Morgunblaðið - 27.05.2007, Blaðsíða 88
SUNNUDAGUR 27. MAÍ 147. DAGUR ÁRSINS 2007
Heitast 9 °C | Kaldast 1°C
Hægviðri og bjart-
viðri víða um land.
Líkur á skúrum, eink-
um SA-lands. 3-10
stig yfir daginn. » 8
ÞETTA HELST»
Ísland á tímamótum
Að mati nýs utanríkisráðherra,
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur,
stendur Ísland nú á tímamótum í ör-
yggismálum. Hún segir í viðtali við
Morgunblaðið í dag að nú skipti öllu
að skilgreina stöðu og rödd landsins
rétt og skynsamlega og takast á við
það verkefni af alvöru og vandvirkni.
Segist hún ekki hafa nein áform um
að fjölga sendiráðum erlendis. » 1
Tekin vegna fjársvika
Lögreglan rannsakar nú grun um
stórfelld fjársvik sem hálffertug
kona er talin hafa stundað með stoln-
um greiðslukortum. Fjárhæðin er á
aðra milljón króna og er talið að hún
hafi verið svikin út úr hraðbönkum.
Konan er fædd árið 1972 og var sett í
fangageymslu lögreglunnar aðfara-
nótt laugardags. » 2
NATO-þingmenn á leiðinni
Ársfundur þingmannasamtaka
Atlantshafsbandalagsins, NATO,
verður haldinn hér á landi dagana 5.
til 9. október í haust. Þetta verður í
fyrsta sinn sem þessi fundur er hald-
inn hérlendis og sækja hann um eitt
þúsund manns. Samtökin voru stofn-
uð árið 1955 og eru samráðsvett-
vangur þingmanna aðildarríkja Atl-
antshafsbandalagsins. Á þinginu
eiga sæti 248 þingmenn. » 4
Skoða verksmiðjukosti
SIGMUNDUR Ófeigsson, fram-
kvæmdastjóri Norðlenska og stjórn-
armaður í Moltu ehf., segir norð-
anmenn munu kanna fýsileika þess
að reisa lífmassaverksmiðju á Eyja-
fjarðarsvæðinu. Myndi verksmiðjan
framleiða raforku úr metangasi úr
lífrænum búfjárúrgangi. » 4
SKOÐANIR»
Staksteinar: Góður kostur
Forystugreinar: Fjölskyldur
og fíkniefni
Ljósvaki: Kveikt á fimmtudeginum
UMRÆÐAN»
Lítil ríkisaðstoð við atvinnulíf á
Íslandi
Staðall gegn launamisrétti
Réttindi erlendra starfsmanna
Geir kyssir vöndinn
Andfemínismi skaðsamur ...
Skógrækt á Íslandi kælir loftið
Vefjagigt er ekki hugsýki
ATVINNA»
TÓNLIST»
Sigrún Vala syngur
„Ekki gera neitt“. » 78
Gyrðir Elíasson rit-
höfundur hefur
ákveðið að hætta hjá
Eddu útgáfu, en þar
hefur hann verið í
heil 23 ár. » 78
BÓKMENNTIR»
Hættur hjá
Eddu
FÓLK»
Kirsten Dunst leikstýrir
sinni fyrstu mynd. » 80
KVIKMYNDIR»
Paul Newman er hættur
að leika í myndum. » 83
Heiða Jóhannsdóttir
gefur nýjustu sjó-
ræningjamyndinni
aðeins tvær stjörn-
ur, en segir Johnny
Depp þó góðan. » 82
Lélegir sjó-
ræningjar
DÓMUR»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Nauðgunarleikur fjarlægður
2. „Það er ekki allt í lagi“
3. Emma Thompson hneykslar
4. Kristrún Heimisdóttir ráðin
KLEPPUR, hið gamalgróna geð-
sjúkrahús í Reykjavík, er hundrað
ára í dag. Áratugum saman var það
táknmynd þessara flóknu veikinda í
augum almennings og margir sjúk-
lingar áttu aldrei afturkvæmt eftir
að hafa lagst þar inn. Á undan-
förnum áratugum hefur hlutverk
Klepps gjörbreyst og Hannes Pét-
ursson, sviðsstjóri lækninga á
geðsviði LSH, segir að Kleppur sé í
dag fyrst og fremst endurhæfing-
armiðstöð fyrir geðsjúka og þannig
verði það í framtíðinni.
Að vísu eru ennþá um sjötíu legu-
sjúklingar á Kleppi en það er fólk
sem ekki getur nýtt sér búsetuúr-
ræði utan spítalans, a.m.k. ekki enn
sem komið er. Hannes segir stefnt
að því að legusjúklingar njóti fé-
lagslegra búsetuúrræða í framtíð-
inni en erfitt sé að setja markmið
um fjölda eða tímaramma í því efni.
Hannes segir engin áform um að
loka Kleppi.
„Við höfum Klepp eins lengi og
við þurfum og á næstu árum verður
lögð áhersla á að byggja þar upp
öfluga og nútímalega endurhæfing-
armiðstöð.
Kleppur er snar þáttur í sögu
geðlækninga á Íslandi og okkur
þykir mikilvægt að halda nafninu
enda þótt það hafi neikvæða merk-
ingu í huga margra. Vonandi verð-
ur þetta nýja hlutverk Klepps til
þess fallið að vinda ofan af þeirri
ímynd.“ | 10
Snar þáttur í sögu geðlækninga
á Íslandi og enn með hlutverk
Morgunblaðið/Sverrir
Kleppsspítali fagnar aldarafmæli.
MORGUNBLAÐIÐ kemur
næst út þriðjudaginn 29. maí.
Fréttaþjónusta verður á
Fréttavef Morgunblaðsins,
mbl.is, alla helgina. Senda má
ábendingar um fréttir á net-
fangið netfrett@mbl.is.
Áskriftardeild Morg-
unblaðsins verður opin í dag,
sunnudag, kl. 8-15. Lokað
verður annan í hvítasunnu.
Skiptiborð Morgunblaðsins er
lokað í dag. Skiptiborðið verð-
ur opið á morgun, annan í
hvítasunnu, klukkan 13-20.
Sími Morgunblaðsins er 569-
1100.
DÆMIGERT er að óhreinindi sjáist best í þurru og köldu veðri, og á Suður-
landi er norðangarrinn ekki besti vinur bíla með tilheyrandi saltroki af
hafi. Því er ráð að þrífa. Norðanáttin víkur hins vegar fyrir sunnanátt og
vaxandi hita á morgun, annan í hvítasunnu, samkvæmt veðurspám.
Morgunblaðið/Sverrir
Hvítasunnuþvottur í garranum
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
Á ÍSLENSKA þjóðkirkjan að leyfa
hjónaband samkynhneigðra? er
spurning sem séra Bjarni Karlsson
spyr í meistararitgerð sem hann
vinnur nú að við guðfræðideild Há-
skóla Íslands en hann er í námsleyfi
frá störfum sínum sem sóknarprest-
ur í Laugarneskirkju. Hann svarar
spurningunni játandi og færir fyrir
því sterk rök.
Í viðtali í Morgunblaðinu í dag
segir hann m.a. að kirkjan verði að
vera öruggur staður og segja satt til
að gegna hlutverki sínu sem þjóð-
kirkja. „Þess vegna má ekki lengur
skrifa kynlífssiðfræði í nafni krist-
innar trúar út frá stjórnunarsjónar-
miðum. Tíðarandinn er að breytast
og guðfræðin þarf að breytast með
og svara nýjum spurningum sem
snúa fremur að inntaki samskipta en
formi þeirra,“ segir Bjarni sem hefði
viljað sjá kirkjuna hafa meira frum-
kvæði. „Við verðum að taka þetta
skref, að leyfa hjónaband samkyn-
hneigðra. Gagnkynhneigðarhyggj-
an, sem skilgreinir heilu hópana til
hliðar við samfélagið, er búin að
kosta svo mörg mannslíf, fórnir og
þjáningu. Karlaveldiskerfið er út-
breiddasta valdakerfi veraldarinnar
og þegar dýpst er skoðað er það rek-
ið áfram af óttanum við dauðann.
Það er ekki til erfiðari óvinur. Krist-
in hefð á allt það sem svarar þessu.
Þess vegna er það svo mikil fölsun
þegar menn leyfa sér að tengja
þvingandi hugmyndir sem niður-
lægja fólk og gera manneskjur fram-
andi hverja annarri við trúarsetning-
ar kirkjunnar.“ | 36
Kirkjan þarf að breytast
Varpað er fram þeirri spurningu hvort þjóðkirkjan eigi að leyfa hjónaband sam-
kynhneigðra í meistararitgerð við guðfræðideild Háskólans og svarað játandi
Morgunblaðið/G.Rúnar
Hjónaband Séra Bjarni Karlsson,
sóknarprestur í Laugarneskirkju.
Í HNOTSKURN
» Tíðarandinn er að breyt-ast og guðfræðin þarf að
breytast með og svara nýjum
spurningum.
»Við verðum að taka þettaskref, að leyfa hjónaband
samkynhneigðra.
»Karlaveldiskerfið er út-breiddasta valdakerfi ver-
aldarinnar og þegar dýpst er
skoðað er það er rekið áfram
af óttanum við dauðann.