Morgunblaðið - 14.12.2007, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Davíð Loga Sigurðsson og
Örlyg Stein Sigurjónsson
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir ut-
anríkisráðherra mun mótmæla
formlega við bandarísk stjórnvöld
því harðræði, sem Erla Ósk Arnar-
dóttir var beitt við komuna til New
York fyrir nokkrum dögum. Eins og
kunnugt er var Erla Ósk handjárnuð
og hlekkjuð ásamt því að vera yf-
irheyrð og er þá fátt eitt nefnt.
Utanríkisráðherra kallaði á sinn
fund í gær Carol van Voorst, sendi-
herra Bandaríkjanna, vegna máls
Erlu Óskar. Van Voorst sagði Ingi-
björgu Sólrúnu, að hún hefði sent
fyrirspurn til JFK flugvallarins og
stjórnvalda í Washington vegna
málsins.
Ingibjörg Sólrún sagði við Morg-
unblaðið að hún hefði óskað eftir
þessum fundi til að gera sendiherr-
anum grein fyrir því að Íslendingar
litu þetta mál mjög alvarlegum aug-
um. „Að við teldum að sú meðferð,
sem Erla Ósk fékk þarna á flugvell-
inum, hefði verið mjög niðurlægj-
andi fyrir hana og að það hefði í raun
verið vegið að hennar mannhelgi,“
sagði Ingibjörg Sólrún.
Hún sagðist hafa sagt við sendi-
herrann að þótt það kynni að hafa
verið réttmætt að vísa Erlu Ósk úr
landi vegna vegabréfsmála hefði
framkoman við hana verið út úr öllu
korti og einskis meðalhófs gætt.
Hefði hún sagt við van Voorst, að
hún teldi að bandarísk stjórnvöld
skulduðu Erlu Ósk afsökunarbeiðni.
Utanríkisráðherra sagði að van
Voorst hefði sagt henni að hún liti
málið einnig mjög alvarlegum aug-
un. Væri sendiherrann búin að hafa
samband við flugvöllinn og ráðuneyti
heimavarnarmála í Washington til
að afla frekari upplýsinga og myndi
láta Ingibjörgu Sólrúnu vita um nið-
urstöðuna.
Í gærkvöldi sendi sendiráðið frá
sér fréttatilkynningu þar sem segir
að viðtökur þær sem Erla Ósk hlaut
séu til rannsóknar hjá bandarískum
yfirvöldum.
Þá líti bandarísk stjórnvöld málið
mjög alvarlegum augum.
Til að draga úr hættu á misskiln-
ingi varðandi tímabundið landvistar-
leyfi ferðamanna í Bandaríkjunum
án sérstakrar vegabréfsáritunar
mun bandaríska sendiráðið bæta
upplýsingum á vef sinn til að útskýra
nánar þær reglur sem um slíkt land-
vistarleyfi gilda.
Erla Ósk sagðist sjálf í samtali við
Morgunblaðið í gær vera ánægð með
viðtökur utanríkisráðherra sem hún
fundaði með í gær. Sagðist hún enn-
fremur ánægð með viðbrögð amer-
íska sendiherrans vegna málsins.
Meðferðin á Erlu Ósk
var „mjög niðurlægjandi“
Utanríkisráðherra
boðar bandaríska
sendiherrann á
fund og telur með-
ferðina kalla á af-
sökunarbeiðni
Morgunblaðið/Eggert
Kölluð á fund Carol van Voorst sendiherra mætir til fundar hjá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkis-
ráðherra. Sendiráðið hefur m.a. brugðist þannig við að auka ferðamannaupplýsingar á sendiráðsvefnum.
„ÞETTA fellur
alveg inn í þann
ramma sem ég
hef verið að
móta,“ segir
Sturla Böðvars-
son, forseti Al-
þingis, um hug-
myndir Illuga
Gunnarssonar,
þingmanns Sjálf-
stæðisflokks,
varðandi afgreiðslu fjárlaga sem
greint var frá í Morgunblaðinu í gær.
Illugi leggur m.a. til að við fyrstu
umræðu geri ráðherrar grein fyrir
því hvaða stefnumótandi áhrif frum-
varpið hafi á þeirra málaflokka og að
umræðurnar verði snarpari og mark-
vissari, t.d. með því að þingmenn geti
spurt ráðherra úr sætum sínum.
Sturla segir að nú þegar sé unnið
að því að afmarka umræður betur og
hann hafi jafnframt haft hugmyndir
um að skipta umræðu um fjárlög upp
þannig að rætt sé um málaflokkana
hvern á eftir öðrum. Hann segir þó
ekki standa til að þingmenn geti
spurt ráðherra úr sætum sínum,
a.m.k. ekki eins og er. „Það þyrfti þá
að setja upp upptökubúnað í hvert
einasta sæti og salurinn er þröngur
svo að það gæti verið dálítið flókið.“
Sturla segir að vitanlega væri það
„ídealt“ ef fjárlagafrumvarpið þyrfti
að taka sem minnstu breytingum.
„En við verðum að gera ráð fyrir
þeim möguleika að í meðferð þings-
ins sé fjárlagafrumvarpi ríkisstjórn-
arinnar breytt,“ segir Sturla en bætir
við að það sé réttmæt athugasemd
hjá Illuga að meirihluti breytingartil-
lagna komi frá ríkisstjórn. Með þing-
skapafrumvarpinu sem nú er til af-
greiðslu sé reynt að búa þannig um
að fjárlaganefnd hafi nægilegt bol-
magn til að geta farið ofan í einstök
mál þannig að breytingartillögurnar
komi frá henni en ekki frá ríkis-
stjórninni.
Tæknilega flókið
að spyrja úr sætum
Sturla
Böðvarsson
Tillögur Illuga falla inn í rammann
ÞÓRDÍS Björnsdóttir lenti í mjög óþægilegri meðferð
á JFK flugvelli í nóvember sl. og hefur tilkynnt at-
vikið til utanríkisráðuneytisins í kjölfar máls Erlu
Óskar Arnardóttur. Þórdís var ekki ein á ferð því
hún var með átta ára dóttur sína. Hún var færð í yf-
irheyrsluherbergi og segir hún landamæravörðinn
hafa æpt á sig með síendurteknum spurningum um
hvað hún væri að gera í Bandaríkjunum. „Við vorum
þarna í fimm tíma og fengum ekkert að vita,“ segir
hún.
„Þessi maður var ofboðslegur ruddi og dóni.
Ég mátti ekkert hringja og varð að sitja í fimm
tíma.“ Um síðir var tilkynnt að mæðgurnar ættu að fara úr landi eftir
20 tíma og vísað á ömurlegan svefnstað í flugstöðinni. „Þetta var lítil
skítug kytra með engu svefplássi og matarslettum á stól sem þarna
var,“ segir Þórdís. Hún segir að um nóttina hafi sífellt borið á trufl-
unum og verðir komið inn til að kíkja á mæðgurnar. „Þetta var ger-
samlega út í hött. Framkoma allra var ofboðslega ruddaleg. Menn
voru höstugir. Fangamynd og fingraför voru tekin af mér hvað eftir
annað og enginn talaði blíðlega eða sagði hvað væri að fara að ger-
ast,“ segir Þórdís.
„Ofboðslegur ruddi“
Þórdís
Björnsdóttir
ELLÝ Katrín Guðmundsdóttir,
forstjóri Umhverfisstofnunar, mun
taka við starfi sviðsstjóra um-
hverfis- og samgöngusviðs Reykja-
víkurborgar, samkvæmt ákvörðun
borgarráðs í gær.
Ellý gegndi starfi sviðsstjóra
umhverfissviðs borgarinnar áður
en hún var valin úr hópi 39 um-
sækjenda um starf forstjóra Um-
hverfisstofnunar. Hún tók við for-
stjórastarfinu í byrjun apríl
síðastliðins.
Ellý aftur til
borgarinnar
HÆSTIRÉTTUR hefur ómerkt
dóm yfir þremur erlendum karl-
mönnum, sem í byrjun þessa árs
voru dæmdir í 5-7 mánaða skil-
orðsbundið fangelsi fyrir líkams-
árás, sem framin var árið 2004.
Hæstiréttur ómerkti dómana á
þeirri forsendu, að þess hafði ekki
verið gætt við aðalmeðferð máls-
ins að skýrslur vitna á íslensku
væru túlkaðar fyrir sakborninga,
sem ekki voru mæltir á íslenska
tungu.
Þótti Hæstarétti þetta vera í
andstöðu við lög um meðferð op-
inberra mála með hliðsjón af
mannréttindasáttmála Evrópu.
Málið dæmdu hæstaréttardóm-
ararnir Gunnlaugur Claessen,
Garðar Gíslason og Ingibjörg
Benediktsdóttir. Sigríður Elsa
Kjartansdóttir frá ríkissaksóknara
sótti málið en verjendur voru
Björn L. Bergsson, Guðjón Ólafur
Jónsson og Páll Arnór Pálsson.
Málið féll á
túlkaskorti
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
ÁKVEÐIÐ hefur verið að Jón Karl
Ólafsson hætti sem forstjóri Ice-
landair Group en samhliða þeirri
stöðu var Jón Karl einnig forstjóri
Icelandair, sem er stærst af alls ell-
efu dótturfélögum Icelandair
Group. Björgólfur Jóhannsson, for-
stjóri Icelandic Group, mun taka við
af Jón Karli sem forstjóri móður-
félagsins, en til stendur að ráða ann-
an forstjóra yfir Icelandair-flug-
félagið.
Tilkynnt í dag
Þetta verður væntanlega tilkynnt
í kauphöll OMX á Íslandi í dag og þá
jafnframt að Björgólfur hætti sem
forstjóri Icelandic Group en bæði
félögin eru skráð í kauphöllinni.
Þessar breytingar á yfirstjórn
Icelandair Group, þ.e. að skipta
starfi Jón Karls í tvö störf, voru
ákveðnar síðsumars en koma til
framkvæmda fyrst nú. Ástæðan
mun einkum hafa verið sú að ágrein-
ingur hefur og getur komið upp
milli forstjóra einstakra dóttur-
félaga sem forstjóri Icelandair Gro-
up þarf þá að skera úr um og því
þótti stjórn félagsins ekki heppilegt
að forstjóri móðurfélagsins væri
einnig forstjóri dótturfélags. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
hefur legið fyrir í allnokkurn tíma
að Jón Karl myndi hverfa frá félag-
inu enda ekki sáttur við breyting-
arnar. Honum mun hafa staðið til
boða að gegna áfram starfi forstjóra
Icelandair og þá undir nýjum for-
stjóra móðurfélagsins, Björgólfi, en
Jón Karl hafnaði því og kýs að
hverfa frá félaginu.
Varð forstjóri 2005
Jón Karl varð forstjóri Icelandair
í júní árið 2005 og síðan forstjóri
Icelandair Group við stofnun þess
félags í október sama ár. Á árunum
1999 til 2005 var hann fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Íslands.
Björgólfur Jóhannsson hefur ver-
ið forstjóri Icelandic Group frá því
mars í fyrra. Hann er og formaður
stjórnar LÍÚ.
Jón Karl hættir hjá
Icelandair Group
Jón Karl
Ólafsson
Björgólfur
Jóhannsson
Björgólfur Jóhannsson nýr forstjóri móðurfélagsins
HARKALEGUR árekstur tveggja
bifreiða varð við Reynisvatn í
gærkvöldi klukkan 18.55. Tvennt
slasaðist og var flutt á slysadeild
Landspítalans að sögn lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu.
Ökutækin skemmdust mjög mik-
ið og þurfti að kalla á krana-
bifreið til að fjarlægja þau af slys-
stað.
Á fjórða tug árekstra varð á
höfuðborgarsvæðinu í gær.
Harður
árekstur