Morgunblaðið - 27.05.2007, Blaðsíða 56
56 SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
MEGINMARKMIÐ þjóðfélags-
fræðanna er að auka skilning okkar á
þjóðfélaginu sem heild, stórum og
smáum samfélögum innan þess og
tengslum einstaklings og samfélags.
Helstu stoðgreinar þeirra eru fé-
lagsfræði, mannfræði og stjórn-
málafræði en milli þeirra hafa jafn-
framt þróast margvíslegar,
fjölfaglegar greinar á borð við af-
brotafræði, ferðamálafræði, fjöl-
miðlafræði, kynjafræði, stjórn-
unarfræði, tómstundafræði og
vinnumarkaðsfræði, svo fátt eitt sé
nefnt.
Formlegt nám í þjóðfélagsfræðum
á sér ekki langa sögu á
Íslandi þótt ýmsar
fræðigreinar hafi fengist
við einstök viðfangsefni
þeirra hér á landi. Þann-
ig hafa íslenskir há-
skólanemar lengi kann-
að menningu og sögu í
íslenskum fræðum og
sagnfræði, lögmál pen-
inganna í viðskipta- og
hagfræði, tengsl vit-
undar og líkama í lækn-
isfræði og síðar sálfræði,
regluverk mannskepn-
unnar í lögfræði og
hinstu rök tilverunnar í guðfræði og
heimspeki.
Þegar kennsla hófst í þjóðfélags-
fræðum við Háskóla Íslands árið
1970 var hins vegar brotið blað í þess-
um efnum. Fyrstu árin voru þjóð-
félagsfræðin kennd sem sérstök
grein en fljótlega var farið inn á þá
braut að byggja upp einstakar grein-
ar þeirra sem sjálfstæð fræðasvið.
Nú hafa þessar greinar þjóðfélags-
fræðanna verið stundaðar á fjórða
áratug hér á landi og vaxið og eflst.
Rannsóknir íslenskra þjóðfélags-
fræðinga eru í fremstu röð í heim-
inum og niðurstöður þeirra hafa birst
í flestum helstu alþjóðlegum fræði-
tímaritum á sviðum þjóðfélagsfræða.
Með stofnun félagsvísinda- og
lagadeildar Háskólans á Akureyri ár-
ið 2003 var einangrun félagsvísind-
anna á suðvesturhorni landsins loks-
ins rofin (www.unak.is). Þar er lögð
höfuðáhersla á rannsóknatengt nám
og hagnýtingu fræð-
anna í brennandi úr-
lausnarefnum samtím-
ans. Þannig hafa
kennarar og nemendur
við skólann stundað
rannsóknir á vel-
flestum sviðum þjóð-
félagsfræðanna, allt
frá jafnréttisvið-
horfum unglinga til
náttúruspeki gamalla
selveiðimanna og frá
nektardansi til
byggðaþróunar í ís-
lensku dreifbýli.
Öflugt rannsóknarstarf kennara
og nemenda byggist á traustum
grunni við Háskólann á Akureyri.
Deildarmúrar eru lægri og samstarf
milli deilda því auðveldara en víðast
hvar annars staðar. Rannsókna- og
þróunarmiðstöð skólans (www.rha.is)
er ein helsta rannsóknastofnun
landsins á sviði félagsvísinda og þar
gefast nemendum margvísleg tæki-
færi, ekki síst í aðgangi að viðamikl-
um gagnasöfnum af ýmsu tagi. Jafn-
framt er þátttöku Íslands í tveimur
stærstu rannsóknarverkefnum sam-
tímans á sviði unglingarannsókna
stýrt frá Háskólanum á Akureyri –
evrópsku vímuefnarannsókninni ES-
PAD (www.espad.is) og alþjóðlegu
lífskjararannsókninni HBSC
(www.hbsc.is). Í tengslum við þau
hefur fjöldi nemenda fengið tækifæri
til launaðrar rannsóknarvinnu og
dýrmætrar þjálfunar í vinnubrögðum
þjóðfélagsfræðanna.
Haustið 2007 hefst kennsla í þjóð-
félagsfræðum við Háskólann á Ak-
ureyri. Þetta nám byggist á aðferð-
um og kenningum félagsfræði,
mannfræði og stjórnmálafræði en
námskeið sem þegar eru kennd við
Háskólann á Akureyri veita nem-
endum í þjóðfélagsfræðum umtals-
vert frelsi við mótun eigin háskóla-
náms. Þar má til dæmis nefna
námskeið um afbrot, fjölmiðla,
byggðaþróun, þróunaraðstoð,
menntamál og heilbrigði í samfélag-
inu, svo fátt eitt sé nefnt. Jafnframt
bjóðast nemendum sem þess óska
margvíslegir möguleikar á því að
stunda hluta náms síns við aðra há-
skóla á Íslandi og í öðrum löndum.
Uppbygging háskólanáms um allt
land er eitt mikilvægasta viðfangs-
efni næstu ára. Ríflega þriðjungur
allra nýstúdenta útskrifast frá fram-
haldsskólum utan suðvesturhornsins.
Hins vegar gefst aðeins um 15% há-
skólanema á landinu kostur á því að
stunda nám utan Reykjavíkur. Engin
haldbær rök eru fyrir því að há-
skólanám í félagsvísindum þurfi að
stærstum hluta að fara fram í
Reykjavík, en nemendur í fé-
lagsvísindum eru stærsti hópur há-
skólanema á Íslandi.
Aðstæður til háskólanáms eru til
dæmis að mörgu leyti ákjósanlegri á
Akureyri en í Reykjavík – fjarlægðir
eru minni, húsnæði ódýrara, börn
komast fyrr í leikskóla og umfram
allt er þekkingarþorpið þar ekki að-
eins abstrakt hugmynd heldur lifandi
samfélag fólks í nánum tengslum við
bæjarlífið. Háskólinn á Akureyri
veitir ekki aðeins háskólanemum af
svonefndri landsbyggð kost á há-
skólanámi sem stenst samanburð við
það besta sem býðst annars staðar á
landinu – þar er einnig gullið tæki-
færi fyrir væntanlega háskólanema
af suðvesturhorninu til að sleppa úr
rokinu og rigningunni um nokkurra
ára skeið.
Þjóðfélagsfræði
utan Reykjavíkur
Þóroddur Bjarnason skrifar um
háskólanám á Akureyri » Allt frá jafnrétt-isviðhorfum ung-
linga til náttúruspeki
gamalla selveiðimanna
og frá nektardansi til
byggðaþróunar í ís-
lensku dreifbýli.
Þóroddur Bjarnason
Höfundur er prófessor í félagsfræði
við Háskólann á Akureyri.
Síðumúli 13, sími 569 7000,
Óskar R. Harðarson hdl. og lögg. fasteignasali,
Jason Guðmundsson lögfr. BA og lögg. fasteignasali
Viðarás - gott tveggja íbúða hús
Vandað einbýlishús á tveimur hæðum með
samþykktri 74 fm aukaíbúð á jarðhæð og 48
fm bílskúr. Alls um 275 fm. Glæsilegt útsýni
er af efri hæð. Húsið stendur innst í botnlan-
ga. Vönduð og vel skipulögð eign. 6645
Þelamörk - Hveragerði
Gott einlyft einbýlishús auk bílskúrs/aukaí-
búðar á friðsælum stað í Hveragerði. Glæsi-
legur garður ásamt stórum, steyptum heitum
potti og sólstofu. Eignin skiptist í forstofu,
hol, stofu, borðstofu, sólstofu, þrjú herbergi,
tvö baðherbergi, þvottahús og eldhús. Bak-
inngangur inn af þvottahúsi. Bílskúrinn er
tvöfaldur og búið er að útbúa íbúðaraðstöðu
í bílskúrnum. V. 31,5 m. 6546
Espigerði - glæsileg - laus strax
Sérlega glæsileg útsýnisíbúð á 6. hæð í eftir-
sóttu húsi við Espigerði miðsvæðis í Reykja-
vík. Tvö barnaherbergi, hjónaherbergi, stofa,
eldhús, baðherbergi og þvottahús ásamt sér-
geymslu. Nýtekin í gegn, s.s. parket, innrétt-
ingar og hurðir. Tvennar svalir. Útsýnið er
óviðjafnanlegt og sést m.a. til Hallgrímskirkju,
Álftaness, Nauthólsvíkur, Keflavíkur og Esjan
sér um stofumálverkið. V. 37,5 m. 6616
Ásakór - glæsilegar íbúðir
Glæsilegar íbúðir í nýju og fjölskylduvænu
hverfi í Kópavogi. Íbúðirnar afhendast full-
búnar án gólfefna, nema baðherbergi og
þvottahús sem skilast með flísum. Sér-
þvottahús, sérgeymsla í kjallara. Sérsmíðað-
ar ítalskar innréttingar frá InnX og heimilis-
tækin eru frá Heimilistækjum. 6514
Hæðargarður - jarðhæð
Falleg 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með sér-
inngangi á frábærum stað í Smáíbúðahverf-
inu. Eignin skiptist í hol, eldhús, stofu, her-
bergi og baðherbergi. Nýtt eikarparket á öll-
um gólfum nema á baði þar sem eru flísar.
Fallegur og gróinn garður. V. 18,4 m. 6558
Álfheimar - 4ra herbergja
Falleg 4ra herbergja endaíbúð við Laugardal-
inn með tvennum svölum. Eignin skiptist í
hol, eldhús, stofu, borðstofu, tvö barnaher-
bergi, hjónaherbergi, fataherbergi og baðher-
bergi. Í kjallara er sérgeymsla ásamt sameig-
inlegu þvottahúsi. Frábær staðsetning og
stutt er í alla þjónustu; skóli, leikskóli og
Laugardalurinn í næsta nágrenni. Börn þurfa
ekki að ganga yfir götu til að fara í skóla,
Langholtsskóla. V. 24,7 m. <B> 6609
Álfheimar - 5-6 herbergja
Falleg 5-6 herbergja íbúð á 2. hæð við Álf-
heima í Laugardalnum. Eignin skiptist í hol,
þrjú herbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og
borðstofu. Íbúðinni fylgir sérherbergi í kjallara
með aðgangi að snyrtingu. Hentar vel fyrir
ungling eða til útleigu. Eignin lítur vel út og
hafa m.a. gólfefni, gluggar og gler ásamt raf-
magni verið endurnýjuð síðustu ár. Gegnheilt
eikarparket á gólfi, flísar og marmari. V. 26,9
m. 6557
Kaplahraun - atvinna
Heil húseign á tveimur hæðum við Kapla-
hraun í Hafnarfirði ásamt stórri sameiginlegri
baklóð og bílastæðum fyrir framan húsið.
Eignin, sem er samtals 496,8, skiptist í tvær
u.þ.b. 248,4 fm hæðir. Neðri hæðin er flísa-
lögð og afstúkuð að hluta til. Snyrtingar og
kaffistofa. Lofthæðin er um 3-3,5 metrar.
Tvær innkeyrsludyr eru að hæðinni sem búið
er að loka en hurðir geta fylgt með. V. 90,0 m.
6613
Faxafen - lagerrými
Gott 750 fm lagerrými miðsvæðis á höfuð-
borgarsvæðinu sem skiptist m.a. í einn geim
og snyrtingar. Húsnæðið er með einum inn-
keyrsludyrum. Lofthæðin er um 4 metrar.
Eignin er nýmáluð og með lökkuðu gólfi.
Mjög snyrtilegt og gott rými. V. 93,0 m. 6612
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI TIL LEIGU
Suðurlandsbraut 18 - Reykjavík
Til leigu er, í eini fallegustu skrifstofubyggingu borgarinnar, 673 fm mjög gott skrifstofuhúsnæði
á fjórðu hæð við Suðurlandsbraut 18 í Reykjavík. Húsnæðið er sérlega vandað að allri gerð
enda hefur húsið nýlega verð allt klætt með vönduðum flísum að utan sem gerir það
sérlega glæsilegt. Að innan hefur húsnæðið að stærstum hluta verið endurnýjað.
Gólfefnin eru góð, innréttingar eru vandaðar og öll salerni eru sérstaklega snyrtileg.
Hlutfall bílastæða við húsið er gott m.v. sambærilega hús í miðborginni.
Hér er á ferðinni sérstaklega vel staðsett hús með fallega ásýnd.
Guðrún Árnadóttir
lögg. fasteignasali
Jón Gretar Jónsson
sölumaður, s. 840 4049