Morgunblaðið - 27.05.2007, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is
Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór
Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
ENGAR ákvarðanir hafa verið
teknar um það hjá bílaumboðunum
að lækka verð á bílum sérstaklega
í ljósi verulegrar styrkingar ís-
lensku krónunnar á undanförnum
dögum og vikum. Talsmenn þeirra
segja hins vegar að verð bifreiða
sé alltaf í skoðun.
Jón Þór Sturluson, dósent við
viðskiptadeild Háskólans í Reykja-
vík, segir að rannsóknir sýni að
gengisbreytingar skili sér tiltölu-
lega seint inn í verð á bílum, enda
miðast verð innfluttra bíla við toll-
gengi en það er ákvarðað einu
sinni í mánuði og gildir þá heilan
mánuð. Birgir Sigurðsson, fjár-
málastjóri Heklu, segir að geng-
isbreytinga hafi þó séð stað hjá
þeim nú þegar. „En það er nú
þannig með blessaða krónuna að
hún er nú ansi fljót að veikjast
þegar hún tekur upp á því, en
styrkingin er gjarnan hægfara yfir
langan tíma.“
Birgir segir að ekki sé hægt að
stökkva í hvelli á eftir krónunni til
eða frá „samanber það að fyrir
rúmu ári síðan þegar krónan tók
snarlega að veikjast þá kom hækk-
unin miklu seinna fram í bílverðinu
heldur en efni hefðu staðið til, mið-
að við hvað það reyndist vera lang-
ur tími sem hún var veik“.
Reyna að halda verði stöðugu
„Við höfum verið að bregðast við
gengisbreytingum, en ekkert ný-
verið. Við erum hins vegar alltaf
með þetta í skoðun,“ segir Kristján
Þorbergsson, framkvæmdastjóri
fjármálasviðs Toyota á Íslandi.
Hann segir að auðvitað sé ekki
hægt að fylgja gengi krónunnar
frá degi til dags á bílamarkaði því
að þá gæti sú staða komið upp að
þeir væru með tvo sambærilega
bíla sinn á hvoru verðinu í sýning-
arsalnum. „Við reynum í heildina
litið að hafa verðið stöðugt, að vera
ekki að hræra of mikið í verðlist-
um. Það er ekkert gaman fyrir
menn að vera nýbúnir að kaupa bíl,
sem svo fellur skyndilega í verði,“
segir hann.
„Þegar krónan féll í fyrra þá
fylgdum við þeirri gengislækkun
ekki alla leið. Þegar krónan var
búin að falla um ein 30% þá vorum
við samt ekki búnir að hækka verð
nema um 12 eða 13%,“ sagði Krist-
ján ennfremur.
Egill Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Brimborgar, segir að reynt
sé að líta til lengri tíma við verð-
lagninguna. Bílar séu ekki eins og
matvara, ekki sé hægt að lækka og
hækka verð nokkrum sinnum í
mánuði. Gengið hafi vissulega ver-
ið að styrkjast mjög skarpt nú
undanfarið, en enginn viti hvort
það muni haldast. „Þannig að við
erum ekki búnir að lækka neitt yf-
ir línuna akkúrat núna. Það sem
við gerum frekar er að við aukum
þá aðeins afslætti innanhúss, veit-
um mönnum 2% aukaafslátt af
söluverðinu í stað þess að breyta
öllum verðlistum. Ef við sjáum að
þetta ætlar að verða viðvarandi
ástand þá finnst mér hins vegar
ekkert ólíklegt að við lækkum.
Sama höfum við alltaf gert, við
erum algerlega samkvæmir sjálf-
um okkur, þegar gengið veikist. Þá
hækkum við ekki verðið strax
heldur höfum þá dregið frekar úr
afsláttum og reynum þannig að
halda verðlistanum stöðugum.“
Bílaumboðin fara sér hægt
Áhrif gengisbreytinga skila sér tiltölulega seint út í verð á bílum
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu handtók seint á föstudagskvöld
35 ára gamla konu sem grunuð er um
stórfelld fjársvik með því að hafa
misnotað stolin greiðslukort til að
svíkja út fé. Að sögn lögreglunnar
mun viðkomandi hafa farið í hrað-
banka og leyst út fé fyrir á aðra
milljón króna.
Konan var sett í fangageymslu á
lögreglustöð og stóð til að yfirheyra
hana í gær, laugardag. Rannsóknar-
deild lögreglunnar fer með málið
sem auðgunarbrotamál.
Samkvæmt auðgunarbrotakafla
almennra hegningarlaga varðar
þjófnaður á fjármunum eða orku-
forða allt að sex ára fangelsisvist.
Niðurstaða úr rannsókn lögreglunn-
ar mun leiða til ákvörðunar um hvort
ákæruvaldið muni gefi út ákæru með
kröfu um refsingu á hendur sakborn-
ingnum.
Grunuð um
stórfelld
fjársvik
ÓVENJURÓLEGT var í miðbæ
Reykjavíkur aðfaranótt laugardags
að sögn lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu. Fáir voru á ferli og lítt
kom til kasta lögreglu vegna
skemmtanalífsins eða hávaðaláta.
Er talið að margir hafi farið úr
bænum og þess vegna verið svo
kyrrt sem raun bar vitni.
Óvenju rólegt
hjá lögreglu
ÝMSIR tónlistarmenn hafa gagnrýnt
vefverslunina Tónlist.is fyrir að
standa ekki skil á greiðslum vegna
sölu á tónlist á vefsetrinu. Í ljós hefur
komið að fyrirtækið hefur staðið skil á
öllum greiðslum samkvæmt samning-
um við samtök rétthafa, en féð ekki
skilað sér til tónlistarmannanna
sjálfra.
Einnig er greint frá því í samantekt
Árna Matthíassonar í blaðinu í dag að
greiðslur fyrirtækisins vegna svo-
nefnds streymis tónlistar, þegar lög
eru spiluð yfir netið, hafa ekki byggst
á upplýsingum frá fyrirtækinu sjálfu
heldur er miðað við skýrslur um spil-
un í Ríkisútvarpinu. Þar kemur og
fram að öll lög sem seld eru af Tónlist-
.is eru þannig merkt að fyrirtækið
MúsikNet eigi höfundarrétt að þeim.
Tónlist.is
stendur
skil á sínu
Höfundaréttur
hjá MúsikNet?
Slæleg frammistaða | 84
JÓHANNA Vala Jónsdóttir, tvítug Reykjavíkurmær,
var valin fegursta stúlka landsins í fegurðarsamkeppn-
inni Ungfrú Ísland sem haldin var á Broadway á föstu-
dagskvöldið. Í öðru sætinu hafnaði Katrín Dögg Sig-
urðardóttir og Fanney Lára Guðmundsdóttir varð í
þriðja sæti.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Jóhanna Vala er fegurst fljóða
♦♦♦
„ÞETTA er því miður þekkt vanda-
mál í heilbrigðiskerfinu í dag sem
brýnt er að bregðast við,“ sagði
Matthías Halldórsson landlæknir,
þegar leitað var viðbragða hjá hon-
um við aðsendri grein í Morgun-
blaðinu í gær þar sem aðstandandi
kvartaði undan úrræðaleysi kerfis-
ins þegar útskrifa átti aldraðan föður
viðkomanda eftir stutta sjúkrahús-
legu í kjölfar beinbrota.
Aðspurður segist Matthías ekki
vilja tjá sig um einstök mál og tók
fram að líkt og greinarhöfundur
nefndi þá hefði málið ekki komið til
kasta landlæknisembættisins. „Al-
mennt talað er hér um að ræða mál
sem þarf að vinna með, þ.e. gamalt
fólk með fleiri en einn sjúkdóm, sem
þarf meiri aðhlynningu um tíma, en á
samt ekki heima á bráðasjúkrahús-
um.“ Að sögn Matthíasar standa
stóru tæknivæddu sjúkrahúsin sig
vel í að með-
höndla alvarlega
bráðasjúkdóma,
en á þeim sé hins
vegar mikil
pressa að útskrifa
fólk sem fyrst.
„Þau eiga þó aldr-
ei að ráðstafa
fólki í pláss á öðr-
um stofnunum án
samráðs við fólk.
Landspítalinn hefur verið í viðræð-
um við sjúkrahúsin í nágrenni
Reykjavíkur um að hægt verði undir
vissum kringumstæðum, og þá í
samráði við sjúklinginn og aðstand-
endur, að vista þar sjúklinga til ein-
hvers tíma til framhaldsmeðferðar
og aðhlynningar og líst mér vel á þá
þróun,“ segir Matthías.
Að hans sögn hefur sú hugmynd
komið til tals á fundum hans með yf-
irlæknum heilsugæslunnar á höfuð-
borgarsvæðinu að sett verði á stofn í
Reykjavík eins konar heimilislækna-
sjúkrahús. „Það er einfalt sjúkrahús
sem sinnir fólki með tiltölulega ein-
falda sjúkdóma, sem þarfnast alúð-
ar, en er án þess asa sem gjarnan
fylgir bráðadeildum,“ segir Matthías
og að slík sjúkrahús hafi gefið góða
raun í Kanada og líkist því kerfi sem
viðgangist á landsbyggðinni hér.
„Ég hef átt eitt mjög gott samtal
við nýja heilbrigðisráðherrann, sem
hefur orð á sér fyrir atorkusemi. Á
okkar fyrsta fundi var ekki tími til að
ræða margar hugmyndir sem vert
væri að koma á framfæri. Hann ósk-
aði hins vegar eftir hugmyndum
landlæknisembættisins um það sem
betur mætti fara og þetta er sann-
arlega eitt af þeim málum sem vert
er að ræða og ég hafði hugsað mér að
ræða við hann við fyrsta tækifæri.“
Vandi sem brýnt er
að bregðast við
Skortur á úrræðum fyrir eldri sjúklinga gagnrýndur
Matthías
Halldórsson
„ÞETTA er sá allra stærsti sem ég hef landað,“ segir Börkur Birgisson,
sem í liðinni viku landaði 26 punda og 93 sm urriða úr Þingvallavatni. Mun
þetta vera stærsti urriði sem veiðst hefur þar frá 1960. Þurfti hann að taka
fast á, því viðureignin tók um 40 mín. og segir hann fiskinn hafa verið ótrú-
lega sterkan. „Mig hefur alltaf langað í veggfisk sem er meira en 10 pund.
Þessi verður stoppaður upp af Sveinbirni Norðurlandameistara.“
Landaði 26 punda urriða
Sá stærsti Börkur með urriðann sem hann veiddi sl. fimmtudagskvöld.
UMFERÐIN á
þjóðvegi 1 hafði
gengið ágætlega
fram að hádegi í
gær en hvíta-
sunnuhelgin er
mikil ferðahelgi.
Að sögn lögreglu
í Borgarnesi
höfðu þó 10 öku-
menn verið teknir fyrir hraðakstur
frá því í fyrradag og sá sem ók
hraðast mældist á 120 km hraða.
Einn var tekinn ölvaður við akstur í
gærmorgun. Þá varð ein bílvelta
síðdegis í fyrradag.
Umferð hefur
gengið vel