Morgunblaðið - 16.12.2007, Blaðsíða 28
myndlist
28 SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
að var árið 1932 sem
hinn heimsþekkti list-
málari Erró fæddist í
Ólafsvík. Móðir hans
var Soffía Krist-
insdóttir, falleg og glæsileg kona
sem um þær mundir starfaði sem
verkakona. Faðir hans var Guð-
mundur Einarsson, sem kenndi sig
við fæðingarstað sinn Miðdal í Mos-
fellssveit og var þekktur listamaður,
rak m.a. lengi Listmunahúsið við
Skólavörðustíg.
Árið 1936 giftist Soffía Siggeiri
Lárussyni bónda á Kirkjubæjar-
klaustri og þar ólst Guðmundur
Guðmundsson upp í stórbrotnu
landslagi umvafinn kærleiksríkri
fjölskyldu og vann þegar hann hafði
aldur til öll þau störf sem vanalegt
var að sveitadrengir ynnu. Hann
naut ekki aðeins athygli móður og
stjúpföður heldur líka ömmu sinnar
Sigríðar Bjarnadóttur og Guð-
mundu móðursystur sinnar, sem
hann hét raunar í höfuðið á og svo
eignaðist hann systkinin Lárus,
Kristin og Gyðu.
„Siggeir reyndist mér sá besti
faðir sem hægt er að hugsa sér,“
segir Erró sjálfur um stjúpföður
sinn og hið góð atlæti gaf góða raun.
Hinn ungi og upprennandi sveinn
átti eftir að gera garðinn frægan
undir listamannsnafninu Erró og nú
býr hann í París og málar eins og
hann hefur gert frá unga aldri,
löngu orðinn þjóðsögn í lifanda lífi.
Um hann og verk hans var að
koma út bók sem verið hefur lengi í
smíðum. Úr henni eru ofangreinar
upplýsingar teknar m.a. Það er Mál
og menning og Listasafn Reykjavík-
ur sem gefa bókina út og höfund-
urinn er Danielle Kvaran. Þessi bók
er nokkurs konar „krónólógía“ eða
ferilsaga, þar sem lífi Errós og list
er fylgt frá ári til árs og í sumum til-
vikum frá mánuði til mánaðar. Auk
þess er í bókinni mikill fjöldi af
listaverkum Errós í bland við ljós-
myndir úr lífshlaupi hans. Þegar lit-
ið er yfir síðurnar í þessari bók
blasir við óvenjulega skrautlegur
veruleiki mynda og upplifunar. En
hvað segir Erró sjálfur um þessa
vandlegu úttekt á lífi hans og starfi
og hvernig sækjum við að honum?
„Ég er á vinnustofunni minni rétt
eins venja mín er á hverjum degi, ég
byrja að vinna klukkan 7 að morgni
og er að fram á kvöld.
Það er dálítið gaman að þessari
bók. Hugmyndin kom frá Eiríki
Þorlákssyni og Gunnar Kvaran
stakk upp á að kona hans Danielle
skrifaði bókina. Hún hefur staðið
sig vel, sent mér spurningar, stund-
um fimm sinnum á dag. Guðrún
Magnúsdóttir í Eddu er fram-
leiðslustýra. Líba Ásgeirsdóttir hjá
fyrirtækinu Næst hannaði bókina
og Ólöf Eldjárn hefur einnig haft
umsjón með verkinu. Bókin er vel
prentuð, það sé ég á eina eintakinu
sem ég er með – en Danielle Kvaran
er ekki búin að sjá bókina ennþá
veit ég.“
Er búið að skrifa mikið um þig?
„Svona bók hefur held ég aldrei
verið gerð um lifandi listamann það
ég veit. Yfirleitt eru þessar bækur
gerðar eftir lát manna og þá vantar
mikið af upplýsingum sem þeir einir
hefðu getað sagt frá. En eðlilega
hefur margt verið skrifað um mig,
einkum í kringum sýningar víða um
heim.“
Er eitthvert eitt tímabil þér ást-
fólgnara á ferli þínum en annað?
„Nei, ég held að bestu minningar
mínar séu í framtíðinni. Það er búið
sem búið er og framtíðin verður að
verða hið besta,“ segir Erró og
hlær.
„Ég og Danielle munum koma
heim 18. janúar og hinn 19. munum
við árita bókina í Hafnarhúsinu í
Reykjavík. Þá munum við skrifa á
þær bækur sem seljast nú fyrir jól-
in.
Ég gerði grafíkmyndir sem ég
sendi heim fyrir nokkuð löngu og
þær fylgdu nokkrum fjölda þeirra
bóka sem fyrst seldust. Bækurnar
verða númeraðar eins og graf-
íkmyndirnar. Þetta er óvenjulegt en
mér fannst þetta sjálfsagt, það er
búið að hafa svo mikið fyrir þessari
bók. Ég kem og með DVD-disk með
mér með myndum úr bókinni, þær
eru um 800 og þær verða sýndar á
vegg meðan áritunin fer fram.
Ég hefði komið heim ef ekki væri
það að verið er að opna sýningu á
verkum mínum í Peking hinn 12.
desember og þar verð ég að vera.“
Er Kína orðinn stór markaður
fyrir alþjóðleg listaverk?
„Kína er mjög stór markaður fyr-
ir eigin listaverk en ég var þarna
fyrir nokkrum vikum og sá að það
er þarna sett upp hátt verð fyrir
innlendu listamennina. Þetta hefur
verið svona í Bandaríkjunum og víð-
ar og nú er þetta að verða svona í
Kína. Það er mikill áhugi á list í
Kína og stjórnin er að byggja stór-
hýsi undir söfn, það er alveg ný
stefna, það á byggja 300 ný svona
söfn. Ég heimsótti fjögur slík á ferð
minni í Kína fyrir stuttu. Það eru
bæði kínverskir, bandarískir, jap-
anskir og evrópskir arkitektar sem
teikna þessi söfn öll.“
Hefur þú sýnt áður í Kína?
„Þetta er þriðja sýningin á tveim-
ur mánuðum, ein var í nýju safni í
útjaðri Peking og önnur í Sjanghæ-
klúbbnum. Áhugi Kínverja á mérMarilyn Heimboð til Marilyn Monroe og sýningar vina hennar. Ernst Hilger Gallery , Vienna 2003.
Bestu minningarnar í
Erró í tímaröð – líf
hans og list, heitir bók
um íslenska listamann-
inn heimsþekkta og
hefur verið tilnefnd til
bókmenntaverðlauna.
Guðrún Guðlaugs-
dóttir ræddi við Erró
á vinnustofu hans
í París um það sem
hann er að starfa núna.
Yoko Erró og Yoko Ono við opnun sýningar í október 1999.
Fjölskyldumynd Erró með dóttur sinni Tura og móðursystur sinni
og nöfnu Guðmundu S. Kristinsdóttur
Paradís Í Paradís listamannsins, máluð 1964.