Morgunblaðið - 14.12.2007, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 14.12.2007, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007 19 MENNING ÞAÐ er aðdáun- arvert hvernig Toshiki Toma hefur náð að temja sér tungu- tak okkar Ís- lendinga ef marka má ljóða- bók hans Fimmtu árstíð- ina. Að sönnu hefur hann fengið aðstoð margra mætra einstaklinga við frágang bókarinnar ef marka má þakkir hans í lok hennar. En margt í henni er með þeim hætti að sér- hverju íslensku skáldi væri sómi af. Toshiki Toma er fæddur í Tok- ýó í Japan og bera ljóð hans upp- runanum vitni. En hann tekst einnig á við íslenskan veruleika og kannski ekki síst íslenska náttúru. Trúin er honum mikilvæg og lífið. Bókin hverfist um árstíðirnar og kannski ekki síst þá fimmtu sem hann líkir við blóm innra með sér sem teygir sig upp, opnar sig til að taka á móti „skini frá sólinni / og bjarma frá jörðinni.“ Styrkur Toshiki Toma er mest- ur í knöppu hæku-líku ljóðformi þar sem andstæðum er teflt fram í þéttu náttúrumyndmáli: Á titrandi mósaíkmynd á gárum Tjarnarinnar hvílir haustdagur Toshiki Toma er næmur á hina smágervu veröld í kringum okkur en hann spyr líka spurninga og bendir á margt í mannlegri breytni sem verður okkur til um- hugsunar eins og í kvæðinu Sann- leikur. Sannleikurinn er eins og bolti í ruðningsleik Þeim er hrósað sem láta boltann ganga á milli sín Þeim sem vilja halda fast í hann troðið í svaðið Ljóðabók Toshiki Toma, Fimmta árstíðin, er fremur hug- ljúf bók þar sem fegurð lífsins er dásömuð. Ljóðin einkennast þegar best lætur af knappri og mark- vissri myndbyggingu og útgáfa hennar hlýtur að teljast nokkurt afreksverk. Blómið innra með okkur Skafti Þ. Halldórsson BÆKUR Ljóð Eftir Toshiki Toma. Nykur. 2007 – 69 bls. Fimmta árstíðin Toshiki Toma Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali Innihaldið skiptir máli Espressó-kaffivélar, bjóðum upp á mikið úrval. Tilvalin jólagjöf handa heimilisfólkinu. Nóatúni 4 • Sími 520 3000 www.sminor.is Í Fyrir jólin Stór og lítil heimilistæki, símtæki og ljós í miklu úrvali. Gæðaryksugur frá Siemens. Virkilega þrífandi hrífandi. Þessi er nauðsynleg við jólabaksturinn. Er ekki upplagt að fá sér ný ljós fyrir jólin? A T A R N A / K M I / F ÍT Jólaþrifin verða leikur einn. jafnvægi fyrir líkama og sál • heilsugjafavörur • gjafabréf S k e i f u n n i 3 j · S í m i 5 5 3 8 2 8 2 · w w w . h e i l s u d r e k i n n . i s

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.