Morgunblaðið - 16.12.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.12.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 343. TBL. 95. ÁRG. SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is Leikhúsin í landinu Leikhús er ávísun á góða kvöldstund >> 80 www.glitnir.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 7 – 2 0 2 9 SUNNUDAGUR TÓNLIST Á AÐ HEMJA ÓLAFUR GAUKUR OG ÁSTRÍÐAN HANS TÓNLIST >> 40 ÖÐRUVÍSI JÓLAKORT VILLI NAGLBÍTUR Á NÝJUM SLÓÐUM FÓLK >> 81 MIKE Huckabee er ólíkur andstæð- ingum sínum, sem sækjast eftir út- nefningu repúblikana til forseta- framboðs, og vex fiskur um hrygg. Óvænt uppsveifla Mikes Huckabees SULLEY Muntari frá Gana hefur vakið athygli hjá Portsmouth og hef- ur verið sagður sameina mýkt Kaká og baráttuþrek Edgars Davids. Magnaðir taktar Sulleys Muntaris VIKUSPEGILL REKSTRARKOSTNAÐUR FL Group er ekki óeðlilegur og ekki eins hár og menn láta í veðri vaka, að því er Hannes Smárason, fráfarandi for- stjóri FL Group, segir í viðtali í dag. „Og kannski er helst við okkur að sakast í þeim efnum að hafa ekki útskýrt þetta nægilega vel fyrir markaðnum og leyft þessum misskilningi að grassera.“ Hann segist ekki vera hálfdrættingur á við for- stjóra stærstu félaga landsins í launum. „Ef þú horfir á fyrrverandi forstjóra FL Group, sem situr hérna við borðið, og svo forstjóra X, þú mátt velja þér nafn í það box, svo framarlega sem það er eitt af fimm stærstu fyrirtækjum á landinu, í hvers hópi við erum. Ef þú horfir á laun strípuð var for- stjóri FL Group með 4 milljónir á mánuði. En X myndi vera með í laun í kringum 80 til 90 milljónir á ári. Ef þú horfir á bónusa er forstjóri FL Group með núll, en forstjóri X með aðrar 80 til 90 millj- ónir. Þannig að forstjórar stærstu félaganna hér á landi leggja sig á 160 til 180 miljónir króna á ári en ekki tæpar 50 milljónir eins og ég gerði. Engir bónusar eða kaupréttir Ef þú horfir síðan á kauprétti var forstjóri FL Group með núll, forstjóri X með … köllum það einhverja milljarða. Síðan ef þú heldur áfram og talar um risnu og ferðakostnað, þá get ég upplýst að ég hef aldrei rukkað félagið um einn einasta hótelreikning eða útlagðan kostnað við gistingu eða uppihald eða neitt sem tengist slíkum hlut- um,“ segir hann og bætir við um ferðakostnað: „Þar hefur forstjóri FL Group haft nákvæmlega sama háttinn á og X. Félagið hefur staðið undir þeim kostnaði, stundum með einkaþotu og stund- um með öðrum hætti.“ Hannes heldur áfram um rekstrarkostnaðinn: „Af framangreindum ástæðum tel ég að rekstr- arkostnaður forstjóra FL Group hafi hvorki verið óeðlilegur né hár. Ég tók þá ákvörðun strax og ég varð forstjóri að semja um hóflegar greiðslur til mín fyrir þann þátt. Minn ávinningur var fyrst og fremst sá að vera fremstur meðal jafningja, út frá hlutabréfaeign, og þeim arði sem félagið greiddi. Og það hefur greitt góðan arð, ég get ekki kvartað undan því að hafa ekki haft úr miklu að moða enda þótt ég hafi ekki verið hálfdrættingur á við for- stjóra stærstu félaga landsins í launum og þar að auki án bónusa þeirra og kauprétta.“ | 10 Rekstrarkostnaður FL hvorki óeðlilegur né hár Hannes Smárason kveðst ekki hafa verið hálfdrætt- ingur í launum á við for- stjóra helstu félaga landsins Morgunblaðið/Golli Ágjöf Hannes Smárason segir FL Group fyrst stóru íslensku fyrirtækjanna til að búa sig undir ágjöf í efnahagsmálum í einhvern tíma. Ekki sé ólíklegt að fleiri fylgi í kjölfarið. NIÐURSTAÐA náðist í gær á ráðstefnu aðildarríkja Rammasamnings Sameinuðu þjóðanna á Balí. Þórunn Sveinbjarnardótt- ir umhverfisráðherra segir að niðurstaðan – Vegvísirinn frá Balí – sé að mörgu leyti söguleg. Ráðstefnan hafi snúist um að ná samkomulagi um að semja. Það hafi náðst og allir séu með, bæði iðnríki og þróun- arlönd. „Þetta er í fyrsta sinn í þessu langa ferli sem Bandaríkin segjast tilbúin til að taka þátt í víðtækum samningaviðræðum [um loftslagsmál]. Og einnig þróunarlöndin sem í fyrsta sinn ljá máls á því að taka á sig ein- hvers konar skuldbindingar í þessum efn- um. Það er kominn rammi og drög að vinnuáætlun næstu tvö ár,“ sagði Þórunn. Mikið verk er framundan fram að næsta fundi í Kaupmannahöfn 2009, að sögn Þór- unnar. Hún sagði að það hefði hangið á blá- þræði í gær hvort niðurstaða fengist eða ekki. „Um tíma héldu margir, þeirra á meðal ég, að þetta væri bara búið og við færum heim tómhent. En fulltrúi Bandaríkja- stjórnar sneri við blaðinu á fundinum þegar henni var ljóst að bæði Evrópusambandið, G77 (hópur þróunarlanda) og Kína höfðu náð saman um ákveðið orðalag sem enginn stóð þá gegn nema Bandaríkin. Þá hefði það endað þannig að það hefði einfaldlega verið á ábyrgð Bandaríkja- stjórnar að koma í veg fyrir að löndin næðu saman hér á Balí. Það er gott að vita til þess að Bandaríkjastjórn vildi ekki gera það,“ sagði Þórunn. | 6 Söguleg niðurstaða náðist á Balí Þórunn Sveinbjarnardóttir Oberlin. AP. | Jólakort með teikningu af jólasveininum og ungri telpu hef- ur borist fjölskyldu í bænum Oberlin í norðvestanverðu Kansas-ríki, 93 árum eftir að það var sent. Jólakortið var sett í póst 23. des- ember 1914 og átti að berast konu, Ethel Martin, í Oberlin. Talið er að börn systur hennar í Alma í Ne- braska hafi sent kortið. Steve Shultz, póstmeistari í Oberl- in, sagði að það væri hulin ráðgáta hvar kortið hefði verið í nær öld. Ethel Martin er látin en ákveðið var að afhenda mágkonu hennar kortið. Hún kvaðst telja að kortið hefði fundist einhvers staðar í Illinois. Kortið barst 93 árum síðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.