Morgunblaðið - 14.12.2007, Blaðsíða 27
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007 27
- kemur þér við
Íslendingar fá 110
nýja bíla á dag
Á slysadeild vegna
hangikjötsáts
Sogn er endastöð
ósakhæfra
Spítalaforstjóri
fótbrotinn í annað sinn
Dauðaleit í Mílanó að
hvítum smóking handa
Bubba
32 síðna jólablað
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
Skráning skuldabréfa í Kauphöll Íslands
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis hf. (SPRON), kt. 540502-2770, hefur
birt lýsingu vegna skráningar skuldabréfa félagsins á OMX Nordic
Exchange Iceland hf (OMX ICE).
Eftirfarandi skuldabréfaflokkur hefur verið gefinn út:
Skuldabréfaflokkur að fjárhæð kr. 3.000.000.000 var gefinn út þann
5. mars 2007, auðkenni flokksins í OMX ICE er SPR 07 1 og verða
bréfin skráð í OMX ICE þann 14. desember 2007. Skuldabréfin eru
vaxtagreiðslubréf og bera þau breytilega vexti sem taka mið af 3ja
mánaða REIBOR vöxtum að viðbættu 50 punkta (0,50%) álagi.
Vextirnir skulu ákvarðaðir í upphafi hvers vaxtatímabils og eiga að
vera jafnir 3ja mánaða Reibor vöxtum eins og þeir eru birtir á
heimasíðu Seðlabanka Íslands í lok dags tveimur viðskiptadögum
fyrir hvern gjalddaga að viðbættu fyrrnefndu álagi og gilda fyrir
næsta vaxtatímabil. Fyrsti vaxtagjalddagi er 5. júní 2007. Vextir
reiknast frá og með útgáfudegi skuldabréfanna þann 5.mars 2007.
Gjalddagi höfuðstóls er 5.september 2008. ISIN númer bréfanna er
IS0000014421
Lýsinguna má nálgast á prentuðu formi hjá útgefanda, SPRON, Ármúla
13a, 108 Reykjavík innan 12 mánaða frá dagsetningu tilkynningar þessarar
Umsjónaraðili skráningarinnar er SPRON Verðbréf hf.
14. desember 2007
M
b
l 9
47
95
8
Stúfur er litli bróðir okkar. Hann er ósköp lítill. Efmaður segir: „Hvenær ætli Stúfur greyið leggi
nú af stað í þetta sinn, svo hann komi til byggða í
tæka tíð 14. desember? Kannski um páskana?“ þá
verður hann svo reiður að hann ræðst á mann með
fyrstu pönnunni sem hann nær í. Pönnurnar hefur
hann tekið beint af eldavélinni hjá fólki, á meðan
sósuafgangurinn sem hann sleikir af þeim er ennþá
heitur.
Úhúhú, ekki svona gráðugur, Stúfur minn!
Anja og Markus Kislich
Stúfur – 14. desember
ÚTLITSDÝRKUN er af sumum tal-
in eitt af bölum heimsins. Víst er að
til er það fólk sem er sjúklega
óánægt með eigið útlit og er það
haldið svokallaðri útlitsröskun (e.
body dysmorphic disorder). Vefmið-
illinn msnbc.com greinir frá því að
rannsóknarhópur frá Kaliforníuhá-
skóla í Bandaríkjunum hafi komist
að því að truflun á heilastarfsemi
liggi m.a. að baki.
Um 1-2% jarðarbúa eru haldin út-
litsröskun sem einkennist af af-
skræmdri sjálfsmynd og þráhyggju-
hugsunum um ímyndaðan eða
smávægilegan útlitsgalla. Engu
breytir þótt aðrir bendi hinum sjúka
huga á að ekkert sé að útlitinu.
Sumir fara í endurteknar lýtaað-
gerðir til að laga „vandann“ og um
fjórðungur gerir tilraun til sjálfs-
morðs.
Hvað veldur útlitsröskun er ekki
vitað og hafa verið uppi tilgátur um
að ýmsir samverkandi þættir komi
þar til, allt frá erfðum til uppeldis.
Í rannsókninni voru tólf manns
með útlitsröskun látnir skoða svart-
hvítar myndir af fólki og niðurstöð-
urnar bornar saman við upplifun
heilbrigðs fólks. Í ljós komu vís-
bendingar um líffræðilega orsök
sjúkdómsins en fólkið beitti vinstra
heilahvelinu mun meira en saman-
burðarhópurinn, sem sýnir meiri
áherslu á smáatriði (vinstra heila-
hvelið) fremur en heildarsýn á hlut-
ina (hægra heilahvelið).
Í endalausar lýtaaðgerðir
Röskunin hefur tilhneigingu til að
liggja í ættum og hrjáir jafnt karla
sem konur. Hún getur haft svo mikil
áhrif á fólk að það vill helst halda
sér heima, því líður illa í vinnunni
og á erfitt með samskipti við aðra,
enda fara margir klukkutímar á
dag í að hugsa um hvernig það lítur
út, horfa í spegilinn og spá í lýtaað-
gerðir. Dæmi er um sjúkling sem
hefur farið í fimm aðgerðir á nefi og
aðra sem hafa farið í síendurteknar
brjóstastækkun eða endalausar
lýtaaðgerðir í andliti. Að sögn rann-
sóknarstjóra verða sjúklingarnir
enn vonlausari eftir hverja aðgerð,
enda feikióánægðir með útkomuna.
Vanlíðan Þeir sem þjást af útlits-
röskun fara aftur og aftur í lýta-
aðgerð. Sannað þykir að popparinn
Michael Jackson hafi lagst undir
hnífinn oftar en einu sinni.
Sjúklega
óánægð
með útlitið
Reuters
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn