Morgunblaðið - 27.05.2007, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 27.05.2007, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 45 nema Karls Strands sé getið, þótt hann hafi ekki komið við sögu Kleppsspítala. Hann var stórmerk- ur læknir og skapaði sérstakt andrúm á geðdeild Borgarspítalans, þar sem hann sást reglulega á göngum deildarinnar. Mikilvægi geðdeildar Borgarspítalans var ekki sízt fólgið í því, að þar með áttu sjúklingar og að- standendur þeirra val. Þeir gátu valið um, hvort þeir leituðu til Klepps eða til geðdeildar Borgar- spítalans. Þetta val var mikilvægt m.a. vegna þeirra fordóma, sem tengdust Kleppi á þeim árum og vegna hins að lækningaaðferðir voru ekki þær sömu. Karl Strand var hlynntur raflækningum. Við sameiningu Landspítala og Borgarspítala runnu geðdeildirnar saman í eina deild undir for- ystu Hannesar Péturssonar, sem varð eftirmaður Karls á Borgarspítalanum. Þótt hagkvæmnisrök hafi verið sterk fyrir sameiningu þessara deilda í eina er ekki þar með sagt, að slík sameining hafi endilega verið góð fyrir sjúklingana. Þeir áttu ekki lengur val. Það er bara um þessa einu deild að ræða á Reykjavíkursvæðinu. Þótt auðvitað sé hægt að leita til geðdeildarinnar á Akureyri. Ekki bara læknar E itt hundrað ára saga Kleppsspítala er ekki bara saga læknanna þar. Sjúklingarnir skipta auðvitað mestu máli en fleiri fagstéttir koma þar við sögu. Og þar er átt við geðhjúkrunarfræðinga og iðjuþjálfa. Sjúklingar, sem dveljast á geðdeild eiga áreiðanlega meiri dagleg samskipti við geðhjúkr- unarfræðinga en við geðlæknana. „Sjúklingarnir eru stöðugt í okkar umsjá“, segir Eydís Svein- bjarnardóttir, sviðstjóri hjúkrunar á geðsviði Landspítala – háskólasjúkrahúss“, og það er rétt. Í sögu geðhjúkrunar á Íslandi eru til konur, sem hafa markað djúp spor. Ein þeirra var Guðríður Jónsdóttir, sem starfaði á Kleppi í 30 ár. Hún hafði frumkvæði að því að koma upp heimili fyrir sjúk- linga á Reynimel 55 og rak það sjálf þangað til hún gaf Kleppsspítala húsið árið 1973. Þetta var frum- raun í því að veita geðsjúku fólki tækifæri til bú- setu utan stofnunar en njóta um leið ákveðinnar þjónustu og kannski táknrænt að í hinum enda þessa húss bjó fjölskylda, sem hafði orðið að þola margt af völdum þessa sjúkdóms. Önnur slík kona var María Finnsdóttir en Eydís Sveinbjarnardóttir lýsir framlagi hennar m.a. með þessum orðum í Morgunblaðinu í dag, sunnudag: „Þegar hún tekur til starfa er Kleppur stofnun í öllum skilningi þess orðs. Sjúklingarnir voru allir í stofnanafötum, sem bundið var snæri utan um þegar þeir lögðust til hvílu. Borðað var af blikk- diskum og drukkið úr blikkmálum. María einhenti sér í að breyta þessu – gera umhverfið manneskju- legra. Hún keypti húsgögn, leirtau, blóm og bjó til borðstofu, svo eitthvað sé nefnt. Þá hóf hún að klæða fólkið í venjuleg föt. Þetta var algjörlega ný sýn í geðheilbrigðismálum á Íslandi, þar sem áherzla var lögð á að styrkja sjálfsmynd sjúkling- anna.“ Og einnig má í þessu sambandi nefna Þórunni Pálsdóttur, sem var náin samverkakona Tómasar Helgasonar og átti m.a. mikil samskipti við rit- stjórn Morgunblaðsins á sinni tíð um málefni geð- sjúkra. Ekki verður fjallað um þessar merku konur án þess að minnast Margrétar Blöndal, sem lengi var geðhjúkrunarfræðingur á geðdeild Borgarspítala. Hafi Florence Nightingale verið til á Íslandi var hana að finna í Margréti Blöndal. Þótt Þórður Sveinsson hafi lagt áherzlu á að sjúklingar hans gætu stundað búskaparstörf fyrir 100 árum er staðreyndin sú, að iðjuþjálfun, sem fólst í því að sjúklingar gætu haft einhverju öðru að sinna en ganga um gólf og reykja sígarettur á sér ekki langa sögu, kannski nokkra áratugi en átti mikinn þátt í að breyta yfirbragði geðdeildanna, þegar hún kom til sögunnar og gera lífið bærilegra fyrir sjúklingana. Í tvo áratugi frá 1944 starfaði aðeins einn iðjuþjálfi á Kleppi. Um þetta segir Elín Ebba Ásmundsdóttir, for- stöðuiðjuþjálfi á Landspítala – háskólasjúkrahúsi í samtali við Morgunblaðið í dag: „Það er ekkert vafamál, að iðja, sem hefur þýð- ingu og gildi fyrir fólk hefur áhrif á heilsu og sjálfstraust þess. Með iðjuþjálfuninni fengu sjúk- lingarnir á Kleppi hlutverk, sem hafði gildi, alla vega innan spítalasamfélagsins. Oft er eina „hlut- verk“ geðsjúkra sjúklingshlutverkið. Það er nauð- synlegt að geðsjúkir fái verkefni við hæfi, þannig öðlast þeir trú á það að þeir hafi eitthvað fram að færa í samfélaginu þrátt fyrir veikindi sín.“ En hvað um sjúklingana? E nginn einstaklingur hefur lagt sig meira fram um að koma því sjón- armiði á framfæri, að á sjúk- lingana sjálfa eigi að hlusta en Héðinn Unnsteinsson, sem um tíma veitti svonefndu geðræktar- verkefni forstöðu en hefur síðustu ár starfað hjá Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni í Kaupmanna- höfn og haft mikil afskipti af málefnum geðsjúkra í því, sem kalla mætti þróunarlöndin í Evrópu, þ.e. í ríkjum austurhluta Evrópu og í Albaníu. Um reynslu sína af þessum störfum skrifaði Héðinn at- hyglisverðar greinar hér í Morgunblaðið í vetur. Héðinn Unnsteinsson hefur verið áhrifamesti boðberi nýrrar hugsunar í geðheilbrigðismálum og notið til þess stuðnings öflugra kvenna á borð við Elínu Ebbu Ásmundsdóttur og Auði Axels- dóttur, sem veitir Hugarafli forstöðu. Í stuttu máli má segja, að boðskapur þeirra sé sá, að í fyrsta lagi eigi að hlusta meira á það, sem geðsjúkir sjálfir hafi að segja um þá meðferð, sem í boði er og hins vegar að færa eigi meðferðina í eins ríkum mæli og mögulegt er út af spítala. Fyrir fjórum áratugum var nánast ekki hægt að fá geðlækni til að skoða sjúkling á heimili hans. Í dag þykir það gamaldags afstaða og eðlilegt að teymi fagfólks komi á heimili eða vinnustað eða í raun hvert sem er. Eitt hundrað árum eftir að Kleppsspítalinn hóf starfsemi sína er meira og meira fylgi við þá stefnu, að fara eigi með meðferð hinna sjúku út af spítölum, þótt augljóst sé að í sumum tilvikum verður aldrei hægt að komast hjá því að leggja mikið veikt fólk inn. Um þessi álitamál öll er ekki full samstaða með- al þeirra, sem starfa að málefnum geðsjúkra á Ís- landi. Kannski er ekki við öðru að búast, þegar horft er til sögunnar. Þótt nú sé deilt um leiðir að sameiginlegu markmiði er það ekkert nýtt. Í þeirri sögu, sem rakin er í Morgunblaðinu í dag kemur fram að deilt var um lækningaaðferðir Þórðar Sveinssonar og Helga Tómassonar og stundum harkalega. Þess vegna er kannski ekki ástæða til að hafa of miklar áhyggjur af því, þótt menn séu ekki á einu máli nú. Tími fyrirmæla frá læknum og öðru fagfólki er sennilega að líða. Tími aukins samráðs við sjúk- linga er sennilega að ganga í garð. Þó má ekki gleyma því að geðlæknar hafa alltaf haft samráð við sína sjúklinga en upplifun sjúklinga þegar inn á spítala er komið er sú, að þeir hafi lítið um eigin meðferð að segja. Á eitt hundrað ára afmæli Kleppsspítalans er hins vegar ástæða til að horfa yfir farinn veg og leitast við að ræða framtíðarmarkmið í ljósi þeirr- ar reynslu, sem safnast hefur saman á heilli öld. Vonandi bera fagfólk og sjúklingar gæfu til þess. » Alkunna er, að böð hafa róandi áhrif á fólk og afstaða Þórð-ar Sveinssonar til lyfja, sem þá voru að koma fram, minnir á þær umræður, sem staðið hafa yfir undanfarin ár um lyfjanotk- un, þar sem mjög mismunandi skoðanir hafa verið uppi. Má ekki segja með nokkrum rökum, eins og hér hefur verið sýnt fram á, að Þórður Sveinsson hafi verið nútímamaður á sín- um tíma? rbréf Morgunblaðið/KristinnGeðdeild Landspítala-háskólasjúkrahúss við Hringbraut.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.