Morgunblaðið - 16.12.2007, Síða 10

Morgunblaðið - 16.12.2007, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Þ etta hefur verið svipt- ingasamt ár í lífi Hann- esar Smárasonar, fráfar- andi forstjóra FL Group. Eftirað harðna tók á dalnum á fjármálamörk- uðum lækkaði verðmæti á bréfum í FL Group umtalsvert. Mikið hafði áunnist misserin þar á undan og þegar best lét stóð gengi félagsins í yfir 300 milljörðum króna. Fyrir hlutafjárhækkunina sl. föstudag hafði gengið lækkað um rúman helming og var svipað og í ágúst á síðastliðnu ári, eða um 140 millj- arðar. Gripið var til róttækra að- gerða og úr varð að Baugur Group lagði fram viðbótarhlutafé upp á 54 milljarða og varð þar með kjölfestu- fjárfestir í FL Group, en jafnframt er lagt upp með 13 milljarða hluta- fjáraukningu þar til viðbótar. Eftir hlutafjáraukninguna síðast- liðinn föstudag er Hannes með í beinum eignarhlut tæplega 11% eða 1,5 milljarða hluta af rúmlega 14 milljörðum. Hann hafði þó meira á bakvið sig á fundinum, því gert hafði verið samkomulag um meðferð at- kvæðaréttar, þannig að Oddaflug, Primus og Materia Invest, sem er hlutafélag í eigu Magnúsar Ármann, Þorsteins M. Jónssonar og Kevin Stanford, fóru samanlagt með um 17% atkvæðamagns. Hannes segir nýtt hlutverk sitt í FL Group felast í því að vera stór hluthafi og eiga sæti í stjórn. „Ég mun styðja við bakið á félag- inu, bara á öðrum vettvangi,“ segir hann. „Ég er kominn hringinn, því ég hef áður komið að því sem fjár- festir, stjórnarmaður, stjórn- arformaður og nú síðast sem for- stjóri. Nú er ég aftur fjárfestir og stjórnarmaður.“ Kveður við nýjan tón – Þú hefur gefið til kynna að þú munir beina orku þinni að Geysir Green Energy. „Ég hef mikinn áhuga á orku- málum og hef leitt þetta verkefni undanfarið ár. Uppbyggingin hefur gengið afar vel og Geysir Green Energy er orðið leiðandi fyrirtæki, að minnsta kosti í jarðvarma, í tengslum við útflutning á þeirri þekkingu sem skapast hefur á Ís- landi. Ég mun auðvitað fylgja þessu eftir af fullum krafti enda mikil tæki- færi í vistvænum orkugeira víða um heim.“ – Frá því samruni REI og Geysis gekk til baka í október hefur málið verið í biðstöðu. Ertu bjartsýnn á að lausn sé í sjónmáli? „Ég á ekki von á öðru en að nýr meirihluti lendi þeim málum. Það kveður við nýjan tón eftir að hann tók við. Menn hægðu aðeins á ferð- inni, en engu að síður er fullur hugur í Orkuveitunni og þeim sem þar ráða för að halda áfram á þessari leið þó að það verði undir breyttum for- merkjum. Á þessari stundu liggur ekki fyrir nákvæmlega í hverju þau formerki felast. En hvernig sem fer skiptir það ekki öllu máli fyrir okkur, eins og ég sagði í haust. Vissulega skiptir máli að menn nái lendingu, en ekki öllu máli fyrir Geysi. Við getum vaxið áfram út frá þeim verkefnum sem liggja þegar í félaginu.“ – Það kom fram á hluthafafund- inum að kaupum þínum á 23% hlut FL Group í Geysi hefur verið frestað til næsta árs. „Við gengum frá viljayfirlýsingu um málið milli mín og félagsins, sem síðan er unnið eftir,“ segir Hannes. „Í raun var þetta gert til þess að hægt væri að klára afgreiðslu á því máli endanlega. Eins og við höfum sagt eru þetta viðskipti tengdra aðila og við viljum standa að þeim með sama hætti og viðskiptunum sem kynnt voru á hluthafafundinum. Það er eðlilegt að menn fái tíma til að meta eignirnar og ganga frá lausum endum. En sú fyrirætlan hefur ekki breyst að menn ætla að klára málið.“ Fjölbreyttar fjárfestingar – Lagðir þú upp með það, þegar þú fórst inn í Icelandair, að umbreyta félaginu í fjárfestingarfélag? „Það var tækifærið sem fólst í upphaflegu viðskiptunum. Félaginu hafði gengið þokkalega í kjölfar 11. september, það hafði byggt upp sterka sjóðsstöðu, og kostirnir sem menn stóðu frammi fyrir árið 2004 voru þeir að fjárfesta meira í rekstr- inum sem félagið var í og skila arði til hluthafa eða ráðast í frekari fjárfest- ingastarfsemi. Það var tækifærið sem menn sáu. Síðan má segja að það hafi undið upp á sig og leitt til þess að á endanum var fjárfestinga- starfsemin orðin miklu stærri þáttur en reksturinn. Þá var eðlilegt að kljúfa hana frá, sem endaði með því að menn skráðu FL Group á mark- að.“ – Í hverju felst fjárfestingarstefna FL Group? „Felst eða fólst?“ segir Hannes og hlær innilega. „Hún hefur breyst og þróast eftir því sem félagið hefur vaxið og dafnað. Í fyrstu var hún ná- tengd fluginu og þá voru keypt hlutabréf í Easyjet og flugvélar bæði keyptar og seldar. Í umbreyting- unum haustið 2005 var lagt upp með að fá breiðari sýn. Sú stefna var mörkuð að geta fjárfest mjög víða, þ.e. að einskorða ekki fjárfestingar við rekstur tengdan flugi eða ferða- þjónustu. Grundvöllurinn varð breiðari og sú stefna var mörkuð snemma að búa til A og B flokka fyrir fjárfest- ingar og fókus FL Group hefur síð- astliðin tvö ár verið á fjármálageir- anum. Það hófst á árinu 2005, hélt áfram árið 2006 þegar félagið styrkti sig innan Glitnis og enn styrktu menn sig innan Glitnis árið 2007, auk þess að kaupa hlut í Commerzbank og TM. Hornsteinninn í fjárfest- ingum félagsins hefur verið í fjár- málageiranum, en á undanförnum tveim árum hafa 65% af öllum fjár- munum félagsins verið bundin í starfsemi tengdri honum. Síðan var lagt upp með að menn myndu í auknum mæli nýta önnur tækifæri með fjárfestingum í óskráðum félögum. Eðli slíkrar starfsemi er að menn grípa gæsina þegar hún gefst og eru ekkert að einskorða sig við tiltekin svið, heldur fara vítt og breitt.“ – Eru fjárfestingar í drykkjar- vörufyrirtækjum til marks um það? „Já, við fórum inn í Refresco og Royal Unibrew árið 2006 af því að þar voru skemmtileg tækifæri fyrir hendi. Undir lok síðasta árs má svo segja að menn hafi leitað að tæki- færum, þar sem hægt væri að byggja upp frá grunni. Þannig kom orkan inn. Við horfðum til þess að ol- íuverð hafði hækkað mikið und- anfarin ár og áhugi aukist mikið á vistvænni orku. Íslendingar búa yfir mikilli og ákaflega dýrmætri þekk- ingu á því sviði og það var rótin að stofnun Geysir Green Energy. Á þessu tímabili má því segja að FL Group hafi fikrað sig yfir í fjöl- breyttari fjárfestingar en þó með sérstaka áherslu á fjármálageirann. Sú áhersla verður áfram við lýði. Í framhaldi af því sem við kynntum 4. október sl. verður fjármálageirinn hornsteinn í fjárfestingum FL Gro- up, þ.e. Glitnir, Commerzbank og Morgunblaðið/Golli Myglað mjöl Hannes gefur lítið fyrir umfjöllun í Danmörku um íslenskan fjármálamarkað, eftir að Danir hættu að geta selt okkur myglað mjöl hefðu þeir haft verulegt horn í síðu okkar „þegar við værum loksins farin að standa almennilega í lappirnar.“ ÞETTA ERU ENGIN GEIMVÍSINDI Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is Mikið hefur mætt á Hannesi Smárasyni að undanförnu í miklum öldugangi á fjármála- mörkuðum. Hér rekur hann sögu FL Group, hæðir og lægðir, skýrir sitt sjónarhorn, rýnir í orkumálin og Geysi Green og horfir fram á veginn. FJÁRFESTINGAR OG FJÁRMÁLAMARKAÐIR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.