Morgunblaðið - 27.05.2007, Blaðsíða 85

Morgunblaðið - 27.05.2007, Blaðsíða 85
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 85 WWW.SAMBIO.IS eee L.I.B, Topp5.is eee FGG - FBL eee T.V. - kvikmyndir.is PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 (4 - 6 - 8 - 10, 28.maí) B.i. 10 ára MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 2 (4, 28.maí) / AKUREYRI / KEFLAVÍK eee S.V. - MBLA.F.B - BlaðiðHraðskreiðir bílar, súpermódel og partý... Þarf ekki eitthvað meira til að sanna að þú sért frábær leikmaður? HILARY SWANK SUMT ER EKKI HÆGT AÐ ÚTSKÝRA MEÐ VÍSINDUMHÖRKUSPENNANDI MYND BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM FRÁ D.FINCHER LEIKSTJÓRA SE7EN & FIGHT CLUB. “BESTA KVIKMYND FINCHER TIL ÞESSA.” David Ansen, Newsweek “MÖGNUÐ KVIKMYND!” Leonard Maltin, E.T. “ÁN EFA BESTA MYND ÁRSINS TIL ÞESSA” Ó.F. eeee V.J.V. TOPP5.IS eeee B.B.A. PANAMA.IS eeee H.J. MBL. eeee F.G.G. FBL. FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS SPARBÍÓ 450kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu Í SAMBÍÓUNUM ÁFABAKKA, AKUREYRI, KEFLAVÍK PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 10 ára BLADES OF GLORY kl. 2 30.000 MANNS! TÍMAR GILDA FYRIR 27. OG 28. MAI TÍMAR GILDA FYRIR 27. OG 28. MAI Á EFTIRTALDAR SÝNINGAR laugardag og sunnudag og mánudagSparBíó* 450kr PIRATES 3 KL. 2 Í ÁLFABAKKA SPIDERMAN 3 KL. 12:30 Í ÁLFABAKKA BLADES OF GLORY KL. 13:30 Í ÁLFABAKKA KL. 2 Í KEFL. www.SAMbio.is sjálfstæðum útgefendum, sem eiga allan rétt á sinni tónlist, hefur það gerst ítrekað að Tónlist.is hafi verið með til sölu tónlist í heimildarleysi. Einn slíkur útgefandi sem hafði samband við blaðið sagðist hafa gengið svo langt að hann kærði fyr- irtækið til að fá það til að taka tónlist- ina út og annar benti á að hann hefði komist að því fyrir tilviljun að plötur og lög sem hann gaf út hafi verið til sölu á Tónlist.is án hans samþykkis árum saman. Hann lét fjarlægja lög- in af vefnum, en segist engar upplýs- ingar hafa um sölu á þessum árum. Forsvarsmenn Smekkleysu, sem er með stærri útgáfum hér á landi, hafa einnig látið þau orð falla að Tónlist.is hafi ekki leyfi til að selja lög eða plöt- ur frá Smekkleysu sem niðurhal á vefsíðunni, þó að samkomulag sé um streymið. Límt yfir vörumerki Annað sem útgefendur hafa fett fingur út í er að á vefsíðunni komi ekki fram hver sé útgefandi plötu; „Af hverju er verið að líma yfir vöru- merkið okkar?“ spurði til að mynda Lárus Jóhannesson, annar eigenda 12 Tóna í viðtali við Morgunblaðið. Sú gagnrýni bar þegar árangur því búið er að bæta úr því. Aftur á móti kemur í ljós að skrán- ing á höfundarrétti virðist ekki í lagi þegar lög eru keypt á Tónlist.is. Dæmi um það er „smáskífa“ Bubba Morthens, Grafir og bein, sem kostar 149 krónur á Tónlist.is. Þegar lagið er keypt og skyggnst inn í svonefnt ID3-tag í MP3-skránni, þar sem vist- aðar eru upplýsingar um viðkomandi lag, stendur (C) 2006 MúsíkNet. Sama má segja um fleiri lög, til að mynda Barfly með Jeff Who? sem Smekkleysa gefur út – í ID3 taginu stendur (C) 2005 MúsíkNet og í lag- inu Fagra líf með Ingibjörgu Þor- bergs sem 12 Tónar gáfu út stendur einnig (C) 2005 MúsíkNet. Hagsmunasamtök hafa staðið sig illa Af ofangreindu er væntanlega ljóst að þeir sem telja sig eiga fé inni hjá Tónlist.is þurfa að snúa sér annað því ekki verður annað séð en að fyr- irtækið hafi staðið fyllilega við gerða samninga. Menn geta síðan deilt um samningana og hversu eðlilegir eða sanngjarnir þeir séu, en gagnrýni ættu menn þá að beina til þeirra sem semja fyrir þeirra hönd, til þeirra samtaka sem stofnsett voru beinlínis til að gæta hagsmuna þeirra. Ekki verður svo betur séð en að téð hagsmunasamtök hafi staðið sig illa við að uppfræða skjólstæðinga sína um stöðu þeirra, enda bendir út- breidd óánægja tónlistarmanna til þess. Einnig má gagnrýna Tónlist.is fyr- ir að hafa farið af stað af meira kappi en forsjá, því það getur ekki talist skynsamleg högun að selja fyrst og spyrja svo eins og sjálfstæðir útgef- endur hafa haft orð á. Eins og Bene- dikt Hermann Hermannsson orðar það: „Svona á ekki að gera þetta, að setja inn plötu og spyrja svo eftir á,“ en hann lét fjarlægja tónlist sína úr vefversluninni eftir að hún hafði ver- ið þar til sölu í óþökk hans. Að sama skapi má skilja að það hafi staðið í útgefendum að þeirra hafi ekki verið getið á vefnum, en það er komið í lag núna eins og getið er. Óskiljanlegt er þó að lögin sem hér hafa verið nefnd séu með þær upp- lýsingar vistaðar í sér að höf- undaréttur að lögunum sé í höndum MúsíkNet – varla sætta útgefendur sig við það. Að lokum verður að teljast und- arlegt að hjá fyrirtæki sem selur tón- list á tölvutæku formi í gegnum tölvukerfi skuli ekki liggja fyrir betri upplýsingar um spilun /streymi en svo að stuðst sé við upplýsingar um spilun hjá Ríkisútvarpinu þegar ver- ið er að greiða fyrir streymið – ef Ríkisútvarpið getur haldið skýrslur svo vanbúið sem það er tækjabúnaði hlýtur Tónlist.is að vera enn betur í stakk búin til að halda utan um streymið með sitt öfluga tölvukerfi. Stigið inn í 21. öldina Eins og getið er í upphafi naut Tónlist.is velvildar rétthafa í tónlist því þeim var ljóst að koma þurfti upp löglegri dreifingu á tónlist á Netinu til að sporna við ólöglegri dreifingu. Þótt gagnrýna megi eitt og annað í starfsemi fyrirtækisins hljóta menn þó aðallega að gagnrýna hagsmuna- samtök rétthafa fyrir að hafa ekki veitt skjólstæðingum sínum nógar upplýsingar og eins hve lítil þekking virðist vera þeirra á meðal á staf- rænni dreifingu á tónlist. Framtíð ís- lenskrar tónlistar verður stafræn og velferð hennar hlýtur að byggjast að miklu leyti á því að forsvarsmenn þeirra sem búa til tónlist, flytja hana og gefa út stígi inn í 21. öldina. Morgunblaðið/Sverrir Við afhendingu Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir árið 2006 fékk hljómsveitin Jeff Who? viðurkenningu fyrir að eiga vinsælasta lag árs- ins 2006 á Tónlist.is, lagið „Barfly“. Smekkleysa sm. h/f gaf út plötuna Death Before Disco, sem lagið „Barfly“ er á, og að sögn Ásmundar Jónssonar hjá Smekkleysu á tónlist frá fyrirtækinu ekki að vera til sölu fyrir niðurhal frá Tónlist.is, enda ekki samningur um slíkt á milli Smekkleysu og Tónlistar.is hvað sem síðar verði. Elís Pétursson, liðsmaður Jeff Who segist í sjálfu sér ekkert geta sagt mikið um söluna á Barfly á Tónlist.is, „Ég hef ekki grænan Guðmund um hvað hefur verið selt af laginu, hef aldrei fengið uppgjör og veit ekki neitt. Ég veit ekki hvað ég fæ fyrir söluna, hvað ég fær fyrir nið- urhal, hvað ég fæ fyrir streymi, hvað áskrif er yfirleitt á tónlist.is, ég veit bara ekki neitt um þetta og það er óþægilegt svo ekki sé meira sagt.“ Stefán Hjörleifsson, framkvæmdastjóri Tónlistar.is, segir að það sé sinn skilningur að til sé munnlegur samningur milli Tónlistar.is og Smekkleysu, enda hafi bæðið fyrirtækin starfað í samræmi við það. „Smekkleysa sendir okkur þær plötur sem fyrirtækið gefur út og síð- an sendum við uppgör vegna tónlistarinnar þannig að menn eru að vinna eftir þeim samningi,“ segir Stefán. Stefán var staddur á ferða- lagi erlendis þegar rætt var við hann og því hafði hann ekki við hend- ina nákvæmar tölur um hver mikið hefði verið sótt af „Barfly“ á síð- asta ári, en þó að streymi hefði skipt einhverjum þúsundum og niðurhal einhverjum hundruðum. Á myndinni má sjá meðlimi Jeff Who? taka við verðlaunum fyrir vin- sælasta lag ársins á Tónlist.is. Elís Pétursson er í ræðustólnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.