Morgunblaðið - 27.05.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.05.2007, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is ENGAR ákvarðanir hafa verið teknar um það hjá bílaumboðunum að lækka verð á bílum sérstaklega í ljósi verulegrar styrkingar ís- lensku krónunnar á undanförnum dögum og vikum. Talsmenn þeirra segja hins vegar að verð bifreiða sé alltaf í skoðun. Jón Þór Sturluson, dósent við viðskiptadeild Háskólans í Reykja- vík, segir að rannsóknir sýni að gengisbreytingar skili sér tiltölu- lega seint inn í verð á bílum, enda miðast verð innfluttra bíla við toll- gengi en það er ákvarðað einu sinni í mánuði og gildir þá heilan mánuð. Birgir Sigurðsson, fjár- málastjóri Heklu, segir að geng- isbreytinga hafi þó séð stað hjá þeim nú þegar. „En það er nú þannig með blessaða krónuna að hún er nú ansi fljót að veikjast þegar hún tekur upp á því, en styrkingin er gjarnan hægfara yfir langan tíma.“ Birgir segir að ekki sé hægt að stökkva í hvelli á eftir krónunni til eða frá „samanber það að fyrir rúmu ári síðan þegar krónan tók snarlega að veikjast þá kom hækk- unin miklu seinna fram í bílverðinu heldur en efni hefðu staðið til, mið- að við hvað það reyndist vera lang- ur tími sem hún var veik“. Reyna að halda verði stöðugu „Við höfum verið að bregðast við gengisbreytingum, en ekkert ný- verið. Við erum hins vegar alltaf með þetta í skoðun,“ segir Kristján Þorbergsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Toyota á Íslandi. Hann segir að auðvitað sé ekki hægt að fylgja gengi krónunnar frá degi til dags á bílamarkaði því að þá gæti sú staða komið upp að þeir væru með tvo sambærilega bíla sinn á hvoru verðinu í sýning- arsalnum. „Við reynum í heildina litið að hafa verðið stöðugt, að vera ekki að hræra of mikið í verðlist- um. Það er ekkert gaman fyrir menn að vera nýbúnir að kaupa bíl, sem svo fellur skyndilega í verði,“ segir hann. „Þegar krónan féll í fyrra þá fylgdum við þeirri gengislækkun ekki alla leið. Þegar krónan var búin að falla um ein 30% þá vorum við samt ekki búnir að hækka verð nema um 12 eða 13%,“ sagði Krist- ján ennfremur. Egill Jóhannsson, framkvæmda- stjóri Brimborgar, segir að reynt sé að líta til lengri tíma við verð- lagninguna. Bílar séu ekki eins og matvara, ekki sé hægt að lækka og hækka verð nokkrum sinnum í mánuði. Gengið hafi vissulega ver- ið að styrkjast mjög skarpt nú undanfarið, en enginn viti hvort það muni haldast. „Þannig að við erum ekki búnir að lækka neitt yf- ir línuna akkúrat núna. Það sem við gerum frekar er að við aukum þá aðeins afslætti innanhúss, veit- um mönnum 2% aukaafslátt af söluverðinu í stað þess að breyta öllum verðlistum. Ef við sjáum að þetta ætlar að verða viðvarandi ástand þá finnst mér hins vegar ekkert ólíklegt að við lækkum. Sama höfum við alltaf gert, við erum algerlega samkvæmir sjálf- um okkur, þegar gengið veikist. Þá hækkum við ekki verðið strax heldur höfum þá dregið frekar úr afsláttum og reynum þannig að halda verðlistanum stöðugum.“ Bílaumboðin fara sér hægt Áhrif gengisbreytinga skila sér tiltölulega seint út í verð á bílum LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð- inu handtók seint á föstudagskvöld 35 ára gamla konu sem grunuð er um stórfelld fjársvik með því að hafa misnotað stolin greiðslukort til að svíkja út fé. Að sögn lögreglunnar mun viðkomandi hafa farið í hrað- banka og leyst út fé fyrir á aðra milljón króna. Konan var sett í fangageymslu á lögreglustöð og stóð til að yfirheyra hana í gær, laugardag. Rannsóknar- deild lögreglunnar fer með málið sem auðgunarbrotamál. Samkvæmt auðgunarbrotakafla almennra hegningarlaga varðar þjófnaður á fjármunum eða orku- forða allt að sex ára fangelsisvist. Niðurstaða úr rannsókn lögreglunn- ar mun leiða til ákvörðunar um hvort ákæruvaldið muni gefi út ákæru með kröfu um refsingu á hendur sakborn- ingnum. Grunuð um stórfelld fjársvik ÓVENJURÓLEGT var í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt laugardags að sögn lögreglunnar á höfuðborg- arsvæðinu. Fáir voru á ferli og lítt kom til kasta lögreglu vegna skemmtanalífsins eða hávaðaláta. Er talið að margir hafi farið úr bænum og þess vegna verið svo kyrrt sem raun bar vitni. Óvenju rólegt hjá lögreglu ÝMSIR tónlistarmenn hafa gagnrýnt vefverslunina Tónlist.is fyrir að standa ekki skil á greiðslum vegna sölu á tónlist á vefsetrinu. Í ljós hefur komið að fyrirtækið hefur staðið skil á öllum greiðslum samkvæmt samning- um við samtök rétthafa, en féð ekki skilað sér til tónlistarmannanna sjálfra. Einnig er greint frá því í samantekt Árna Matthíassonar í blaðinu í dag að greiðslur fyrirtækisins vegna svo- nefnds streymis tónlistar, þegar lög eru spiluð yfir netið, hafa ekki byggst á upplýsingum frá fyrirtækinu sjálfu heldur er miðað við skýrslur um spil- un í Ríkisútvarpinu. Þar kemur og fram að öll lög sem seld eru af Tónlist- .is eru þannig merkt að fyrirtækið MúsikNet eigi höfundarrétt að þeim. Tónlist.is stendur skil á sínu Höfundaréttur hjá MúsikNet?  Slæleg frammistaða | 84 JÓHANNA Vala Jónsdóttir, tvítug Reykjavíkurmær, var valin fegursta stúlka landsins í fegurðarsamkeppn- inni Ungfrú Ísland sem haldin var á Broadway á föstu- dagskvöldið. Í öðru sætinu hafnaði Katrín Dögg Sig- urðardóttir og Fanney Lára Guðmundsdóttir varð í þriðja sæti. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Jóhanna Vala er fegurst fljóða ♦♦♦ „ÞETTA er því miður þekkt vanda- mál í heilbrigðiskerfinu í dag sem brýnt er að bregðast við,“ sagði Matthías Halldórsson landlæknir, þegar leitað var viðbragða hjá hon- um við aðsendri grein í Morgun- blaðinu í gær þar sem aðstandandi kvartaði undan úrræðaleysi kerfis- ins þegar útskrifa átti aldraðan föður viðkomanda eftir stutta sjúkrahús- legu í kjölfar beinbrota. Aðspurður segist Matthías ekki vilja tjá sig um einstök mál og tók fram að líkt og greinarhöfundur nefndi þá hefði málið ekki komið til kasta landlæknisembættisins. „Al- mennt talað er hér um að ræða mál sem þarf að vinna með, þ.e. gamalt fólk með fleiri en einn sjúkdóm, sem þarf meiri aðhlynningu um tíma, en á samt ekki heima á bráðasjúkrahús- um.“ Að sögn Matthíasar standa stóru tæknivæddu sjúkrahúsin sig vel í að með- höndla alvarlega bráðasjúkdóma, en á þeim sé hins vegar mikil pressa að útskrifa fólk sem fyrst. „Þau eiga þó aldr- ei að ráðstafa fólki í pláss á öðr- um stofnunum án samráðs við fólk. Landspítalinn hefur verið í viðræð- um við sjúkrahúsin í nágrenni Reykjavíkur um að hægt verði undir vissum kringumstæðum, og þá í samráði við sjúklinginn og aðstand- endur, að vista þar sjúklinga til ein- hvers tíma til framhaldsmeðferðar og aðhlynningar og líst mér vel á þá þróun,“ segir Matthías. Að hans sögn hefur sú hugmynd komið til tals á fundum hans með yf- irlæknum heilsugæslunnar á höfuð- borgarsvæðinu að sett verði á stofn í Reykjavík eins konar heimilislækna- sjúkrahús. „Það er einfalt sjúkrahús sem sinnir fólki með tiltölulega ein- falda sjúkdóma, sem þarfnast alúð- ar, en er án þess asa sem gjarnan fylgir bráðadeildum,“ segir Matthías og að slík sjúkrahús hafi gefið góða raun í Kanada og líkist því kerfi sem viðgangist á landsbyggðinni hér. „Ég hef átt eitt mjög gott samtal við nýja heilbrigðisráðherrann, sem hefur orð á sér fyrir atorkusemi. Á okkar fyrsta fundi var ekki tími til að ræða margar hugmyndir sem vert væri að koma á framfæri. Hann ósk- aði hins vegar eftir hugmyndum landlæknisembættisins um það sem betur mætti fara og þetta er sann- arlega eitt af þeim málum sem vert er að ræða og ég hafði hugsað mér að ræða við hann við fyrsta tækifæri.“ Vandi sem brýnt er að bregðast við Skortur á úrræðum fyrir eldri sjúklinga gagnrýndur Matthías Halldórsson „ÞETTA er sá allra stærsti sem ég hef landað,“ segir Börkur Birgisson, sem í liðinni viku landaði 26 punda og 93 sm urriða úr Þingvallavatni. Mun þetta vera stærsti urriði sem veiðst hefur þar frá 1960. Þurfti hann að taka fast á, því viðureignin tók um 40 mín. og segir hann fiskinn hafa verið ótrú- lega sterkan. „Mig hefur alltaf langað í veggfisk sem er meira en 10 pund. Þessi verður stoppaður upp af Sveinbirni Norðurlandameistara.“ Landaði 26 punda urriða Sá stærsti Börkur með urriðann sem hann veiddi sl. fimmtudagskvöld. UMFERÐIN á þjóðvegi 1 hafði gengið ágætlega fram að hádegi í gær en hvíta- sunnuhelgin er mikil ferðahelgi. Að sögn lögreglu í Borgarnesi höfðu þó 10 öku- menn verið teknir fyrir hraðakstur frá því í fyrradag og sá sem ók hraðast mældist á 120 km hraða. Einn var tekinn ölvaður við akstur í gærmorgun. Þá varð ein bílvelta síðdegis í fyrradag. Umferð hefur gengið vel
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.