Morgunblaðið - 27.05.2007, Page 85
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 85
WWW.SAMBIO.IS
eee
L.I.B, Topp5.is
eee
FGG - FBL
eee
T.V. - kvikmyndir.is
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 (4 - 6 - 8 - 10, 28.maí) B.i. 10 ára
MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 2 (4, 28.maí)
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
eee
S.V. - MBLA.F.B - BlaðiðHraðskreiðir bílar, súpermódel og partý...
Þarf ekki eitthvað meira til að sanna að þú sért frábær leikmaður?
HILARY
SWANK
SUMT ER EKKI HÆGT AÐ
ÚTSKÝRA MEÐ VÍSINDUMHÖRKUSPENNANDI MYND BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM
FRÁ D.FINCHER LEIKSTJÓRA
SE7EN & FIGHT CLUB.
“BESTA KVIKMYND
FINCHER TIL ÞESSA.”
David Ansen, Newsweek
“MÖGNUÐ
KVIKMYND!”
Leonard Maltin, E.T.
“ÁN EFA BESTA MYND
ÁRSINS TIL ÞESSA”
Ó.F.
eeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
B.B.A. PANAMA.IS
eeee
H.J. MBL.
eeee
F.G.G. FBL.
FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS
SPARBÍÓ 450kr
á allar sýningar merktar með appelsínugulu
Í SAMBÍÓUNUM ÁFABAKKA, AKUREYRI, KEFLAVÍK
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 10 ára
BLADES OF GLORY kl. 2
30.000 MANNS!
TÍMAR GILDA FYRIR 27. OG 28. MAI TÍMAR GILDA FYRIR 27. OG 28. MAI
Á EFTIRTALDAR SÝNINGAR
laugardag og sunnudag og mánudagSparBíó* 450kr
PIRATES 3 KL. 2 Í ÁLFABAKKA SPIDERMAN 3 KL. 12:30 Í ÁLFABAKKA BLADES OF GLORY KL. 13:30 Í ÁLFABAKKA KL. 2 Í KEFL.
www.SAMbio.is
sjálfstæðum útgefendum, sem eiga
allan rétt á sinni tónlist, hefur það
gerst ítrekað að Tónlist.is hafi verið
með til sölu tónlist í heimildarleysi.
Einn slíkur útgefandi sem hafði
samband við blaðið sagðist hafa
gengið svo langt að hann kærði fyr-
irtækið til að fá það til að taka tónlist-
ina út og annar benti á að hann hefði
komist að því fyrir tilviljun að plötur
og lög sem hann gaf út hafi verið til
sölu á Tónlist.is án hans samþykkis
árum saman. Hann lét fjarlægja lög-
in af vefnum, en segist engar upplýs-
ingar hafa um sölu á þessum árum.
Forsvarsmenn Smekkleysu, sem er
með stærri útgáfum hér á landi, hafa
einnig látið þau orð falla að Tónlist.is
hafi ekki leyfi til að selja lög eða plöt-
ur frá Smekkleysu sem niðurhal á
vefsíðunni, þó að samkomulag sé um
streymið.
Límt yfir vörumerki
Annað sem útgefendur hafa fett
fingur út í er að á vefsíðunni komi
ekki fram hver sé útgefandi plötu;
„Af hverju er verið að líma yfir vöru-
merkið okkar?“ spurði til að mynda
Lárus Jóhannesson, annar eigenda
12 Tóna í viðtali við Morgunblaðið.
Sú gagnrýni bar þegar árangur því
búið er að bæta úr því.
Aftur á móti kemur í ljós að skrán-
ing á höfundarrétti virðist ekki í lagi
þegar lög eru keypt á Tónlist.is.
Dæmi um það er „smáskífa“ Bubba
Morthens, Grafir og bein, sem kostar
149 krónur á Tónlist.is. Þegar lagið
er keypt og skyggnst inn í svonefnt
ID3-tag í MP3-skránni, þar sem vist-
aðar eru upplýsingar um viðkomandi
lag, stendur (C) 2006 MúsíkNet.
Sama má segja um fleiri lög, til að
mynda Barfly með Jeff Who? sem
Smekkleysa gefur út – í ID3 taginu
stendur (C) 2005 MúsíkNet og í lag-
inu Fagra líf með Ingibjörgu Þor-
bergs sem 12 Tónar gáfu út stendur
einnig (C) 2005 MúsíkNet.
Hagsmunasamtök hafa staðið
sig illa
Af ofangreindu er væntanlega
ljóst að þeir sem telja sig eiga fé inni
hjá Tónlist.is þurfa að snúa sér annað
því ekki verður annað séð en að fyr-
irtækið hafi staðið fyllilega við gerða
samninga. Menn geta síðan deilt um
samningana og hversu eðlilegir eða
sanngjarnir þeir séu, en gagnrýni
ættu menn þá að beina til þeirra sem
semja fyrir þeirra hönd, til þeirra
samtaka sem stofnsett voru beinlínis
til að gæta hagsmuna þeirra.
Ekki verður svo betur séð en að
téð hagsmunasamtök hafi staðið sig
illa við að uppfræða skjólstæðinga
sína um stöðu þeirra, enda bendir út-
breidd óánægja tónlistarmanna til
þess.
Einnig má gagnrýna Tónlist.is fyr-
ir að hafa farið af stað af meira kappi
en forsjá, því það getur ekki talist
skynsamleg högun að selja fyrst og
spyrja svo eins og sjálfstæðir útgef-
endur hafa haft orð á. Eins og Bene-
dikt Hermann Hermannsson orðar
það: „Svona á ekki að gera þetta, að
setja inn plötu og spyrja svo eftir á,“
en hann lét fjarlægja tónlist sína úr
vefversluninni eftir að hún hafði ver-
ið þar til sölu í óþökk hans.
Að sama skapi má skilja að það
hafi staðið í útgefendum að þeirra
hafi ekki verið getið á vefnum, en það
er komið í lag núna eins og getið er.
Óskiljanlegt er þó að lögin sem hér
hafa verið nefnd séu með þær upp-
lýsingar vistaðar í sér að höf-
undaréttur að lögunum sé í höndum
MúsíkNet – varla sætta útgefendur
sig við það.
Að lokum verður að teljast und-
arlegt að hjá fyrirtæki sem selur tón-
list á tölvutæku formi í gegnum
tölvukerfi skuli ekki liggja fyrir betri
upplýsingar um spilun /streymi en
svo að stuðst sé við upplýsingar um
spilun hjá Ríkisútvarpinu þegar ver-
ið er að greiða fyrir streymið – ef
Ríkisútvarpið getur haldið skýrslur
svo vanbúið sem það er tækjabúnaði
hlýtur Tónlist.is að vera enn betur í
stakk búin til að halda utan um
streymið með sitt öfluga tölvukerfi.
Stigið inn í 21. öldina
Eins og getið er í upphafi naut
Tónlist.is velvildar rétthafa í tónlist
því þeim var ljóst að koma þurfti upp
löglegri dreifingu á tónlist á Netinu
til að sporna við ólöglegri dreifingu.
Þótt gagnrýna megi eitt og annað í
starfsemi fyrirtækisins hljóta menn
þó aðallega að gagnrýna hagsmuna-
samtök rétthafa fyrir að hafa ekki
veitt skjólstæðingum sínum nógar
upplýsingar og eins hve lítil þekking
virðist vera þeirra á meðal á staf-
rænni dreifingu á tónlist. Framtíð ís-
lenskrar tónlistar verður stafræn og
velferð hennar hlýtur að byggjast að
miklu leyti á því að forsvarsmenn
þeirra sem búa til tónlist, flytja hana
og gefa út stígi inn í 21. öldina.
Morgunblaðið/Sverrir
Við afhendingu Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir árið 2006 fékk
hljómsveitin Jeff Who? viðurkenningu fyrir að eiga vinsælasta lag árs-
ins 2006 á Tónlist.is, lagið „Barfly“. Smekkleysa sm. h/f gaf út plötuna
Death Before Disco, sem lagið „Barfly“ er á, og að sögn Ásmundar
Jónssonar hjá Smekkleysu á tónlist frá fyrirtækinu ekki að vera til
sölu fyrir niðurhal frá Tónlist.is, enda ekki samningur um slíkt á milli
Smekkleysu og Tónlistar.is hvað sem síðar verði.
Elís Pétursson, liðsmaður Jeff Who segist í sjálfu sér ekkert geta sagt
mikið um söluna á Barfly á Tónlist.is, „Ég hef ekki grænan Guðmund
um hvað hefur verið selt af laginu, hef aldrei fengið uppgjör og veit
ekki neitt. Ég veit ekki hvað ég fæ fyrir söluna, hvað ég fær fyrir nið-
urhal, hvað ég fæ fyrir streymi, hvað áskrif er yfirleitt á tónlist.is, ég
veit bara ekki neitt um þetta og það er óþægilegt svo ekki sé meira
sagt.“
Stefán Hjörleifsson, framkvæmdastjóri Tónlistar.is, segir að það sé
sinn skilningur að til sé munnlegur samningur milli Tónlistar.is og
Smekkleysu, enda hafi bæðið fyrirtækin starfað í samræmi við það.
„Smekkleysa sendir okkur þær plötur sem fyrirtækið gefur út og síð-
an sendum við uppgör vegna tónlistarinnar þannig að menn eru að
vinna eftir þeim samningi,“ segir Stefán. Stefán var staddur á ferða-
lagi erlendis þegar rætt var við hann og því hafði hann ekki við hend-
ina nákvæmar tölur um hver mikið hefði verið sótt af „Barfly“ á síð-
asta ári, en þó að streymi hefði skipt einhverjum þúsundum og
niðurhal einhverjum hundruðum.
Á myndinni má sjá meðlimi Jeff Who? taka við verðlaunum fyrir vin-
sælasta lag ársins á Tónlist.is. Elís Pétursson er í ræðustólnum.