Morgunblaðið - 16.12.2007, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Það þýðir ekkert að spyrja frú, það sést ekkert lengur, þau koma bara orðið í svart-hvítu.
VEÐUR
Grundvallarþáttur í þjóð-málastefnu Sjálfstæðisflokks-
ins er stuðningur við einkaframtak
í atvinnulífi. Gundvallarþáttur í
lífsviðhorfi einkaframtaksmanna er
að þeir eru tilbúnir að taka áhættu.
Það réttlætir á stundum mikinn
hagnað en um leið verða hinir sömu
að vera tilbúnir að taka tapi.
Rök útgerð-armanna fyr-
ir ofsagróða af
sölu réttinda til
að nýta auðlind,
sem er í þjóð-
areign lögum
samkvæmt, er sú
að þeir taki svo
mikla áhættu.
Nú árar illa viðsjávarsíðuna, fyrst og fremst
þó í þorskveiðum.
Þá kemur í ljós að mennirnir, semhafa verið tilbúnir að taka við
ofsagróða vegna sölu á veiðiheim-
ildum, kannast ekkert við það að
þeir þurfi stundum að taka á sig
tap. Og hvað gera þeir?
Þeir hlaupa undir pilsfald Arn-bjargar Sveinsdóttur, þing-
manns Sjálfstæðisflokks og for-
manns sjávarútvegs- og
landbúnaðarnefndar Alþingis.
Arnbjörg er auðvitað búin aðgleyma grundvallarþáttum í
stefnu þess flokks sem hún situr á
Alþingi fyrir og beitir sér fyrir sér-
tækum aðgerðum í þágu útgerð-
armanna en gegn hagsmunum al-
mennings í landinu.
Það má ekki á milli sjá á hvorumeigi að taka minna mark, út-
gerðarmönnum, sem hlaupa í skjól
Arnbjargar þegar harðnar á daln-
um, eða þingmönnum Sjálfstæð-
isflokks og Samfylkingar, sem bera
ábyrgð á því að Alþingi hundsar
hagsmuni almennings.
STAKSTEINAR
Arnbjörg
Sveinsdóttir
Undir pilsfald Arnbjargar!
SIGMUND
!
"
#$
%&'
( )
* (!
+ ,-
. / 0
+ -
12
1
3
4
2-2
* -
5 1
%
6!
(78
9 4 $ (
!""!
"
:
3'45;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@).?
# $# # #$
# #
# #
#
#
*$BCD %%
!
"#
$
*!
$$
B *!
&' (%
%'%
)
<2
<! <2
<! <2
&( "!%*
"+
,%-!".
C -
87 %"
&
'
6
2
(
"
)*
+ ,+
!
-
B
%"
.-
/
!'
" /0!! %%11
"!%%2
%*
"+
%3
#%
"% #% # Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Jenný Anna Baldursdóttir | 15. des.
Aflið fjársvelt
Ég bið ykkur að gefa
gaum færslu sem má
lesa inni hjá Jens Guð
um systursamtök Stíga-
móta, Aflið en samtökin
eru í fjársvelti.
Samtök eins og
Stígamót og Aflið eru lífgjafi fjölda þol-
enda kynferðislegs ofbeldis og þar fyr-
ir utan veit ég að samtök eins og
Stígamót vinna að fræðslu bæði fyrir
faghópa sem og almenning. Það er
líka ómetanlegt starf.
Þetta verður aldrei fullþakkað.
Meira: jenfo.blog.is
Kristján B. Jónasson | 14. desember
Sjónarmið eilífðar
Skemmtileg lesning,
ekki síst fyrir þá sem
eru nú að berja bumbur
neyslunnar. Opinberar
þá skemmtilegu þver-
stæðu að bókaskrif og
bókaútgáfa eru í stöð-
ugu reiptogi. Allt frá því prentverkið
varð til og bækur urðu fyrsta staðlaða
og fjöldaframleidda varan sem seld
var viðskiptavinum á markaði hefur
þessi markaðsdrifni áll í bókafljótinu
dregið til sín skáldastráin. Þau veita
síðan viðspyrnu, mismikla …
Meira: kristjanb.blog.is
Ómar Ragnarsson | 15. desember
Söngvarar í sérflokki
Var að hlusta á þátt ein-
hverrar bestu útvarps-
konu okkar, Lönu Kol-
brúnar Eddudóttur, þar
sem raddir systkinanna
Ellýjar og Vilhjálms Vil-
hjálmssonar, hljómuðu.
Vilhjálmur var svo músíkalskur að ég
minnist vart annars eins. Þetta skil-
aði sér í söngnum svo af bar. Að heyra
það til dæmis hvernig hann syngur
lagið „Lítill fugl“. Þau systkinin voru í
sérflokki við það að syngja hárfínt ör-
lítið til hliðar við taktinn.
Meira: omarragnarsson.blog.is
Herdís Sigurjónsdóttir | 15. des. 2007
Persónuleg ábyrgð
hvers og eins
Það er gott að vera loks-
ins að eignast líf og
hafa aftur tækifæri til
að fylgjast með málum
eins og loftslags-
ráðstefnunni á Balí. Það
er greinilegt að enn
greinir menn á um áherslur og leiðir til
að draga úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda.
Ég fór annars sjálf í smá naflaskoð-
un í siðfræðiverkefni í haust og velti
fyrir mér bíladellu fjölskyldunnar. Við
Rituhöfðafjölskyldan tókum þátt í Vist-
vernd í verki fyrir mörgum árum og
lærðum ýmislegt nýtilegt sem við höf-
um lifað eftir varðandi orkunýtingu og
umhverfisvernd. Þá kom þetta með of-
notkun bílsins í ljós, en við höfum
samt ekki unnið markvisst að því að
bæta okkur fyrr en nú. Með því að
keyra hægar og jafnara, leggja fyrr af
stað í skólann, að nýta ferðirnar betur
og ýmislegt annað hefur tekist að
draga úr notkun einkabílsins um 19%
á síðustu tveimur mánuðum. Við erum
ekkert hætt og hver veit nema maður
fari bara að nýta almenningsvagnana
eftir áramótin og ganga meira.
Að mínu mati getum við ekki sleppt
því að líta okkur nær. Velta fyrir okkur
hvað við getum gert hvert og eitt til að
draga úr notkun náttúruauðlinda og
mengun umhverfisins. Tökum ábyrgð
á gjörðum okkar því staðreyndin er sú
að áhrifa gætir ekki bara staðbundið í
kringum okkur heldur um allan heim.
Meira: herdis.blog.is
BLOG.IS
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir | 15. des.
Hætta á sjávarflóðum
Dr. Haraldur Ólafsson ræddi í útvarp-
inu í gær um hættu á
sjávarflóðum vegna
loftslagsbreytinga.
Nefndi hann sér-
staklega Seltjarn-
arnesið sem dæmi en
þar varð á sínum tíma
hið mikla Básendaflóð. Það var
ánægjulegt að heyra að Haraldur við-
urkennir veruleika loftslagsbreytinga,
og er ekki að taka undir efasemda-
raddir olíufélaganna sem eiga að
sjálfsögðu hagsmuna að gæta. Ekki
taldi Haraldur skynsamlegt að byggja
mikið á landfyllingum úti í sjó.
Meira: ingibjorgelsa.blog.is
Íslamabad. AFP, AP. | Pervez
Musharraf, forseti Pakistans, aflétti
í gær sex vikna gömlum neyðarlög-
um eftir að hafa breytt stjórnarskrá
landsins til að styrkja stöðu sína
gagnvart dómstólunum og þingi sem
kosið verður 8. janúar.
Nisar Memon, upplýsingaráð-
herra Pakistans, sagði að stjórnar-
skrá landsins hefði þar með öðlast
gildi að nýju. Hann lýsti þessu sem
„sögulegum degi“ og sagði að þing-
kosningarnar myndu treysta lýð-
ræðið í sessi í landinu.
Stjórnmálaskýrendur sögðu að sú
ákvörðun Musharrafs að afnema
neyðarlögin aðeins þremur vikum
fyrir þingkosningar myndi að öllum
líkindum ekki duga til að draga úr
þeirri hörðu gagnrýni sem forsetinn
hefur sætt síðustu mánuði.
Musharraf setti neyðarlögin 3.
nóvember, afnam þá einnig stjórn-
arskrána, vék hæstarréttardómur-
um frá og skerti frelsi fjölmiðla. Lög-
reglan handtók þúsundir
andstæðinga forsetans.
Musharraf kvaðst hafa sett neyð-
arlögin í því skyni að hindra „sam-
særi“ hæstaréttardómara, sem
hefðu ætlað að binda enda á átta ára
valdatíma hans, og til að afstýra póli-
tískri ringulreið sem hefði torveldað
baráttu pakistanskra yfirvalda gegn
íslömskum öfgasamtökum. Hann
hélt því einnig fram að hæstirétt-
urinn, sem átti að skera úr um hvort
endurkjör forsetans á þingi sam-
ræmdist lögum, hefði tekið sér meira
vald en dómstólnum bæri skv.
stjórnarskránni. Daginn áður en
Musharraf aflétti neyðarlögunum
heimilaði hann nokkrar breytingar á
stjórnarskránni, m.a. til að hindra að
þingið eða dómstólar gætu úrskurð-
að að neyðarlögin væru brot á
stjórnarskránni. Breytingarnar
virðast renna stoðum undir það álit
margra lögspekinga að lagalegur
grundvöllur aðgerða forsetans hafi
verið veikur.
Neyðarlög af-
numin í Pakistan
Reuters
Umdeildur Stuðningsmenn Mus-
harrafs halda á mynd af honum.