Morgunblaðið - 16.12.2007, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 63
✝ Sveinbjörn Hall-grímsson Jó-
hannsson var fædd-
ur á Norðfirði 21.6.
1921. Hann lést 26.
nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru hjónin Jóhann
Sveinbjörnsson, f. í
Mjóafirði 12.4. 1891,
d. 1972 og Guðrún
Sveinbjörnsdóttir, f.
á Norðfirði 17.2.
1895, d. 1930. Systk-
ini hans voru Svein-
björg Þóra, Guðjón
og Anna og eru þau öll látin.
Dóttir Sveinbjörns og Sigríðar
Jónasdóttur frá Vetleifsholti í
Rangárvallasýslu er Melkorka
Sveinbjörnsdóttir fædd 4.1. 1945,
maki Ingvi B. Jónsson fæddur 22.9.
1943. Börn þeirra eru 1) Sigríður
gift Oddi Sigfússyni og eiga þau 2
drengi. 2) María Emelía gift Krist-
jáni Sigmundssyni, eiga þau 3
börn. 3) Kjartan Orri í sambúð
með Gunndísi Finnbogadóttur. 4)
Kjartanssyni og eiga þau 2 drengi,
fyrir átti Ragna 1 son og Knútur 1
dóttur. b.) Aðalheiður er í sambúð
með Brynjólfi Gíslasyni og eiga
þau 1 son. Sambýliskona Gunnars
Berg er Sesselja Ólafsdóttir og á
hún fyrir 3 börn og 8 barnabörn.
Sveinbjörn missti móður sína 9
ára gamall. 11 ára fór hann í fóstur
að Parti í Sandvík og vann þar fyr-
ir sér framundir tvítugt. Hann átti
ekki kost á lærdómi utan far-
skólanámi þótt góðir hæfileikar og
vilji væri fyrir hendi. Sveinbjörn
fluttist suður á land um tvítugt,
vann um tíma við sveitastörf í Flóa
og á Vetleifsstöðum í Rangárvalla-
sýslu. Síðan fór hann til Reykjavík-
ur og vann þau störf sem til féllust,
gerði út trillubát um árabil með
öðrum manni. Vann síðan lengi hjá
verktakafyrirtækinu Ok og lærði
þá á námskeiði til verkstjórarétt-
inda. Mörg síðustu starfsárin vann
hann á verkstæðinu Selkó í Kópa-
vogi til 72 ára aldurs. Sveinbjörn
var hörkuduglegur að hverju sem
hann gekk og eftirsóttur verkmað-
ur. Eftir starfslok var hann um
árabil mjög virkur í starfsemi
eldriborgara í Kópavogi og söng í
kirkjukór Digraneskirkju meðan
heilsan leyfði.
Útför hans fór fram í kyrrþey að
ósk hans.
Elva Hrund, hún á
eina dóttur.
Sveinbjörn var í
sambúð í 15 ár með
Steinunni Bjarna-
dóttur frá Bollastöð-
um í Blöndudal, látin.
Sonur þeirra er Jón
Gestur f. 4.5. 1948,
kvæntur Sigurást
Karlsdóttur frá
Borgarnesi, dóttir
þeirra er Rósika.
Fyrir átti Gestur 3
börn, Björgvin, Vil-
hjálm og Halldóru
Steinunni. Björgvin er kvæntur Ír-
isi Björgu Jónsdóttur og eiga þau 3
börn. Halldóra Steinunn á 4 börn.
Dóttir Steinunnar er Sjöfn Ólafs-
dóttir.
Sveinbjörn kvæntist 7 7. 1966
Rögnu Sigríði Gunnarsdóttur.
Sonur hennar er Gunnar Berg, var
kvæntur Elínu Egilsdóttur og eiga
þau dæturnar Rögnu Berg og
Aðalheiði Margréti. a.) Ragna
Berg er í sambúð með Knúti
Elsku afi.
Ég minnist þess alltaf hve gott var
koma í heimsókn, að taka um stórar,
hlýjar hendur þínar og hversu mjúkt
faðmlagið var. Það var svo auðvelt
sem barn að fá þig með í leik. Þú
varðveittir barnið í sjálfum þér svo
vel og ég vona að ég geti tekið þá
yndislegu eiginleika með mér áfram
í lífinu. Í minningunni sitja eftir fal-
leg orð þegar þú sagðir að það hefði
ekkert verið sjálfgefið að hafa
kynnst mömmu og pabba og hversu
glaður þú varst að ykkur varð vel til
vina. Að sama skapi þakka ég Guði
fyrir þau forréttindi að hafa fengið
að kynnast þér og eyða með þér fal-
legum dögum. Myndin í huganum
verður afi í dyrunum að vinka bless.
Vordagsins þróttur vetrarmyrkri kvíðir,
vonar til lífs og miðar allt við það,
fórnar því hönd og huga, stund og stað,
í sterkri trú á dýrðleg laun um síðir:
indælar hvíldir eftir daginn langan,
órofa frið í kvöldsins þögn og angan.
(Guðmundur Böðvarsson.)
Bless afi, þangað til næst.
Kjartan Orri.
Nú er afi minn í kjalló dáinn. Við
systurnar kölluðum afa og ömmu í
Fífuhvammi alltaf afa og ömmu í
kjalló vegna þess að við bjuggum í
sama húsi og þau þegar við vorum
litlar, við í risinu og þau í kjallaran-
um. Þannig að alltaf var stutt fyrir
okkur að fara til afa og ömmu. Þótt
við flyttum í Hveragerði hélst sam-
gangurinn áfram þó svo að við sæj-
um þau ekki daglega. Við vorum allt-
af hjá afa og ömmu á aðfanga-
dagskvöld og eftir að ég fór að búa
voru þau oftast hjá mér. Þegar ég
flutti úr risinu flutti ég ekki langt,
samgangurinn hélst áfram. Annað-
hvort komu þau til mín eða ég til
þeirra og yfirleitt var tekinn slagur.
Stundum var afi einn á ferð og kom
þá við í kaffi og spjall eða til að fá
klippingu. Við spjölluðum um allt
milli himins og jarðar og hann sagði
mér margt um sín uppvaxtarár sem
voru ekki alltaf auðveld.
Afi og amma voru mjög samrýmd
og erfitt er að skrifa um afa án þess
að minnast líka á ömmu. Þau ferð-
uðust mikið um landið og fóru í veiði-
túra. Frá því að ég man eftir mér
fórum við að Hítarvatni á hverju ári,
stórfjölskyldan saman ásamt góðu
vinafólki. Á kvöldin fór svo fullorðna
fólkið að spila og við krakkarnir lág-
um upp í kojum og horfðum á. Afi
var frábær spilamaður það var svo
gaman að spila við hann og ég tala
nú ekki um ef maður vann, þá var
sko gaman, það var ekki á hverjum
degi sem maður vann aðalspila-
manninn.
Síðustu árin var afi hættur að
keyra mikið út á land en keyrði þó
um allt innanbæjar. Afi og amma
ferðuðust með mér og strákunum
mínum síðustu árin og eigum við
margar góðar minningar frá þessum
ferðum sem voru mjög skemmtileg-
ar. Afi var alltaf svo sterkur maður
og veigraði sér ekki við að gera hlut-
ina, hvort sem það var að tjakka upp
fellihýsið eða bera þunga matar-
kassa þótt að hann væri með slitinn
vöðva í handleggnum. Í sumar fór-
um við í frábæra ferð, þá var Alla
systir líka með og að sjálfsögðu var
mikið spilað og sungið, en afi var
mikill söngmaður og var í ýmsum
kórum í gegnum tíðina. Við vorum
alltaf að syngja og oft þegar við Alla
komum heim til þeirra sungum við
saman og höfðum gaman af.
Þegar ég hugsa til baka finnst
mér eins og það hafi alltaf verið sól
þar sem við vorum að ferðast. Ég
veit ekki hvort við vorum svona
heppin að vera þar sem sólin var eða
hvort það var bara svona gaman hjá
okkur og mér fannst alltaf vera sól.
Ég á mjög erfitt með að hugsa um
næsta aðfangadag þar sem afi verð-
ur ekki með okkur. Einnig verður
skrítið að fara að ferðast næsta sum-
ar og hafa ekki afa í framsætinu hjá
mér og syngja. Og hlusta ekki á
ömmu og afa tala um hvað hinn og
þessi hóll heitir og hver er frá hvaða
bæ. Ég hef lært margt um landið á
ferðalögunum okkar.
Mér finnst ég mjög heppin að hafa
átt svona góðan og skemmtilegan
afa því það eru ekki allir sem eiga
afa, og hvað þá langafa eins og synir
mínir, þeir Gunnar Geir, Sveinbjörn
Berg og Kristján Björn, hafa átt. Við
erum svo heppin að hafa haft tæki-
færi til þess að vera svona mikið með
afa okkar. Ég og mín fjölskylda biðj-
um guð að geyma þig elsku amma.
Elsku Melkorka, Gestur, pabbi og
aðrir aðstandendur, megi guð vera
með ykkur á erfiðri stund.
Elsku besti afi minn, góða nótt.
Kveðja,
Ragna Berg Gunnarsdóttir.
Sveinbjörn Hallgríms-
son Jóhannsson
Hjartans þökk fyrir vináttu
þína, umhyggjusemi og um-
burðarlyndi.
Ástarkveðja frá eiginkon-
unni
Rögnu S. Gunnarsdóttur.
HINSTA KVEÐJA
! "# $!% & '
(!!%
! $)
(!!*% !! +! (
(!!*% , ( '$
(!!*% - $ .! $
(!!*% / 0
(!!*% 0 1 !
(!!*% ✝
Elskulegur föðurbróðir minn,
TÓMAS BERNHARÐSSON,
Sóltúni 2,
Reykjavík,
lést á heimili sínu, hjúkrunarheimilinu Sóltúni,
þriðjudaginn 11. desember.
Útförin fer fram frá litlu kapellunni í Fossvogi
miðvikudaginn 19. desember kl. 13.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Halla Kristín Þorsteinsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, bróðir, mágur og frændi,
JÓN KR. KRISTINSSON,
Hvannavöllum 6,
Akureyri,
andaðist á Sjúkrahúsinu á Akureyri miðvikudaginn
12. desember.
Útförin verður gerð frá Akureyrarkirkju fimmtu-
daginn 20. desember kl. 13:30.
Jónína Helgadóttir,
Jóhannes Gíslason, Ásgerður Lilja Hólm
og systkinabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn,
CRAIG LAMAR WILLIAMS,
varð bráðkvaddur í Orlando, Florida, föstudaginn
23. nóvember.
Bálför hefur farið fram.
Hjartans þakkir til allra sem hafa stutt mig og
hjálpað mér.
Sigrún I. Benediktsdóttir
(Inga Sigrún).
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÞÓRUNN ÞÓRÐARDÓTTIR
sjávarlíffræðingur,
Ljósheimum 18 a,
Reykjavík,
lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut
þriðjudaginn 11. desember.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn
17. desember kl. 15:00.
Katrín Didriksen,
Einar Oddsson, Xu Wen,
Elín Þórunn Didriksen,
Oddur Xu Einarsson.
Þegar fréttir af
andláti Bernards
Scudder bárust mér
hingað til London var mín fyrsta
hugsun sú að nú hefði íslensk
menning misst einn af sínum bestu
liðsmönnum fyrr og síðar.
Kynni mín af Bernard hófust fyr-
ir tveimur áratugum en einkum átt-
um við samskipti vegna þýðinga á
íslenskum fornbókmenntum. Bern-
ard talaði svo góða íslensku að hann
Bernard John Scudder
✝ Bernard JohnScudder fæddist
í Kantaraborg í
Englandi 29. ágúst
1954. Hann lést á
gjörgæsludeild
Landspítalans við
Hringbraut 15.
október síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Dómkirkj-
unni 25. október.
var hiklaust einn
besti íslenskumaður
landsins. Hann orti á
ensku, gaf út að
minnsta kosti eina
ljóðabók en lagði sitt
af mörkum með þýð-
ingum á íslenskum
bókmenntum yfir á
ensku. Vald hans á
ensku og íslensku var
einstakt. Þess vegna
voru hinar fjölmörgu
þýðingar hans, hvort
heldur var á íslensk-
um samtímabók-
menntum eða fornbókmenntum,
mikil lyftistöng fyrir íslenskar bók-
menntir á heimsvísu. Hlutverk
hans á þessu sviði verður vandfyllt.
Það var svo einmælt að hann væri
afburðaþýðandi að það var haft á
orði þegar mikið lá við um að vel
tækist til að nú þyrfti að biðja
Bernard.
Ég er ekki viss um að menn átti
sig á því almennt hversu mikið
sjálfstraust hann færði Íslandi og
íslenskri menningu með snilld sinni
og elju. Við áttum samstarf oft en
einkum er mér minnisstæð og hug-
leikin þýðing hans á Völuspá sem er
að mínu mati eitt af hans snilld-
arverkum. Hann hristi það ekki
fram úr erminni og tók sér mörg ár
í að fægja þýðingu sína einsog sjá
má. Völuspá er vandþýdd og hafa
margir spreytt sig en enginn gert
henni skil svo mark sé á fyrr en
Bernard Scudder. Mun það verk
hans eitt standa um aldur.
Maðurinn Bernard Scudder var
einstakur að mörgu leyti, heiðarleg-
ur, umburðarlyndur og réttsýnn.
Hans mun sárt saknað fyrir sakir
mannkosta. Þó mun áfallið sem ís-
lensk menning hefur orðið fyrir
snerta fleiri en fengu að kynnast
honum. Þýðingar Bernards á ís-
lenskum bókmenntum yfir á ensku
og framlag hans til íslenskrar
menningar lýsa mönnum veg og
hvetja til dáða.
Björn Jónasson.