Morgunblaðið - 27.05.2007, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 27.05.2007, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 59 UMRÆÐAN Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Hlein - Álftanesi. Einbýli Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í einkasölu, glæsilegt og vel hannað, ca 300 fm einbýli á 1. hæð, þar af þrefaldur 62,4 fm bílskúr. Húsið er vel staðsett á glæsilegum stað á Álftanesinu við golfvöll og leiksvæði. Húsið er mjög bjart og skemmtilega hannað, teiknað af Hannesi Kr. Davíðssyni arkitekt. Eignin skiptist í góða forstofu, gestasnyrtingu, eldhús, stofu, borðstofu, setustofu, sólstofu, gang, 3 barnah., hjónah., baðh., þvotta- hús, millirými og þrefaldan bílskúr. Glæsi- legur gróinn garður. Frábært útsýni. Ein- stök staðsetning. Upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi í síma 896 0058. www.valholl.is www.nybyggingar.is Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30. Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. Hlíðasmári - Til leigu 192,5 fm verslunarhúsnæði á jarðhæð. Mjög gott og vel innréttað húsnæði á mjög góðum stað. Húsnæðið er í mjög góðu standi og allt mjög snyrtilegt. Gott auglýsingagildi. Upplýsingar á skrifstofu. Magnús, sími 822-8242 Sími 588 4477 Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13 SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli FRAMTÍÐAR BYGGINGARLAND Vorum að fá til sölu 78.500 fm lóð við Reynisstaðarvatn í Grafar- holtinu. Um er að ræða vel staðsetta lóð sem er framtíðar bygg- ingarsvæði Reykjavíkurborgar. Útsúni að Langavatni og Hafra- vatni. Lóðin er staðsett austan við Úlfarsfell. Allar nánari upplýsingar veitir Grétar s. 696 1126 eða gretar@gimli.is Traust þjónusta í 30 ár Til leigu – Snorrabraut – Rvík Mjög gott verslunar- og skrifstofuhúsnæði Mjög gott verslunar- sem og skrifstofuhúsnæði á jarðhæð í verslunar- og þjónustuhverfi þar sem auglýsingagildi er mikið. Húsnæðið er 67,1 fm og er bjart og snyrtilegt. Upplýsingar gefur Haraldur í s. 565 6104 og 848 5488. Glæsilegt nýtt heilsárshús í Svarfhólsskógi, Svínadal Til sölu og afhendingar strax nýtt glæsilegt 85 fm heilsárshús á einni hæð á frábærum veðursælum stað. Húsið selst í núverandi ástandi sem fullbúið að utan með frágenginni verönd (gert ráð fyrir sérrými fyrir heitan pott). Að innan er húsið tilbúið til innréttinga, veggir og loft panilklætt, allir ofnar komnir og uppsettir, raflagnir klárar og til- búnar til ídráttar. Rotþró frágengin og tengd við hús, hitaveita og rafmagn er á lóðarmörkum (inntaksgjöld ógreidd), 3 góð svefnher- bergi, stór stofa, borðstofa og eldhús, baðherbergi með sérinngangi, bakforstofa m. inngangi, geymsla og inntaks + þvottaherbergi. Glæsileg kjarrivaxin lóð með fallegu útsýni á Skarðsheiðina, Hafnar- fjall og út Leirársveitina. Við hlið hússins og í gegnum lóðina rennur fallegur LÆKUR sem gefur ýmsa möguleika. Lóðin er 8.500 fm leigulóð en möguleiki er á kaupum á henni. Verð 14,9 millj. Áhvílandi 25 ára vtr. Lán 9,0 millj. Glæsilegt sumar/heilsárshús aðeins liðlega 50 km (40 mín.) frá Reykjavík. Í nágreninnu er sundlaug (Á Hlöðum) og gölfvöllur á Þórisstöðum. Allar nánari upplýsingar gefnar í síma 896 5222. Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. ÓLYMPÍUSTÆRÐFRÆÐI fyr- ir grunnskólabörn er ný og skemmtileg aðferð til að leiða börnum fyrir sjónir hversu skemmtileg stærðfræðin getur verið. Hún byggist á þrautum sem eru settar fram í formi keppna. Þær reyna á hugmyndaflug og rökhugsun. Þetta eru skemmtileg og ögrandi verkefni fyrir þá sem hafa gaman af að glíma við þrautir og að reikna. Áhersla er lögð á ánægju af stærð- fræði, innsæi og sam- vinnu. Ég kynntist ólymp- íustærðfræði fyrir grunnskólanema í Bandaríkjunum þegar elsti sonur minn tók þátt í námskeiði þar. Hann saknaði þess að geta ekki haldið áfram í ólympíustærðfræði þegar fjölskyldan flutti heim til Íslands og yngri bróðir hans var svekktur að fá ekki líka að spreyta sig á stærðfræði í keppnisanda. Úr varð að ég gekk til liðs við Háskólann í Reykjavík til að koma á fót ólymp- íustærðfræði fyrir grunnskóla á Íslandi. Undirbúningur hófst árið 2005 og var eitt námskeið haldið í Hlíðaskóla skólaárið 2005-2006, með 26 nemendum. Efnið er feng- ið frá Bandaríkjunum og var próf- að með íslenskum nemendum, þýtt og staðfært. Skólaárið 2006-2007 var svo blásið til sóknar í ólympíu- stærðfræði og Háskólinn í Reykja- vík bauð upp á námskeið í 15 grunnskólum í Reykjavík auk þess sem nemendum bauðst að sækja námskeið í Háskólanum í Reykja- vík. Öflugur liðsstyrkur var feng- inn frá fjárfestingarfélaginu Eyri, Kaupþingi og Menntasviði Reykja- víkurborgar til þess að nið- urgreiða námskeiðskostnaðinn. Viðtökurnar voru framar björt- ustu vonum, í haust mættu um 700 krakkar í kynningar á ólympíu- stærðfræði. Það var mjög ánægju- legt að sjá hve margir mættu með opinn huga fyrir því að prófa ól- ympíustærðfærði. Um 400 nem- endur skráðu sig síðan til þátttöku í námskeiðum í ólympíustærð- fræði, þar af voru 45% drengir og 55% stúlkur. Námskeiðið stóð í 20 vikur, með vikulegum æfingum og mánaðarlega var blásið til keppni. Þátttakendur söfnuðu stigum í 5 keppnum yfir árið. Í lok mars var svo haldið lokahóf í Háskólanum í Reykjavík þar sem helmingi allra þátttakenda voru veitt verðlaun. Efstu 50% fengu silfurverðlauna- pening, efstu 10% fengu gull- verðlaunapening og stigahæsti einstaklingur í hverju liði fékk bikar. Það var stórkostleg stund að sjá fullan sal af börnum og fjöl- skyldum þeirra sam- ankomin til að fagna árangri þeirra og ástundun í stærð- fræði. Ólympíustærðfræði byggist á þungum þrautum sem nem- endur leysa með dyggri aðstoð leið- beinenda. Leiðbein- endur eru nemendur í kennslu- fræði- og lýðheilsudeild Háskólans í Reykjavík. Með því að takast reglulega á við verkefni af þessu tagi byggja nemendur upp færni í þrautalausnum sem nýtist þeim al- mennt í námi sínu og jafnframt í öðru sem þau taka sér fyrir hend- ur. Nemendur kynnast spennandi og skemmtilegri hlið stærðfræð- innar og þjálfast í að beita aðferð- um þrautalausna. Ólympíustærðfræðin hefur kennt börnunum að stærðfræði getur verið skemmtilegt tóm- stundagaman, hún færir stærð- fræðina út úr hinu hefðbundna námi og gefur börnum kost á að kynnast stærðfræðinni á öðrum forsendum, auk þess sem þau hafa fengið mikla þjálfun í reikningi og þrautalausnum. Það sem ég sé á meðal barnanna sem ég hef fengið að vinna með er nánast ólýsandi, glampinn úr augunum, spennan og ákefðin sem þau fyllast þegar þau fá nýja hugmynd. Þessi áhugi og ánægja sem ólympíustærðfræðin veitir þeim eflir sjálfstraust þeirra í námi. Það er ekki síður ánægjulegt að segja frá því að nú hefur mennta- málaráðuneytið veitt 5 milljóna króna styrk til ólympíustærðfræði fyrir grunnskóla sem gerir okkur kleift að gera enn betur á næsta ári. Stefnt er að því að bjóða ól- ympíustærðfræði í enn fleiri skól- um á næsta ári auk þess sem við höfum hug á að færa út kvíarnar í nágrannasveitafélögin. Þetta er gott dæmi um samvinnu einka- geirans, ríkisins og sveitarfélaga. Menntasvið Reykjavíkurborgar, Kaupþing og fjárfestingarfélagið Eyrir gerðu okkur kleift að fara af stað með þetta verkefni, og með liðsstyrk menntamálaráðuneyt- isins og Orkuveitu Reykjavíkur höfum við tækifæri til að bjóða enn fleiri börnum að kynnast því hvað stærðfræði er skemmtileg. Ólympíustærðfræði í sókn Chien Tai Shill segir frá nýj- ungum í stærðfræðikennslu » Ólympíustærðfræðinhefur kennt börn- unum að stærðfræði getur verið skemmtilegt tómstundagaman. Chien Tai Shill Höfundur er verkefnisstjóri við Há- skólann í Reykjavík. Fréttir í tölvupósti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.