Morgunblaðið - 27.05.2007, Blaðsíða 68
68 SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj.,
s. 691 0919
✝
Elskulegur bróðir minn,
SIGURÐUR TRYGGVI ARASON
fyrrum bréfberi,
Sólvangi,
áður Öldutúni 4,
Hafnarfirði,
sem lést laugardaginn 19. maí verður jarðsunginn
frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 29. maí
kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á
minningarsjóð Guðmundar Gissurarsonar v/elli- og hjúkrunarheimilisins
Sólvangs.
Sigríður Aradóttir.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
INGÓLFUR SIGURJÓNSSON,
Hvammsdal 9,
Vogum,
verður jarðsunginn frá Kálfatjarnarkirkju
miðvikudaginn 30. maí kl. 14.00.
Ingileif Ingólfsdóttir, Guðmundur F. Jónasson,
Iðunn Ingólfsdóttir, Lúðvík Rúnarsson
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir og
amma,
ÁSTHILDUR BIRNA KÆRNESTED,
Háaleitisbraut 105,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
mánudaginn 21. maí.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn
30. maí kl.13.00.
Örn Johnson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir,
Björn Hrannar Johnson,
Friðrik Johnson, Alma Rós Ágústsdóttir,
Haukur Johnson,
Anton Örn Kærnested, Ágústa Bjarnadóttir,
Sigrún Gróa Kærnested, Grétar Mar Hjaltested,
Sigríður G. Kærnested
og barnabörn.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og afi,
ÓLAFUR INGIBJÖRNSSON
læknir,
Æsufelli 4,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju miðviku-
daginn 30. maí kl. 15.00.
Ingvar B. Ólafsson,
Jón Á. Ólafsson, Kristín Ásmundsdóttir,
Gunnar Þ. Ólafsson, Catrina Hendry,
Ólafur P. Ólafsson,
Guðrún M. Ólafsdóttir, Bjarni Ó. Guðmundsson,
Lísa Ólafsdóttir,
Linda Ólafsdóttir,
Halldóra Ingibjörnsdóttir
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
JENSÍNA ÞÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Reynihvammi 29,
Kópavogi,
sem lést sunnudagsinn 20. maí, verður jarðsungin
frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 29. maí kl. 15.00.
Katrín A. Magnúsdóttir, Jack D. Sublett,
Unnur Magnúsdóttir, Sævar Þór Sigurgeirsson,
Þórhildur Magnúsdóttir, Einar Finnbogason,
Andrés Magnússon, Guðrún Brynjólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
BOGI JÓHANNSSON,
rafvirkjameistari frá
Vestmannaeyjum,
Furugrund 60,
Kópavogi,
sem lést 20. maí verður jarðsunginn þriðjudaginn
29. maí frá Digraneskirkju í Kópavogi kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á að
Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð.
Halldóra Guðrún Björnsdóttir,
Jóhanna Bogadóttir,
Eiríkur Bogason, Guðbjörg Ólafsdóttir,
Kristján Bogason, Jóhanna Emilía Andersen,
Svava Bogadóttir, Kristján Bjarnason,
Gunnar Bogason, Bergþóra Aradóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ég ákvað að rita
nokkrar línur til að
minnast ömmu minn-
ar sem lést eftir erfiða baráttu við
illvígan sjúkdóm. Ég man þegar ég
var lítil þá var hvergi betra að koma
en til ömmu og afa á Stokkseyri og
það var margt hægt að bralla þar.
Alltaf var amma mín þolinmóð við
þessa tvo villinga úr Þorlákshöfn og
síðar Reykjavík.
Ég man sérstaklega eftir því þeg-
ar við stálumst inn í svefnherbergi
hjá ömmu og afa og stálumst til að
hoppa á rúminu þeirra.
Þvílík skemmtun það var þangað
til að það brotnaði, og ég man að
amma reyndi að skamma óþekkt-
arormana en gat það varla fyrir
hlátri. Í eldhúsinu hjá ömmu var
Viktoría
Þorvaldsdóttir
✝ Viktoría Þor-valdsdóttir
fæddist 23. apríl
1937 í Reykjavík.
Útför hennar fór
fram í Ríkissal
Votta Jehóva í
Reykjavík laugar-
daginn 12. maí og
var jarðsett í
Stokkseyrarkirkju-
garði.
skúffa þar sem leynd-
ust ótrúlegustu fjár-
sjóðir og gat ég eytt
mörgum klukkutím-
um í að skoða allt sem
þar var að finna og
aldrei þreyttist amma
á að svara spurning-
um mínum um hvern
einn og einasta hlut.
Alltaf þegar ég kom
austur til ömmu og
afa fann ég ást og
hlýju streyma frá
ömmu og þeim báð-
um, þannig að ég
hlakkaði alltaf til að koma aftur þó
að ég væri nýkomin frá þeim. Ég
þakka fyrir það að amma mín skuli
hafa getað verið viðstödd giftingu
móður minnar í árslok 2006 en þá
var hún strax orðin mjög veikburða.
Ég þakka einnig fyrir að hafa
getað átt með henni stund þremur
vikum áður en hún lést því að ég
gerði mér alls enga grein fyrir
hversu alvarleg veikindi hennar
voru.
Elsku afi, mamma, Valdi, Villi,
Gunnar, Bjarni og Signý, ég votta
ykkur samúð mína á þessum erfiðu
tímum.
Viktoría Júlía Laxdal.
Elsku Ingibjörg
mín.
Þessu er erfitt að
kyngja, þú sem varst
stálhraust og í blóma lífsins. Þér leið
vel í Grundarlandi og hafðir nóg fyr-
ir stafni. Við vorum góðar vinkonur
og gerðum margt saman enda miklir
nautnaseggir báðar tvær. Best und-
um við okkur þegar við vorum bara
tvær, þá sérstaklega í bíltúrum en
þá var mikið hlegið. Skemmtilegast
fannst þér að fara í Kringluna og
Ingibjörg Lovísa
Sæunn Jónsdóttir
✝ IngibjörgLovísa Sæunn
Jónsdóttir fæddist í
Reykjavík 4. nóvem-
ber 1966. Hún lést á
gjörgæsludeild
Borgarspítalans 24.
apríl síðastliðinn. og
var útför hennar
gerð frá Grens-
áskirkju 4. maí.
ekki þurfti að snúa
upp á handlegginn á
mér til þess að láta til
leiðast. Einnig fórum
við ófáar ferðirnar á
kaffihús, í bíó, í sund, í
heimsóknir og margt
fleira skemmtilegt.
Hláturrokur þínar
voru svo smitandi og
þeim fór fjölgandi hin
síðari ár.
Við nutum fé-
lagsskaps hvor ann-
arrar og mikið óskap-
lega á ég eftir að
sakna þín mikið, þá sérstaklega að fá
ekki knúsið mitt þegar ég mæti á
vaktina, svo fast að ég gat varla and-
að en samt svo innilegt. Þú varst góð
kona, eins og þú sagðir sjálf svo
margoft við mig. Hittumst á Café
Himnaríki þegar þar að kemur. Þín
vinkona,
Drífa (Gilla).
Hörður
Sævaldsson
✝ Hörður Sævaldsson fæddist íNeskaupstað í Norðfirði 7.
febrúar 1934. Hann lést 6. maí síð-
astliðinn og var útför hans gerð
frá Hallgrímskirkju 15. apríl.
Elsku Hörður, ég á bágt með að
trúa því að þú sért farinn og komir
ekki aftur. Mér fannst svo gaman að
spjalla við þig og það var alltaf gott að
vera í návist þinni. Ég fann alltaf fyr-
ir hlýju frá þér og ég er þakklát fyrir
að hafa kynnst þér. Þú tókst alltaf svo
vel á móti mér. Guð geymi þig. Þín
verður sárt saknað. Þín tengdadóttir,
Dagný Lind Jakobsdóttir.
Sigurbjörg
Guðmunds-
dóttir
✝ Sigurbjörg Guðmundsdóttirfæddist 1. september 1918 í
Sigluvík í Vestur-Landeyjum.
Hún lést á elli- og hjúkrunarheim-
ilinu Grund 15. maí sl.
Útför Sigurbjargar fór fram
frá Seltjarnarneskirkju mánudag-
inn 21. maí sl.
Nú er hún Bagga mín dáin. Senni-
lega hvíldinni fegin. Hún var búin að
vera svo veik síðustu mánuðina.
Mér finnst samt skrítið að eiga
ekki eftir að sjá hana aftur. Hún var
alltaf svo létt í lundu þegar við hitt-
umst og eljan ótrúleg. Þrátt fyrir
sjónleysi heklaði hun fram á síðustu
stundu og nýfætt barnabarn okkar á
teppi eftir hana.
Ég kynntist Böggu fyrst þegar ég
kom í heimsókn og gisti heima hjá
Steinu vinkonu minni dóttur hennar
eftir að við höfðum verið saman á
Húsmæðraskólanum Ósk árið 1960.
Ég átti oft eftir að gista og koma að
Ytri-Grund og það var eins og hún
ætti í mér hvert bein frá fyrstu
stund. Heimilið á Ytri-Grund var
mannmargt og gestkvæmt þar.
Fljótlega eftir að við kynntumst
eignaðist hún yngsta son sinn Kjart-
an sem varð ellistoð móður sinnar.
Hún kom á heimili hans og Þóru
konu hans og dætra þeirra eftir að
Felix dó og naut þar góðs atlætis. Ég
hitti hana líka oft hjá Steinu vinkonu
minni sem hún dvaldi oft hjá um
helgar. Bagga hafði ótrúlega græna
fingur. Hún kom öllum plöntum til.
Hún þurfti ekki nema stein úr
ávöxtum til að fá stærðartré. Felix
byggði sumarbústað í Grímsnesi á
efri árum og átti hún þar margar
góðar stundir með börnum sínum á
seinni árum ævi sinnar. Ég vil þakka
henni alla gæsku við mig og sendi
öllum ástvinum hennar samúðar-
kveðjur frá mér og Júlíusi.
Guð geymi Sigurbjörgu Guð-
mundsdóttur.
Jóna K. Sigurðardóttir.