Morgunblaðið - 16.12.2007, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 16.12.2007, Blaðsíða 46
Teikning/Halldór Baldursson fjölmiðlar 46 SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Úr viðtali Árna Þórarinssonar við Matthías Johannessen Þegar Matthías hóf störfsem blaðamaður, rúmlegatvítugur, var vinnudag-urinn allur sólarhring- urinn. „Einhvern tíma var Sigfús Jóns- son, framkvæmdastjóri Morgun- blaðsins og mikill vinur minn, á fundi með stjórn Árvakurs að gagn- rýna mig sem ritstjóra fyrir að eyða of miklum peningum. „Það hefur komið fyrir,“ sagði Sigfús, „að fólkið sem á að hefja störf hérna klukkan sex á morgnana hefur séð bíl Matthíasar fyrir utan og farið heim aftur!“ Ég leit á þetta sem meðmæli frekar en gagnrýni. Þetta var ein- hvers konar æði að vinna á blaðinu. Og ástríða. Annað hvort varð maður að standa sig eða ekki. Hræddastur var ég alla tíð um að Katla gysi að næturþeli án þess að fréttin væri í blaðinu daginn eftir. Enn er ég ner- vös við það innst inni! Það gæti gerst núna, eins og vinnutímareglur eru orðnar. Þá var mikil samkeppni milli fjölmiðla um að vera fyrstur með fréttirnar. Þá voru ekki allir að tönnlast á sömu fréttinni. Menn voru að skúbba, nánast hvað sem það kostaði. Núna hlusta ég á og les sömu fréttirnar allan sólarhringinn í öllum fjölmiðlum. Það fer í taugarn- ar á mér sem gömlum blaðamanni.“ Í Eintali á alneti skrifar Matthías um blaðamennskuna: „Blaða- mennska í gamla daga var óttalegt puð og tók allan sólarhringinn. En nú er þó hægt að blása úr nös. Verkaskiptingin á sérblöðunum er mikil framför, en kallar á mikla yfir- sýn. Og árvekni. En við höfum góða blaðamenn sem kunna sitt fag, ekki sízt fréttamennirnir á vöktunum, en verklag þeirra minnir meir á það sem við áttum að venjast í gamla daga, þótt vaktirnar hafi verið miklu fleiri þá og verkaskipting minni.“ Hann segir að eftirminnilegir fréttaviðburðir frá þessum árum séu of margir til að telja upp. „En ætli minnisstæðast sé ekki þegar togarinn Úranus kom til hafnar eft- ir að hafa verið talinn af, og öll áhöfnin heil á húfi. Þannig sagði Morgunblaðið þjóðinni frá því að skipshöfn sem saknað var væri á lífi. Þetta var 1960. Sú atburðarás er mér ógleymanleg og á hana minnst í bókinni Hugleiðingar og viðtöl.“ Þegar hann er spurður um eft- irminnilegustu blaðamannsferðina svarar hann: „Ég nefni ferð á topp- fund Eisenhowers og Krústsjofs í París, einnig árið 1960. Þar var ég, eini íslenski blaðamaðurinn á staðn- um, í samfélagi við alla heimspress- una og hugsaði eins og heims- pressan. Þessi fundur var ekki síst merkilegur fyrir þá sök að hann var aldrei haldinn. Rússar sáu að Bandaríkjamenn voru með njósna- flug yfir Sovétríkjunum, þegar þeir skutu niður U2-njósnavélina og hót- uðu öllu illu. Krústsjof harðneitaði að hitta Eisenhower, en efndi til fundar með okkur fréttamönnum. Toppfundurinn er merkilegasti fundur sem ég hef ekki setið! Þegar ég kom heim sagði Bjarni Bene- diktsson: „Nú er Morgunblaðið orð- ið heimspressa.“ Þetta er líklega mesta hrós sem ég fékk á mínum blaðamannsferli! En það var erfitt að koma efninu frá sér í þá daga og einungis hægt að notast við stopult símasamband frá París.“ Matthías gekk í öll verk á rit- stjórninni. „Ég vann við nánast allt nema að bera blaðið út. Ég skrifaði Velvakanda, þýddi smásögur, tók viðtöl og skrifaði fréttir um allt milli himins og jarðar, erlendar sem inn- lendar. Ég fjallaði um erfið saka- mál, til dæmis Olíumálið, og íþróttir, þar á meðal Ólympíuleikana í Münc- hen. Ég var því, að ég held, orðinn býsna sjóaður og vissi hvað dagblað var þegar ég varð ungur ritstjóri.“ Um þann atburð skrifar hann fá- orða færslu í dagbók sína árið 1959: „Ef ég hefði ekki tekið við ritstjóra- starfinu, hefði Jóhannes Nordal ver- ið sóttur út í Seðlabanka. Tók því starfið að mér.“ Hvernig ber að skilja þetta? „Bjarni Benediktsson, þá ritstjóri Morgunblaðsins, talaði við mig fyrir hönd stjórnar Árvakurs og ég vissi að Valtýr var ekki síst á bak við það. Bjarni sagði að stjórnin hefði ákveð- ið að óska eftir því að ég tæki að mér að verða ritstjóri Morgunblaðs- ins. Ég hrökk náttúrlega dálítið við, en kom þó ekki alveg af fjöllum því Hanna (eiginkona Matthíasar), sem er berdreymin, hafði áður sagt mér að þetta myndi gerast. Samt sagði ég við Bjarna: „Ja, ég er bara ekki næstur í röðinni, Bjarni minn. Ég er hér yngstur á ritstjórninni.“ „Já,“ svaraði Bjarni, „en það er ekki þitt að meta það og það er ekki þitt að ákveða það. Ef þú segir nei verður þess farið á leit við Jóhannes Nordal að hann taki við starfinu.“ Ég fékk að hugleiða málið yfir nótt en fór svo niður á blað og sagði já. Ég gat ekki hugsað mér að ut- anaðkomandi maður tæki við rit- stjórn þess. Þau rök vissu hins veg- ar ekki vinir mínir og starfsfélagar á ritstjórninni, sem eflaust, og jafn- vel í sumum tilvikum réttilega, töldu sig standa stöðunni nær en ég. Jó- hannes Nordal er auðvitað hinn Í stríði orðsins Ljósmynd/Þorvaldur Örn Kristmundsson Matthías Johannessen Handhafi blaðamannaskírteinis númer 5. Bókarkafli | Í viðtölum við handhafa blaðamannaskírteina 1 til 10 í bókinni Íslenskir blaða- menn, sem Blaðamannafélag Íslands gefur út í tilefni 110 ára afmælis félagsins, líta nokkrir blaðamenn um öxl með reyndum félögum og freista þess að draga upp mynd af blaða- mennskunni á seinni hluta 20. aldar. Þessir 10 þrautreyndu blaðamenn, sem allir hafa átt stóran þátt í að móta íslenska fjölmiðlasögu, varpa ljósi á starfsskilyrði, vinnubrögð, blaða- mennsku og fjölmiðlaþróun almennt og segja jafnframt frá minnisstæðum samstarfsmönnum. merkasti maður og við erum perlu- vinir. Það hefði verið sómi og heiður fyrir Morgunblaðið að fá hann sem ritstjóra. En sem blaðamaður á rit- stjórninni taldi ég annað nauðsyn- legt. Þar fyrir utan er ekki það sama að vera bankastjóri og rit- stjóri.“ Hvernig hefur fréttamatið breyst gegnum tíðina í stærstu dráttum, finnst þér? „Póstmódernisminn hefur flatt allt út, eins og þú veist. Faglegar, að ekki sé minnst á fagurfræðilegar, kröfur eru mun minni en fyrir póst- módernismann. Etísk eða siðferð- isleg afstaða hefur útvatnast. Hart gæðamat er nánast horfið. Pópúl- arismi og vinsældastreð hafa tekið við. Meira eða minna allt er lagt að jöfnu. Tómas Guðmundsson er að vísu ekki Tólfti September, ekki enn. En bilið milli þeirra hefur minnkað með lágkúrulegri tíð- aranda. Estetík hefur hrakað eins og þú veist. Og hvað eru fjölmiðlar annað en tíðarandinn?“ Fyrr á tíð var margt sem var bannað að skrifa um en þykir sjálf- sagt núna og annað sem þótti sjálf- sagt þá en væri út í hött að birta núna. „Já. Og nauðsynlegt að fjölmiðl- arnir spegli breytt samfélag að þessu leyti. En ekki er sama hvern- ig það er gert.“ Í Eintali á alneti stendur: „Kyrr- staða er allri fjölmiðlun öndverð. Dagblað er einsog allt sem er í tengslum við lífið sjálft; hreyfing og viðbrögð.“ Og síðar: „… gott dag- blað er mikilvægur vitnisburður um tilfinningar og hugmyndir, hug- sjónir og háþróaða tæknikunnáttu þeirra sem við það starfa. Blað á ekki að vera kærleiksheimili heldur áminning, stríð. En það á að vera stríð orðsins, þess sem byggir upp en leggur ekki í rúst.“ Úr viðtali Ásgeirs Tómassonar við Jónas Kristjánsson Samkvæmt þessu má ályktasem svo að árin eftir aðDagblaðinu og Vísi varsteypt í eitt hafi verið Jón- asi Kristjánssyni hin ánægjuleg- ustu og eftirminnilegustu á ferl- inum. Einkum þegar litið er til þeirra burða sem fjölmenn rit- stjórnin hafði til að stunda öfluga og gagnrýna blaðamennsku. Hann hugsar sig dálítið um og segir svo: „Ja, já, það má kannski segja að á tíunda áratugnum hafi fjölmiðl- unin sem við stunduðum verið orð- in nokkuð lík nútímanum. Við skul- um segja að þá hafi náðst það plan sem nú er í gangi í prentfjöl- miðlum. Ég er ekki alveg eins dómbær á ljósvakann. Þarna held ég að við höfum náð á þá syllu í líf- inu sem var ekkert ólík því sem var í útlöndum. Við vitum auðvitað að í útlöndum eru til prentmiðlar sem hafa meiri burði en við og leggja meiri peninga til vinnunnar sem þarf að inna af hendi. En mið- að við meðaltalið held ég að ís- lenskir fjölmiðlar hafi á flestum sviðum verið nokkuð nálægt því sem þekktist annars staðar. Við vorum að minnsta kosti ekki skammarlega aftarlega. Þar má sérstaklega nefna rannsóknarvinn- una sem við komum inn á áðan. Við gerðum það eins og erlendir fjölmiðlar að leggja vinnu og pen- inga í hana. Við gættum þess að halda í góða siði. Að lúta ekki ann- arlegum hagsmunum úti í bæ. Þetta var orðið nokkuð þroskað í þá daga og hefur svo sem ekki bil- að neitt síðan. Með þessum ann- arlegu sjónarmiðum er ég að tala um að eitthvað sé unnið á blaði með tilliti til annarra sjónarmiða en notendanna. Þá detta manni í fyrsta lagi í hug stjórnmál, í öðru lagi eigendur og í þriðja lagi aug- lýsendur. Það eru einkum þeir sem gætu komið fram með annarleg sjónarmið. Og maður sér það svo sem af og til í fjölmiðlum að sjón- armið eigendanna skipta einhverju máli. Ákveðin sjónarmið auglýs- enda geta líka skipt máli í ein- hverjum sérútgáfum. Þannig hefur staðan svosem ekkert batnað frá síðasta áratug. Það er sífelld bar- átta við þessi þrjú annarlegu sjón- armið. Og ég held að við höfum náð þá þegar, ja, ekki lakari ár- angri en við sjáum núna í fjölmiðl- unum.“ Í vítahring fjármálavafsturs Jónas stýrði DV fram til áramót- anna 2001-2002. Þá var honum sagt upp störfum. „Þegar þetta gerðist var búið að selja blaðið,“ segir hann. „Það lenti í, – tja, hvað skal segja – í vítahring fjár- málavafsturs sem þá var í gangi í þjóðfélaginu. Það fóru miklir fjár- munir út úr fyrirtækinu til þess að stofna til ýmissa nýjunga. Það voru til dæmis lagðir peningar í Haf- skip, í Arnarflug og svo síðar í Orca sem ætlaði að kaupa banka. Það runnu sem sagt út peningar í ýmsa atvinnustarfsemi sem ekki gekk upp. Afleiðingin varð fjár- svelti hjá DV. Áður en til tap- rekstrar kom af þessum völdum var fyrirtækið selt á rúman millj- arð króna, en þá var hagnaður af rekstrinum orðinn óverulegur. Þetta gerðist árið 2001 og hinir nýju eigendur vildu ekki að ég yrði ritstjóri áfram. Eftir að ég fór var ritstjórnarstefnunni breytt og hún færð nær því sem Morgunblaðið hefur alltaf stundað öðrum þræði. Það er að skammta efni ofan í fólk með tilliti til einhverra annarra sjónarmiða en notendanna. Þetta hefur verið einn þráður af mörgum í lífi Moggans, svona með öðru. Hið sama gerðist með DV undir nýju eigendunum. Það var farið að velja inn fréttir með öðrum sjónarmiðum en þeim sem höfðu notendurna að leiðarljósi. Vinsældir blaðsins hrundu fljótlega, áskrifendum fækkaði og það fór að tapa pen- ingum. Á einu ári varð það gjald- Bestu árin Ljósmynd/Þorvaldur Örn Kristmundsson Jónas Kristjánsson Handhafi blaðamannaskírteinis númer 7.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.