Morgunblaðið - 14.12.2007, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÚT ER komin bókin Aðgerð Pólstjarna eftir Ragnhildi Sverrisdóttur blaða-
mann. Bókin fjallar um þann atburð sem varð síðla sumars, þegar lög-
reglan gómaði fíkniefnasmyglara þegar þeir hugðust smygla miklu magni
fíkniefna með skútu, sem lagðist að bryggju á Fáskrúðsfirði. Þessi aðgerð
var afrakstur umfangsmikillar vinnu lögreglunnar, sem staðið hafði yfir
mánuðum saman. Er þessu máli ítarlega lýst í bókinni. Það var því við hæfi
að Ragnhildur afhenti Stefáni Eiríkssyni lögreglustjóra höfuðborgarsvæð-
isins fyrsta eintak bókarinnar á lögreglustöðinni í gærmorgun.
Morgunblaðið/Júlíus
Stjórinn fékk fyrsta eintakið
FJÖLDI lista-
manna mun
koma fram á
jólatónleikum í
Skálholti laug-
ardaginn 15. des-
ember kl. 16:00.
Einsöngvararnir
Raggi Bjarna og
Hulda Björk
Garðarsdóttir
sópran syngja einsöng og dúetta
ásamt Kammerkór Suðurlands,
Kammerkór Biskupstungna og
Árna Þór Lárussyni 12 ára sem
syngur dúett með Ragga Bjarna.
Gunnar Þórðarson og fjórtán
manna hljómsveit leikur með.
Þetta er í fyrsta skipti sem Raggi
Bjarna syngur í Skálholtskirkju á
sínum langa ferli sem söngvari. Ís-
lensk og erlend jólalög verða á efn-
isskránni auk margra fallegra jóla-
laga eftir Gunnar Þórðarson af
nýrri jólaplötu Ragnars. Miðasala
er við innganginn.
Jólatónleikar
í Skálholti
Ragnar Bjarnason
DAGATAL Eimskips fyrir árið 2008 er komið úr prent-
un og að þessu sinni prýða myndir Ragnars Axelssonar
ljósmyndara dagatalið. Dagatalinu verður dreift til hlut-
hafa félagsins en þeir eru um 22.000 talsins. Aðrir geta
nálgast dagatalið á skrifstofum Eimskips.
„Myndir Ragnars Axelssonar eru hreinasta listaverk
og eiga það allar sammerkt að vera teknar úr lofti. Ein-
stök sýn Ragnars eða RAXA eins og hann er gjarnan
kallaður gerir dagatalið að einstakri upplifun. Myndir
hans endurspegla allar árstíðir og fanga listaverk nátt-
úru Íslands með undraverðum hætti,“ segir í frétt frá
Eimskip. Áhugi fyrir dagatalinu er ekki einungis mikill hér á Íslandi því á
ári hverju eru nokkur þúsund eintök send vítt og breitt um heiminn. Mest-
ur er þó áhuginn í Kanada, þar sem félagið átti sterkar rætur í árdaga.
Þessi áhugi er enn til staðar en upphaflega voru yfir 30% hluthafa Hf. Eim-
skipafélags Íslands Vestur-Íslendingar.
Dagatal Eimskips komið út
Ragnar Axelsson
TRYGGVI Gunnarsson var endur-
kjörinn umboðsmaður Alþingis til
ársloka 2011 í skriflegri atkvæða-
greiðslu á þingfundi í gær.
Tryggvi, sem verið hefur umboðs-
maður Alþingis frá árinu 1999,
fékk 55 samhljóða atkvæði.
Tryggvi kosinn
MENNIRNIR tveir sem slösuðust
alvarlega í bílslysi á Reykjanes-
braut við Straumsvík á föstudag í
síðustu viku eru á batavegi að sögn
vakthafandi læknis á gjörgæslu-
deild Landspítalans. Annar þeirra
er ennþá hafður í öndunarvél en
hinn þarfnast hennar ekki lengur.
Á batavegi
FRÁ og með næsta ári fellir Íbúða-
lánasjóður niður sinn hluta seð-
ilgjalds viðskiptavina sinna. Seðil-
gjald var áður 195 kr. Eftir stendur
að viðskiptavinir þurfa að greiða 75
kr. greiðslugjald sem rennur til
banka og sparisjóða sem taka við
afborgunum að lánum Íbúðalána-
sjóðs.
Minna seðilgjald
STUTT
„VIÐ erum af-
skaplega ánægð
með niðurstöð-
una þar sem
rekstrarafgang-
urinn er yfir 2
milljörðum
króna, þrátt fyrir
að við lækkum
hér þjónustu-
gjöld,“ segir
Gunnar I. Birgis-
son, bæjarstjóri Kópavogs, um fjár-
hagsáætlun bæjarins fyrir næsta ár.
Hann segir mikla áherslu verða
lagða á að treysta betur innviði
bæjarins.
Framkvæmdir verði miklar á
árinu og að til þeirra verði varið yf-
ir 6 milljörðum króna. „Við erum að
brjóta ný lönd í Vatnsendahlíð og
þetta verður líklega stærsta árið
okkar í gatnagerð frá upphafi,“ seg-
ir Gunnar. Ný hverfi verði malbikuð
auk þess sem gengið verði frá gang-
stéttum og opnum svæðum. Farið
verði í framkvæmdir við Nýbýlaveg
til að stuðla að bættu umferðarör-
yggi, undirgöng gerð undir Reykja-
nesbraut til að tengja Digranesveg
og Lindir og að byrjað verði á nýj-
um Arnarnesvegi.
Stefnt er á að hefjast handa við
að byggja hjúkrunar- og þjónustu-
íbúðir fyrir aldraða í Boðaþingi.
Rúmur milljarður verði settur í
byggingu íþróttamannvirkja, en til
standi að 3 nýir innanhúsvellir fyrir
handbolta og körfubolta verði
byggðir á árinu. Vonir standi einnig
til að hefja byggingu á nýju óp-
eruhúsi.
„Við höldum svo að sjálfsögðu
áfram að byggja upp grunnskóla og
leikskóla eftir því sem bærinn
byggist, en við gerum ráð fyrir að
Kópavogsbúar verði orðnir 30.000
talsins að ári, fjölgunin hefur und-
anfarið verið 3-4% á ári,“ segir
Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri.
Fjárfest fyrir 6,9 milljarða
Í fréttatilkynningu frá Kópa-
vogsbæ kemur fram að á nýrri fjár-
hagsáætlun er gert ráð fyrir ríflega
2,2 milljarða króna rekstrarafgangi,
meira en 17 milljörðum króna í
tekjur og fjárfestingum fyrir 6,9
milljarða.
Heildarfjárfestingar á árinu 2008
verða 6,9 milljarðar króna. 1,3 millj-
arðar fara til byggingar íþrótta-
mannvirkja, tæpur milljarður til
bygginga skóla og leikskóla og hafa
rekstrarframlög til leik- og grunn-
skólamála aukist um meira en 700
milljónir á milli ára. Rúmar 600
milljónir eru ætlaðar til þjónustu-
miðstöðvar aldraðra í Boðaþingi,
um 2,4 milljarðar í gatnafram-
kvæmdir og 1 milljarður í kaup á
lóðum og húsnæði fyrir húsnæðis-
nefnd Kópavogs.
Varðandi helstu breytingar á
gjaldskrám lækkar grunngjald leik-
skóla um 15% árið 2008, fæðisgjald
hækkar um 5% en gjaldskrá dægra-
dvalar helst óbreytt. Heimgreiðslur
til foreldra aukast um 5.000 krónur
á barn á mánuði og verða 35.000
krónur.
Bæjarstjórnin hyggst auka fram-
lag til liðveislu aldraðra og vill
verða fyrsta bæjarfélagið til að
veita þá þjónustu, sem einnig geti
nýst geðfötluðum. Gert er ráð fyrir
þremur viðbótarstöðugildum í fé-
lagsþjónustu bæjarins vegna heima-
þjónustu og eins vegna barnavernd-
ar.
Vatnsskattur í Kópavogi lækkar
um 10% á næsta ári með tilkomu
Vatnsveitu Kópavogs, sem nú hefur
tekið í notkun eigið vatnsból í
Vatnsendakrikum.
Eiginfjárhlutfall Kópavogsbæjar
er áætlað 55% á árinu 2008 og hefur
hækkað úr 33% frá árinu 2002.
Morgunblaðið/RAX
Uppbygging Miklar gatnaframkvæmdir verða í Kópavogi á næsta ári.
Áætlað að treysta
innviði Kópavogs
á næsta ári
Í HNOTSKURN
»Heildartekjur Kópavogs árið2008 eru áætlaðar rúmir 17
milljarðar króna eða um 2 millj-
örðum hærri en tekjurnar í ár.
»Útsvar helst óbreytt, eða13,03%.
»Vinna við gatnagerð árið2008 verður sú mesta frá
upphafi.
»Gert er ráð fyrir að Kópa-vogsbúar verði orðnir 30.000
að ári liðnu.
Gunnar I.
Birgisson
Gatnaframkvæmdir
verða í forgrunni
SÍMAATIÐ sem Vífill Atlason, 16
ára Skagamaður og prakkari, gerði
í Hvíta húsinu í byrjun mánaðarins
var tekið fyrir á blaðamannafundi í
Washington á mánudaginn var.
Reuter-fréttastofan hefur eftir tals-
manni Hvíta hússins að Vífill hafi
hringt í venjulegt símanúmer sem
öllum er frjálst að nota. Jón Bjart-
marz yfirlögregluþjónn segir að ís-
lenska lögreglan hafi ekki haft
samskipti við þá bandarísku vegna
málsins og neitar að segja hvernig
lögreglan frétti af símaatinu.
Ekki leyninúmer
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hef-
ur dæmt karlmann í 170 þúsund
króna sekt og svipt hann ökurétt-
indum í 18 mánuði en sannað þótti
að maðurinn hefði ekið bíl, sem
lenti á umferðarmerki við hring-
torg í Hveragerði í júní í sumar.
Lögregla stöðvaði manninn á
Eyrarbakkavegi nokkru síðar og
reyndist áfengismagn í blóði hans
þá vera 1,72‰. Maðurinn játaði
upphaflega sekt sína fyrir dómi en
dró játninguna síðan til baka. Dóm-
inum þótti hins vegar sannað að
maðurinn hefði ekið undir áhrifum
áfengis.
Ók fullur á umferðarmerki
NOTKUN rafmagns á höfuðborg-
arsvæðinu náði nýjum hæðum á
mánudaginn. Þá fór aflið í fyrsta
skipti yfir 200 megavött. Umfangs-
mikil jólalýsing ásamt hefðbundinni
notkun í atvinnulífinu eru ástæður
þessarar miklu notkunar. Fyrri
álagstoppur var 18. desember 2006
þannig að búast má við að nýtt met
verði slegið fyrir jól, sérstaklega ef
kólnar í veðri. Á árum áður var
reglan sú að álagstoppurinn var á
aðfangadagskvöld. Mörg ár eru frá
því það mynstur breyttist.
Rafmagnsmet