Morgunblaðið - 27.05.2007, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 27.05.2007, Blaðsíða 62
62 SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ AUÐLESIÐ Annað ráðu-neyti Geirs H. Haarde, ríkis-stjórn Sam-fylkingar og Sjálfstæðis-flokks, tók við völdum á ríkisráðs-fundi á Bessa-stöðum um miðjan dag á fimmtu-dag. Í ríkis-stjórninni sitja, auk Geirs, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkis-ráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamála-ráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir félagsmála-ráðherra, Árni M. Mathiesen fjármála-ráðherra, Björgvin G. Sigurðsson viðskipta-ráðherra, Björn Bjarnason dómsmála-ráðherra, Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfis-ráðherra, Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðar-ráðherra, Össur Skarphéðinsson iðnaðar-ráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðis-ráðherra. „Ég lít á þetta sem sátta-stjórn, ég held að það sé gott að kalla hana það, þar sem stærstu fylk-ingarnar í þjóð-félaginu hafa ein-sett sér að ná sáttum á breiðum grund-velli um ýmis mál. Ég hlakka mjög til þess að taka þátt í því og leiða það starf,“ sagði forsætis-ráðherrann við Morgun-blaðið. Ný ríkis-stjórn tekur við völdum Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ný ríki-stjórn á vinda-sömum degi. Jón Sigurðsson sagði á miðviku-daginn af sér sem for-maður Framsóknar-flokksins. Þá tók Guðni Ágústsson við em-bættinu sem Jón hafði gengt í 9 mánuði. Jón Sigurðsson sagði að ástæðan fyrir af-sögn sinni vera að nú þegar Framsóknar-flokkurinn er kominn í stjórnar-andstöðu, væri alger-lega nauðsyn-legt að for-maður flokksins hefði að-gang að ræðu-stól Al-þingis. Hann hefði ekki náð kjöri á þing og því tekið þessa ákvörðun. Jón segir af sér for- mennsku Jón Sigurðsson Eig-endur Fisk-vinnslunnar Kambs ehf. á Flat-eyri hafa ákveðið að hætta út-gerð og fisk-vinnslu og selja allar eignir félagsins. Þetta er gífur-legt áfall fyrir staðinn. Um 120 manns starfa hjá fyrir-tækinu og er meira en helmingur starfs-manna er af er-lendum upp-runa. Sam-kvæmt Finnboga Sveinbjörnssyni, for-manni Verkalýðsfélags Vest-firðinga, Verk-Vest, eiga starfs-menn frá löndum utan Evrópska efnahags-svæðisins, EES, ekki rétt á atvinnuleysis-bótum, nema þeir hafi ís-lenskan ríkisborgara-rétt. Hann skorar á stjórn-völd að veita því fjöl-marga fólki að-stoð, sem sé í þessari stöðu. Mikil reiði er meðal íbúa Flat-eyrar og mörgum finnist stjórnmála-menn hafa gengið á bak orða sinna. Sumir halda í vonina og trúa því að ein-hver taki við út-gerðinni og vinnslunni, en aðrir kalla á stefnu stjórn-valda í málum sjávar-byggðanna. Hug-myndir eru uppi um að stofna almennings-hlutafélag til kaupa á afla-heimildum. Fjallað var um málið á ríkisstjórnar-fundi á föstu-dag til að at-huga hvaða að-gerðir eru mögu-legar fyrir Flat-eyri. Óvissa ríkir á Flat-eyri Nú má nálgast í gegnum ís-lenska vef-svæðið torrent.is. japanskan þrívíddar-tölvuleik. Hann nefnist RapeLay og hefur að mark-miði að þjálfa þátt-takendur í nauðgunum. „Maður verður ekki nauðg-ari af því að spila leikinn, ekki frekar en maður verður morð-ingi af því að spila morð-leiki,“ segir Svavar Lúthersson, eig-andi lénsins torrent.is. 18.500 not-endur hafa að-gang að leiknum. Þeir eru á öllum aldri. Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðis-ráðherra er sleginn miklum óhug vegna leikisins og finnst að svona efni eigi al-farið að banna. Tölvu-leikur vekur óhug Á fimmtud-daginn voru haldnar þing-kosningar á Ír-landi. Á göstu-daginn leit út fyrir að Bertie Ahern, forsætis-ráðherra Ír-lands síðast-liðin 10 ár, yrði áfram við völd. Flokkur hans, Fianna Fáil, hafði sam-kvæmt útgöngu-spá írska ríkis-útvarpsins, RTÉ, tryggt sér 41,6% at-kvæða í kosningunum. Helsti stjórnar-andstöðu-flokkurinn, Fine Gael, jók fylgi sitt um 4% og fær nú 26,3%. Ekki var þó út-lit fyrir að Fine Gael og Verkamanna-flokknum tækist að fella samsteypu-stjórn Fianna Fáil og Fram-sækinna demó-krata, sem er lítill mið-hægri-flokkur sem tapar þó-nokkru fylgi. Skýringin er einkum sú að Verkamanna-flokkurinn tapaði líka fylgi. Pat Rabbitte, leið-togi Verkamanna-flokksins, játaði sig sigraðan um miðjan dag á föstu-dag en Enda Kenny, leið-togi Fine Gael, vildi ekki strax viður-kenna að Bertie Ahern yrði áfram við völd. Fianna Fáil með mest fylgi REUTERS Bertie Ahern á kosninga-stað á fimmtu-dag. Í vikunni kom upp á yfir-borðið óánægja tónlistar-manna með starf-semi net-síðunnar Tónlist.is. En á henni má kaupa ís-lenska tón-list til hlustunar eða til niður-hals. Tónlistar-mennirnir segjast ekki hafa fengið greitt fyrir söluna á tón-list þeirra. Virðist sem Tónlist.is hafi staðið við greiðslur til rétt-hafa. Hins vegar hafa sam-norrænu höfunda-réttar-samtökin, sem sjá um að út-hluta greiðslunum, lík-lega beðið með þær þar sem þetta þóttu svo litlar upp-hæðir. Menn hafa einnig gagn-rýnt að lög þeirra og plötur séu til sölu á Tónlist.is í leyfis-leysi. Vef-síðan Tónlist.is gagn-rýnd Morgunblaðið/Sverrir Birgir Örn Steinarsson er óánægður með Tónlist.is. Í janúar á næsta ári fer fram Evrópu-meistara-mót í hand-knatt-leik í Noregi. 9. og 17. júní leikur Ísland á móti Serbíu um sæti í keppninni. Alfreð Gíslason landsliðs-þjálfari hefur valið 17 manna landliðs-hóp sem byrjar að æfa 4. júní í Tékk-landi. Hópinn skipa: Markverðir: Björgvin Gústavsson, Hreiðar Guðmundsson, Birkir Ívar Guðmundsson. Aðrir leikmenn: Vignir Svavarsson, Logi Geirsson, Bjarni Fritzson, Sigfús Sigurðsson, Ásgeir Hallgrímsson, Arnór Atlason, Markús Máni Michaelsson, Guðjón Valur Sigurðsson, Snorri Steinn Guðjónsson, Ólafur Stefánsson, Ragnar Óskarsson, Alexander Petterson, Sverre Jakobsson og Róbert Gunnarsson. Alfreð velur landsliðs-hóp Morgunblaið/RAX Alfreð Gíslason. Netfang: auefni@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.