Morgunblaðið - 25.10.2007, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2007 49
HRIKALEGA
SPENNANDI
FRÁ HÖFUNDI METSÖLUBÓKARINNAR TÍMI NORNARINNAR
Saga um lífsháskann í mannlegum samskiptum
„Mjög skemmtileg persóna … kaldhæðinn,
gagnrýninn á lífið og tilveruna
… mæli hiklaust með henni
… heldur manni vel við efnið.“
Katrín Jakobsdóttir / Mannamál, Stöð 2
„… mjög góður og flottur krimmi …
skemmtilegar pælingar … og ráðgátan
sjálf er spennandi og trúverðug
… betri en Tími nornarinnar.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan, RÚV
„Ein af stóru hetjunum
eða antihetjunum í íslenskum krimmum.“
Sigmundur Ernir Rúnarsson / Mannamál, Stöð 2
„Algjör snilld! Einar blaðamaður er ein-
staklega skemmtileg persóna, vona að ég geti
lesið um ævintýri hans næstu áratugina!“
Guðríður Haraldsdóttir / blog.is
„Aðdáendur Árna munu
ekki verða fyrir vonbrigðum.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / 24 stundir
METSÖLULISTI
EYMUNDSSON
skáldverk
KNATTSPYRNUMAÐURINN David Beckham hefur verið valinn sá karl-
mannlegasti á lista vefjarins AskMen.com. Alls tók rúmlega milljón manns
þátt í valinu á þeim karlmannlegasta úr heimi fræga fólksins.
Beckham flutti til Bandaríkjanna í sumar eftir að hann skrifaði undir
samning við knattspyrnuliðið Los Angeles Galaxy. Leikarinn Matt Damon
var í öðru sæti listans en leikarinn George Clooney, sem var í efsta sæti
listans í fyrra, hafnaði í áttunda sæti hans í ár.
Topp tíu listinn hjá AskMen.
1. David Beckham
2. Matt Damon
3. Timbaland
4. Roger Federer
5. Justin Timberlake
6. Daniel Craig
7. Steve Jobs
8. George Clooney
9. Lewis Hamilton
10. Christian Bale
Karlmannlegastur
Reuters
Karlmannlegur David Beckham þykir með þeim flottari í dag.
TITILLINN Dauðaskammtur kann
að hljóma nokkuð ógnvænlega og
fráhrindandi í eyrum viðkvæmra
sálna, en þegar betur er að gáð
reynist innihald þessa hljómdisks
langt frá því að
vera banvænt.
Með honum hrind-
ir Þór Eldon í
framkvæmd göml-
um áformum sín-
um og Dags Sig-
urðarsonar skálds um samstarf sem
varð ekki úr meðan Dagur lifði.
Upptökurnar með Degi eru frá
1985, en þær tilheyra ljóðasnældu
sem Þór hafði umsjón með upp-
tökum á og gefin var út hjá Gramm-
inu undir heitinu Fellibylurinn
Gloría. Tónlistin sem Þór hefur nú
sett við ljóðalestur Dags er létt-
úðugt rafpopp með greddulegum
undirtóni, sem rödd hans flýtur yfir,
skýr og látlaus, og tekst Þór að
setja upptökurnar við tónlistina á
þann hátt að samspilið verður næst-
um því eins og um lifandi flutning sé
að ræða. Þó gera eiginleikar kass-
ettuhljóðsins með allt að því of
stórum skammti af bergmáli að
verkum að maður staðsetur upptök-
urnar í tíma og rúmi. Lögin eru
stutt eins og upplestrarnir sjálfir,
sem er gott. Diskurinn rennur í
gegn hratt og örugglega án þess að
verða of dramatískur eða artí. Því
hentar ágætlega að spila hann til að
vekja vafasama stemningu í stutta
stund, hvort sem ætlunin er að
leggja stíft við hlustir eða hafa hana
í bakgrunninum. Það er í öllu falli
ekki ónýtt að eiga nú þann mögu-
leika að setja Dag Sigurðarson á
fóninn endrum og eins.
Dagur á fóninn
TÓNLIST
Geisladiskur
Lög eftir Þór Eldon við upptökur af Degi
Sigurðarsyni, sem les eigin ljóð.
Dauðaskammtur – Dagur Sigurðarson,
Þór Eldon
Ólöf Helga Einarsdóttir
Á SÍÐASTA ári
kom út hljóm-
diskur sem hefur
að geyma tónverk
eftir fjögur sam-
tímatónskáld við
kvæði Ólafs Jóns-
sonar frá Söndum (f. ca 1560, d.
1627), en hann var, samkvæmt Kára
Bjarnasyni sérfræðingi í hand-
ritadeild Landsbókasafns, eitt vin-
sælasta og virtasta skáld þjóðar-
innar fyrr á tímum. Hvert tónskáld-
anna fjögurra hefur sína einstöku
nálgun á viðfangsefnið og tekst þeim
öllum vel upp. Bára og Þuríður fara
báðar þá leið að notast við laglínur
sem finna má við ljóðin í handritum,
en Tryggvi leitast við að fanga
stemninguna með eigin lagi og Hugi
notast við einfaldan kóral sem út-
gangspunkt. Aftur á móti eiga verk
Báru og Tryggva það sameiginlegt
að vera eins og ómar frá fornum
tíma, meðan tónsmíðar Þuríðar og
Huga eru nær samtímanum, hvað
hljóðfæranotkun og hljómaáferðir
snertir. Söngurinn á diskinum er
frábær, hreinn og tær og umfram
allt fókuseraður. Hljóðfæraleikurinn
er einnig mjög góður, sem og upp-
tökur og hljóðvinnsla. Bæklingurinn
er innihaldsríkur og útlit umslagsins
mjög smekklegt og vel til passandi. Í
stuttu máli er hér á ferðinni sérlega
eigulegur hljómdiskur með fallegu
og áhugaverðu efni í fyrirtaks flutn-
ingi.
Glæsilegur minnisvarði
TÓNLIST
Geisladiskur
Tónverk samin við kvæði eftir Ólaf Jóns-
son frá Söndum eftir fjögur samtíma-
tónskáld; þau Báru Grímsdóttur, Tryggva
M. Baldvinsson, Þuríði Jónsdóttur og
Huga Guðmundsson. Stjórnandi: Bern-
harður Wilkinson. Flytjendur: Sönghóp-
urinn Gríma; Kirstín Erna Blöndal, sópr-
an, Guðrún Edda Gunnarsdóttir, alt, Örn
Arnarson, tenór, og Benedikt Ingólfsson,
bassi. Með þeim leika: Hildigunnur Hall-
dórsdóttir, fiðla, Herdís Anna Jónsdóttir,
víóla, Bryndís Björgvinsdóttir, selló, Ey-
dís Franzdóttir, óbó, Oddur Björnsson,
altbásúna, Steef van Oosterhout, slag-
verk og Douglas A. Brotchie, orgel. Upp-
tökustjórn og hljóðvinnsla: Halldór Vík-
ingsson, Fermata hljóðritun.
Sönghópurinn Gríma – Sálin þýða
Ólöf Helga Einarsdóttir