Morgunblaðið - 16.12.2007, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 59
SJÁLFSTÆÐISMAÐURINN
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ, hefur ekki bara
hæfileika til að sitja í senn beggja
vegna borðs í samningaviðræðum.
Bæjarstjórinn telur
sig einnig geta haft
tvær andstæðar skoð-
anir í senn og ef hon-
um þóknast að segja
að svart sé hvítt þá
skal það svo vera.
Þetta kemur glöggt
fram í grein bæj-
arstjórans í Morg-
unblaðinu sl. þriðju-
dag.
111. meðferð
á bæjarstjóra
Grein sína byrjar
bæjarstjórinn á að rekast í viku-
gömlum mismælum undirritaðs í
ræðustól Alþingis sem ég leiðrétti
samdægurs. Ef bæjarstjóranum er
fró í því að byrja hér eftir allar
greinar á að geta um þessa ill-
ræmdu meðferð sem ég á að hafa
veitt honum þá er honum það
meira en velkomið. Mismæli um
bæjarstjóra mætti hér eftir skil-
greina sem óguðlega 111. meðferð í
anda Ólafs Ljósvíkings.
Í niðurlagi kvörtunar sinnar yfir
mismælinu skrifar bæjarstjórinn
nær viku eftir atburðinn: „Það hef-
ur nú verið leiðrétt,“ og þýðir af
orðanna hljóðan að liðið hafi langur
tími áraunar hinnar 111. meðferðar
sem bæjarstjórinn varð að þola af
minni hálfu. Þetta er óréttmætt
þar sem ummælin voru leiðrétt
samdægurs en skal fyrirgefið og
engrar afsökunar krefst ég vegna
þessa. Tel einfaldlega að við sem í
stjórnmálum störfum þurfum
þykkari skráp heldur en bæj-
arstjórinn á Reykjanesi virðist
hafa.
Sárindin eini skjöldurinn
Verst þykir mér þó að bæj-
arstjórinn skuli nota meint sárindi
vegna mismælis til þess að skauta
framhjá allri málefnalegri umfjöll-
un um þátt sinn í uppbyggingu
Keflavíkurflugvallar þar sem hann
hefur verið mjög á ystu brúnum al-
mennra reglna um hæfi og van-
hæfi.
Þannig tilnefnir Steinþór Jóns-
son, þáverandi stjórnarformaður
SSS (Samtök sveitarfélaga á Suð-
urnesjum), Árna sem fulltrúa sinn-
ar stjórnar í stjórn Kadeco ehf. og
skömmu síðar kemur sami Stein-
þór sem er þá orðinn stjórn-
arformaður, einn aðaleigandi og
prófkúruhafi hlutafélagsins BASE
og kaupir ríkiseignir af Kadeco
ehf. fyrir hundruð milljóna.
Umræddur Steinþór
er reyndar einnig í
bæjarstjórn Reykja-
nesbæjar undir for-
ystu Árna og sama má
segja um þrjá aðra
einstaklinga og sam-
flokksmenn bæj-
arstjórans sem allir
kaupa hluta af þeim
ríkiseigum sem Ka-
deco-stjórnin hefur til
umráða.
Beggja vegna
borðs
Umsvifamest í kaupum er félagið
Háskólavellir sem Reykjanesbær
stofnar með fleiri aðilum og starfar
í nánum hagsmunatengslum við há-
skólafélagið Keili þar sem bæj-
arstjórinn er í stjórn. Háskólavellir
kaupa eignir af Kadeco með einum
14 milljarða samningi þar sem bæj-
arstjórinn situr af þremur ástæð-
um beggja vegna borðs.
Í fyrsta lagi vegna þess að hann
er í stjórn Keilis sem byggir til-
veru sína á samningum Há-
skólavalla.
Í öðru lagi vegna margháttaðra
tengsla bæjarins og stjórnar Keilis
við einstaka eigendur Háskólavalla.
Í þriðja lagi vegna eign-
arhlutdeildar Reykjanesbæjar í
Háskólavöllum (allt eins þó hann
hafi verið seldur nú löngu eftir að
samningum var lokið.)
Að þessu sögðu er rétt að geta
þess að margt er gott í þeim verk-
um sem efnt er til á Keflavík-
urflugvelli og ánægjulegt að sjá
herstöð breytast í þekkingarsetur.
Um það eru menn allra flokka á
Suðurnesjum sammála. En hversu
gott sem viðfangsefnið er réttlætir
það ekki þau vinnubrögð sem hér
eru viðhöfð við útdeilingu eigna al-
mennings.
Ná reglur ekki yfir
sjálfstæðismenn?
Vera má að reglur um vanhæfi,
sannsögli og samkvæmni séu að-
eins taldar ná til stjórnmálamanna
utan Sjálfstæðisflokks. Þögn
margra fjölmiðla um málið gæti
bent til þessa en hin sterku tök
Sjálfstæðisflokksins á fjölmiðlum
landsins koma nú skýrt fram.
Það er því að vonum að liðsmenn
sama flokks telji sig geta haft at-
hugasemdalaust tvær eða fleiri
andstæðar skoðanir í senn. Þannig
átelur Árni Sigfússon nú bæjarfull-
trúa Framsóknarflokksins Eystein
Jónsson fyrir að ræða viðsnúning
sjálfstæðismanna gagnvart einka-
væðingu Hitaveitunnar og sölu
orkuauðlinda á Reykjanesskaga.
Fyrir málefnalega umræðu sína er
Eysteinn settur á bekk með okkur
meintum ósannindamönnum sem
ekki eru Sjálfstæðisflokki þókn-
anlegir.
Það rétta í málinu er að 12. júlí
lögðu bæjarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokks í Reykjanesbæ fram bókun
þar sem fagnað var 32% eign-
arhlutdeild Geysir Green Energy í
Hitaveitu Suðurnesja og sagt um
þann atburð:
„Samkomulagið tryggir jafn-
framt fyrstu skref einkavæðingar
orkufyrirtækja á Íslandi þar sem
kraftar einkaframtaksins verða
virkjaðir á sviði orkufram-
leiðslu …“
Ef 32% eignaraðild er fyrsta
skrefið í einkavæðingu orkufyr-
irtækja og auðlindanna er stefnan
greinilega ekki að almenningur eigi
meirihlutann í sömu eignum. Nú
segir Árni Sigfússon aftur á móti
að tryggja beri „forgang almenn-
ings að auðlindunum sjálfum, ýmist
með skýrri löggjöf eða meiri-
hlutaeigu.“
Bæjarstjóranum er vitaskuld
heimilt að skipta um skoðun í
þessu máli og batnandi manni er
best að lifa eins og fyrrnefndur
bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins
bendir á. En batinn er afar
ótraustur ef menn telja sig geta
talað tungum tveim. Slík pólitík er
hvorki líkleg til farsældar né ár-
angurs.
Af árekstrum hins hörund-
sára bæjarstjóra
Bjarni Harðarson skrifar um
sveitarstjórnarmál í Reykja-
nesbæ
»… að bæjarstjórinnskuli nota meint sár-
indi vegna mismælis til
þess að skauta framhjá
umfjöllun um þátt sinn í
uppbyggingu Keflavík-
urflugvallar
Bjarni Harðarson
Höfundur er alþingismaður.
Vorum að fá í einkasölu þessar glæsilegu húseignir alls 483 fm á 1.620
fm lóð sem samanstendur af aðalhæð sem er 255 fm. Bílskúr 63 fm.
Samþykktri aukaíbúð 80 fm m/allt sér. Að auki er óvenju vandað 86 fm
hesthús f/8 hesta í sérhúsi sem er aðskilið aðalhúsi. Allur frágangur utan
sem innan til fyrirmyndar. Allir innviðir, tæki og gólfefni eru af vönduð-
ustu gerð. Hesthúsið er engu líkt hvað varðar frágang og myndarskap.
Lóðin að mestu frágengin með ca. 90 fm sólpöllum. Mikið útsýni af stór-
um svölum.
Uppl. gefur Ólafur B Blöndal í 6-900-811.
GRUNDARHVARF/VATNSENDASVÆÐI
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
M
b
l 9
49
77
1
5 900 800 Borgartúni 22 • 105 Reykjavík • Fax 5 900 808fasteign@fasteign.is • www.fasteign.is
www.atvinnueignir.is
534 1020
Stærðir: 70 fm ti l 2.000 fm - TIL LEIGU
Til leigu. 300 fm, verslunarhúsnæði. Laust fjótlega. Uppl. gefa Helgi 663-2411 og
Ólafur 824-6703
Helgi Bjarnason, viðskiptafræðingur, MBA,
löggiltur leigumiðlari og löggiltur fasteignasali
Ólafur Jóhannsson, rekstarfræðingur,
löggiltur leigumiðlari og löggiltur fasteignasali
Hlíðasmári , 200 Kóp
Erum með margar tegundir og stærðir af verslunarhúsnæði til leigu. Ræddu við okkur um
hvaða þarfir þú hefur. Upplýsingar gefa Helgi 663-2411 og Ólafur 824-6703
Verlunar- / þjónustuhúsnæði
JARÐIR TIL SÖLU Í
VOPNAFIRÐI
Björn Daníelsson, lögg. fasteignasali
Þverholti 14 | 105 Reykjavík | Sími 595 9000 | Fax 595 9001 | www.holl.is | holl@holl.is
tákn um traust
Fasteignasalan Hóll kynnir í
einkasölu hluta úr þremur land-
miklum hlunnindajörðum við
Selá í Selárdal í Vopnafirði. Um
er að ræða 16,67 % úr jörðinni Leifsstöðum sem er 5652 ha. að stærð, 8,33
% úr jörðinni Áslaugar-stöðum sem er 4762 ha. að stærð og helming jarðarin-
nar Breiðamýrar sem er 712 ha. að stærð skv. uppl. á nytjaland.is. Á
Leifsstöðum er 111 fm. íbúðarhús, byggt árið 1944, sem gert hefur verið upp
og er nýtt sem veiðihús en Breiðamýri og Áslaugarstaðir eru án húsa. Áslau-
garstaðir og Leifsstaðir eiga land saman.
Jarðirnar eru vel grasi grónar og liggja allar að Selá og eiga hlutdeild í arði
vegna laxveiðiréttinda í ánni. Selá hefur verið með aflahæstu veiðiám landsins
síðustu ár og ásókn í veiði þar verið mikil. Um leið hefur verið gert stórátak í
að varðveita hinn náttúrulega laxastofn sem þar er að finna og hefur það
skilað sér í stöðugt aukinni veiði. Í gildi er samningur um leigu árinnar sem
hefur var endurskoðaður á síðasta ári og arðgreiðslur til landeigenda
hækkaðar verulega. Til stendur að byggja nýtt veiðihús við ána, austan ár,
innan við sundlaug.
Nánari lýsingu á landkostum Selárdals og jarðanna þriggja er að finna í bók-
inni Sveitum og jörðum í Múlaþingi.
Verð: Óskað er eftir tilboðum í hverja eign fyrir sig en seljendur áskilja sér rétt
til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Þinglesinn forkaupsréttur er
á jörðunum.
Nánari upplýsingar gefur Björn Daníelsson hdl./lgf.
fasteignasölunni Hóli í síma 595-9000,849-4477.
Lögg. fasteignasali
Hrafnhildur Bridde
Sigurberg Guðjónsson hdl.
Hrafnhildur Bridde,
lögg.fasteignasali
821 4400
534 2000
www.storhus.is
Skógarhlíð 22 • 105 Reykjavík • Sími 534 2000 • Fax 534 2001 • www.storhus.is
LAUS!! FURUGRUND, KÓPAVOGUR.
4RA HERB. Á 3.HÆÐ + BÍLSKÝLI. LYFTA.
Skemmtileg 4ra herb. 91 fm íbúð á
3. hæð auk 23,8 fm bílskýlis á
grónum stað í Kópavogi. Þrjú svefn-
herb. Suðursvalir. Ný gólfefni. Þvotta-
hús á hæð. Lyfta. Stutt í verslun og
þjónustu. Íbúðin er laus og til afhend-
ingar við kaupsamnings. Aðili sér um
þrif á sameign. Verð 23,9 millj.
Sjamerandi 3ja herb. 57,7 fm íbúð á 2.
hæð á þessum eftirsótta stað í miðbæ
Reykjavíkur. Ný eldhúsinnrétting og
parket. Parket á stofu og herbergjum.
Stutt í verslun og þjónustu. Íbúðin er
laus og til afhendingar við kaupsamn-
ings. Verð 18,9 millj.
LAUS!! ÞÓRSGATA, 101 RVK. 2. HÆÐ.