Morgunblaðið - 27.05.2007, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 51
Í MORGUNBLAÐINU frá 20.
maí sakar Anna S. Pálsdóttir Há-
skólann á Bifröst um að ganga
lengst í að taka [femín]ismann
fram yfir fræðin og bendir í því
sambandi á könnun sem gerð var
á meðal útskrifaðra nemenda skól-
ans, þar sem í ljós kom að karl-
arnir voru með helmingi hærri
laun en konurnar. Það
er erfitt að sjá hvern-
ig hægt er að komast
að þeirri niðurstöðu
að launakannanir séu
merki um femínisma,
enda margar alþjóð-
legar stofnanir sem
gera slíkar kannanir.
Anna gleymdi auk
þess að geta þess að
verið var að skoða
heildarlaun ein-
staklinga sem gefa
góða mynd af vanmati
samfélagsins á hefð-
bundnum kvennastörfum eins og
umönnunarstörfum hvort sem þau
eru unnin á vinnumarkaði eða inni
á heimilum og birtist m.a. í styttri
vinnutíma kvenna. Háskólinn á
Bifröst hefur lagt áherslu á að
bjóða upp á fjölskylduvænt náms-
umhverfi og hefur hlutfall ein-
stæðra mæðra verið hátt meðal
nemenda.
Vanmat – tvöföld skattlagn-
ing
Ein ástæða vanmats á hefð-
bundnum kvennastörfum er t.d.
staðalímyndir um að karlar séu
fyrirvinnan og leggi harðar að sér
við vinnuna. Raunveruleikinn er
hins vegar ekki í samræmi við
þessar staðalímyndir. Atvinnuþátt-
taka kvenna hér á landi er t.d.
meiri en annars staðar í Evrópu á
sama tíma og íslenskar konur
eignast að meðaltali fleiri börn.
Auk þess hefur krafan um aukna
arðsemi og viðvarandi und-
irmönnun í mörgum hefðbundnum
kvennastéttum leitt til þess að
vinnuálagið er í engu samræmi við
lág laun þeirra. Vanmatið þýðir í
raun að starfsfólk í hefðbundnum
kvennastörfum leggur almennt
meira til samfélagsins í formi
lágra launa en þeir sem uppskera
laun í samræmi við markaðs-
aðstæður. Lág laun í umönn-
unarstéttum draga nefnilega úr
nauðsyn aukinnar skattheimtu.
Kjör viðskiptafræðinga
Niðurstaða könnunar Háskólans
á Bifröst er vísbending um að
konur og karlar með við-
skiptafræðipróf búi ekki við sömu
tækifæri á vinnumarkaði. Hins
vegar þyrfti að kanna betur en
hægt er með einni launakönnun
ástæður þessa. Það eru hagsmunir
bæði karla og kvenna að gegnsæi
ríki í samfélaginu hvað varðar
stöðuveitingar og
ákvarðanir um starfs-
frama og laun. Slíkar
upplýsingar gefa okk-
ur mynd af þeim
þáttum sem koma í
veg fyrir að ein-
staklingur uppskeri í
samræmi við hæfni
og getu. Stjórn-
unarstöður í einka-
geiranum eru t.d.
sjaldan auglýstar og
atvinnurekendur hafa
frjálsar hendur þegar
kemur að því að setja
kröfur sem hæfasti einstakling-
urinn þarf að uppfylla. Það er því
oft óljóst hvort hæfasti ein-
staklingurinn hafi í raun verið
ráðinn. Launaleynd er jafnframt
algeng meðal stjórnenda og hún
þýðir að viðsemjendur hafa ekki
sömu upplýsingar um þau laun
sem verið er að greiða fyrir við-
komandi starf eða sambærileg
störf. Það eru því miklar líkur á
því að einstaklingur sem tilheyrir
hópi sem fær almennt greidd
lægri laun í samfélaginu eins og
t.d. konur vanmeti launin sem í
boði eru og krefjist of lágra launa.
Stjórnandi þarf að gæta aðhalds í
rekstrinum og því er mjög freist-
andi að samþykkja eða bjóða of
lág laun, sérstaklega þegar launa-
leynd tryggir að ekki komist upp
um samningana.
Launamunur mestur hér
Anna sakar femínista eins og
mig um að afneita raunveruleik-
anum, þar sem við höfum haldið á
lofti tölum og rannsóknum sem
sýna að launamunur hér á landi er
meiri en í nokkru aðildarlandi
ESB og að viðvarandi óútskýrður
kynbundinn launamunur sé til
staðar hér á landi. Hún gerir hins
vegar enga tilraun til að rökstyðja
með tölum og rannsóknum að
hennar skilningur á raunveruleik-
anum sé réttari. Þetta er miður,
þar sem við femínistar höfum tek-
ið gagnrýni á málflutning okkar
alvarlega og tölum ekki lengur um
laun karla og kvenna án þess að
skilgreina hvað við eigum við. Við
gerum því þá körfu til þeirra sem
gagnrýna málflutning okkar að
þau haldi sig við staðreyndir eins
og t.d. þá að í 19 rannsóknum á
tímabilinu 2000-2005 var óút-
skýrður kynbundinn launamunur á
bilinu 2% til 18% á Norðurlönd-
unum. Bilið skýrist m.a. af því að
fræðifólk er ekki sammála um
hvernig eigi að leiðrétta launamun
kynjanna.
Hagfræði og launamyndun
Anna fullyrðir jafnframt að við
femínistar höfum hagsmuni af því
að halda á lofti óréttlæti sem kon-
ur eru beittar. Mér finnst þessi
fullyrðing ósanngjörn, þar sem
flestir femínistar starfa við annað
en jafnréttismál. Ég er t.d. mennt-
aður viðskipta- og hagfræðingur
og hef aldrei haft aðalstarf af jafn-
réttismálum. Hins vegar hef ég
haft brennandi áhuga á efnahags-
legri stöðu karla og kvenna frá því
ég kom fyrst út á vinnumarkaðinn
og eytt stórum hluta frítíma míns
sl. 18 ár í að fjalla um þetta við-
fangsefni í ræðu og riti – oftast
vegna áskorana frá öðrum konum
og körlum sem vilja breytingar.
Ég hef leitast við að samþætta
menntun mína í viðskipta- og hag-
fræði við kynjafræðina í starfi
mínu sem kennari við við-
skiptadeild HA, HR og á Bifröst,
þar sem mér hefur fundist skorta
á þekkingu þessara framtíðarvið-
skiptaleiðtoga okkar þegar kemur
að launamyndun. Umræða nem-
enda minna um mismunandi
launakröfur þeirra eftir kyni varð
m.a. til þess að enginn munur var
á launavæntingum þeirra við út-
skrift.
Andfeminísmi skaðsamur
konum og körlum
Lilja Mósesdóttir skrifar
um launamun og svarar Önnu
S. Pálsdóttur
» Gagnrýni á málflutn-ing femínista bygg-
ist á afneitun. Í 19 ný-
legum rannsóknum
mældist kynbundinn
launamunur á bilinu 2%
til 18% á Norðurlönd-
unum.
Lilja Mósesdóttir
Höfundur er prófessor við Háskólann
á Bifröst.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Álfahvarf, Kópavogi - einbýlishús á
frábærum útsýnisstað
350 fm einbýlishús á tveimur hæð-
um ásamt 44 fm bílskúr. Húsið skil-
ast í núverandi ástandi, rúmlega
fokhelt með grófjafnaðri lóð. Stofa
með góðri lofthæð og útgangi í sól-
skála. Útsýni af efri hæð yfir fjöllin
og Elliðavatn. Möguleiki er á að fá
húsið keypt fullklárað að utan.
VERÐTILBOÐ.
Nánari uppl. á skrifstofu.
Haukanes, Garðabæ - einbýlishús
með sjávarútsýni
Fallegt og vel skipulagt 483 fm ein-
býlishús með 56 fm innb. bílskúr á
þessum eftirsótta stað með sjávar-
útsýni á Arnarnesi. Eignin skiptist
m.a. í eldhús, setustofu, arinstofu,
rúmgóða borðstofu, sjónvarpshol
með útg. á svalir til norðurs, stórt
hobbýherbergi, 3 rúmgóð svefn-
herb. auk fataherbergis og 2 bað-
herbergja. Sér 2ja herb. aukaíbúð er
á jarðhæð hússins með gufubaði inn af. Verulega aukin lofthæð á að-
alhæð hússins. 1.333 fm skjólgóð og ræktuð lóð. Gróðurhús á baklóð.
Verðtilboð.
Brúnastekkur
Glæsilegt 334 fm einbýlishús á
tveimur hæðum auk 50 fm bílskúrs.
Sér 2ja herb. íbúð er í kjallara húss-
ins. Húsið er mikið endurnýjað hið
innra og skiptist aðalíbúðin m.a. í
rúmgott hol, gestasnyrtingu, eld-
hús, stórt sjónvarpshol, samliggjandi bjartar stofur, 3-4 herbergi og
flísalagt baðherbergi. Mikið útsýni úr stofu. Falleg ræktuð lóð með
veröndum og skjólveggjum, mikil veðursæld. Hiti í stéttum fyrir
framan hús. Staðsetning eignarinnar er afar góð í nánd við Elliða-
árdalinn. Frábærar gönguleiðir í næsta nágrenni. Verð 75,0 millj.
Stigahlíð - glæsilegt einbýlishús
Glæsilegt 275 fm einbýlishús með
30 fm innb. bílskúr á þessum eftir-
sótta stað. Eignin skiptist í forstofu,
gestasnyrtingu, rúmgott hol, sam-
liggjandi glæsilegar stofur með arni,
rúmgott eldhús, þvottaherbergi inn
af eldhúsi með bakútgangi, 4 svefn-
herbergi auk fataherbergis inn af
hjónaherbergi, stórt bókaherbergi
og 2 baðherbergi. Hellulögð suður-
verönd út af stofu og útgangur á suðursvalir úr hjónaherbergi. Hiti er í
innkeyrslu að bílskúr. Falleg ræktuð lóð. Nánari upplýsingar veittar á
skrifstofu.
Hvannalundur - Garðabæ
Fallegt 164 fm einbýlishús á einni
hæð, þ.m.t. 41 fm bílskúr, í þessu
gróna og eftirstótta hverfi í Garða-
bæ. Eignin skiptist í forstofu, rúm-
góða parketlagða borð- og setu-
stofu, eldhús, þvottaherbergi og búr
inn af eldhúsi með bakútgangi á
hellulagða verönd, 3 svefnherbergi
og baðherbergi. Hiti í plani fyrir
framan bílskúr. Lóð ræktuð. Verð
46,0 millj.
Skúlagata
- eldri borgarar - útsýnisíbúð
70 fm útsýnisíbúð á 10. hæð auk
sérstæðis í bílageymslu í lyftuhúsi
fyrir eldri borgara. Mikil lofthæð er í
stærstum hluta íbúðarinnar. Útsýni
út á sundin og til suðurs að Bláfjöll-
um. Laus til afhendingar við kaup-
samning. Verð 27,9 millj.
Hraunhamar kynnir glæsileg rað-
hús á tveimur hæðum á þessum
frábæra stað í Norðlingaholtinu.
Glæsileg hönnun og vönduð vinna
fer saman í þessum skemmtilegu
húsum, þannig að nýting húsanna
er með eindæmum góð. Húsin eru
172,4 fm að stærð með innbyggð-
um 21,9 fm bílskúr. Húsunum
verður skilað fokheldum að innan
en fullbúnum að utan. Byggingar-
aðili: Steinval ehf. Hús nr. 48 og 50.
Allar nánari upplýsingar munu
sölumenn Hraunhamars veita.
Verð 30 millj
Hólmavað - Reykjavík
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
2 H
ÚS
EFT
IR