Morgunblaðið - 27.05.2007, Page 38
fólk
38 SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Kenningar um nýja kyn-þáttahyggju koma óneit-anlega upp í hugann þeg-ar maður les í dagblöðum
og heyrir í útvarpi endurteknar
fréttir af aðbúnaði verkafólks við
Kárahnjúkavirkjun. Lélegur aðbún-
aður endurspeglar í raun illa það
sem um er rætt enda eru lýsingarnar
þannig að halda mætti að verið sé að
ræða um þrælabúðir frá miðöldum
en ekki atvinnulíf í íslensku sam-
tímasamfélagi.
Fréttir um að 180 manns hafi
veikst vegna vinnu við gangagerð
hafa að einhverju leyti verið bornar
til baka, en það breytir þó ekki því að
þarna virðist fólk vera að vinna við
aðstæður og aðbúnað sem maður
hélt að þekktust ekki á íslenskum
vinnumarkaði. Þegar haft er í huga
að fréttir af slíkum aðbúnaði koma
alltaf annað slagið upp í fréttum í
tengslum við útlendinga þá má
spyrja hvort ný tegund af kynþátta-
hyggju hafi skotið rótum í íslensku
samfélagi?
Fræðimenn hafa um nokkurt
skeið talað um að hugtakið menning
sé í sívaxandi mæli notað eins og
hugtakið kynþáttur áður, þ.e. að
menning sé notuð sem útskýring á
slæmri stöðu ákveðinna hópa eða
stigi vanþróunar. Heimspekingurinn
Etienne Balibar notar ásamt öðrum
hugtakið „ný kynþáttahyggja“ (neo-
racism) til að gagnrýna vaxandi
áherslu á menningu sem útskýringu
á hegðun og eðli einstaklinga.
Rétt eins og kynþáttur áður, eru
hugmyndir um menningu notaðar til
þess að alhæfa um ákveðinn hóp ein-
staklinga og gera lítið úr honum á
einhvern hátt. Fræðimenn hafa í
raun í nokkra áratugi bent á að
skipting fólks í afmarkaða kynþætti
hefur ekkert vísindalegt gildi eða
gagnsemi vegna þess að hún end-
urspeglar ekki skiptingu manneskj-
unnar í ólíka líffræðilega hópa. Slík
flokkun var sérstaklega mikilvæg í
evrópskum samfélögum á nítjándu
og fyrri hluta tuttugustu aldar en var
síðan harkalega gagnrýnd af fræði-
mönnum sem drógu vísindalegt gildi
hennar í efa. Þrátt fyrir afneitun vís-
indafólks á slíkri skiptingu hefur hún
haldið áfram að vera áhrifamikið
tæki félagslegrar mismununar og
hluti af skilningi flestra á umheim-
inn. Þannig má segja að kynþátta-
hyggja sé enn mikilvæg samfélagi
okkar, þ.e. trú á gagnsemi þess að
flokka fólk í kynþætti, þó að flokkun í
kynþætti sé í sjálfu sér ekki gagnleg
vísindalega.
Þrátt fyrir að á tuttugustu öld hafi
skipting fólks í kynþætti snúið að líf-
fræðilegum þáttum, hefur kynþátta-
hyggja sögulega séð falið í sér sterka
samtengingu líffræðilegs og menn-
ingarlegs atgervis. Eins og mann-
fræðingurinn George W. Stocking
gerir grein fyrir í rannsóknum sínum
á hlutverki kynþáttahyggju í sögu
mannfræðinnar á 19. öld, þá var litið
svo á að húðlitur gæfi ákveðnar vís-
bendingar um menningu. Dregin
voru upp gróf tengsl á milli lík-
amlegs útlits og andlegs atgervis
einstaklinga og yfirgripsmiklar al-
hæfingar byggðar á þeim. Kynþátta-
hyggja er því fyrirbæri sem breytir
sér og lagar sig að breyttum tímum.
Fordómar
Kynþáttafordómar og fordómar
almennt hafa mikið verið til umræðu
í íslensku samfélagi undanfarið. Ný-
leg skýrsla evrópunefndar gegn kyn-
þáttafordómum og skorti á umburð-
arlyndi fjallar á áhugaverðan hátt
um fordóma á Íslandi. Fjallað er sér-
staklega um atvinnuleyfi útlendinga
og lögð áhersla á, að með því að láta
atvinnurekandann fá atvinnuleyfi en
ekki launþegann, sé verið að skapa
kjöraðstæður fyrir margskonar mis-
notkun, auk þess sem þetta fyr-
irkomulag sé niðurlægjandi fyrir við-
komandi launþega.
Í skýrslunni eru einnig gerðar at-
hugasemdir við margt annað af því
sem hefur verið rætt um á almenn-
um vettvangi. Til dæmis um ábend-
ingu að 40% kvenna sem leita til
Kvennaathvarfsins séu af erlendum
uppruna, og að konur af erlendum
uppruna sem fara frá mönnum sín-
um áður en þær hafa búið hér í þrjú
ár missi við það dvalarleyfi. Vissu-
lega hafa stjórnvöld veitt und-
anþágur fyrir konur sem hafa orðið
fyrir ofbeldi en eins og bent er á í
skýrslunni, eru konurnar sjálfar ekki
nægilega upplýstar um það og líklegt
að sumar treysti sér ekki til að sækja
um slíka undanþágu. Einnig kemur
fram í skýrslunni að íslenskir músl-
imar hafi þurft að bíða eftir leyfi til
að byggja mosku síðan 1999, nokkuð
sem sé sérlega alvarlegt í ljósi þess
að vaxandi fordóma hefur gætt í garð
múslima eftir hryðjuverkaárásirnar
á Bandaríkin, hinn 11. september,
2001.
Margir fræðimenn hafa einmitt
sérstaklega notað hugtakið „ný kyn-
þáttahyggja“ í samhengi við fordóma
tengda þeim atburði enda múslimum
gjarnan steypt saman í stóran, eins-
leitan hóp og litið er á íslam sem ein-
hvers konar andstæðu kristni en
ekki trúarbrögð með sömu rætur.
Fordómar eru einnig viðfangsefni
samræðna í samfélögum og í fjöl-
miðlum má sjá blaðagreinar þar sem
pistlahöfundar staðhæfa að þeir hafi
kynnt sér málið en séu samt á móti
réttindum ákveðinna hópa eins og
giftingum samkynhneigðra eða bú-
setu útlendinga á Íslandi. Að sumu
leyti má því kannski segja að orðið
fordómar sé ekki sérlega gagnlegt í
þessu samhengi því það felur í sér þá
merkingu að „dæma eitthvað fyr-
irfram.“ Hins vegar má einnig koma
með rök fyrir því að alhæfingar um
ákveðna hópa og einhvers konar
skerðingu á réttindum einstaklinga,
vegna þess að þeir eru hluti af hóp,
séu í raun fordómar, vegna þess að
einstaklingurinn er flokkaður fyr-
irfram sem hluti af ákveðnum hóp.
Honum eru fyrirfram gerðar upp
skoðanir, markmið og jafnvel útlit
sem hluti af ákveðnum hóp. Í bók
Ungir Íslendingar Að baki einfaldra staðhæfinga um útlendinga, nýbúa eða innflytjendur standa margbreytilegir einstaklingar.
Nýir Íslendingar, útlendingar
og annarskonar fólk
Fyrir stuttu rötuðu
Kárahnjúkar enn í
fréttir vegna lélegs að-
búnaðar verkafólks.
Hvers vegna heyrum
við svona oft slíkar
fréttir? Er hægt að tala
um nýja kynþátta-
hyggju í þessu sam-
hengi? Kristín Lofts-
dóttir veltir fyrir sér
umfjöllun fræðimanna
um nýja kynþátta-
hyggju og hvað hún
segir okkur um hnatt-
væddan samtímann.
Alvöru amerískir!
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
AFSLÁTTUR
30%
GE kæliskáparnir eru öflugir,
endingargóðir og glæsilega innréttaðir
Ís
sk
áp
u
r
á
m
yn
d
G
CG
21
SI
SF
SS
Verð nú
kr. 199.570 stgr.
GCE23YTFSS
Stærð: h 176x b 90,9 x d 60,7 sm
400 ltr. kælir og 188 ltr. frystir
Með ryðfríum stálhurðum
Verð áður kr. 285.100 stgr.
-hágæðaheimilistæki
Baldursnes 6, Akureyri | Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 588 0200 | www.eirvik.is
U p
p s
e l
d i
r
næ
sta
se
ndi
ng
væ
nta
nle
g
tök
um
við
pö
ntu
num