Morgunblaðið - 27.05.2007, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Valgerði Þ. Jónsdóttur
vjon@mbl.is
Vinsældirnar aukast jafntog þétt og nú hafa umfjögur hundruð þúsundmanns í 65 löndum gerst
áskrifendur að póstlista á vefnum
FlyLady.net, sem settur var á lagg-
irnar árið 2001. Þeir fá því sjálf-
krafa allt að 15 tölvupóstskeyti á
dag frá flugdömunni, sem hvetur þá
áfram með ráðum og dáð. Þó ekki í
tengslum við áhugamál á borð við
fluguhnýtingar, flug, léttklæddar
lafðir eða veiðiskap, eins og nafnið
gæti bent til. Raunar sæta vinsældir
flugdömunnar nokkurri furðu því
umfjöllunarefni hennar er bæði ein-
staklega hversdagslegt og að flestra
mati leiðinlegt. Nefnilega heimilis-
störf.
Þótt flestir verði að láta sig hafa
það að taka til og þrífa annað slagið
hafa sárafáir brennandi áhuga á
húsverkum. Margir fyllast vanlíðan,
kvíða og samviskubiti við tilhugs-
unina eina saman.
Leyndarmál konu dómarans
Slíkar tilfinningar gerðu vart við
sig hjá forsprakka vefjarins, Marla
Cilley, fyrir rúmum áratug þegar
hún giftist héraðsdómara í Norður-
Karólínu í Bandaríkjunum. „Hvern-
ig gætu þau sameinað tvö heimili yf-
irfull af allskonar dóti?“ hugsaði
hún áhyggjufull. En það gerðu þau
og bættu um betur. „Við sameinuð-
um óreiðuna, fórum síðan á uppboð
og keyptum meira,“ sagði hún í við-
tali á beliefnet.com. Hús þeirra
hjónakorna segir hún hafa orðið svo
draslaralegt að þegar fulltrúar
sýslumanns komu að hitta eigin-
mann hennar, eins og oft bar við,
bauð hún þeim ekki að ganga í bæ-
inn. „ … svo þeir kæmust ekki að
litla, ljóta leyndarmálinu mínu,“ út-
skýrir hún.
Árið 1999 var henni þó alveg nóg
boðið og ákvað að taka sig taki og
koma skikki á eitt í einu á heimilinu.
Svo vel fórst henni verkið úr hendi
að vinir og kunningjar hófu að leita
hjá henni ráða um að leysa ýmis
skipulagsvandræði á heimilum sín-
um. Grunnurinn var lagður og
tveimur árum síðar var Cilley orðin
ókeypis húshjálp í netheimum.
Fullkomnunarárátta
Flestir áskrifendanna eru konur,
sem hrífast af hispurslausri og, að
því er virðist, einfaldri nálgun Cilley
á viðfangsefninu, en sjálf lýsir hún
sér sem klappstýru, álfkonu og lið-
þjálfa í bland, sem líði ekki vol, væl
og víl.
Sumt sem lesa má á vefnum
hljómar að vísu eins og afturhvarf
til fortíðar eða til þess tíma er konur
voru húsmæður að aðalstarfi. Ann-
að er meira í takt við nútímann þeg-
ar flestar konur hafa jafnframt ann-
an starfa og glíma við að finna hið
gullna jafnvægi á milli starfs og
starfsframa annars vegar og heim-
ilis og fjölskyldu hins vegar.
Oftast er málinu beint til kvenna,
en Cilley fullyrðir að fullkomnunar-
árátta hrjái þær margar. Þótt þver-
sagnakennt sé segir hún að gald-
urinn við að halda heimilinu ætíð
hreinu og snyrtilegu með lítilli fyr-
irhöfn sé að láta af fullkomnunar-
áráttunni. Í stórum dráttum þróaði
Cilley kerfi sem byggðist á daglegri
og vikulegri rútínu, eins og henni lét
best að vinna eftir um árið.
„Ég fann að ég gat ekki gert allt í
einu og varð að koma mér niður á að
vinna eitt verk í einu, en reglulega;
búa til venju. Fyrsta venjan, sem ég
setti mér í janúarmánuði, var að
halda eldhúsvaskinum skínandi
hreinum,“ segir Cilley og lýsir síðan
hvernig vaskur smitar út frá sér
hreinlæti. „ … síðan verður borðið í
kring eins og ósjálfrátt hreinna og
ofnarnir virðast hrópa „þrífðu mig
líka“. Áður en þú veist af geislar eld-
húsið af hreinlæti og þú hefur ekk-
ert á móti því að fara þangað inn og
elda kvöldmatinn.“
Eldhúsvaskurinn gegnir þýðing-
armiklu hlutverki og er táknrænn
fyrir aðferðafræði Cilley, sem segir
hvert herbergi hafa sinn „gljáfægða
vask“ því uppbúið rúm og snyrtilegt
skrifborð hafi sömu áhrif. Á Fly-
Lady.net er farið með byrjendum,
svonefndum FlyBabies, skref fyrir
skref í gegnum daglegan verkefna-
lista í 31 dag.
Fyrsta regla fyrsta dags
Fyrsta regla fyrsta dags er:
Farðu og fægðu vaskinn! „Þegar
það er búið þarftu að halda honum
skínandi hreinum, þurrka af honum
eftir notkun og sjá til þess að hann
sé gljáfægður þegar þú ferð í hátt-
inn – til þess að þú getir brosað
næsta dag. […] Gljáfægður vaskur-
inn endurspeglar að þér þykir vænt
um sjálfa þig,“ segir á síðunni og
síðan er útskýrt út á hvað kerfið
gengur, þ.e. að koma sér upp venj-
um, sem smám saman verði að ein-
faldri rútínu; á morgnana, eftir
vinnu og áður en farið er að sofa.
Fyrsta skrefið ætti ekki að vera
neinum ofviða, enda eru byrjendur
hvattir til að fara sér í engu óðslega
við að reyna að gera allt í einu.
Grundvallarreglan samkvæmt
kerfi flugdömunnar er að ekki eigi
Morgunblaðið/Golli
Skínandi fínn Gljáfægður eldhúsvaskur er sagður geta orðið húsráð-
endum innblástur til að koma öllu heimilinu í sama stand.
Í HNOTSKURN
Nokkur ráð og hugleiðingar á
flylady.net, sem Marla Cilley,
áhugamanneskja um veiðar á
flugu, stofnaði árið 2001:
» Gerðu það núna. Frestuner einkenni fullkomnunar-
áráttu, sem þarf að yfirvinna.
Gerðu það sem þú getur, þeg-
ar þú getur, eins vel og þú get-
ur.
» Stilltu tímastillinn á 15mínútur. Hættu svo, þótt
verkinu sé ekki lokið.
» Lagaðu daglega til í einudraslhorni eða skúffu (hot
spot) eða þar sem heim-
ilisfólkið á vanda til að henda
hlutunum frá sér.
» Heimili okkar urðu ekkidraslaraleg á einum degi
og þau verða heldur ekki þrif-
in hátt og lágt á einum degi.
NETIл
Þeim sem eru haldnir fullkomnunaráráttu og fyllast vanlíðan, kvíða og samviskubiti
við tilhugsunina um heimilisstörf stendur ókeypis húshjálp til boða í netheimum
Húsráð handa ráðalausum
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
H
ANN er klárastur,
undirförulastur og sá
útsmognasti af þeim
öllum,“ sagði Charlie
heitinn Haughey,
fyrrverandi forsætisráðherra Ír-
lands, einhverju sinni um Bertie
Ahern.
Ummælin voru meint sem ein-
stakt hrós um Ahern, sem var ráð-
herra í ríkisstjórn Haugheys, eftir að
honum hafði tekist að bjarga sam-
steypustjórn Fianna Fáil og Fram-
sækinna demókrata frá falli 1991 í
viðræðum um framhald stjórn-
arsamstarfsins. En þau hafa verið
rifjuð upp í seinni tíð vegna ásakana
á hendur Ahern um spillingu – og
hljóta að teljast þeim mun kald-
hæðnislegri því að á daginn kom að
Haughey, sem mælti þessi fleygu
orð, hafði á löngum stjórnmálaferli
ítrekað blekkt landsmenn og þegið
ótrúlegar fjárupphæðir frá írskum
auðmönnum.
Ahern neyddist sjálfur sl. haust til
að viðurkenna að hann hefði á ár-
unum 1993 og 1994, en þá var hann
fjármálaráðherra, þegið til eigin
nota „gjafir“ upp á sem samsvarar
fjórum milljónum íslenskra króna
frá vinum og vandamönnum. Pen-
ingana sagðist Ahern hafa notað til
að greiða kostnað sem féll til er hann
skildi við konu sína, Miriam. Ým-
islegt fleira kom upp úr dúrnum en
Ahern stóð fastur á því að um per-
sónulega vini hans hefði að ræða,
ekki ókunnuga viðskiptamenn sem
mögulega hefðu viljað njóta póli-
tískrar velvildar í kjölfarið. En hann
greiddi aldrei skatt af þessum gjöf-
um, ekki fyrr en í fyrra þegar
greiðslurnar komust í hámæli og
Ahern í verulegan bobba.
Ætlar að hætta sextugur
En það er ekki að ástæðulausu
sem Ahern hefur verið kallaður „tef-
lon-maðurinn“. Það virðist ekkert
loða við hann. Kjósendur á Írlandi
hafa nú kosið hann og flokk hans, Fi-
anna Fáil, til stjórnarsetu til fimm
ára í viðbót. Þrátt fyrir að Ahern hafi
nú þegar gegnt embætti forsætis-
ráðherra í tíu ár virðist ekkert lát á
vinsældum hans. Fátt virðist í vegi
fyrir því að hann þjóni í heil fjögur ár
í viðbót, eða þangað til hann verður
sextugur, en þá hyggst Ahern hætta
afskiptum af írskum stjórnmálum.
Flokkur Aherns, Fianna Fáil,
tryggði sér í þingkosningum á
fimmtudag um það bil sama hlutfall
atkvæða og fyrir fimm árum, í kosn-
ingunum 2002. Flokkurinn fékk
rúmlega 41% atkvæða sem í gær-
morgun virtist ætla að tryggja hon-
um 78 fulltrúa á 166 manna þingi,
eða um það bil sömu þingmannatölu
og síðast. Þá vantar Fianna Fáil átta
þingmenn til að hafa meirihluta. Sl.
tíu ár hefur Fianna Fáil verið í sam-
starfi við Framsækna demókrata,
frjálslyndan hægriflokk, en sá galt
afhroð í kosningunum nú, hafði átta
þingmenn en fær líklega aðeins tvo
að þessu sinni. Því er ljóst að Ahern
þarf að leita sér að nýjum samstarfs-
flokki.
Fyrirfram höfðu Verkamanna-
flokkurinn og Fine Gael, stærsti
stjórnarandstöðuflokkurinn, bundist
fastheitum um það að fella ríkis-
stjórnina. Þó að það takmark hafi í
sjálfu sér náðst, í ljósi þess að Fram-
sæknir demókratar þurrkuðust nán-
ast út, þýðir það ekki að þeir geti í
staðinn myndað ríkisstjórn. Á írska
þinginu verður að finna fimm óháða
þingmenn, sem standa mun nær Fi-
anna Fáil heldur en Fine Gael eða
Verkamannaflokknum, og ýmsa
minni flokka, s.s. Sinn Féin, sem for-
ráðamenn Fine Gael hafa beinlínis
útilokað samstarf við. Óhjákvæmi-
legt virðist því annað en að Ahern
sitji áfram á stóli forsætisráðherra
og voru uppi vangaveltur um það í
gær að hann myndi leita eftir sam-
starfi við Verkamannaflokkinn, sem
fékk líklega 20 menn kjörna, eða
Græningja sem fengu sex.
Bertie Ahern er fæddur í Drum-
condra í Dublin 12. september 1951.
Hann hefur setið á þingi í þrjátíu ár
og verið ráðherra í tuttugu, var fyrst
atvinnumálaráðherra 1987-1991 og
svo fjármálaráðherra 1991-1994. Fi-
anna Fáil átti ekki aðild að ríkis-
stjórn næstu þrjú árin þar á eftir en í
kosningunum 1997, þeim fyrstu sem
Ahern háði sem leiðtogi flokksins,
bar hann sigur úr býtum og Ahern
tók við sem forsætisráðherra 26. júní
1997.
Eitt af einkennismerkjum Aherns
er harður Dyflinnarhreimur hans.
Hann þykir hafa umtalsverða per-
sónutöfra, en þeir felast einkum í
vinalegri framkomu hans og eðlis-
lægri tilhneigingu hans til að tala al-
múgamál. Ahern kann best við sig
meðal „venjulegs“ fólks, hann fær
sér Guinness eins og góðum Íra
sæmir og í stað þess að dýrka há-
menningu er hann staðfastur
íþróttaáhugamaður, sækir reglulega
leiki í gelískum fótbolta og rugby á
Croke Park og Lansdowne Road í
Dublin og styður Manchester United
í enska boltanum, eins og svo margir
landa hans.
Ahern kvæntist Miriam Kelly árið
1975. Þau eignuðust tvær dætur,
Georginu og Ceciliu, en sú fyrr-
nefnda er gift liðsmanni „drengja-
bandsins“ Westlife á meðan Cecilia
er metsöluhöfundur, bækur hennar
hafa m.a. verið þýddar á íslensku.
„Berta-faktorinn“
Miklar þjóðfélagsbreytingar hafa
átt sér stað á Írlandi undanfarin ár
en kaþólska kirkjan er þar engu að
Klárastur af
þeim öllum
Reuters
Sigursæll Bertie Ahern sló á létta strengi þegar hann mætti til viðtals í sjónvarpsstúdíó RTÉ seint í fyrrakvöld.
Írum líkar of vel við Bertie Ahern til að
vilja refsa honum fyrir gamlar syndir
SVIPMYND»