Morgunblaðið - 25.10.2007, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 25.10.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2007 33 MINNINGAR ✝ Óskar B. Bjarna-son fæddist við Rauðarárstíginn í Reykjavík 8. febrúar 1912. Hann andaðist á hjúkrunarheim- ilinu Grund í Reykjavík 12. októ- ber síðastliðinn. For- eldrar hans voru Bjarni Bernharðs- son frá Fljótshólum í Flóa, bóndi á Brekku og Eyvind- arstöðum á Álftanesi og verkamaður í Hafnarfirði, f. 12.7. 1879, d. 13.7. 1923, og kona hans Ragnhildur Höskuldsdóttir húsfreyja frá Stóra Klofa í Landsveit, f. 20.1. 1880, d. 5.3. 1953. Óskar var elstur af 7 systkinum. Hin eru: Ragnar, raf- virki í Reykjavík, f. 6.7. 1913, d. 13.7. 2006, Arndís, hjúkrunar- fræðingur í Reykjavík, f. 2.1. 1915, d. 11.7. 2005, Bjarni, lengst af starfsmaður KÁ á Selfossi, f. 25.5. 1916, d. 4.10. 1990, Róbert, verk- stjóri hjá Eimskipi, f. 31.10. 1917, d. 23.7.2007, búsettur í Reykjavík, Ólafur, f. 13.5. 1920, d. 2.3. 1935, og Guðmundur Bjarni, f. 22.3. 1923, d. 18.4. 1926. Þegar Óskar var á fyrsta árinu fluttu foreldrar hans frá Reykjavík á Álftanesið, þar sem þau bjuggu frá 1912-1916, en þá fluttu þau til Hafnarfjarðar. Frá Hafnarfirði fór fjölskyldan austur í Flóa vorið 1918. Bjarni stundaði sjómennsku og verkamannavinnu á Stokkseyri og frá vorinu 1922 vann hann við Flóaáveituna. Hann lést úr lungna- bólgu 1923, 44 ára. Ekkja hans, Ragnhildur, átti síðan heima á Eyrarbakka þar til hún flutti til Reykjavíkur vorið 1928. Frá sex Hulda Ragnhildur og Vilhjálmur Yngvi. b) Björg, grafískur teiknari, f. 18.1. 1965, gift Ólafi Tryggva Magnússyni, f. 13.12. 1960, þau eiga þrjú börn, Vilhjálm, Magnús og Sigurbjörgu Ástu. 3) Guðrún lyfjafræðingur, f. 7.4. 1944, gift Jóni R. Sveinssyni lyfjafræðingi, f. 14.6. 1942. Þau eiga þrjú börn, þau eru: a) Gunnhildur Una, myndlist- armaður og kennari, f. 2.11. 1972, gift Hilmari Bjarnasyni, myndlist- armanni og kennara, f. 6.1. 1965. Þeirra börn eru Guðrún og Jón Emil. b) Sveinn Rúnar tölvunar- fræðingur, f. 15.3. 1974. c) Þor- björg myndlistarnemi, f. 4.5. 1979. Óskar var í Gaulverjabæjar- barnaskóla frá tíu ára aldri og stundaði síðan nám við Flensborg í Hafnarfirði en mikill hvatamaður að því var Sólmundur Einarsson, kennari og bóndi á Arnarhóli. Ósk- ar lauk stúdentsprófi frá MR 1933 og cand.Polyt.-prófi í efnaverk- fræði frá verkfræðingaskólanum Polyteknisk Læreanstalt í Kaup- mannahöfn í janúar 1939. Hann dvaldi við rannsóknir á fiskiolíum við háskólann í Liverpool á Eng- landi 1942-1943 með styrk frá Brit- ish Counsel. Óskar var verkfræðingur hjá Síldarverksmiðjum ríkisins á Sól- bakka í Önundarfirði, á Siglufirði og á Raufarhöfn sumrin 1939-1943 og jafnframt sérfræðingur við iðn- aðardeild atvinnudeildar Háskóla Íslands 1945-1961, hann var deild- arstjóri 1961-1965 og deildarverk- fræðingur í Rannsóknastofnun iðn- aðarins 1965-1976. Hann var stundakennari í verklegri efna- fræði við Háskóla Íslands, í lyfja- fræði lyfsala 1959-1972, í lækna- deild 1972-1973 og í verkfræði- og náttúrufræðideild 1969-1971 og 1975. Útför Óskars fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. ára aldri ólst Óskar upp hjá fósturfor- eldrum, þeim Stein- unni Magnúsdóttur og Tómasi Guð- mundssyni í Efri- Gegnishólum í Flóa. Óskar kynntist eig- inkonu sinni, Sigur- björgu Emilsdóttur, í Kaupmannahöfn. Þau giftu sig í Reykjavík 30.9. 1942. Sigur- björg, f. 6.4. 1912, d. 11.3. 2001, er dóttir Emils Tómassonar búfræðings, f. 1881, d. 1967, frá Hraukbæjarkoti í Eyjafirði og konu hans, Hildar Þuríðar Bóasdóttur frá Stuðlum, f. 1886, d. 1933. Emil og Hildur bjuggu í um 3 ár á Borg í Skriðdal en síðan á óðali Bóasar- ættarinnar, Stuðlum í Reyðarfirði. Óskar og Sigurbjörg eignuðust þrjár dætur. Þær eru: 1) Ragnhild- ur (Róska) myndlistarmaður, f. 31.10. 1940, d. 13.3. 1996, var gift Gylfa Reykdal, grafískum teiknara, látinn. Sonur þeirra er Höskuldur Harri, grafískur teiknari, f. 18.10. 1963, kvæntur Önnu Birnu Ragn- arsdóttur hómópata, f. 21.2. 1966. Börn þeirra eru Eva Lind, Nína og Óskar. Höskuldur Harri er fóstur- sonur Óskars og Sigurbjargar. Seinni maður Ragnhildar var Man- rico Pavolettoni, d. 1997. 2) Borg- hildur, myndlistarmaður, f. 11.8. 1942, gift Vilhjálmi Hjálmarssyni arkitekt, f. 29.6. 1938. Þau eiga tvær dætur: a) Ósk, myndlistar- maður og leiðsögumaður, f. 8.10. 1962, var gift Indriða Benedikts- syni líffræðingi, dóttir þeirra er Borghildur. Seinni maður Óskar er Hjálmar Sveinsson útvarpsmaður, f. 10.12. 1958. Þeirra börn eru Tengdafaðir minn Óskar B. Bjarnason, er látinn í hárri elli. Hann andaðist á elliheimilinu Grund eftir tæplega ársdvöl þar. Áður hafði hann búið einn í íbúð sinni að Hörða- landi eftir að Sigurbjörg Emilsdóttir kona hans lést árið 2001. Óskar var lengst af heilsuhraustur maður og stundaði ávallt heilbrigt líferni. Hann var duglegur að fara í göngu- ferðir og gekk á hverjum degi. Leið eiginlega hálfilla ef hann komst ekki út að ganga. Ekki líkaði honum vel ef einhver sagði „fór út að labba“, en Óskar var unnandi íslenskrar tungu og hafði næma máltilfinningu. Ýms- ar enskuslettur voru honum ekki að skapi, eins og til dæmis „þakka þér“ sem sumir ofnota. En eins og Óskar sagði eru þetta áhrif frá ensku orð- unum „thank you“. Málverndun þessi minnti mig á gamlan íslensku- kennara minn úr MR, Magnús Finn- bogason. Fannst mér þeir oft nokk- uð líkir í skapi og háttum en Óskar og Magnús voru systkinasynir. Gaman var að aka með Óskari um landið, því hann hafði ferðast mikið og kunni örnefni á mörgum stöðum. Hann hafði gengið um ótal fjöll og var vel að sér í náttúru Íslands. Óskar var svo lánsamur að eiga einstaka konu sem hugsaði vel um sína fjölskyldu af ástúð og fórnfýsi. Jón R. Sveinsson. Við hittumst um daginn með Siggu presti heima hjá afa og ömmu. Nú eru þau bæði dáin, amma fyrir nokkrum árum, afi fyrir nokkrum dögum. Ég hef ekki komið oft í Hörðaland undanfarin ár. Afi var oft í mat hjá mömmu og við hittumst frekar þar. Það var líka svoldið sárt að sjá stólinn hennar ömmu við eld- húsgluggann, með kringlóttri ullar- sessu en engri ömmu. Allt annað var óbreytt, myndirnar af fjölskyldunni þöktu veggina kringum eldhúsborð- ið, hveiti, sykur og smjörlíkisbréf gáfu fyrirheit um hjónabandssælu og mjólkurglas. Þegar ég var lítil og við bjuggum á Hornafirði komu afi og amma alltaf til okkar á jólunum. Mamma og pabbi höfðu meira en nóg að gera í apótekinu, að selja höfuðverkjatöfl- ur og ilmvötn og Sibba amma tók sér stöðu í eldhúsinu. Afi hinsvegar hóf sína daglegu gönguferð um þorpið. Hann gekk þá inn Kirkjubrautina og mamma vinkonu minnar, sem þar bjó, sagði að það hefði verið tryggur fyrirboði jólanna, að sjá Óskar afa ganga framhjá. Alltaf á sama tíma, á hverjum degi og án orða. Kannski er þetta eins og ég man afa best frá æsku minni. Alltaf til staðar, aðeins til hliðar við kjaftaganginn í eldhús- inu, þögulan og annað hvort á leið- inni í eða nýkominn úr gönguferð. Seinna kynntist ég afa meira í gegnum orðin. Í menntaskóla upp- götvaði ég að ég gat leitað til hans og fengið nákvæm svör með réttum ár- tölum sem dugðu á prófum. Sumt sem hann vissi var ekki beinlínis inn- an minnar þekkingar, eins og þegar hann spurði bróður minn út í efna- fræðinámið og þeir töluðu um að títra, eða eitthvað þessháttar. Svo kunni hann rússnesku og var með ættfræði flestra hreppa á hreinu. Frekar flottur afi, klár og sigldur. Hafði komið til allra mögulegra landa og ræddi við mig um San Francisco og Pittsburgh þegar ég var að velja skóla fyrir mastersnám- ið mitt. Síðustu árin varð afi allt í einu gamall. Öldrunarlæknir spurði hvort hann fyndi fyrir ellinni og hann jánkaði að það hefði gerst svona uppúr níræðu. Afi var orðinn órólegur heima í Hörðalandi. Hann hélt áfram að fara í gönguferðir og lærði að elda hafra- graut eftir að amma dó. En smám saman mundi hann verr eftir nútím- anum og var feikna pirraður yfir því. Hann vildi helst hafa mömmu og Borghildi hjá sér alltaf. Í Hörða- landi. Hann hafði daglega rútínu en stundum ruglaðist hann á nóttu og degi, þegar dagsbirtan gaf ekkert uppi um tíma sólarhringsins. Um jólin síðustu fór hann á Grund og kom aldrei aftur til að búa í Hörða- landi. Við skiptumst á að heimsækja hann og fara í gönguferðir, en með tímanum rýrnaði hann og orðin hans fáu urðu varla nein. Dauðinn kom svo til hans, ákaflega fallega. Ég hef hugsað svo mikið um fæðingar síð- asta árið og lært hvernig við getum treyst líkamanum til að sjá um þetta ferli frekar en að reyna að stjórna því með inngripum og tækni. Þessi hugsun kom til mín þegar ég sá afa rétt fyrir dauðann. Líkaminn veit hvað á að gera næst. Okkar er að treysta og leyfa þessari ferð milli til- verustiga að gerast á sem eðlileg- astan hátt. Gunnhildur Una Jónsdóttir. Ætli það segi ekki eitthvað um skapgerð Óskars B. Bjarnasonar að aldrei, á þeim rúmum tuttugu árum sem við þekktumst, var rætt um langa og farsæla starfsævi hans. Hann vildi frekar rifja upp örnefni, tala um ferðalög – innanlands og ut- an, ættfræði eða jafnvel stjörnu- fræði ef það var heiðskírt og stjörnubjart. Mig grunar að honum hafi ekki þótt viðeigandi að tala um eigin afrek og ágæti. Í raun þurfti heldur ekki að hafa um það mörg orð. Það nægði að koma inn á heimili hans og Sigurbjargar konu hans, blessuð sé minning hennar, til þess að átta sig á að Óskar var maður hugmyndanna – hugsjónamaður með ríka og djúpa réttlætiskennd. Bækur og myndlist voru þar í fyrsta, öðru og þriðja sæti. Jóhannes úr Kötlum orti fyrir hönd kynslóðar: Mitt fólk! Mitt fólk! Mitt upphaf, endir, von! Í ást, í ást þú kallar heim þinn son og allar sýnir, alla drauma hans, – ert athvarf, gleði og stolt þíns smæsta manns. … Og hvert eitt handtak, hvert eitt fótspor þitt er hugsjón mín, er söngvaefni mitt. Mitt fólk! Mitt fólk! Ég býð þér hug og hönd til hjálpar, er þú slítur loks þín bönd. Í þínum, þínum vilja er máttur minn, Minn máttur er að stæla vilja þinn, Og sérhver, sérhver hræring hjarta míns er helguð lokasigri frelsis þíns. Fólkið hans Óskars var alþýðu- fólk úr Flóanum og Landsveitinni og þar hafa hugsjónir hans átt rætur. Óskar var af kynslóð sem kynntist hungri og sárri fátækt af eigin raun og leyfði sér að spyrja: Því ekki frelsi, jafnrétti og bræðralag? Og því ekki að nota þá skynsemi sem al- mættið gaf okkur til þess að láta hugsjónirnar verða að veruleika. Óskar naut sín á fjöllum og í ferða- lögum. Hann var léttur á fæti og fót- viss alveg fram á síðustu ár. Ég man ekki betur en að hann hafi verið kominn vel yfir nírætt þegar hann gekk að Strútslaug ásamt barnabarnabörnum. Virðingu fyrir landinu og náttúrunni innrætti hann öllu sínu fólki og að því búum við alla tíð. Síðustu mánuðirnir voru Óskari erfiðir. Það átti illa við hann að vera farinn að heilsu og upplifa hvernig stálminnið sem einkenndi hann alla tíð var farið að klikka og finna að hugsunin var ekki jafn skýr og skörp og áður. Aftur getur Jóhannes úr Kötlum talað fyrir hans hönd: Ég er einn, ég er einn, – sál mín allslaus og hljóð. Langt frá upprunans æð þjáist eirðarlaust blóð. Hvar er vængur þinn, vor? Kannski verð ég of seinn, kannski dey ég í dag, kannski dey ég hér einn. Ég vil heim – ég vil heim yfir hyldjúpan sæ, – heim í dálítinn bæ. Hver vill bera mig blítt um hinn bláheiða geim? Ó, þú blíðasti blær! Vilt þú bera mig heim? Allt er ljóð – allt er ljóð, þar sem lynghríslan grær, þar sem víðirinn vex, þar sem vorperlan hlær. – Þar sem afi minn bjó, þar sem amma mín dó, undir heiðinni há, vil ég hvíla í ró … Þrátt fyrir heilsuleysið lifnaði allt- af yfir Óskari þegar fólkið hans kom í heimsókn. Jafnvel á endasprettin- um, þegar hann var hættur að geta tjáð sig auðveldlega, skein áhuginn, forvitnin og væntumþykjan úr aug- unum og smitaðist gegnum handa- takið þegar barnabarnabörnin komu í heimsókn. Þar glitti enn í gamla hugsjóna- manninn, trúan kærleikanum og með von í brjósti. Blessuð sé minning Óskars B. Bjarnasonar. Ólafur Tryggvi Magnússon. Óskar B. Bjarnason ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, REYNIR GUÐJÓNSSON, Hlíðargötu 20, Fáskrúðsfirði, lést á Hjúkrunarheimilinu Uppsölum mánudaginn 22. október. Útför hans fer fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju laugardaginn 27. október kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Lára Hjartardóttir, börn og fjölskyldur. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LILJA INGIMARSDÓTTIR, Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, andaðist á Sjúkrahúsi Akraness 20. október. Útförin fer fram frá Akraneskirkju mánudaginn 29. október kl. 14. Auðbjörg Díana Árnadóttir, Jón Hermannsson, Ingimundur Árnason, Jónína Þórarinsdóttir, Ingvi Jens Árnason, Ása Helga Halldórsdóttir, Ingimar Arndal Árnason, Dace Rumba, Rakel Árnadóttir, Bjarni Vestmann og ömmubörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRIR GUNNARSSON plötu- og ketilsmiður, Heiðarvegi 3, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands mánudaginn 22. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Gunnar Hafsteinn Þórisson, Loftveig Kristín Kristjánsdóttir, Jón Þórisson, Gunnar Þórisson, Vilborg Þorgeirsdóttir, Þórir Már Þórisson, Steinþór Ingi Þórisson, Árni Óli Þórisson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR HELGASON bifreiðastjóri, Lundi, Skagaströnd, sem lést föstudaginn 19. október á Heilbrigðis- stofnuninni Blönduósi, verður jarðsunginn frá Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 27. október kl. 11.00. Helgi Gunnarsson, Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Eygló K. Gunnarsdóttir, Guðmundur Ólafsson, Unnur I. Gunnarsdóttir, Vilmar Þór Kristinsson, barnabörn og langafabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.