Morgunblaðið - 27.05.2007, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 69
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu
vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
KRISTJÁNS GUÐLAUGSSONAR
málarameistara,
Goðheimum 26,
Reykjavík.
Ástríður Ólafsdóttir,
Fríða Kristjánsdóttir,
Helga Kristjánsdóttir, Ólafur Hreiðarsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu
við andlát og útför ástkærs föður okkar, bróður og
afa,
EYMUNDAR KRISTJÁNSSONAR,
Bleikugróf 13,
Reykjavík,
áður til heimilis á Lundagötu 17B,
Akureyri.
Birgitta Sædís Eymundsdóttir,
Jón Þór Eymundsson,
Auður Ósk Eymundsdóttir.
Eydís Ósk Eymundsdóttir,
systkini og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og
kveðjur við andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar og tengdaföður,
HJALTI JÓSEFSSON
fyrrum bóndi á Hrafnagili.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimilisþjónustu
Eyjafjarðarsveitar, Heimilsþjónustu Akureyrar,
Kjarnalundar og Dvalarheimilisins Hlíðar. Starfsfólk
Lyfjadeildar FSA, með Friðrik og Jón Þór í broddi
fylkingar, fá kærar þakkir fyrir frábæra umönnun.
Lifið heil.
Pálína Ragnhildur Benediktsdóttir,
Bergur Hjaltason, Guðrún Júlía Haraldsdóttir,
Þóra Guðrún Hjaltadóttir, Sigurjón Hilmar Jónsson,
Ingibjörg Hjaltadóttir, Þorsteinn Pétursson,
Benedikt Hjaltason, Margrét Baldvina Aradóttir,
Ragnhildur Hjaltadóttir, Alfreð Garðarsson
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar eiginkonu, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ODDNÝJAR SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR,
Ossý.
Sérstaklega viljum við þakka starfsfólki á Hrafnistu
í Reykjavík fyrir frábæra umönnun.
Jón Gunnar Sigurðsson,
Guðrún Jónsdóttir, Stefán Pálsson,
Ólöf Jónsdóttir, Viðar Sigurjónsson,
Auður Jónsdóttir, Kristinn H. Þorsteinsson,
Ólafur Th. Jónsson, Hildur Guðjónsdóttir,
Geir Hafsteinn Jónsson,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur
samúð vegna fráfalls elsku frænda okkar
og vinar,
HALLBJÖRNS GUNNARS GÍSLASONAR,
Tröðum,
Hraunhreppi.
Sérstakar þakkir til þeirra sem veittu
ómetanlega aðstoð á dánardegi hans.
Sigrún Helgadóttir,
Kristín Helgadóttir,
Sigurbjörg Helgadóttir, Óskar Þór Óskarsson,
Heiða Helgadóttir, Júlíus Konráðsson
og fjölskyldur.
✝
Okkar innilegustu þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR Á. INGVARSDÓTTUR,
Ystaseli 13,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á 14 E
Landspítalanum við Hringbraut fyrir einstaka
aðhlynningu í veikindum hennar.
Ólafur Sigurðsson, Hjördís Smith,
Sigrún Sigurðardóttir, Brynjólfur Gíslason,
Ásgeir Sigurðsson, Arndís Gísladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Við þökkum þeim fjölmörgu sem sýndu okkur
stuðning og hlýhug við fráfall okkar yndislega
MAGNÚSAR ÓLA GUÐBJARGARSONAR,
Hólmasundi 6,
Reykjavík.
Guðbjörg Magnúsdóttir, Kristján Már Hauksson,
Birta Ósk Kristjánsdóttir,
Sigrún Lilja Kristjánsdóttir,
Haukur Jarl Kristjánsson.
Við göngum um li-
tauðugan blómgarð og
skynjum litina sem heild án þess að
leiða hugann að kraftaverkinu.
Ilmur og angan eru sjálfgefin. Hin
hljómræna heild sinfóníu og söng-
lags er eyranu töm. Flest þiggjum
við og njótum án þess að leiða hug-
ann að þeirri vinnu sem að baki ligg-
ur.
Í maí 1997 urðu þau tíðindi eftir
lokafund í Oddfellowstúkunni nr. 18,
Ara fróða I.O.O.F., að hópur bræðra
ákvað að stofna sönghóp, sem yrði
vísir að kór. Eftir fyrsta fund, 17.
september 1997, skyldu væntanlegir
söngmenn skrá sig. Æfingar hófust í
október sama ár.
Þá komu saman þessir piltar sem
langaði að syngja saman. Fæstir
höfðu komið að slíkum stórvirkjum
en í hópnum var þó þaulreyndur
karlakórsmaður, bassi. Nokkrar
mannabreytingar urðu á söngtíman-
um, á tímabili sungu sumar eigin-
konurnar með okkur og bræður úr
öðrum stúkum Oddfellowreglunnar
gengu til liðs við okkur er fram í
sótti.
Guðrún var kórstjórinn okkar. Í
stuttu máli tókst þar ást við fyrstu
kynni. Hún stýrði strákunum sínum
af næmi, kímni og innsæi. Guðrún
tók til við að raddþjálfa, hífði okkur
upp úr pyttum og leiddi okkur af
raddlegum villigötum með enda-
lausri þolinmæði.
Söngæfing varð miðpunktur fé-
lagsstarfsins og mesta tilhlökkunar-
efni allra. Hún seiddi okkur áfram
lag frá lagi með heillandi framkomu
og svífandi léttleika.
Það er enn í minnum haft að fyrsti
textinn sem við sungum var á hebr-
Guðrún Ásbjörnsdóttir
✝ Guðrún Ás-björnsdóttir
fæddist í Hafn-
arfirði 25. janúar
1945. Hún andaðist
á Landspítalanum
við Hringbraut
sunnudaginn 13.
maí síðastliðinn.
Guðrún var jarð-
sungin frá Vídal-
ínskirkju í Garðabæ
18. maí sl.
esku – enda leist sum-
um okkar ekkert á
þetta og báru við lé-
legri tungumálakunn-
áttu. Þeir voru
spaugsamir, strák-
arnir hennar Guðrún-
ar.
Ást hennar á ís-
lenskum sönglögum
varð okkur strax ljós –
og við kynntumst þeim
nú frá nýrri hlið og
tókum enn meira ást-
fóstri við þau eftir en
áður.
Guðrún var hávaxin kona og sam-
svaraði sér vel, röddin þekk og
hljómmikil, fas og framkoma ein-
kenndust af miklu öryggi og glæsi-
leika. Hún var smekkvís og klæddist
vel. Bros og hláturmildi settu sterk-
an svip á lund hennar að ógleymdri
þolinmæðinni og umburðarlyndi sem
hlaut að spretta upp úr einhverju
endalausu og dulúðugu aldýpi sálar-
innar.
Hún var glettin og spaugsöm við
vinnu sína en hélt okkur þá alltaf við
efnið, rétt eins og sá þaulreyndi lax-
veiðimaður sem landar laxi sínum af
leikni, lipurð, snilld og festu.
Guðrún gleymist okkur aldrei.
Sönghópurinn sendir eiginmanni,
börnum, fjölskyldu og vinum nær og
fjær innilegar samúðarkveðjur.
Þótt Guðrún sé látin tendraði hún
eld í hjörtum okkar sem logar bjart-
ur og skær. Við vekjum eld af þessu
báli hins listræna áhuga og munum
bera þann kyndil með okkur að við
megum bregða birtu á líf samferða-
manna okkar af þeim loga sem Guð-
rún kveikti í hjörtum okkar allra.
Guð blessi hana og varðveiti.
Söngsveinar Guðrúnar
Ásbjörnsdóttur 1997–2005
og eiginkonur.
Þeir sem starfa
saman í kór tengjast
oft býsna náið og því
getur verið erfitt að
kveðja kórfélaga. Nú
kveðjum við Stefnismenn góðan fé-
laga, Gylfa Felixson, sem gekk í
Stefni fyrir rúmum 20 árum og starf-
aði með okkur þangað til veikindi
settu strik í reikninginn. Gylfi söng
Gylfi Felixson
✝ Gylfi Felixsonfæddist í
Reykjavík 22. sept-
ember 1939. Hann
lést á líknardeild
LSH í Kópavogi 2.
maí síðastliðinn og
var jarðsunginn frá
Árbæjarkirkju 9.
maí.
2. tenór, var traustur
og góður félagi og vilj-
ugur að taka þátt í
ýmsum aukastörfum
fyrir kórinn. Hann sat
til dæmis í stjórn hans
sem gjaldkeri um
skeið og tók virkan
þátt í ýmiss konar fé-
lagslífi á vegum kórs-
ins, meira að segja
leikstarfsemi, sem
honum þótti þó ekki
alltaf standa undir
þeim gæðakröfum
sem hann gerði sjálf-
ur. Hann hafði góða nærveru eins og
það er stundum kallað, var vingjarn-
legur, glaðlegur og áreiðanlegur.
Kórfélagarnir eiga sjálfsagt býsna
fjölbreyttar minningar um Gylfa eft-
ir 20 ára samstarf. Það er þó líklegt
að í huga margra standi eitt atvik
upp úr. Fyrir fáum misserum hélt
Stefnir tónleika á Flúðum og þá voru
Gylfi og Hanna búin að koma sér upp
sumarhúsi þar eystra. Þau gerðu sér
lítið fyrir og buðu öllum kórmönnum
heim til sín að tónleikunum loknum.
Það var ákaflega skemmtilegt boð og
marga kórmenn dreymdi um að end-
urtaka það. Menn áttu þó misjafn-
lega auðvelt með að rata aftur þarna
austur af því að minningin um heim-
ferðina var ekki jafnljós í hugum
allra. Sumir mundu ekki annað en að
þetta hefði verið einhvers staðar fyr-
ir austan fjall og heimferðin hefði
tekið óratíma. Um leið og kórinn
þakkar gott starf, vináttu og fé-
lagsskap og vottar Hönnu og öðrum
aðstandendum innilega samúð, er
við hæfi að þakka sérstaklega fyrir
þetta boð. Nú verður það ekki end-
urtekið, en það gleymist ekki.
Karlakórinn Stefnir.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skilafrestur | Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Undirskrift | Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Minningargreinar