Morgunblaðið - 27.05.2007, Blaðsíða 27
hugsað upphátt
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 27
Mamma! Þegar ég kem til þín þá
verð ég Ameríkani!
Þetta sagði Franklin litli Lopez
við mömmu sína hana Blöncu þegar
hún hringdi í hann um daginn.
Blanca er búin að vera barnfóstra
hjá mér eiginlega allar götur síðan
ég fluttist hingað til Bandaríkjanna.
Alveg einstök manneskja og frá-
bær barnfóstra. Ég get talað af
reynslu því dætur mínar hafa notið
uppeldis hjá alveg hreint frábærum
konum í gegnum tíðina.
Utan einni sem fékk kringlukast
og gleymdi dóttur minni í barna-
geymslunni í samnefndu molli um
árið.
Barnfóstran sú er nú látin bless-
unin og fær vonandi útrás fyrir
kaupæði sitt á himnum.
Blanca kom ólöglega til Banda-
ríkjanna frá El Salvador aftan í bíl-
skotti hjá einhverjum drullusokki og
greiddi fyrir ósköpin andvirði flug-
miða á fyrsta farrými. Hún var mis-
notuð og hálfsvelt á leiðinni en hún
var sannfærð um að í Bandaríkj-
unum biði hennar betra líf.
Betra líf fyrir hana og einkasoninn
Franklin sem var skilinn eftir hjá
ömmu sinni og honum lofað að
seinna myndu þau sameinast í fyr-
irheitna landinu.
Hann var þá þriggja ára gamall.
Blanca hefur reglulega fengið
sendar myndir af drengnum og hef-
ur þannig fylgst með uppvexti hans
úr fjarska.
Ekki skil ég hvernig hún hefur
þolað við. Að vera svona lengi í burtu
frá barninu sínu. Stundum er hún
ansi langt niðri og einu sinni brotn-
aði hún niður og sagði við mig: „Ól-
ína, þú veist að ég elska börnin þín
eins og þau væru mín eigin, en
stundum finnst mér bara svo erfitt
að hafa Franklin ekki hjá mér.“
Núna tæpum þremur árum síðar
er Franklin lagður upp í sömu ferð
og móðir hans um árið. Hann er ekki
einn á ferð, hann er með móð-
ursystur sinni og einhverjum mexí-
könskum gripaflutningastjóra sem
hefur lífsviðurværi sitt af því koma
fólki ólöglega yfir landamærin.
Núna hefur ferðalagið tekið tvær
vikur og þar af vikubið við landa-
mærin þar sem þau bíða færis að
keyra yfir.
Blanca er að vonum dauðhrædd
um drenginn og við fjölskyldan fylgj-
umst grannt með gangi mála. Þetta
er langt ferðalag og aldrei að vita
hvaða hættur geta leynst á leiðinni.
Það er staðreynd að á degi hverjum
deyja tvær manneskjur við landa-
mæri Mexíkó á leiðinni til
Bandaríkjanna. Blanca má
hringja í bílstjórann annan
hvern dag og til allrar
hamingju er drengurinn
vel haldinn og finnst bara
gaman að ferðast. Hann er
kátur og fullur eftirvænt-
ingar að hitta mömmu
sína. Það er stundum gott
að vera lítill og átta sig
ekki alveg á staðreyndum.
Í síðasta símtali sagðist
hann ætla að koma til
mömmu sinnar eftir „tres
manos“ eða þrjár hendur
þ.e. fimmtán daga.
Vonandi verður biðin ekki svo
löng.
Áður en Blanca kom hingað vann
hún við saumaskap í El Salvador og
saumaði fjöldaframleiddan tísku-
fatnað fyrir Gap-fyrirtækið. Hún var
með tæpa tvö hundruð dollara í mán-
aðarlaun. Tvö hundruð dollara í
mánaðarlaun fyrir fulla vinnu!
Enda blöskraði henni verðlagið
hjá Gap þegar hún kom hingað þótt
þessar vörur þyki nú í ódýrari kant-
inum. „Fjörutíu dollarar fyrir einar
buxur! Vikulaun!“
Það skyldi engan undra að fólk
flykkist ólöglega inn til Bandaríkj-
anna. Allt er betra en þau laun sem
bjóðast heima fyrir. Hér getur hún
líka séð syni sínum fyrir betri
menntun því þótt skólakerfið hér sé
ekki fullkomið þá er það nú langtum
betra en í El Salvador þar sem al-
gengt er að börn gangi ekki í skóla
nema til tólf ára aldurs.
Nú er bara að biðja allar góðar
vættir að fylgja honum í fang
mömmu sinnar.
HUGSAÐ UPPHÁTT
Eftir Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir
El Salvador-Mexíkó-
Gó› rá› og gagnlegar
uppl‡singar um heita vatni›
www.stillumhitann.is
Fyrirlestur Jane Plant 7. júní kl. 12 í Háskólabíói
Prófessor Jane Plant mun halda fyrirlestur í Háskólabíói í sal
1 fimmtudaginn 7. júní kl. 12 sem fjallar um áhrif mataræðis
á krabbamein í blöðruhálskirtli og brjóstakrabbamein. Einnig
mun prófessor Kristín Vala Ragnarsdóttir halda fyrirlestur þar
sem m.a. verða gefnar upplýsingar um mataruppskriftir og
dr. Laufey Tryggvadóttir fjallar um tölfræði krabbameinanna
og áform um nýjar rannsóknir.
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
Áhrif mataræðis
á krabbamein
í blöðruhálskirtli
og brjóstum
Krabbameinsfélagið
Framför
steinunnolina@mbl.is,
steinunnolina.blog.is