Morgunblaðið - 14.12.2007, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 14.12.2007, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Lýstu eigin útliti Ég er með sítt rauðljóst hár en það lýsist reyndar á sumr- in. Ég er meðalhá miðað við aldur en er með frekar langar hendur og fætur að eigin mati. Er með ljósblá augu og miklar freknur. Hvaðan ertu? Ég er nú víst bara úr gömlu góðu Reykjavík. Hvað finnst þér um íslenska bíómenningu? (Spurt af síð- asta aðalsmanni, Kristínu Bergsdóttur söng- konu) Mér finnst íslensk bíómenning alltaf að þróast og verða betri og betri. Tæknin er líka alltaf að verða flottari og fleiri val- möguleikar eru í tæknibrell- um. Þá held ég að áhugi á ís- lenskri kvikmyndagerð og leiklist hafi aukist á und- anförnum árum. Hvaða bók lastu síðast? 40 vikur, sem mér fannst mjög góð. Hún var svona ekta stelpubók. Á hvaða plötu hlustar þú mest þessa dagana? Ég hlusta á mjög fjölbreytta músík. Hvað uppgötvaðir þú síðast um sjálfa þig? Í kappáti á Reykjum (skólabúðunum) uppgötvaði ég að ég get borðað mjög hratt … (en það er ekki hollt fyrir mann, þannig að ég mæli ekki með því). Áttu kærasta? Nei, ekki ennþá. Uppáhaldsstaður í miðbænum? Vá, þeir eru svo margir en ef ég yrði að velja einn þá myndi ég velja heimilið mitt og kannski bara líka eitt af þessum sætu kaffihúsum niðri í bæ. Hvað borðar þú á jólum og áramótum? Það er enginn fastur réttur beint, en í ár borðum við villibráð á jólunum og ég er ekki viss hvað verður í matinn á áramótunum. Hefurðu þóst vera veik til að sleppa við vinnu eða skóla? Hver hefur ekki gert það að minnsta kosti einu sinni á æv- inni? Uppáhaldsleikari? Veit um marga góða en bróðir minn, Sveinn Þórir leikari, hef- ur samt alltaf verið í uppáhaldi hjá mér. Uppáhaldsleikkona? Það eru margar í uppáhaldi en mér finnst Nicole Kidman mjög fær. Hvaða hlutverk í kvikmynda- sögunni myndir þú vilja leika? Ég held að ég myndi helst vilja leika í rómantískri gamanmynd sem gerist í kringum 1600- 1700. Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stærri? Ég var löngu búin að ákveða að verða leikkona. Besti tónlistarmaður sög- unnar? Úff, þeir eru svo margir góðir að erfitt er að velja. Uppáhaldsfagið í skólanum? Leiklist og list- og verkgreinar. Í hvaða menntaskóla ætlarðu? MR eða Kvennó (mér finnst reyndar að það eigi að stofna nýjan skóla sem leggur mikinn metnað í listir). Helstu áhugamál? Leiklist, ballett, hestar og fleiri dýr, og bara að njóta lífsins og skemmta mér með vinkonum mínum. Hvaða kvikmynd eða sjónvarpsefni hefur haft mest áhrif á þig? Duggholufólkið … ég lék í henni og það hafði mikil áhrif á líf mitt og það var mjög skemmtileg lífsreynsla. Hvers viltu spyrja næsta viðmælanda? Hvað er besta leikrit/söngleikur sem þú hefur farið á og af hverju? ÞÓRDÍS HULDA ÁRNADÓTTIR AÐALSKONA VIKUNNAR ER 12 ÁRA REYKJAVÍK- URMÆR SEM Á DÖGUNUM ÞREYTTI FRUMRAUN SÍNA Á HVÍTA TJALDINU Í KVIKMYND ARA KRIST- INSSONAR, DUGGHOLUFÓLKINU Heimakær Aðalskonan á heimili sínu sem er einn af hennar uppáhaldsstöðum. Morgunblaðið/Frikki LEIKARINN Johnny Depp er orð- inn hundleiður á því að vera frægur og á þá ósk heitasta að lifa rólegu lífi fjarri skarkala heimsins. „Ég vil ekki vera framleiðsluvara og vil helst af öllu lifa fyrir utan þennan iðnað. Ég er viss um að mér tekst það einn dag- inn. Kannski þegar ég verð gamall og fólk er komið með leiða á manni.“ Depp, sem á tvö börn með unnustu sinni, frönsku söng- og leikkonunni Vanessu Paradis, hefur ávallt reynt að halda einkalífi sínu aðskildu frá Hollywood og minnist oft orða Mar- lons Brando sem lék með honum í Don Juan de Marco en Brando sagði: „Líf þitt er þitt eigið og kemur engum öðrum við. Þú lifir því ekki öðrum til skemmtunar.“ Depp er þessa dagana að kynna myndina Sweeney Todd í leikstjórn Tims Burton og þrátt fyrir að hann taki að sér kynningarstarfið segist hann ekki sækjast eftir slíku sviðsljósi. „Ég hef engan áhuga á því að taka þátt í þessum stjörnuleik sem stundum er leikinn fyrir kynningar á myndum, þar sem þessi byrjar með hinum og annað þess háttar. Það á einfaldlega ekki við mig.“ Fjarri skarkala heimsins Reuters Prívat Depp varðveitir einkalífið. Þjóðleikhúsið Á öllum sviðum lífsins Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00 mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00. Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga. Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is eftir Anton Tsjekhov Leikstjórn og leikgerð: Baltasar Kormákur Jólafrumsýning 26. desember ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ ÍVANOV Gjafakort Þjóðleikhússins fæst á www.leikhusid.is og í miðasölu á Hverfisgötu Gefum góðar stundir Salurinn LAUGARDAG 12. JANÚAR 2008 KL. 17 TÍBRÁ: NÝÁRSTÓNLEIKAR HULDA BJÖRK OG SALONSVEIT SIGURÐAR INGVA SNORRASONAR. ÖRFÁ SÆTI LAUS Miðaverð 2000/1600 kr. MIÐASALAN ER OPIN VIRKA DAGA FRÁ KL. 10 – 16 FRAM AÐ JÓLUM SMELLTU Á NÝJU HEIMASÍÐUNA WWW.SALURINN.IS OG SKOÐAÐU FALLEGU GJAFAKORTIN FRÁBÆR JÓLAGJÖF! GLEÐILEG JÓL ÞÖKKUM ÁNÆGJULEGAR SAMVERUSTUNDIR Á ÁRINU ■ Á morgun kl. 14 og 17 uppselt á báða tónleikana Jólatónleikar. Hnotubrjóturinn eftir Tsjajkovskíj. Nemendur úr Listdansskóla Íslands dansa og trúðurinn Barbara segir söguna. Stúlkur úr Skólakór Kársness syngja jólalög í anddyrinu á undan tónleikunum og Barbara verður á sveimi. Opnað hálftíma fyrir tón- leikana. Hljómsveitarstjóri: Gary Berkson ■ Vínartónleikar Hinn árlegi og ómissandi gleðigjafi Sinfóníuhljómsveitarinnar í ársbyrjun. Fim. 3. janúar kl. 19.30 nokkur sæti laus, fös. 4. janúar kl. 19.30 nokkur sæti laus og lau. 5. janúar kl. 17 örfá sæti laus og kl. 21, laus sæti. ■ Fim. 10. janúar kl. 20.30 Ungir einleikarar Sigurvegarar í einleikarakeppni Listaháskóla Íslands og Sinfóníu- hljómsveitarinnar þreyta frumraun sína með hljómsveitinni. Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.