Morgunblaðið - 27.05.2007, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 73
hlutavelta
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Mánudagur: Vinnustofan opin kl.
9-16.30. Hjúkrunarfræðingur er með viðtalstíma kl.
9-11. Boccia kl. 10. Félagsvist kl. 14.
Árskógar 4 | Mánudagur: Bað kl. 8-16. Handavinna
kl. 9-12. Smíði/útskurður kl. 9-16.30. Söngstund kl.
10.30, félagsvist kl. 13.30. Myndlist kl. 16.
Félagsstarf Gerðubergs | Starfsfólk sendir þátt-
takendum, samstarfsaðilum og velunnurum um
land allt hátíðarkveðjur. Starfsemi fellur niður á
morgun, annan í hvítasunnu. Miðvikud. 13. júní
kvennahlaup ÍSÍ o.fl. Þorsteinn Hjartars. fram-
kvæmdastj. þjónustumiðst. Breiðholts ræsir hlaup-
ið kl. 13. Skráning hefst þriðjud. 29. maí. S.
5757720.
Hraunbær 105 | Mánudagur: Kl. 9-16.30 handa-
vinna. Kl. 10-10.30 bænastund. Kl. 12-12.30 hádeg-
ismatur. Kl. 15 kaffi.
Hæðargarður 31 | Afmælishátíðin heldur áfram á
þriðjudag og miðvikudag og endar með því að
draumadísirnar og draumaprinsarnir standa fyrir
balli með hljómsveit Hjördísar Geirs fimmtudaginn
31. maí kl. 13.30. Límónaði og snittur. Alltaf kátt í
höllinni í Hæðargarði. Sjá nánar á vef Reykjavíkur-
borgar.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun mánudag er
ganga frá Grafarvogskirkju kl. 10.
Vesturgata 7 | Fimmtudaginn 31. maí kl. 13 verður
farið á handverkssýningu í félagsmiðstöðinni Hæð-
argarði 31. Kaffiveitingar á staðnum. Skoðunarferð
með Hannesi bílstjóra um borgina. Upplýsingar og
skráning í síma 5352740.
Kirkjustarf
Fríkirkjan Kefas | Almenn samkoma kl. 20. Helga
R. Ármannsdóttir prédikar. Á samkomunni verður
lofgjörð, í lok hennar verður brauðsbrotning og eft-
ir hana verður kaffisala. Allir eru velkomnir.
Hlutavelta | Vaskur hópur
hélt hlutaveltu í hverfinu sínu.
Þau afhentu Rauða krossinum
ágóðann, alls 5.854 krónur.
Krakkarnir duglegu heita Ás-
geir Tumi Ingólfsson, Védís
Alma Ingólfsdóttir og Stella
Marín Guðmundsdóttir. Á
myndinni eru Ásgeir Tumi og
Védís Alma.
dagbók
Í dag er sunnudagur 27. maí, 147. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Og á þeim degi mun ég bænheyra, segir Drottinn. Ég mun bænheyra himininn, og hann mun bænheyra jörðina. (Hs. 2, 21.)
Níunda landsbyggðarráð-stefna Félags þjóðfræðingaá Íslandi og Sagnfræðinga-félags Íslands verður haldin
dagana 1. til 3. júní á Leirubakka í
Landsveit. Yfirskrift ráðstefnunnar er
Hálendi hugans og er Björk Þorleifs-
dóttir sagnfræðingur einn af skipuleggj-
endum dagskrárinnar:
„Á ráðstefnunni koma saman fræði-
menn úr mörgum áttum, s.s. þjóðfræð-
ingar, íslenskufræðingar, miðaldafræð-
ingar og sagnfræðingar,“ segir Björk.
„Kafað verður ofan í sögu og þjóðfræði
hálendisins á þessari ráðstefnu. Áður
hafa Félag þjóðfræðinga og Sagnfræð-
ingafélagið haldið ráðstefnur í öllum
landshlutum og fjallað um hvern stað
fyrir sig, og er hringnum nú lokað á
miðju landsins, hálendinu.“
Flutt verða 18 erindi og ræður á með-
an á ráðstefnunni stendur: „Haldnar eru
málstofur yfir daginn en kvöldin eru
helguð erindum á léttari nótum. Þar
mun Bjarni Harðarson nýkjörinn þing-
maður verða með lauflétta hátíðarræðu,
og ég sjálf mun fjalla um skemmtanalíf á
hálendinu á laugardagskvöld,“ segir
Björk. Auk þess verður afhjúpaður
minnisvarði um Guðna Jónsson prófess-
or sem tengdist Leirubakka sterkum
böndum í æsku.„Landsbyggðarráð-
stefnurnar hafa verið vel sóttar af fræði-
mönnum, en við viljum ekki síður höfða
til heimamanna og áhugamanna og ættu
öll erindin að vera aðgengileg og auð-
skiljanleg þó vitaskuld séu gerðar ríkar
fræðilegar kröfur til fyrirlesara.
Á ráðstefnunni verður umfjöllunar-
efnið allt frá furðusögum um tröll,
drauga og útilegumenn til þjóðlendu-
mála og nýtingar hálendisins í fortíð og
nútíð, hvort heldur er ferðamennska,
virkjun fallvatna eða æfingar geimfara.
Það er því ljóst að það hafa ekki bara
verið útilegumenn á sveimi á hálendi Ís-
lands í gegnum tíðina.“
Þökk sé rausnarlegum styrktaraðil-
um er aðgangur að ráðstefnunni ókeypis
en kaupa má gistingu á staðnum. Skrán-
ing á ráðstefnuna er á slóðinni
www.sagnfraedingafelag.net og má þar
einnig finna nánari upplýsingar um dag-
skrána. „Ráðstefnan er haldin í nýopn-
uðu Heklusetri og er um að ræða stór-
kostlegan stað og fallegt umhverfi sem
gaman er að heimsækja. Gefst ráð-
stefnugestum tækifæri á að upplifa allt
þetta, hlýða á fræðandi og skemmtilega
fyrirlestra og gera sér glaðan dag.“
Fræði | Landsbyggðarráðstefnan Hálendi hugans á Leirubakka 1. til 3. júní
Saga og menning hálendisins
Björk Þorleifs-
dóttir fæddist í
Reykjavík 1974.
Hún lauk stúdents-
prófi frá Mennta-
skólanum í Reykja-
vík 1994, B.A.
gráðu í sagnfræði
frá Háskóla Ís-
lands 2003 og er að
ljúka meistaranámi í umhverfissagn-
fræði frá University of St. Andrews í
Skotlandi. Björk er sjálfstætt starf-
andi fræðimaður í Reykjavíkur-
Akademíunni á sérsviði umhverfis-
sagnfræði með áherslu á áhrif nátt-
úruhamfara á samfélög.
Fyrirlestrar og fundir
Alliance Francaise | Aðalfundur
Alliance française verður haldinn
föstudaginn 1. júní, kl. 18.30 í
húsakynnum félagsins (Tryggva-
götu 8). L’Assemblée générale
2007 aura lieu le vendredi 1er ju-
in 2007 à 18h30 dans les locaux
de l’Alliance française situés à
Tryggvagata 8.
Fréttir og tilkynningar
Listasafn Íslands | Á hvítasunnu-
dag kl. 14: Nærmynd af danska
listamanninum Ejler Bille.
Frístundir og námskeið
www.ljosmyndari.is | Ljósmynd-
anámskeið. Akureyri 11.-12. júní kl.
18-22 í Rósenborg. Farið í helstu
stillingaratriðin á stafrænni
myndavél, ýmis góð ráð gefin til
að ná betri myndum. Tölvumálin
eru tekin fyrir ofl. Námskeiðið
kostar 12.900 kr. Skráning á
www.ljosmyndari.is. Leiðbeinandi
er Pálmi Guðmundsson.
Börn
Elliðarárdalurinn | Hvítasunnu-
daginn 27. maí, kl. 14, mun Leik-
hópurinn Lotta frumsýna barna-
leikritið Dýrin í Hálsaskógi í
Elliðaárdalnum. Þar sem sýnt er
utandyra er um að gera að klæða
sig eftir veðri og taka með sér
teppi til að sitja á og hlýja sér.
Miðapantanir/uppl. í síma 699-
3993 og á www.123.is/dyrin-
ihalsaskogi.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir til kynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesend-
um sínum að kostn-að-
arlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudags- og mánu-
dagsblað.
Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum
og/ eða nafn ábyrgð-
armanns og símanúm-
er.
Hægt er að hringja í
síma 569-1100, senda
tilkynningu og mynd á
netfangið ritstjorn-
@mbl.is, eða senda til-
kynningu og mynd í
gegnum vefsíðu Morg-
unblaðsins,
www.mbl.is, og velja
liðinn Senda inn efni".
Einnig er hægt að
senda vélritaða til-
kynningu og mynd í
pósti.
Bréfið skal stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
FRÉTTIR
HÁLENDI hugans – níunda lands-
byggðaráðstefna Félags þjóðfræð-
inga á Íslandi og Sagnfræðinga-
félags Íslands, í samvinnu við
Heklusetrið á Leirubakka í Land-
sveit, verður haldin 1.-3. júní.
Ráðstefnan verður að þessu sinni
helguð hálendi Íslands og haldin á
Leirubakka í Landsveit þar sem all-
ur aðbúnaður á hinu nýju Heklusetri
er til fyrirmyndar (sjá www.leiru-
bakki.is). Fjöldi fræðandi fyrirlestra
verður í boði og síðasta dag ráð-
stefnunnar verður opin málstofa um
stöðu hálendisins í huga landsmanna
í dag. Nánari upplýsingar um ráð-
stefnuna má finna á heimasíðu Sagn-
fræðingafélagsins, (www.sagnfraed-
ingafelag.net).
Styrkjendur ráðstefnunnar eru
N1, menntamálaráðuneyti, umhverf-
isráðuneyti og fjármálaráðuneyti,
Rangárþing ytra, Stangaveiðifélag
Reykjavíkur, Bændasamtök Íslands
og Heklusetrið á Leirubakka.
Síðastliðin átta ár hafa Sagnfræð-
ingafélag Íslands og Félag þjóð-
fræðinga á Íslandi staðið að fræða-
ráðstefnu á landsbyggðinni að sumri
til. Félögin hafa haft að leiðarljósi að
styrkja staðbundnar rannsóknir og
miðlun á sviði sagnfræði, þjóðfræði
og annarra hug- og félagsvísinda.
Ráðstefnunum er þannig bæði ætlað
að vekja áhuga fræðimanna á höfuð-
borgarsvæðinu á einstökum svæðum
með því að taka fyrir efni sem eru
knýjandi í fræðilegri umræðu og að
efla áhuga heima.
Landsbyggð-
aráðstefna í
Heklusetrinu
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
SPÆNSKI nautabaninn Cayetano Rivera tekst á við naut á nautaati í Coso de los Califas í Cordoba á suðurhluta Spánar á
föstudaginn. Þrátt fyrir að nautaati hafi verið harðlega mótmælt um allan heim leyfa Spánverjar íþróttina enn.
Reuters
Maðurinn og nautið