fékk áttatíu milljónir í arf og endurheimtir 800 gamla íslenska gripi og skrautmuni frá Svíum SVEITARSTJÓRNARKOSN- INGAR fara fram á Spáni í dag og hafa harðar deilur yfirskyggt stað- bundin málefni. Úrslitin verða vís- bending um stöðu stóru flokkanna. Harðar sviptingar í spænskri pólitík BERTIE AHERN hefur verið for- sætisráðherra Írlands í tíu ár. Írsk- ir kjósendur virðast þó langt frá því leiðir á honum, ef marka má úrslit kosninganna á fimmtudag. Enn vinsælastur allra eftir tíu ár HÚSVERKIN teljast vart til hefð- bundinnar tómstundaiðju og ættu vinsældir húshjálparinnar Fly- Lady.net kannski að koma á óvart, en þar hefur einföld nálgun slegið í gegn. Einföld húsráð slá í gegn á Netinu VIKUSPEGILL MS FRAM frá Noregi lagðist að bryggju í Reykjavík- urhöfn í gærmorgun. Um er að ræða fyrsta skemmti- ferðaskip sumarsins. Skipið er hér í jómfrúrferð sinni á leið til Grænlands þar sem það mun sigla um Diskóflóa með farþega í allt sumar. Að sögn Ágústs Ágústssonar, markaðsstjóra Faxaflóahafna, er skipið nýsmíðað og sérstyrkt til íssiglinga. Það er 113 m langt og 20 m breitt og tekur um 300 farþega. Morgunblaðið/Kristinn Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins BAKGRUNNUR alþingismanna hefur breyst samhliða breytingum á samfélaginu. Fyrir hundrað árum voru bændur, prestar og sýslumenn fjölmennir á Alþingi, en í dag er að- eins einn bóndi á þingi, einn prestur og enginn sýslumaður. Hins vegar eru þar 13 lögfræðingar, 4 hagfræð- ingar og 5 stjórnmálafræðingar.| 6 Menntun þingmanna 2006 „Maður getur ekki hætt að lesa ...“ ÓTTAR M. NORÐFJÖRÐ, DV „Skelfilega heillandi“ KOMIN Í KILJU PUBLISHERS WEEKLY

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.