Morgunblaðið - 27.05.2007, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 55
NÝTT SUMARHÚS - GOLF, SUND O.FL.
Nýtt sumarhús sem skiptist í aðalhús 77,4 fm og gestahús 25,7 fm. Húsið er
nr. 7 við Lækjarmýri í Mýrarkotslandi, Grímsnes- og Grafningshreppi. Húsið
selst og afhendist í núverandi ástandi fullfrágengið að utan og fokhelt að
innan. Heitt og kalt vatn komið svo og rafmagn. Staðsetning er frábær m.a.
lítil á sem rennur rétt hjá lóðarmörkum. Landið er 1,3 hektara eignarland.
Stutt í golfið á Kiðjabergslandi og sundlaug í Hraunborgum. V. 16,3 m. 6626
SÓLHEIMAR - ENDARAÐHÚS
Vel skipulagt 159,1 fm endaraðhús á tveimur hæðum ásamt 22 fm bílskúr
eða samtals 181,1 fm. Á neðri hæð er forstofa, stigahol, eldhús, þvottaher-
bergi, gestasnyrting og stofur. Á efri hæð eru fjögu herbergi, baðherbergi og
sjónvarpshol. Suðurgarður þar sem gengið er út á verönd úr stofu. Mjög góð
staðsetning. V. 48,0 m. 6638
KRISTNIBRAUT 8 - 3.H.H.
Stórglæsileg 118 fm 3ja herbergja
íbúð á 3.hæð í fallegu lyftuhúsi með
glæsilegu útsýni. Íbúðir í húsinu hafa
verið eftirsóttar af eldra fólki m.a.
vegna golfvallarins og útvistarsvæð-
isins svo og útsýnisins sem er einstakt.
Hægt er að sjá til Bláfjalla, yfir borgina,
Snæfellsjökuls, Esjunar og Úlfarsfells. Mikið af gönguleiðum eru skammt frá
og fékk húsið m.a. verðlaun frá Reykjavíkurborg. V. 35,4 m. 6607
EIGNIN VERÐUR TIL SýNIS Í DAG (SUNNUDAG) FRÁ KL. 13-15.
Jón og Halla taka vel á móti ykkur.
VESTURBERG - ÚTSÝNI
Góð 4-5 herbergja 105,2 fm íbúð á 4.
hæð í fjölbýli. Húsið er nýlega viðgert
og er mjög snyrtilegt. Frábært útsýni
er af svölum íbúðarinnar. Skiptist
íbúðin í þrjú svefnherbergi, sjón-
varspsstofu, dagstofu, eldhús, bað-
herbergi og geymslu. V. 20,5 m. 6635
VESTURBERG - E. BREIÐHOLT
Rúmgóð 60,8 fm tveggja herbergja
íbúð í efra Breiðhotli. Íbúðin skiptist í
stofu, svefnherbergi, eldhús, bað og-
þvottahús inn af eldhúsi. Geymsla er í
kjallara. Blokkin lýtur vel út og er snyrti-
leg. Stutt er í skóla og sundlaug. V.
15,5 m. 6633
LÆKJASMÁRI - LAUS STRAX
Hér er um að ræða 94,5 fm íbúð á 7.
hæð í nýlegu álklæddu fjölbýlishúsi,
ásamt stæði í upphituðu bílskýli. Húsið
er 8 hæða, steinsteypt fjölbýlishús og
er það byggt árið 1996. Íbúðin skiptist
í eldhús, baðherbergi, tvö herb., stóra
stofu og borðstofu. Sérþvottahús í
íbúð. Glæsilegt útsýni. Áhvílandi 21 m.
góð lán. V. 26,5 m. 6637
BERGSTAÐASTRÆTI - GLÆSILEG ÍBÚÐ
Um er að ræða glæsilega 4ja her-
bergja íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli við
Bergstaðastræti í Reykjavík. Mjög
fallegt útsýni til suðurs. Eignin skiptist í
forstofu, geymslu, tvö hol, eldhús,
baðherbergi, tvö svefnherbergi og
tvær stofur. V. 39,0 m. 6629
OPIÐ HÚS Í DAG
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Sumarbústaður í Snæfoks-
staðalandi við Vaðnes – glæsi-
legt útsýni – mikill gróður. Þessi
fallegi sumarbústaður er til sölu. Bústaður-
inn stendur í landi Skógræktarfélags
Árnessýslu við Vaðnes í um 45 mín.
akstursfjarlægð frá Reykjavík. Hann er að
mestu leyti á einni hæð en auk þess er
steyptur kjallari undir hluta bústaðarins. Á
1. hæð er m.a. stór stofa, eldhús, bað, 3
herbergi, forstofa o.fl. Í kjallara er inntak
fyrir hitaveitu, geymslurými o.fl. Við bústað-
inn er sólpallur (sólpallar) um 150 fm að
stærð og þar er heitur pottur og dúkkuhús.
Öll húsgögn í bústaðnum fylgja. Bústað-
urinn stendur á 11.000 fm gróinni lóð sem
er vaxin miklum birkigróðri, grenitrjám,
öspum, furu, lerki o.fl. Glæsilegt útsýni
m.a. yfir Hvítá og land Skógræktarinnar.
(Bústaðurinn stendur milli 2ja golfvalla í um
5-15 mín. akstursfjarlægð). Stjörnu-
skoðunarturn við bústaðinn getur fylgt.
Þessi sumarbústaður stendur á einu eftir-
sóttasta sumarbústaðasvæði sunnan-
lands. 5913
Frostaskjól - Einstök eign Vel
skipulagt og fallegt einbýlishús í Vesturbæ
Reykjavíkur sem skiptist þannig: á 1. hæð
er anddyri, hol, stofa,borðstofa og eldhús.
Á neðri palli (kjallari/jarðhæð) er þvottahús,
geymslur, sjónvarpsherbergi og svefn-her-
bergi með sérbaðherbergi (þetta herbergi
er bílskur á teikningu). Á efri palli eru þrjú
svefnherbergi og baðherbergi. 6594
Grasarimi - Góð eign Um er að
ræða 155,4 fm einbýlishús með 20,7 fm
innbyggðum bílskúr. Eignin skiptist í for-
stofu, 3 svefnherb., baðherb., gesta-snyrt-
ingu, stofu, borðstofu, sjónvarpshol, eldh.
og þvottah. Garður við húsið er sérstak-
lega skemmtilegur og góður. Stórglæsileg
timburverönd með tengi fyrir heitan pott.
Bílskúr er fullbúinn og góður. V. 46,5 m.
6578
Klukkberg - Glæsilegt útsýni Um
er að ræða 4ja herbergja í búð á tveimur
hæðum við Klukkuberg í Hafnarfirði.
Glæsilegt útsýni er til vesturs. Eignin skipt-
ist þannig: forst,, gestasnyrt., stofa, borð-
st., eldh., 3 svefnherbergi og baðherbergi.
Bílskúr er 27,0 fm fullbúinn. Samtals er
eignin 133,1 fm V. 25,0 m. 6622
Þingholtsstræti - Falleg eign Um
er að ræða fallega og vel skipulagða 4ra
herbergja íbúð á 1. hæð á eftirsóttum og
rólegum stað við Þingholtsstræti. Húsið er
9 íbúða fjölbýli, staðsett á móti gamla
bókasafninu við Þingholtsstræti. Örstutt
gönguleið niður á Tjörn. Hús og sameign í
mjög góðu standi. Tvær sérgeymslur í
kjallara, önnur með glugga og rafmagns-
tengli. Sameiginleg vagnageymsla og
þvottahús. V. 29,9 m. 6618
Bugðulækur - Sérinngangur
Falleg og björt 74,4 fm íbúð í kjallara með
sérinngangi. Vel staðsett hús við Bugðu-
lækinn. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, tvö
svefnherbergi, baðherbergi með glugga,
stórt eldhús og stofu. Parket. Íbúðin er laus
til afhendingar 1.júlí n.k. Falleg og björt
íbúð á vinsælum stað við Bugðulækinn. V.
18,9 m. 6636
Keilugrandi - góð Þriggja herb. mjög
falleg og snyrtileg 82 fm íbúð á 2. hæð
með tvennum svölum og stæði í bíla-
geymslu. Íbúðin skiptist í hol, 2 svefnher-
bergi, baðherbergi. eldhús og stóra stofu.
ÍBÚÐIN ER TIL AFHENDINGAR INNAN 7
DAGA. V. 22,9 m. 6426
Tjarnarmýri Um er að ræða geysilega
vel skipulagða og fallega 2ja herbergja íbúð
á jarðhæð í fallegu fjölbýli á Seltjarnarnesi.
Eignin skiptist í hol/gang stofu, eldhús,
baðherbergi og svefnherbergi. Einnig fylgir
eigninni stæði í bílageymslu. Einnig er sér
geymsla í kjallara. Á hæð, sitt hvorum
megin við íbúðina er sameiginleg hjóla- og
vagnageymsla annar svegar og sameigin-
legt þvottahús hins vegar. V. 20,5 m. 6632
„VERKALÝÐSFÉLÖGIN eru al-
þjóðleg og þá skiptir auðvitað höf-
uðmáli að innflytjendur búi við sömu
kjör og aðrir landsmenn …“
Vitnað er hér til orða Katrínar
Jakobsdóttur í Morgunblaðinu ný-
verið. Þetta þykir okkur sjálfsagt og
Katrín Jakobsdóttir hefur undir-
strikað með orðum sínum það sem
svo margir hafa haldið fram áður í
ræðu og riti. Vonandi hefur þetta
gengið eftir og innflytjendur sitji við
sama borð og við hin.
En sitjum við öll við sama borð?
Því miður er ekki svo. Hjá byggða-
samlagi um almenningssamgöngur á
höfuðborgarsvæðinu eru fjögur fyr-
irtæki sem annast þjónustuna og tel
ég þau upp eftir hlutfallslegri stærð
hvað varðar fjölda vagnstjóra:
Strætó bs., Hagvagnar, Allra-
handa og Teitur Jónasson.
Strætó bs. semur við Starfs-
mannafélag Reykjavíkurborgar um
kaup og kjör sinna vagnstjóra, Hag-
vagnar semja við Hlíf í Hafnarfirði
og Allrahanda og Teitur Jónasson
semja við Eflingu.
Samkvæmt upplýsingum sem ég
hef aflað mér hjá Eflingu og Hlíf eru
vagnstjórar sem þau semja fyrir
með 14% lægri laun en vagnstjórar
sem Starfsmannafélag Reykjavík-
urborgar semur fyrir.
Vagnstjórar hjá Allrahanda, Hag-
vögnum og Teiti Jónassyni vinna ná-
kvæmlega sömu störf og við hjá
Strætó bs. en bera 172.000 krónur
úr býtum þegar við fáum 200.000
krónur.
Við hittumst í hléum á milli ferða
og höfum þetta í flimtingum, en
vagnstjórar einkafyrirtækjanna eru
tregir til að veita okkur upplýsingar
um launakjör sín, en segja þau bara
lakari. Því fór ég þá leið að fá upp-
lýsingar hjá viðkomandi verkalýðs-
félögum. Ég hef líka spurst fyrir hjá
yfirstjórn Strætós bs. og fengið þær
upplýsingar að kostnaður fyrirtæk-
isins er nákvæmlega sá sami á ekinn
km, hvort heldur það er hjá aksturs-
deild Strætós eða einkafyrirtækj-
unum.
Nú langar mig að spyrja hvort
ekki sé tímabært að íslenskir vagn-
stjórar geti kinnroðalaust sest við
sama borð og borið höfuðið hátt þeg-
ar talið berst að kaupi og kjörum,
þess fullvissir að unnið sé fyrir þá
ekki síður en innflytjendur.
Það sem er verst í þessu máli er
að fyrirtækin hafa gert með sér sam-
komulag um að þeir sem vinna hjá
einkafyrirtækjunum geta ekki feng-
ið vinnu hjá Strætó bs. nema eftir
svo og svo langan tíma frá því að
þeir unnu fyrir einkafyrirtækin.
Þessi launamunur gerir einkafyr-
irtækjum kleift að bjóða lægra verð,
allavega um stundarsakir, í fólks-
flutningana með þeim afleiðingum
að Strætó bs. gæti boðið allt út og
við sem hærri launin höfum mynd-
um að sjálfsögðu lækka í launum.
Vonandi fer ekki svo illa.
Vill einhver svara eða taka mál
starfssystkina okkar upp?
HEIMIR L. FJELDSTED,
vagnstjóri og trúnaðarmaður
hjá Strætó bs
.
Nútíma
vistarbönd
Frá Heimi L. Fjeldsted
BRÉF TIL BLAÐSINS
Fréttir
í tölvupósti