Morgunblaðið - 16.12.2007, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 57
11. GREIN stjórnsýslulaga
skyldar stjórnvöld til þess að
„gæta samræmis og jafnræðis“ við
úrlausn mála. Samkvæmt sömu
grein er stjórnvaldi
óheimilt að mismuna
aðilum vegna stjórn-
málaskoðana, trúar-
bragða, kynferðis eða
þjóðfélagsstöðu. Þetta
er svokölluð jafnræð-
isregla – af ýmsum
talin eitt helgasta
ákvæði íslenskra laga
þar sem því er ætlað
að tryggja að allir
standi jafnfætis gagn-
vart stjórnvöldum.
Halldór Hall-
dórsson, bæjarstjóri í
Ísafjarðarbæ, hefur líklega ekki
munað þetta ákvæði þegar hann í
nýlegu útvarpsviðtali upplýsti um
raunverulegar ástæður þess að
Ísafjarðarbær hefur synjað frétta-
vefnum skutull.is jafnræðis við
annan vestfirskan vefmiðil.
„Í mínum huga, er Skutull fyrst
og fremst pólitískur vefmiðill …
Skutull hefur ekkert sýnt það –
ekki fyrir mér að minnsta kosti –
að það sé einhver óháður frétta-
miðill. Þetta er fyrst og fremst
pólitískur miðill sem vinnur fyrir
Í-listann hér í bæjarstjórn,“ sagði
bæjarstjórinn.
Með þessum orðum veitist bæj-
arstjórinn á Ísafirði að trúverð-
ugleika nýstofnaðs fréttamiðils
sem hefur yfirlýsta stefnu um fag-
lega og óthlutdræga frétta-
mennsku. Framtíð fréttasíðunnar
og rekstrargrundvöllur byggist
ekki hvað síst á því að þeim trú-
verðugleika sé ekki ógnað. Um er
að ræða vefmiðil sem er stofnaður
í því skyni að efla umfjöllun um
vestfirsk málefni og fjölga val-
kostum í fréttamiðlun hér á svæð-
inu. Ég fullyrði að þeir sem að
vefnum standa ástunda vönduð og
óhlutdræg vinnubrögð, enda hefur
ekki verið sýnt fram á annað.
Það er alvarlegt mál þegar
stjórnvald beinlínis bregður fæti
fyrir þá sem eru að koma undir
sig fótum á einhverju sviði at-
vinnulífs. Enn alvarlegra er þegar
stjórnvald gerir slíkt á grundvelli
stjórnmálaskoðana þeirra sem að
slíkum fyrirtækjum standa.
Tilefni þessara orðaskipta er
það að nýlega sendi skutull.is Ísa-
fjarðarbæ erindi þar sem vefmið-
illinn var kynntur bæjaryf-
irvöldum og þess óskað að hann
hlyti sama rými á heimasíðu bæj-
arins og bb.is hefur nú þegar.
Ennfremur var þess óskað að
skutull.is fengi að sitja við sama
borð og bb.is varðandi auglýsingar
og fjárstyrki en bb.is er með beina
RSS-veitu inn á heimasíðu Ísa-
fjarðarbæjar og fær greitt fyrir.
Líklega er einsdæmi að fjölmiðill
fái greiðslu frá stjórnvaldi fyrir að
auglýsa sjálfan sig á heimasíðu
þess. En hjá Ísafjarðarbæ heitir
þetta víst „þjónusta“
og bb.is er eitt um þá
hitu. Á móti hefur
bæjarstjórinn fengið
sérstakan flýtihnapp
á bb.is sem tengir les-
endur beint inn á
hans persónulegu
bloggsíðu. Er mér
ekki kunnugt um að
nokkur stjórn-
málamaður fái aðra
eins þjónustu hjá
„óháðum“ fréttamiðli.
Nú hefur einnig
komið í ljós að bb.is
er eini vefmiðillinn hér á svæðinu
sem er í viðskiptum við Ísafjarð-
arbæ. Til blaðsins sem heldur
vefnum úti, útgefanda þess og vef-
síðunnar hafa runnið 4,2 mkr á
undanförnum 22 mánuðum. Það er
um fjórðungur alls þess sem bær-
inn greiðir fyrir fjölmiðlaþjónustu
157 aðila sem samanlagt hafa
fengið um 16 mkr á sama tíma.
„Einhver“ jafnræðisregla
Bæjarstjóri gefur lítið fyrir
„einverja jafnræðisreglu“ sem
hann rámar í að vísað hafi verið til
fyrir hönd vefmiðilsins skutull.is.
„Það hlýtur bara að vera þannig
að sveitarfélög geti valið sér sam-
starfsaðila“ segir hann. Síðan bæt-
ir hann um betur og líkir stofnun
skutuls.is við það ef Geir Haarde
hefði verið falið að opna vefsíðuna
vesturland.is og síðan hefðu sjálf-
stæðismenn (?) sent erindi til bæj-
arins „og krafist þess að fá sömu
fjárhæðir og sömu auglýsingar og
bb.is“.
Ekki veit ég til þess að nokkur
stjórnmálaflokkur hafi sent Ísa-
fjarðarbæ erindi varðandi vefsíð-
una skutull.is. Það gerði ég hins
vegar sem aðstandandi síðunnar.
Mér kemur ekkert við hvað Hall-
dór Halldórsson á vantalað við
stjórnmálaflokkana. Það kemur
bæjarstjóra heldur ekkert við
hvort ég spila bridds, sæki kirkju
eða kýs Í-listann. Skutull.is á skil-
ið málsmeðferð sem tekur mið af
því hvað hann er: Hann er frétta-
miðill ekki stjórnmálaflokkur.
Nafn vefjarins fer fyrir brjóstið
á bæjarstjóranum þar sem blaðið
Skutull var eitt sinn málgagn Al-
þýðuflokksins á Ísafirði. Sá flokk-
ur er ekki lengur til. Þá ergir það
bæjarstjóra að utanríkisráðherra
skuli hafa, á ferð sinni um Ísfjörð,
gefið sér tíma meðfram öðrum er-
indum til að samfagna okkur og
opna fréttasíðuna. Það gerði ráð-
herrann sem fulltrúi þeirra stjórn-
valda sem lögum samkvæmt
standa vörð um málfrelsi og lýð-
réttindi í landinu.
Bæjarstjórinn klykkir út með
því að skutull.is starfi undir fölsk-
um formerkjum. Þau ummæli eru
grafalvarlegt mál. Þar með dregur
hann nýstofnaðan vefmiðil með
ósmekklegum hætti inn í pólitískt
argaþras og atar hann auri með
meiningum sínum um þá sem að
vefnum standa. Halldór Hall-
dórsson bæjarstjóri er þess ekki
umkominn að efast um heilindi
eða fagmennsku þeirra sem vinna
fyrir fréttavefinn skutull.is – enda
hefur hann engin dæmi máli sínu
til sönnunar. Aðeins dylgjur og
illa ígrundaðar meiningar. Sá mál-
flutningur er honum til vansa.
Þjónið mér og þér skuluð
mikils njóta
Ólína Þorvarðardóttir skrifar
um ummæli bæjarstjóra Ísa-
fjarðar um vefmiðilinn skut-
ull.is
» Það er alvarlegt þeg-ar stjórnvald bregð-
ur fæti fyrir þá sem eru
að koma undir sig fótum
á einhverju sviði at-
vinnulífs, vegna stjórn-
málaskoðana þeirra.
Ólína Þorvarðardóttir
Höfundur er einn aðstandenda
fréttamiðilsins skutull.is
Glæsilegasta verslunarhúsnæðið í Glæsibæ. Nettó stærð 275 m2 en með sameign ca.
350 m2. Mikið auglýsingagildi. Sjáanlegt frá umferðinni. Stórir gluggar, tvöföld hurð
auk 3ja innganga. Laust strax. Glæsilegt bílageymsluhús.
Brátt verða nýju húsin tekin í notkun. Verð: 125 millj.
Upplýsingar veita Dan Wiium s.896-4013 og Kristinn Ingi s.893-1041.
jöreign ehf
GLÆSIBÆR - NÝJASTA KRINGLAN
M
bl
.9
48
09
1
Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013
ÁRBORG - LAND VIÐ SELFOSS
áhugavert fyrir fjárfesta/verktaka
Um er að ræða 43,7 ha. kjörið byggingarland við núverandi íbúðabyggð á
Selfossi. Landið er mjög vel staðsett og liggur að Bjarkarlandi, sem er
framtíðar byggingarland sveitarfélagsins. Skapandi fjárfesting! Land sem
eykur verðgildi sitt. Verð 250 millj. kr.
Óseyrarbraut Hafnarfirði
Bæjarhraun Hafnarfirði
Skúlagata 17 • 101 Reykjavík • Sími 566 8800 •
vidskiptahusid@vidskiptahusid.is • www.vidskiptahusid.is
M
bl
9
49
38
4
Til sölu um 3600 m2 lóð ásamt byggingum, samtals um 3400 m2.
Góð staðsetning. Miklir möguleikar.
Nánar upplýsingar veitir Jón Sigfús í síma 566-8818 og 893-3003.
Vorum að fá í sölu gott skrifstofuhúsnæði á 2. hæð, auk rýmis í risi, alls um
455 m2. Gott ástand. Góð aðkoma og bílastæði.
Nánari upplýsingar veitir Jón Sigfús í síma 566-8818 og 893-3003.
Fjarðargata Hafnarfirði
Höfum til sölumeðferðar í góðu lyftuhúsi í Miðbæ Hafnarfjaraðar:
Mjög gott atvinnuhúsnæði, um 320 m2 á 7. hæð. Um er að ræða eitt rými
að mestu, nýtist sem salur fyrir veitingarekstur eða sem skrifstofu- eða
vinnurými fyrir teiknistofu eða þess háttar. Einstakt útsýni til allra átta. Í
sama húsi á 5. hæð, um 380 m2 og á 6. hæð, um 375 m2. Gott skipulag og
gott ástand. Þá er einnig til sölu á jarðhæð í sama húsi um
35 m2 verslunarrými sem nú er notað sem snyrtistofa.
Nánari upplýsingar veitir Jón Sigfús í síma 566-8818 og 893-3003.
smáauglýsingar
mbl.is
Fréttir í
tölvupósti
Fréttir í tölvupósti