Morgunblaðið - 27.05.2007, Síða 34

Morgunblaðið - 27.05.2007, Síða 34
yfir hópnum og í ljós komu hinir ýmsu karakterar sem höfðu áður haft hægt um sig. Við gengum nið- ur að ströndinni en þar moraði allt í stórum rekaviðardrumbum, misvel förnum eftir hristinginn á úthafinu. Það þurfti að vaða eina straum- þunga á til að komast yfir í Héðins- fjörðinn. Þá brettu menn skálm- arnar upp á hvít lærin og smeygðu sér í vaðskó úr gúmmíi. Vatnið ólg- aði og krafturinn reif í allt sem hann gat. Einn missti af sér gönguskóinn sem flaut langleiðina út á haf áður en annar afréð að synda á eftir skótauinu. Svona uppákomur urðu dag hvern, krydd- uðu ferðina og gerðu hana sífellt ævintýralegri. Við gengum áfram inn fjörðinn en ætlunin var að slá upp tjaldbúðum við neyðarskýli slysavarnafélagsins um nóttina. Hestfjallið skartaði sínu fegursta í baksýn en efst á tindinum lá þok- an eins og slæða. Rúmum sextíu ár- um áður, 1942, varð þar eitthvert mannskæðasta flugslys Íslandssög- unnar er 25 manns létu lífið. Um var að ræða áætlunarflug milli Eyjafjarðar og Reykjavíkur og fór- ust allir um borð, fjögurra manna áhöfn og 21 farþegi. Árið 1997 reistu Kiwanismenn úr Ólafsfirði kross til minningar um hina látnu. Perlur og mannabein Það kom mörgum á óvart að rek- ast á tvo fornleifafræðinga í neyðar- skýlinu. Einhverjum sem ekki vissi betur datt í hug að þarna væru komnir tveir skálaverðir í neyðar- skýlið en sú fluga varð ekki langlíf. Dömurnar ætluðu að slást í för með hópnum næsta dag og ganga með okkur yfir til Hvanndala. Þær voru á höttunum eftir mannabeinum og perlum en vildu lítið segja af ferð- um sínum, annað en að nóttina áður höfðu þær gist í húsi mikils kvenna- ljóma í Siglunesi. Fræðingarnir veifuðu fljótlega framan í okkur myndarlegu korti af gönguleiðinni til Hvanndala, hönnuðu af Vésteini Ólafssyni. Hafði hann rissað kortið upp, litað og límt saman. Auk þess hafði maðurinn talið stúlkunum trú um að fjallið sem ganga þyrfti yfir til Hvanndala, væri litlu hærra en sjálfur Arnarhóll. Með þetta og haframjöl í poka voru þær næstum vissar um að leiðin yrði greið. Næsta dag sást heldur meira í himininn en áður. Fyrir höndum var erfið ganga þar sem bera átti svefnpoka og vistir til tveggja daga. Áfangastaðurinn var Hvanndalir, eitthvert afskekktasta ból á norð- urhjara veraldar. Til stóð að sofa undir berum himni um nóttina og var það sjálfsagt rúsínan í pylsu- enda ferðarinnar. Margir höfðu meðferðis svefnpoka af bestu gerð, áttu þeir að þola eld og brennistein og þar af leiðandi íslenskar sumar- nætur. Sannarlega var þetta mikið ævintýri fyrir alla, nema kannski fyrir illa búinn blaðamann sem hafði talið sjálfum sér trú um að hann gæti kastað sér í nælonpokanum út í móa og sofnað vært. Engin var heldur dýnan meðferðis svo allt stefndi í óefni. Það mátti samt ekki gefast upp áður en á reyndi og hvað þá koma upp um sjálfan sig. Því var gengið af stað með hinum og látið sem ekkert væri. Hópurinn stikaði nú sem leið lá upp brattann, alltaf hærra og hærra. Náttúrubarnið Trausti úr Bjarnagili tók fljótt for- ustuna en hann tók þátt í Ólympíu- leikunum árið 1976. Sól skein í heiði og ekki bærðist hár á höfði nokkurs manns. Á tæp- lega 800 metra háum tindinum var fegursta sýn til sjávar og sveita. Grænir, bláir og hvítir litir hvert sem augað leit. Hér í eina tíð voru Í HNOTSKURN »Eyðibyggðir yst á Trölla-skaga eru einhver af- skekktustu byggðarlög lands- ins í fyrri tíð. Þar ráða erfið náttúruöflin ríkjum bæði til lands og sjávar. Þangað er nær ógreiðfært öðrum en fer- fætlingum og fuglinum fljúg- andi. » Í sumar skipuleggurFerðafélag Íslands göngu til Hvanndala og Héðins- fjarðar og er lagt af stað frá kirkjugarðinum á Siglufirði. »Ferðin tekur fjóra daga oger nauðsynlegur búnaður fyrst og fremst orkuríkt nesti, góður fatnaður sem hentar öllum veðraskilyrðum, vað- skór, gönguskór og gott gönguprik. »Rúsínan í pylsuenda ferð-arinnar er gisting undir berum himni í Hvanndölum. Því er best að hafa meðferðis svefnpoka af bestu gerð, poka sem þolir eld og brennistein og þar af leiðandi íslenskar sumarnætur. Mæðinni kastað Hvanndalir sitja á syllu við sjóinn og eru ógreiðfærir með öllu öðrum en fótgangandi mönnum, ferfætlingum og fuglinum fljúgandi. skyndilega var eins og pottloki væri lyft af himninum og birtan steig fram. Nú sást Héðinsfjörðurinn, vatnið, blár sjórinn og marglit fjöll- in í baksýn. Sagt er að margt búi í þokunni og þegar henni létti komu í ljós hundruð plantna og gróðurteg- unda, rennvot eftir döggina. Tárin láku af blómunum, burknarnir hristu sig og mosi í lækjarsprænu tók á sig skærgrænan lit. Sumar plöntutegundirnar höfðu ferðalang- arnir aldrei séð áður en skilyrði fyrir þessar sjaldgæfu jurtir í af- skekktum firðinum eru ákjósanleg. Nú tók einnig heldur betur að lifna 34 SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ BMW1 lína www.bmw.is Sheer Driving Pleasure Með bílinn handa þér B&L - Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík - Sími 575 1200 - www.bl.is BMW Sound Machine Ný útgáfa af BMW 1 línunni með HIFI Professional hljóðkerfi og BMW Radio System ásamt 30 GB Apple iPod spilara. Nánari upplýsingar um BMW 1 línu Sound Machine hjá sölumönnum í síma 575 1200.ri upplýsingar um BMW Sound Machi e hjá söludeild BMW í síma 575 1210.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.