Morgunblaðið - 27.05.2007, Blaðsíða 81

Morgunblaðið - 27.05.2007, Blaðsíða 81
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 81 Morgunblaðinu hefur borist eft- irfarandi yfirlýsing frá Stefáni Hjörleifssyni, framkvæmdastjóra D3 miðla ehf. MORGUNBLAÐIÐ hefur nú í vikunni sem er að líða birt fram- haldssögu um málefni Tónlist.is og hagsmunasamtaka tónlistarhreyf- ingarinnar. Tilefnið var tölvupóstur sem á að hafa gengið milli ungra tón- listarmanna í kjölfarið á vel heppn- aðri opnun á nýs Tónlist.is vefjar. Það hefur komið í ljós að þessir tölvu- póstar virðast byggðir á misskilningi og rangfærslum sem einfalt hefði verið að leiðrétta hefðu menn bara spurt. Þrátt fyrir yfirlýsingar undirritaðs og fleiri aðila, s.s. Eiríks Tóm- assonar, lagaprófessors og fram- kvæmdastjóra STEFs, þar sem Tón- list var hreinsað af rógburði þessum, sá Morgunblaðið ástæðu til að draga að borðinu nokkra tónlistarmenn og útgefendur sem eru með samning við Tónlist.is um sölu á tónlist. Viðtöl þessi eru uppfull af staðhæfingum sem eiga ekki við rök að styðjast og Morgunblaðið hefur ekki séð ástæðu til að leita skýringa hjá forsvars- mönnum Tónlist.is vegna þeirra. Ég hef lítinn áhuga á að svara þeim á síð- um Morgunblaðsins eða öðrum op- inberum vettvangi enda virðist það ekki standa til boða af hálfu Morg- unblaðsins. Ég mun hins vegar glað- ur leiðrétta allan misskilning gagn- vart þessum aðilum sem eru að tjá sig opinberlega við hvern og einn. Leiði rannsókn á málefnum þessara aðila eitthvað misjafnt í ljós verður það að sjálfsögðu leiðrétt enda hefur Tónlist.is gefið það út frá upphafi að það vilja standa löglega að málum. Það verður þó ekki hjá því komist að leiðrétta almennan misskilning sem komið hefur fram í fyrr- greindum viðtölum opinberlega. 1. Því er haldið fram Tónlist.is hafi verið veitt leyfi af hagsmuna- samtökum til að selja úr gagna- grunni sem upphaflega hafi átt að vera líkt og bókasafn. Þetta er rangt. Tónlist.is var stofnað af undirrit- uðum árið 2002 í þeim tilgangi að selja tónlist rafrænt og í því skyni setti Tónlist.is upp gagnagrunn. Starfsfólk Tónlist.is hefur í á fimmta ár unnið að því að setja tónlist og við- tækar upplýsingar um tónlistarfólk í grunninn og nú eru til verðmætar upplýsingar á stafrænu formi sem hvergi voru til áður. Tónlist.is hefur ekki þegið styrki frá hagsmuna- samtökum en er hins vegar með samning við Samtón, heildarsamtök tónlistarhreyfingarinnar um skrán- ingu á ákveðnum upplýsingum og tónlistarskrám og þiggur fyrir það greiðslur sem þó eru aðeins lítill hluti af kostnaði við skráningu. Tónlist.is hefur frá upphafi borið allan kostnað af gagnagrunninum s.s. við uppsetn- ingu, hýsingu og afritun. Samtónn hefur hins vegar aðgang að þessum grunni skv. fyrrgreindum samningi og útgefendur geta fengið umsamin gögn afhent úr grunninum sé þess óskað. Tilgangurinn með þessu sam- starfi var að ekki þótti ástæða til að tvívinna ákveðnar upplýsingar og D3 því falið að skrá þær. 2. Því er einnig haldið fram að Sena hafi sölsað undir sig Tónlist.is í viðskiptalegum tilgangi. Þetta er al- rangt enda er félagið sem undirrit- aður stofnaði utan um Tónlist.is ennþá rekstraraðili vefjarins. Ég hef stýrt fyrirtækinu frá upphafi og for- svarsmenn Senu hafa ekki komið þar að málum. 3. Þá er því haldið fram að útgef- enda sé ekki getið á síðunni svo að það líti út fyrir að aðeins sé eitt út- gáfufyrirtæki þarna inni. Þetta er óskiljanleg athugasemd enda erum við hjá Tónlist.is ákaflega stoltir af að geta boðið upp á breitt vöruúrval frá nokkur hundruð útgefendum, stórum og smáum. Þessi ákvörðun var tekin vegna þess að við töldum það ekki skipta almenning máli hvað- an tónlistin kæmi, heldur gæði henn- ar. Við höfum þó tekið tillit til þess- arar athugasemdar samstarfsaðila okkar og nú birtist nafn útgefenda á vefnum. 4. Í föstudagsblaðinu er fjallað um gagnagrunn Tónlist.is. Þar er er við- tal við tvo fagaðila sem telja að enn sé eitthvað í land að skráning verði full- nægjandi. Það er rétt. Hins vegar er ekki við Tónlist.is að sakast þar, þar sem um er að ræða viðbótarupplýs- ingar sem Tónlist.is hefur bent á að vanti í grunninn, t.d. um flytjendur. Tónlist.is er hins vegar með ákveðnar skyldur við skráningu, og hefur staðið við þær að fullu. Tónlist.is harmar að greiðslur skulu ekki hafa borist til listamanna en eins og fram hefur komið í yfirlýs- ingum er ekki við Tónlist.is að sak- ast. Þessi umræða virðist sem betur fer hafa ýtt undir að greiðslur muni berast fljótlega frá STEFi og Senu og vonandi fylgja aðrir útgefendur í kjölfarið. Ég efast ekki um að nokkr- ir þeirra hafi nú þegar greitt sínum listamönnum enda hafa þeir reglu- lega fengið uppgjör og greiðslur frá Tónlist.is. Áhugi Morgunblaðsins á málinu Þáttur Morgunblaðsins í þessari umfjöllun hefur verið athyglisverður. Eins og áður segir hefur ekki verið leitað skýringa hjá Tónlist.is á þess- um rógburði fyrir utan skilmerkilegt viðtal við undirritaðan í fyrsta kafla sögunnar. Það var síðan fyrst eftir að framhaldssagan hafði verið birt fjóra daga í röð að undirritaður heyrði frá blaðamanni Morgunblaðsins, þrátt fyrir að hafa strax haft samband við blaðið til að koma að leiðréttingum. Blaðamaðurinn sagði að þessu máli væri senn að ljúka af þeirra hálfu og hann vantaði svör við tveimur spurn- ingum. Ég veitti þau svör fúslega og ég vonast til að þau birtist rétt í blaðinu enda virtist enn einn róg- burðurinn í uppsiglingu. Blaðamaður Morgunblaðsins sá sérstaka ástæðu til að taka það fram í upphafi símtalsins að ekki væri um neinar árásir á Tónlist.is að ræða enda á Morgunblaðið í harðvítugri samkeppni við D3 miðla ehf., rekstr- araðila Tónlist.is. D3 rekur einnig Vísir.is, samkeppnisaðila mbl.is sem hefur undanfarnar vikur birt ómak- legar samanburðarauglýsingar. Morgunblaðið hefur verið ávítað af Modernus, Samræmdri vefmælingu fyrir að birta rangar upplýsingar sem gerðar eru til þess að villa um fyrir notendum og auglýsendum. Þá hefur mbl.is í auknum mæli væri að færa sig inn á dreifingu tónlistar á Netinu í samkeppni við Tónlist.is. Þessi athugasemd blaðamanns Morgunblaðsins, sem hefur einnig verið einn af lykilmönnum mbl.is vakti mig til umhugsunar og skýrði raunar margt af þessum óskiljanlega áhuga Morgunblaðsins á þessu máli. Það skýrði líka í mínum huga hvers vegna Morgunblaðið sæi sérstaka ástæðu að nefna móðurfélag D3, 365 hf., samkeppnisaðila Árvakurs á bak- síðu Morgunblaðsins sl. miðvikudag undir fyrirsögninni „Eigendur skulu bera ábyrgðina“. Þar er vísað til greiðslna sem ekki áttu hafa hafa borist frá Tónlist.is en í sama blaði er yfirlýsing frá Eiríki Tómassyni þar sem hann lýsir því yfir að ábyrgðin sé STEFs en ekki D3. Dæmi nú hver fyrir sig. Það hefur verið dapurlegt fyrir undirritaðan að fylgjast með þessari umræðu því einn helsti tilgangur með stofnun Tónlist.is var að bjóða löglegan valkost á Netinu til að lista- menn fengju greitt fyrir hugverk sín. Þar rann mér blóðið til skyldunnar sem tónlistarmanni. Það hefur hins vegar verið ánægjulegt að fylgjast með árnaðaróskum notenda sem streyma inn því notendur tónlist.is eru í skýjunum með nýjan vef og framtíðin er björt fyrir okkur, tón- listamann og notendur í þessum efn- um. Ég vona að þessi leiðindamál séu nú til lykta leidd og ef eitthvað er óljóst bið ég listamenn um að hafa samband beint við mig. Virðingarfyllst, Stefán Hjörleifsson, framkvæmdastjóri D3 miðla ehf., rekstraraðila Tónlist.is. Framhaldssagan um Tónlist.is Morgunblaðið/Ásdís Stefán Hjörleifsson ÍS L E N S K A / S IA .I S / L B I 37 83 5 05 /2 00 7 3. UMFERÐ Landsbankinn býður 16 ára og yngri á völlinn. Sækja þarf boðsmiðann í næsta útibú Landsbankans. LANDSBANKADEILD KVENNA LANDSBANKADEILD KARLA 4. UMFERÐ mán. 28. maí kl. 17:00 Fylkir – ÍA mán. 28. maí kl. 19:15 Keflavík – HK mán. 28. maí kl. 19:15 KR – Víkingur mán. 28. maí kl. 19:15 Breiðablik – Valur þri. 29. maí kl. 20:00 Fram – FH sun. 3. júní kl. 16:00 Fjölnir – Þór/KA mán. 4. júní kl. 19:15 Keflavík – ÍR mán. 4. júní kl. 19:15 Breiðablik – Stjarnan mán. 4. júní kl. 19:15 Fylkir – KR www.yogaretreat.is Hálfsdags námskeið laugardaginn 16. júní í Norræna húsinu, kl. 14.00 – 18.00 Leiðbeinendur eru Swami Janakananda og Ma Sita Upplýsingar og skráning: Hugleiðsla, fyrirlestur, jóga og djúpslökun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.