Morgunblaðið - 27.05.2007, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 27.05.2007, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞESSA dagana er kynnt með kappi í fjölmiðlum ný námsleið, frumgreinadeild Keilis, ætluð fólki sem vantar undirbúning fyrir há- skólanám. Gott mál en lítil nýjung. Frumgreinadeild var stofnuð árið 1964 við Tækniskóla Íslands, síðar Tækniháskóla Íslands, og við sam- einingu hans og Háskólans í Reykja- vík árið 2005 var nafninu breytt í frumgreinasvið. Við erum stolt af því metnaðarfulla starfi sem farið hefur fram við frumgreinasvið HR í ríflega fjörutíu ár. Það að aðrir vilji auglýsa nám undir sama nafni sýnir og sannar enn á ný að orðstír okkar er góður og margir vildu Lilju kveð- ið hafa. Menn skyldu samt varast að rugla saman frumgreinadeild Keilis og frumgreinasviði HR, þó að vissu- lega komi margt í kennsluskrá þeirra fyrrnefndu kunnuglega fyrir sjónir. Hagnýt menntun frá árinu 1964 Tilgangur frumgreinasviðs Há- skólans í Reykjavík hefur alla tíð verið að mynda nokkurs konar brú milli iðnmenntunar, atvinnulífs og háskólanáms. Þar hefur mikil áhersla verið lögð á stærðfræði og raungreinar en tungumálin eru einnig mikilvæg í undirbúningi nem- endanna. Frumgreinasvið HR er líka vettvangur fyrir fólk sem þarf að bæta við sig námi í stærðfræði og raungreinum. Nemendur á frum- greinasviði HR eru fjölbreyttur hóp- ur; iðnaðarmenn og fólk með mikla starfsreynslu. Allir keppa að sama markmiði, að öðlast hagnýtan og markvissan undirbúning fyrir há- skólanám. Hvað segja nemendur? Árið 2006 var unnin rannsókn með stuðningi frá Nýsköpunarsjóði námsmanna, Iðnskólafélaginu, Há- skólanum í Reykjavík og Samtökum iðnaðarins um hversu vel nám við frumgreinasvið nýttist nemendum í tæknifræði og verkfræði við HR. Niðurstaðan var mjög jákvæð því mikill meirihluti sagðist hafa fengið hagnýtan og markvissan undirbún- ing við frumgreinasviðið, auk þess sem iðn- og starfmenntun nýttist vel í fyrrnefndu námi. Meðalaldur nemenda frum- greinasviðs HR er í kringum 27 ár, starfs- andi er góður og metnaður mikill. Við segjum engum sem hyggur á nám við frumgreinasvið HR að þeirra bíði nota- legt nám og mikill frí- tími. Þvert á móti viljum við að nem- endur viti að vinnu- semi, kraftur og ástundun eru mikils metin við skólann. Í áðurnefndri könnun frá 2006 kom einnig fram að nemendum líkar vel námið við frumgreinasvið m.a. vegna þess að þar eru gerðar kröfur. Mikil og krefjandi vinna en skemmtileg eru orð sem margir notuðu í könn- uninni til að lýsa frumgreinasviði HR. Þetta eru verðug ummæli um nám sem byggir á traustum grunni. Enn er hægt að sækja um Umsóknarfrestur við frum- greinasvið Háskólans í Reykjavík rennur út 31. maí n.k. Við hvetjum þá sem eiga sér draum um að kom- ast í nám í tæknifræði og verkfræði, en skortir viðeigandi undirbúning, að skoða heimasíðu frumgreinasviðs og námsframboð skólans á www.hr.is. Látið drauminn rætast og veljið leið sem hefur verið fjöl- mörgum lykill að spennandi námi og starfi. Frumgreinasvið Háskólans í Reykjavík er engin ný bóla – hefur staðið traust í ríflega fjörutíu ár. Fátt er nýtt undir sólinni Anna Bragadóttir og Karl Jósafatsson skrifa um frumgreinasvið HR » Frumgreinasvið Há-skólans í Reykjavík er engin ný bóla – hefur staðið traust í ríflega fjörutíu ár. Anna Bragadóttir Anna Bragadóttir, M.Paed. íslensku- kennari og Karl Jósafatsson, Ph.D. eðlisfræðikennari. Karl Jósafatsson ÉG veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta. Geir Haarde hefur myndað nýja ríkisstjórn. Hann hefur dregið Samfylk- inguna upp úr feninu, sem hún hefur setið í frá fæðingu. Þar hefði hana dagað uppi án áhrifa, ef enginn hefði komið til hjálpar. En það gerði Geir, að því er virðist af góð- mennsku einni saman, því aðrir kostir voru til staðar. Hann hefur komið Ingibjörgu Sól- rúnu í valdastól, ásamt Össuri Skarphéðinssyni, Jóhönnu Sigurð- ardóttur og Kristjáni Möller, sem hvað harðast hafa lamið á Sjálf- stæðisflokknum í valdatíð hans und- anfarin 16 ár. Í minni sveit var þetta kallað að kyssa vöndinn. Þar að auki fær Norðaust- urkjördæmi engan ráðherra, sem ég túlka sem svik við kjós- endur Sjálfstæð- isflokksins í kjördæm- inu. Ég studdi Kristján Þór Júlíusson, fyrrver- andi bæjarstjóra á Akureyri, í prófkjöri, sem efnt var til við upp- stillingu á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Stuðnings- menn hans og flokksins töldu mik- ilvægt að Akureyringar ættu odd- vita listans. Þar að auki töldum við næsta víst, að ef Kristján ynni af- gerandi sigur í prófkjörinu og síð- an góðan sigur í alþingiskosning- unum, þá væri tæpast hægt að ganga fram hjá hon- um við ráðherraval, ef flokkurinn yrði áfram í ríkisstjórn. Þetta gekk eftir. Kristján fékk afgerandi kosn- ingu í efsta sæti listans, sem hann leiddi síðan til sigurs í nýafstöðnum kosn- ingum til Alþingis. Hann náði því markmiði að verða fyrsti þingmaður kjör- dæmisins, skákaði þar með Valgerði Sverr- isdóttur. Þar að auki bætti flokkurinn við sig þriðja þingmanninum í kjör- dæminu og var nærri því að ná þeim fjórða. Þrátt fyrir þetta var gengið fram hjá Kristjáni Þór, þegar að því kom að velja ráðherra. Geir Haarde hefur með þessu sýnt Krist- jáni Þór og kjós- endum Sjálfstæð- isflokksins í Norðausturkjördæmi lítilsvirðingu. Geir er sjálfur kosinn á þing fyrir annað Reykja- víkurkjördæmið, en úr hinu kjör- dæminu ákvað hann að taka tvo ráðherra, jafnvel þótt fimmtungur kjósenda annars þeirra hafi strikað annan þeirra, Björn Bjarnason, út af listanum. Þar með færðist hann niður um eitt sæti. Þrátt fyrir það naut hann áfram trausts hjá for- manninum, sem ákvað að verð- launa þetta kjördæmi með tveimur ráðherrum, en á sama tíma fékk Norðausturkjördæmi engan ráð- herra á vegum Sjálfstæðisflokks- ins. Eina kjördæmið sem ekki á ráðherra á vegum flokksins. Á sama tíma velur Samfylkingin odd- vita sinn í kjördæminu, Kristján Möller, í sæti samgönguráðherra. Það er til að snúa hnífnum í sári okkar Sjálfstæðismanna í Norð- austurkjördæmi. Fyrst Geir vildi ekki okkar mann í ráðherrastól átti hann að fyrirbyggja þennan gjörn- ing Ingibjargar. Þetta gefur Krist- jáni Möller tækifæri til að vinna sér til vinsælda í kjördæminu, sem gæti síðan leitt til þess, að Sam- fylkingin yrði stærri flokkur en Sjálfstæðisflokkurinn í næstu kosningum. Ég held að Geir Haarde hafi gert mikil mistök með því að hafna áframhaldandi stjórn með Fram- sókn. Þar átti hann möguleika á átta ráðherrastólum. Þar átti Sjálf- stæðisflokkurinn mun meiri sókn- armöguleika. Þess í stað ákvað hann að bjóða Ingibjörgu Sólrúnu upp í dans. Ég óttast að það verði hrunadans Sjálfstæðisflokksins, enda mátti greina háðsglott á vörum Samfylkingarfrúarinnar, þegar fyrsta sporið var stigið. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur setið í ríkisstjórn hefur hann nær undantekningalaust falið ein- hverjum þingmanni sínum af Norð- austurhorninu ráðherradóm. Und- antekning var eftir kosningarnar 2003, þegar Tómas Ingi Olrich þurfti að yfirgefa ráðherrastól og Halldór Blöndal var ekki forseti Alþingis nema hálft kjörtímabilið. Við því var ekkert að segja, því þá galt listi flokksins afhroð í kjör- dæminu. Nú unnum við stóran sig- ur undir forystu Kristjáns Þórs Júlíussonar, en hann hlýtur ekki stuðning til ráðherradóms. Geir Haarde hefur gert lítið úr kjós- endum Sjálfstæðisflokksins í Norð- austurkjördæmi. Ég veit ekki um aðra, en ég mun hugsa mig tvisvar um áður en ég kýs flokkinn oftar, ef Geir gerir ekki bragarbót fyrr en síðar. Geir kyssir vöndinn Sverrir Leósson er óánægður með þá ákvörðun að Norðaust- urkjördæmi fái ekki ráðherra Sverrir Leósson » Geir Haardelítilsvirti kjósendur Sjálf- stæðisflokksins í Norðaust- urkjördæmi með því að snið- ganga Kristján Þór Júlíusson. Höfundur er fyrrverandi útgerð- armaður á Akureyri. www.klettur.is ÁSAKÓR 9-11 KÓPAVOGI - GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR Glæsilegar íbúðir í sex hæða lyftuhúsi með tveimur stigagöngum við Ásakór 9-11 í Kópavogi. Stærð íbúða er 85–158 fm, 2ja–5 herbergja íbúðir. Alls er 31 íbúð í húsinu og 12 bílskúrar. Allar íbúðir skilast fullbúnar án gólfefna, en þó er gólf á baði og þvottahúsi flísalagt, sjá skilalýsingu. Ásakór 11 afhendist í júní og Ásakór 9 í júlí. Allar nánari upplýsingar um þessa eign er hægt að fá hjá sölumönnum Kletts fasteignasölu og á heimasíðunum www.asakor.com og www.klettur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.