Morgunblaðið - 27.05.2007, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 27.05.2007, Qupperneq 46
46 SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Ísagnabanka mínum, sem égrak í Lesbók Morgunblaðsinsárin 1983-1987 var ein saganum áletrun á væntanlegan leg- stein minn, þegar þar að kæmi. Ég var þá í stjórnum fjórtán félaga og meira en saddur á þessu félagastarfi og sagði mig úr öllum þessum stjórn- um, nema Árvakurs h.f., því þar voru þó greidd stjórnarlaun. Létti mér mjög við þessa ákvörðun að vera bú- inn að losa mig úr stjórnum þrettán félaga og hannaði áletrun á legstein minn svo hljóðandi: Farinn á næsta fund Leifur Sveinsson 1927- II. Um páskana sl. dvöldum við hjónin hjá Bergljótu dóttur okkar og tengdasyni Enrico Mensuali ásamt dóttur þeirra Lindu. Íbúð þessi er í bænum Marina di Massa við Miðjarð- arhafsströnd Ítalía, en strandlengjan þar heitir Apuanestrandlengjan þó að hún sé oftast nefnd sem hluti af Versilia strandlengjunni. Skammt fyrir ofan bæinn rísa hinir tignarlegu Apuanealpar, þar sem ógrynni er af marmara og má t.d. nefna að á leið- inni frá Massa til Carrara eru um 500 marmaranámur. Hinn 7. apríl höld- um við á brattann í bíl þeirra hjóna. Vegurinn er afar krókóttur, minnir helst á veginn til Ronda á Spáni, sem við heimsóttum sumarið 1983. Þar var frægt atriði kvikmyndað úr bók Ernest Hemingway (1899-1961) „Hverjum klukkan glymur“ (For Whom the Bell Tolls). Eftir því sem við komum hærra, fjölgar marmara- námunum og má segja, að alparnir séu ein samfelld marmaranáma. Bæj- arfélagið heitir Carrara og marm- arinn við það kenndur. Þessi marm- ari þykir besta tegund marmara, sem finnst í víðri veröld. Leiðin er öll vörðuð minjagripabúðum, en við stefnum á góðan matstað og finnum hann: „Osteria Nella Piá“ í Colon- nata. Matur og vín voru afbragð og staðurinn frábærlega snyrtilegur, enda öll 2. hæðin frátekin fyrir gesti, sem voru rétt ókomnir. Þorpið Colon- nata var þegar byggt 40 árum fyrir Krist burð. Við heimsækjum eina minjagripabúðina og kaupum tvo smáhluti, hvítan hestshaus og græna kúlu fyrir lófana. Tollarinn í Flórens hélt að hestshöfuðið væri hluti úr skáksetti og þótti mikið til koma. Svo höldum við heim til Marina di Massa og Enrico þræðir krókaleiðina niður úr ölpunum af miklu öryggi og nú sýnir hitamælirinn 22 stig á Celsius. Vel heppnaðri ferð í Apuanealpana er lokið og hvet ég alla ferðamenn til þess að skoða þessi marmarafjöll, heimsókn þangað svíkur engan. III. Ekki fann ég hentugan legstein handa mér, enda dýrt að borga yfir- vigt af slíkum hlut, svo þessi kaup verða að bíða betri tíma. Á meðan verð ég að heimsækja leiði langalang- ömmu minnar Guðnýjar Jónsdóttur (1804-1836) skáldkonu frá Klömbr- um, en systir hennar Hildur Johnsen (1807-1891) lét reisa forkunnarfagran marmarastein til minningar um syst- ur sína á Skinnastað í Axarfirði. IV. Í dag er páskadagur 8. apríl. Við höldum kyrru fyrir heima, en um kvöldið horfum við á sjónvarp, þar sem sýnd er kvikmynd um ævi og störf Jóhannesar páfa II., sem fædd- ur var í Póllandi og hét fyrir páfadóm Karol Wojtyla. Páfann lék Jon Voight, hinn kunni bandaríski leikari, og gerði það af mikilli snilld. Stuðningur páfa við Lech Walesa og verkalýðssamtök hans „Samstöðu“ (Solidarnosc) varð til þess, að herforingjastjórn Woj- ciech Jaruzelski hrökklaðist frá völd- um og Lech Walesa varð forseti Pól- lands og fékk síðar friðarverðlaun Nobels. Ég tel páfa þennan hafa verið einn af stórmennum mannkynssögunnar. Fall Berlínarmúrsins var bein afleið- ing af falli komúnismans í Póllandi. Kvikmynd þessi á brýnt erindi við ís- lenska sjónvarpsáhorfendur og verð- ur hún vonandi sýnd í RÚV sem fyrst. V. Í dag er miðvikudagurinn 12. apríl. Þá er ekið til Portovenere í norður í átt til Genúa. Mestur hluti leið- arinnar er á hraðbraut, hraði um 130 km. á klst. Við snæðum á veit- ingastaðnum „Le Bocche“, en þar höfðum við snætt fyrir nokkrum ár- um og ég ritað í Morgunblaðið um þá heimsókn. Þjónninn sagði okkur, að nokkuð væri um heimsóknir Íslend- inga þarna. Grein mín í Morg- unblaðinu. hafði gefið staðnum góð meðmæli, en þar sem gestgjafinn þekkti mig ekki aftur, þá fékk ég eng- in umboðslaun. Staðurinn hefur feng- ið algera andlitslyftingu, en ekki er gert ráð fyrir gamalmennum, því handriðalaust var upp stigann að sal- erninu. Þar var boðið upp á þá nýj- ung að kaupa tannbursta fyrir tvær evrur, vafalaust með innbyggðu tann- kremi. Hér sést vel yfir Skáldaflóann, þar sem þeir dvöldu langdvölum Shelley (1792-1822) og Keats (1795- 1821). La Spezia , herskipahöfn ítalska flotans er hér skammt fyrir sunnan, en í Portovenere er lysti- bátahöfn og ferðir út í nærliggjandi eyju. VI. Í ferðaáætlun minni var ætlunin að heimsækja Genúa, en sú borg er miklu norðar en Portovenere, svo við sáum okkur ekki fært að heimsækja hana í þessari ferð. Ástæðan fyrir því að mig langaði að koma til Genúa var sú, að faðir minn hafði eitt sinn sagt mér frá ferð sinni þangað árið 1922. Þangað átti hann erindi, en þannig stóð á, að þrjú félög áttu saman skip það er Svala hét, Kaupfélag Borgfirð- inga, Samband íslenskra samvinnu- félaga og Völundur h.f. Sumar heim- ildir nefna, að fyrrgreind félög hafi átt jafna hluti, 1/3 hvert, en eftir mín- um heimildum áttu S.Í.S. og Völ- undur h.f. 40% hvort, en K.B. 20%. Í bókinni Skipstjórar og Skip II segir svo um Svöluna: „Flutningaskip, smíðað í Svendborg í Danmörku 1919. Keypt til Íslands 1920 og kom í fyrstu ferð til Reykjavíkur 13. maí 1920 hlaðið rúgmjöli frá Álaborg og ýmsum vörum frá Leith. Seglskip með 160 hö. hjálparvél. 397 brúttó- lestir, áhöfn 10. Skipstjóri Árni Gunnlaugsson (1883-1961). Svalan sótti nokkra timburfarma til Svíþjóð- ar og fór nokkrar ferðir með saltfisk til Miðjarðarhafslanda og flutti salt heim. Annars reyndist þetta hið mesta óhappaskip. Seint á vetri 1922 lá Svala í vetrarlægi á ytri höfninni í Reykjavík og í ofviðri þann 24. mars slitnaði hún upp og rak í land innan við Héðinshöfða í Reykjavík. Skipið náðist út, var tekið upp í slipp í Reykjavík og síðan sett upp í fjöru í Örfirisey og rifið þar.“ Móðir mín Soffía E. Haraldsdóttir, sem var skrifstofustúlka hjá Sjóvá á þessum árum, sagði mér, að ekki hefði verið um altjón (total forlis) að ræða og því hefði Völundur h.f. tapað á þessari út- gerð stórfé, ca. 260 þúsundum króna. Faðir minn lét hengja upp ljósmynd af Svölunni á vegg einn í skrifstofum Völundar h.f. til þess að minna síðari forráðamenn félagsins á að leggja aldrei í útgerð fragtskipa framar. VII. Nú víkur sögunni til Reykjavíkur sumarið 1922, þar sem þeir frændur Guðjón Samúelsson (1887-1950) og faðir minn Sveinn M. Sveinsson (1891-1951) keyptu sér farseðla hjá umboðsmanni Cook ferðaskrifstof- Málverk Málverk Snorra Arinbjarnar frá 1932 af tveim hestum nálægt strandstað Svölunnar við Héðinshöfða. Enrico Mensuali Fallegt útsýni Setið að snæðingi í Portovenere. Vor við Miðjarðarhaf Greinarhöfundur við nýút- sprungið tré. Í leit að legsteini í Carrara á Ítalíu Höfundur er lögfræðingur í Reykjavík. Eftir Leif Sveinsson Portovenere Falleg mynd af strandlengju Portovenere. unnar í Reykjavík (Zoëgamenn) og skyldi haldið um Kaupmannahöfn- París-Mílanó og víðar um Ítalíu. Gekk ferðin greiðlega, þar til komið var til Mílanó, þá tók Guðjón eftir því, að hann hafði gleymt tóbaksdósum sínum í París, neftóbak ófáanlegt á Ítalíu og krafðist hann þess, að þegar yrði snúið við og haldið til Parísar að sækja dósirnar, þær væru örugg- legar vísar á hótelinu. Faðir minn var hvorki vín- né tóbaksmaður og skildi illa þessa fíkn frænda síns, en þeir voru systkinabörn að frændsemi. Þvertók hann fyrir að elta dósirnar til Parísar, nema með því skilyrði, að hann fengi að fara til Genúa fyrst, þar sem hann ætti brýnt erindi. VIII. Fer faðir minn þá með lest til Ge- núa og kveður dyra hjá skipa- afgreiðslu einni, sem annast hafði Svöluna í ferðum hennar til Genúa. Náði hann tali af skrifstofustjóra af- greiðslunnar og sagðist þurfa að sjá ákveðið skjal, sem væri í þeirra vörslu varðandi síðustu viðkomu Svölunnar í Genúa. Eftir nokkra leit kemur skrif- stofustjórinn með skjalið, faðir minn tekur við því og skoðar, brýtur það síðan saman og stingur í vasa sinn og segir á ensku: „This is my paper“ (þetta er mitt skjal). Gekk hann síðan út hröðum skrefum en starfsliði varð orðfall og hafðist ekki að. Taldi faðir minn sig hafa verið í nokkurri lífs- hættu þarna, ef hann hefði ekki verið svona ákveðinn. En þetta skjal, hvað svo sem það hét, réð kannske úrslit- um um það, að Svalan gerði ekki al- veg út af við fjárhag Völundar h.f. Úr bókinni Skipstjórar og skip II Morgunblaðið/Sverrir?? Hesthaus Hestshaus úr marmara. Hann er nú stað- settur að Tjarnargötu 36. Svala Fragtskipið Svala reyndist óhappaskip.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.