Morgunblaðið - 27.05.2007, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 27.05.2007, Qupperneq 54
54 SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG Mjög góð ca 72 fm íbúð á 10. hæð í þessu eftirsótta lyftuhúsi. Íbúðin snýr í suð-austur með útsýni frá Bjáfjöllum suður yfir Keili. Góð stofa og stórar suðursvalir. Laus í júlí. Tilboð. 7625 SÓLHEIMAR 23 NÝR OG GLÆSILEGUR, FULLBÚINN, FINNSKUR BJÁLKABÚSTAÐUR Á GÓÐU EIGNARLANDI SEM NÆR NIÐUR AÐ APAVATNI. Bústaðurinn er um 86 fm, ásamt um 25 fm millilofti (gólfflötur). Húsið stendur á um 10.000 fm eignarlandi sem er mjög vel staðsett við vatnið. Gott útsýni yfir vatnið og fjallgarðana í kring. 3 svefnherbergi, stór stofa og eldhús, stór verönd. Þetta er stórglæsilegt hús sem vert er að skoða. V. 27,5 millj. Upplýsingar í síma 696 6580. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Sumarhús - Vatnsholtsvegur Opið hús í dag milli kl. 13.00 og 16.00 ATVINNUHÚSNÆÐI TIL LEIGU Bakkabraut 4 - Kópavogi Til leigu mjög gott ca 625 m2 iðnaðarhúsnæði við Bakkabraut í Kópavogi. Fiskvinnsla hefur verið rekin í húsinu á undan förnum árum. Húsnæðið skiptist í tvo sali með innkeyrsludyrum, kæliklefa, starfsmannaaðstöðu og litla skrifstofuaðstöðu á efri hæð. Gott malbikað plan er fyrir framan. Hér er um að ræða mjög rúmgott húsnæði sem hentað getur margvíslegri starf- semi. Húsnæðið er laust í júlí, hagstæð leigukjör. Allar frekari upplýsingar veitir Jón Gretar Jónsson sölumaður Húsakaupa í síma 840 4049. Guðrún Árnadóttir lögg. fasteignasali Höfum fengið í sölu 3.700 fm lóð við Furugerði í Reykjavík. Lóðin sem er leigulóð af hálfu Reykjavíkuborgar er um 3.700 fm. Ekki liggur fyrir hversu mikið magn má byggja á lóðinni. Staðsetning lóðarinnar er afar miðsvæðis og bíður upp á ýmsa möguleika. Tilvalið tækifæri fyrir byggingaverktaka. 6309 Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali Byggingarlóð við Furugerði Á HVERJUM tíma þjást 10%– 12% fólks af langvinnum út- breiddum verkjum sem eiga sér ekki þekktar orsakir. Tæpur helmingur þessa hóps uppfyllir greiningu á vefjagigt (e. fibro- myalgia syndrome). Með öðrum orðum þá eru yfir 30 þúsund Ís- lendingar haldnir langvinnum út- breiddum verkjum og þar af eru yfir 10 þúsund þeirra haldnir vefjagigt. Þetta er ótrúlega stór hópur sem býr við verulega skerta starfsorku og lífsgæði. En hvað er vefja- gigt? Vefjagigt er lang- vinnur sjúkdómur eða heilkenni sem sam- anstendur af fjölmörgum einkenn- um frá hinum ýmsum líf- færakerfum. Helstu einkennin eru þrálátir og dreifðir stoðkerf- isverkir, almennur stirðleiki, yf- irþyrmandi þreyta og svefntrufl- anir. Önnur algeng einkenni eru iðraólga, ofurnæm þvagblaðra, fótaóeirð, kuldanæmi, dauðir fing- ur (e. Raynaud́s phenomenon), dofi í útlimum, bjúgur, kraft- minnkun, úthaldsleysi, minn- isleysi, einbeitingarskortur og depurð. Einkennin eru mjög mismun- andi milli einstaklinga, bæði hvað varðar fjölda og hversu slæm þau eru. Vefjagigt getur verið nokkuð mildur sjúkdómur þar sem við- komandi heldur nær fullri færni og vinnugetu, þrátt fyrir verki og þreytu, en hún getur líka verið mjög illvígur sjúkdómur og rænt einstaklinginn allri orku þannig að hann er vart fær um annað en að sofa og matast. Flesta rænir hann þó hluta af færni til vinnu og at- hafna daglegs lífs. Þar sem ekki sjást nein ummerki um sjúkdóm- inn, hvorki á sjúklingnum, né í al- mennum læknisrannsóknum þá hafa þessir einstaklingar oft á tíð- um mætt litlum skilningi heil- brigðisstarfsfólks, aðstandenda, vina eða vinnuveitenda. Enn þann dag í dag telja sumir að vefjagigt sé í raun ekkert annað en verkja- vandamál sem geti talist eðlilegur hluti af lífinu og enn aðrir telja að um sé að ræða „ruslafötu- greiningu“ það er að allt sé kallað vefjagigt sem ekki er hægt að greina sem aðra „almennilega sjúkdóma“. En af hverju er svona lítil við- urkenning á vefjagigt sem sjúkdómi? Er það út af því að fyrirbærið er illa skil- ið, erfitt að staðfesta með hefðbundnum rannsóknum eða vegna skorts á með- ferðarúrræðum? Svarið hlýtur að vera nei, því að þekking okkar á mörgum sjúk- dómum sem eru við- urkenndir (má þar nefna mígreni, and- litstaugaverk og út- taugabólgur) er lítið meiri en þekking okkar á vefjagigt. Marga sjúkdóma er erfitt að staðfesta með hefðbundnum rannsókn- araðferðum og fjölmörg meðferð- arúrræði eru til að draga úr ein- kennum vefjagigtar. Er það út af því að engin trufl- un eða sjúkleiki finnist í starfsemi líkamans? Svarið við þessari spurningu er einnig nei. Á undanförnum árum hafa verið gerðar fjölmargar rann- sóknir á vefjagigt sem hafa leitt í ljós truflun í starfsemi margra líf- færakerfa hjá fólki með vefjagigt m.a. í tauga-hormóna kerfi lík- amans (e. neurohormonal abnor- mality), ósjálfráða taugakerfinu (e. autonomic nervous system dys- function) og truflun á framleiðslu ýmissa hormóna (e. reproductive hormone dysfunction). Svefntrufl- anir sem eru eitt af höfuðeinkenn- um vefjagigtar eru taldar orsaka- þáttur fyrir mörgum kvörtunum sjúklinga, einkum þreytu og stoð- kerfisverkjum. Þannig að svarið hlýtur að felast í því að breiða þurfi út boðskapinn um að vefja- gigt er sjúkdómur en ekki ímynd- un. Staðreyndirnar liggja fyrir. Staðreyndir um vefjagigt *Vísindarannsóknir sýna að í vefjagigt er truflun á starfsemi fjölmargra líffærakerfa *Vísindarannsóknir sýna að í vefjagigt er næmi fyrir taugaáreiti verulega aukið *Vísindarannsóknir sýna að starfsfærni og lífsgæði vefjagigt- arfólks er verulega skert *Vísindarannsóknir sýna að vefjagigt er samfélaginu dýr, m.a. vegna örorku og mikils kostnaðar í heilbrigðisþjónustu. *Vísindarannsóknir hafa sýnt gagnsemi ýmissa meðferða í bar- áttunni við vefjagigt Meðferðarúrræði sem gagnast best eru: *Aukin þekking og fræðsla á sjúkdómnum og meðferð- arúrræðum *Lyf sem bæta svefn *Líkamsþjálfun *Hugræn atferlismeðferð www.vefjagigt.is Nýlega var opnaður fræðsluvef- ur um vefjagigt, www.vefjagigt.is. Þessum vef er ætlað að stíga eitt skref í átt til bættrar þekkingar á vefjagigt – að breiða út boðskap- inn. Á vefnum eru allar helstu upplýsingar um heilkenni vefja- gigtar, tengda sjúkdóma og helstu meðferðir. Upplýsingarnar eru byggðar á niðurstöðum vísinda- rannsókna og almennum fróðleik byggðum á reynslu vefjagigt- arfólks og fagaðila sem hafa reynslu í meðferð á vefjagigt. Vefjagigt er ekki hugsýki Sigrún Baldursdóttir telur yfir 10 þúsund Íslendinga vera með vefjagigt » Á hverjum tímaþjást 10%–12% fólks af langvinnum út- breiddum verkjum sem eiga sér ekki þekktar orsakir. Tæpur helm- ingur þessa hóps er með vefjagigt. Sigrún Baldursdóttir Höfundur er sjúkraþjálfari, bSC, MTc og meistaranemi í lýð- heilsufræðum við Háskólann í Reykjavík.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.