Morgunblaðið - 14.12.2007, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007 35
einhvern veginn fannst öllum í fjöl-
skyldunni sjálfsagt að Maja veldi þá
braut í lífi og starfi sem hæfileikar
hennar og metnaður stóðu til.
Hjónaband Maju og Sigurjóns
var mjög farsælt. Þótt ég minnist
þess ekki að Maja væri sérstök úti-
vistarkona á yngri árum fór hún vítt
og breitt um landið með Sigurjóni
og hafði mikla ánægju af. En fyrst
og fremst var hún fjölskyldukona,
sem lagði sig fram um að hugsa vel
um dætur sínar og eiginmann og
síðar barnabörn. Jafnframt var hún
til margra ára kennari í viðskipta-
greinum við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti, sem var eigi allfjarri in-
dælu heimili þeirra við Skriðustekk.
Er ég þess fullviss að margir nem-
endur hugsa til hennar með miklu
þakklæti fyrir þá uppfræðslu sem
þeir nutu frá hendi óvenju vel
menntaðs kennara með mikla
starfsreynslu og hæfileika í mann-
legum samskiptum.
Gengin er góð kona, sem ruddi
nýja braut í málefnum kvenna og
lagði mikið til samfélagsins á sinn
hógværa en ákveðna hátt. Ég vil á
kveðjustund þakka Maju alla þá
miklu velvild, sem hún sýndi mér og
síðar fjölskyldu minni á langri veg-
ferð. Við Anna vottum Rannveigu,
Bergljótu og fjölskyldum þeirra
samúð okkar á þessari skilnaðar-
stund. Minningin um góða og
vammlausa konu mun lifa með okk-
ur.
Þorgeir Pálsson.
Bekkjarsystir og góð vinkona,
María frá Bergi við Suðurlands-
braut, er látin eftir alllöng og erfið
veikindi – Parkinsonsjúkdóm.
Síðustu 2-3 ár reyndust henni erf-
ið en fram að því gat hún verið
heima og sinnt sínu undir vökulum
augum dætra sinna og systkina-
barna, sem áttu því að venjast frá
blautu barnsbeini að hjálpa þar sem
hjálpar var þörf.
Barnabörnin voru augasteinar
hennar og þegar minnst var á þau
ljómuðu augu Maríu þótt helsjúk
væri.
Vinátta Maríu var heil og sönn.
Við vorum bekkjarsystur í MR og
næsta vor eru 60 ár frá því er við
brautskráðumst þaðan vorið 1948.
Samband okkar hefur aldrei rofnað
þótt heiðar og fjöll hafi verið á milli
okkar.
Við vorum nokkrar bekkjarsystur
sem mynduðum eins konar sauma-
klúbb á skólaárunum og höfum
reynt fram á þennan dag að hittast
um það bil einu sinni í mánuði. Síð-
ustu árin hefur María ekki getað
komið en þá höfum við litið við hjá
henni í staðinn.
Vinátta mín og Maríu hefur verið
á þann veg að þar eru allar stundir
sólskinsstundir. Þegar þau hjón,
María og Sigurjón, litu til okkar
Benedikts að Laugarvatni þá ríkti
þar gleðin ein. María var í eðli sínu
hlédræg kona og alls ekki allra –
brosti ekki við hverjum sem var. En
sá sem eignaðist vináttu Maríu stóð
aldrei einn, hvort heldur var í gleði
eða sorg.
Ég sakna einlægrar tryggðar og
vináttu Maríu minnar, en að hafa átt
hana að vini í hátt á sjöunda áratug
er huggun í söknuði.
Við bekkjarsysturnar hittumst
eftir andlát hennar og hugir okkar
allra eru fullir af söknuði, en um leið
þakklæti fyrir að hafa átt hana að
samferðakonu og vini.
Adda Geirsdóttir.
Fyrstu minningar okkar eru
gjarnan tengdar því fullorðna fólki
sem við umgöngumst sem börn. Það
fólk mótar að miklu leyti þann heim
sem við lifum og hrærumst í og hef-
ur áhrif á okkur til frambúðar.
Hún Maja, móðursystir mín, var
ein þeirra fullorðnu einstaklinga
sem mótuðu þann heim sem ég lifði
og hrærðist í sem barn. Fyrstu
minningarnar eru teiknaðar skýrum
dráttum barnshugans og þar er
Maja í íbúðinni á Hjarðarhaganum
með sinn smitandi hlátur og stund-
um skondin uppátæki sem enn sitja
í hugskotinu. Ein slík sýnir Maju
biðja okkur að skrúfa frá krana á
vegg, sem reynist vera tómt plat,
plastkrani festur með sogskál
keyptur í útlöndum. Í annað sinn er
verið að kasta fram gátum og þá
kemur ein frá Maju: „Hvað er það í
hellum fjalla sem tengir saman
kalla?“ Eftir miklar vangaveltur
hinna kemur hún með lausnina;
„Það er ekkert!“ Hversdagslegir at-
burðir sem sitja ef til vill fastar í
hugskotinu vegna gleðinnar og létt-
leikans sem þeim fylgdi.
Síðar, er fjölskyldur okkar flutt-
ust í návígi hver við aðra í Breið-
holtinu, varð samgangurinn enn
meiri og minnkaði ekki þegar við
Rannveig dóttir hennar urðum
bekkjarsystkin í Breiðholtsskólan-
um. Á unglingsárunum var oft setið
löngum stundum á Skriðustekknum
og ómetanlegt að finna að þangað
var maður alltaf velkominn. Jóla-
boð, ferðalög, afmæli, sumarbú-
staðaferðir, allt kemur þetta upp í
hugann nú þegar komið er að leið-
arlokum hjá Maju. Margar eru
stundirnar sem hefðu orðið tómlegri
án hennar.
Síðustu árin var allnokkuð af
Maju dregið vegna veikinda hennar.
Ætíð mátti þó finna hversu mjög
hún mat þær stundir er stórfjöl-
skyldan kom saman. Hún kom úr
stórum hópi fimmtán systkina frá
Bergi. Þó nú séu aðeins þrjú af þeim
eftir á lífi eru fjölskylduböndin
sterk og ár hvert er haldið jólaball
þar sem afkomendur hjónanna frá
Bergi koma saman. Senn líður að
því að það verði haldið í enn eitt
sinn. Þar verður Maju sárt saknað
um leið og ljúfu stundirnar sem við
höfum átt með henni lifa áfram í
huga okkar.
Ég og systur mínar, Þuríður og
Sigurveig, þökkum Maju samfylgd-
ina og allar þær góðu minningar
sem hún skilur eftir sig.
Pétur Eggerz.
María mín.
Dýrmæt er vinátta þín.
Þakka þér sameiginlegar gleði-
stundirnar.
Þakka þér kærleikshótin, er
tímar voru erfiðari, á okkar lífs-
hlaupi.
Þakka þér greind þína og stað-
festu, réttsýni og tryggð.
Þakka þér dvöl mína á Bergi,
þessu menningarheimili foreldra
þinna.
Þakka þér kynnin við Sigurjón.
Hittumst brátt, elskulega vina
mín.
Högna Sigurðardóttir.
Kveðja frá viðskipta- og
hagfræðideild Háskóla Íslands
María Sigurðardóttir var braut-
ryðjandi í menntun íslenskra
kvenna. Hún var fyrsta konan, sem
útskrifaðist með próf í viðskipta-
fræðum frá Háskóla Íslands. Það
var árið 1953. Í tilefni af 60 ára
kennslu í viðskiptafræðum við Há-
skóla Íslands var María heiðruð fyr-
ir að brjóta ísinn fyrir íslenskar
konur. Á þeirri hálfu öld, sem liðin
er frá því María útskrifaðist, hefur
mikið vatn runnið til sjávar og eru
nú konur í meirihluta meðal nem-
enda í viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla Íslands. María vann sín
störf af hógværð og í kyrrþey, með-
al annars sem kennari í viðskipta-
greinum við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti. Að auki kom hún dætr-
um sínum til þeirra mennta, sem
hugur þeirra stóð til.
Viðskipta- og hagfræðideild Há-
skóla Íslands kveður nemanda sinn
og brautryðjanda með þökk og auð-
mýkt. Megi minning Maríu Sigurð-
ardóttur varðveitast í hugum okkar
sem eftir lifum.
Fyrir hönd starfsfólks Viðskipta-
og hagfræðideildar Háskóla Ís-
lands,
Ingjaldur Hannibalsson,
deildarforseti.
Kveðja frá Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti
María hóf kennslu við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti þegar skólinn
hóf starfsemi sína haustið 1975 og
kenndi viðskiptagreinar. Hún var
ein af svokölluðum „postulum“ en
það virðingarheiti fengu þeir kenn-
arar sem kenndu við skólann frá
upphafi. María tók virkan þátt í
mótun skólans og gegndi ýmsum
trúnaðarstörfum, var umsjónar-
kennari, deildarstjóri og sviðsstjóri.
Hún var vinsæll kennari, lét sér
annt um nemendur sína og hvatti þá
til dáða. Öll störf í þágu skólans
rækti hún af samviskusemi. Hún
var ljúf í allri umgengni, hafði ríka
réttlætiskennd og var frábitin öllu
tildri og hégómaskap. María lét af
störfum við skólann vegna aldurs
1996.
Við í Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti vottum fjölskyldu hennar sam-
úð okkar.
Blessuð sé minning Maríu Sig-
urðardóttur
Kristín Arnalds.
Elsku pabbi. Hinn
2. desember sl. hefðir
þú orðið 64 ára.
Hinn 9. febrúar sl. var lífi þínu lok-
ið á þessum stað en við trúum því að
þér líði betur núna þar sem síðustu
árin voru þér erfið.
Það var erfitt að sjá hvað þér
hrakaði mikið á þessum níu árum frá
því þú lentir í þessu hræðilega slysi,
en þau gáfu okkur mikið og ekki síst
Eiríkur Marteinsson
✝ Eiríkur Mar-teinsson fæddist
í Ási í Nesjum í
Hornafirði 2. des-
ember 1943. Hann
lést á heimili sínu
föstudaginn 9. febr-
úar síðastliðinn.
Úför Eiríks var
gerð frá Hafnar-
kirkju 17. febrúar
2007.
barnabörnunum sem
voru líf þitt og yndi.
Oftast sástu ljósa
punktinn í lífinu og
sérstaklega með börn-
unum sem nutu hlýju
þinnar. Við sitjum hér
og rifjum upp alla
góðu tímana sem við
áttum saman, því við
eigum svo margar
góðar minningar sem
eftir sitja.
Við gátum alltaf
treyst á þig hvað sem
bjátaði á elsku pabbi
og þau voru ófá skiptin sem við leit-
uðum til þín.
Við vitum að þú fylgist með okkur
þótt þú sért farinn.
Guð geymi þig.
Stelpurnar þínar,
Hafdís, Kristbjörg,
Ásta Huld og Íris Sif.
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að ber-
ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánu-
degi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan
hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður
en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
ERLING ROALD MAGNÚSSON,
fyrrv. forstjóri og skipstjóri,
til heimilis að hjúkrunarheimilinu Eir
(áður Bleikjukvísl 15, Reykjavík),
lést laugardaginn 8. desember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á hjúkrunarheimilinu
Eir.
Maríe Öen Magnússon,
Rögnvald Erlingsson, Helena Kristjánsdóttir,
Erling Erlingsson, Ásdís Bjarnadóttir,
Baldur P. Erlingsson, Bryndís Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg systir mín og móðursystir,
GUÐBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR
ljósmóðir
frá Kárstöðum,
Helgafellssveit,
lést á Hrafnistu við Brúnaveg 2. desember 2007.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju 14. desember
kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent
Orgelsjóð Stykkishólmskirkju.
Reikningur 309 18 930076, kt. 630269-0839.
Minningarkort fást í Heimahorninu, sími 438 1110.
Fyrir hönd aðstandenda,
Aðalheiður Sigurðardóttir,
Margrét Sigurðardóttir.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SIGMUNDUR ÞRÁINN JÓNSSON
lést 11. desember síðastliðinn.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Sjúkrahúsið á
Egilsstöðum.
Útför verður gerð frá Egilsstaðakirkju þann
19. desember nk. kl. 14.00.
Ingveldur Anna Pálsdóttir,
Jón Þráinsson, Íris M. Þráinsdóttir,
Sigríður Sigmundsdóttir, Þór Ragnarsson,
Anna Birna Þráinsdóttir, Sigurður J. Jónsson,
Þórhalla Sigmundsdóttir, Þorgils Torfi Jónsson
og barnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langaafi,
SIGURÐUR VALDIMARSSON,
fyrrverandi skipstjóri,
útgerðarmaður og veitingarmaður,
frá Ólafsvík,
lést á krabbameinsdeild Landsspítalans
12. desember.
Jarðarför verður auglýst síðar.
Guðrún Sigurðardóttir,
Una Jóna Sigurðardóttir, Níels Kirschberg,
Guðlaugur Kr. Sigurðsson, Anna María Jónsdóttir,
Kristín Guðbjörg Sigurðardóttir, Bjarni Arnarson,
Valdimar G. Sigurðsson, Rannveig H. Kristinsdóttir,
Níels Pétur Sigurðsson, Hrefna Kristmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÞÓRUNN ÞÓRÐARDÓTTIR
sjávarlíffræðingur,
Ljósheimum 18 a,
Reykjavík,
lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut
þriðjudaginn 11. desember.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn
17. desember kl. 15:00.
Katrín Didriksen,
Einar Oddsson, Xu Wen,
Elín Þórunn Didriksen,
Oddur Xu Einarsson.