Morgunblaðið - 16.12.2007, Síða 42

Morgunblaðið - 16.12.2007, Síða 42
42 SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Sigurborgu Ólafsdóttur F jölskylduheimilið að Kumbaravogi hefur verið nokkuð til um- fjöllunar á þessu ári, einkum á síðum DV. Blaðið hefur ítrekað sett á borð minningar og túlkanir aðallega tveggja einstaklinga sem ólust upp með mér á Kumbaravogi en þar er einungis dregin upp neikvæð og röng mynd af þessum árum. Hluti af þessari neikvæðu umræðu hefur nú ratað inn á síður Morgunblaðs- ins í formi aðsendrar greinar sem birtist hinn 2. desember sl. Ég vil ekki fara út í deilur við þessi upp- eldissystkini á síðum blaðanna, en mig langar að draga fram gerólíka og réttari hlið málsins, en mikill meirihluti þeirra einstaklinga sem dvöldu á Kumbaravogi hefur stað- fest að þar hafi þeim verið búið öruggt og gott heimili. Ég var tekin kornung af heimili foreldra minna og í fyrstu þvældist ég á milli ópersónulegra stofnana í Reykjavík en var komið til dvalar á Kumbaravogi í febrúar 1972, þá þriggja og hálfs árs gömul. Þar dvaldi ég til ársins 1990 en þá lá leið mín til Reykjavíkur þar sem ég stundaði háskólanám og hóf að stofna mitt eigið heimili. Þegar ég lít til baka á uppeldis- árin á Kumbaravogi, fer um mig notaleg tilfinning. Þar eignaðist ég ekki einungis pabba og mömmu, heldur fullt af systkinum, frænkum og frændum, og einnig ömmur og afa sem komu úr fjöl- skyldum Krist- jáns og Hönnu. Frændfólkið var duglegt að sækja okkur heim og gisti oft nokkra daga, þar sem það var oft komið langt að. Þá var farið út á tún í leiki með gestunum og höfðu allir gaman af. Enn í dag hef ég gott samband við þetta fólk sem ávallt tekur mér opnum örmum líkt og einni af fjölskyldunni. Ég er og hef alltaf verið í góðu og nánu sam- bandi við Kristján, eða pabba, eins og ég hef ætíð kallað hann. Það var alltaf líf og fjör á Kumbaravogi og margar hefðir sem sköpuðust. Á hverjum jólum fengu allir ný föt, pakka og nóg að borða af öllu því sem maður gat hugsað sér. Um páska fengu allir páskaegg. Á haustin fengu allir ný „skólaföt“ sem ætíð átti að hengja upp að loknum skóladegi. Haldið var upp á afmæli allra krakkanna, hvert fyrir sig, með tilheyrandi pylsuveislu eða kökuáti, eftir vali hvers og eins. Og svo mætti lengi telja. Það var margt sem þessi stóri og fjörlegi barnahópur hafði fyrir stafni og gat beint orku sinni að. Við fengum að hafa dýr okkur til skemmtunar, hænur, kanínur, ketti, kindur og hesta. Við höfðum gamla ónýta bíla til að hamast í bak við bílskúr, við fengum timbur, nagla og verkfæri til að smíða okk- ur kofa, reiðhjól, skauta, sleða, skíði og í raun allt sem okkur datt í hug að hafa eða gera. Fyrir því var öllu séð með tilheyrandi kostnaði og fyrirhöfn. Sundferðir voru vin- sælar og ferðalög af ýmsu tagi. Fjöruferðir voru oft farnar, ann- aðhvort til að svamla í sjónum, safna rekadóti eða veiða hornsíli. Við tókum þátt í heyskap á sumrin og uppskeru garðávaxta á haustin. Allt kenndi þetta okkur hvernig hægt væri að skapa sér tækifæri í lífinu. Við vorum flest okkar dug- legir krakkar, og ærslagangurinn mikill, en reynt var eftir bestu getu að kenna okkur að nýta krafta okk- ar til einhvers nýtilegs. Þegar við urðum unglingar feng- um við tækifæri til að stunda vinnu, hvort sem var við léttan iðn- rekstur á hlaðinu heima, eða í fisk- vinnslu í þorpinu. Iðnrekstur fóst- urföður okkar hófst í ágúst 1974 en þá voru mörg eldri krakkanna orð- in hálffullorðin og farin frá Kumb- aravogi. Að sjálfsögðu fengum við laun fyrir okkar vinnu og hver og einn hafði tök á að spara á sinn hátt til að kaupa sér eitthvað fyrir sumarlaunin. Við þurftum ekki að vinna meira en þá tíðkaðist. Ef ég lít til þeirra sem voru á næstu bæj- um við okkur var vinnan svipuð á flestum heimilum. Þá voru börn í þorpinu jafnvel látin sleppa skóla til að taka þátt í fiskvertíð, slát- urtíð, sauðburði og fleiru og þótti ekkert athugavert við það. Við lærðum að vinna og er það okkar veganesti í dag. Við fóstursystkinin höfum flest haft gott samband í gegnum árin. Við höfum hist reglulega í veislum en hápunktur hvers árs hefur verið þegar allur hópurinn hefur komið saman á annan í jólum heima á Kumbaravogi en sú hefð hefur ver- ið til margra ára. Við fóstursystkinin eigum margs góðs að minnast. Um það vorum við öll sammála þegar við hittumst til þess að skrifa minningargrein um fósturmóður okkar, Hönnu, við fráfall hennar 1992. Þar sögðum við m.a.: „Hanna, sem við fórum mjög fljótt að kalla mömmu, var þeim einstaka hæfileika búin að geta gengið í móðurstað stórum hópi ólíkra barna og gat veitt hverju og einu þeirra þá um hyggju og ástúð sem nauðsynlegt er öllum sem eru að vaxa úr grasi. […] Mikla fórn- fýsi, kærleika, vinnu og natni þarf til að ala upp svo stóran og ósam- stæðan barnahóp. Það þarf stórt hjarta til að rúma öll þau stóru og smáu vandamál sem koma upp hjá svona fjörlegum barnahópi og það eru ekki margir sem geta skilið til fulls alla þá miklu fórnfýsi sem liggur að baki lífsstarfi hennar. […] Eftir því sem við eldumst gerum við okkur sífellt betur grein fyrir því hversu mikil gæfa það var fyrir okkur að eignast Hönnu og Krist- ján fyrir foreldra og Kumbaravog fyrir heimili. Við munum búa alla ævi að því kristilega uppeldi sem við fengum þar og lagt hefur traustan og varanlegar grunn að lífi okkar.“ Þetta sömdum við öll fóstursystkinin sem stödd vorum á landinu á þeim tíma. Kristján og Hanna lögðu ætíð mikla áherslu á að við menntuðum okkur og studdu okkur eindregið til náms á allan þann hátt sem þau gátu. Reynt var að greiða götur okkar með húsnæði, fæði, bóka- kaupum og hverju því sem stuðlaði að menntun okkar. Auðvitað fengu ekki allir allt sem þeir fóru fram á. Góð ár á Kumbaravogi » Þegar ég lít til baka á uppeldisárin á Kumbaravogi, fer um mig notaleg tilfinn- ing. Þar eignaðist ég ekki einungis pabba og mömmu, heldur fullt af systkinum, frænkum og frændum, og einnig ömmur og afa sem komu úr fjölskyldum Kristjáns og Hönnu. Sigurborg Ólafsdóttir JÓLAGJÖFIN FYRIR ÞÁ SEM ELSKA PIPAR• S ÍA • 7 2 4 6 3 Þú ætlar að horfa á sjónvarpið - einn takki Með aðeins einum takka á fjarstýringunni kveikir þú í senn á sjónvarpinu, myndlyklinum og heimabíó- magnaranum. Sjónvarpið stillist sjálfkrafa inn á réttu rásina. Þú ætlar að horfa á DVD - einn takki Sjónvarpið stillist sjálkrafa inn á réttu rásina, það kviknar á DVD-tækinu og þú stjórnar öllum aðgerðum með Logitech fjarstýringunni. Opnunartími: virka daga 9-18 | laugardaga 12-17 | sunnudaga 12-17 Jólamánuðurinn er fjarri því heppilegurtil krassandi skrifa og slakur til sýn-ingahalds hér á norðurhjaranum, fólk áferð og flugi, kaffihúsin ósjaldan betur sótt og dagblöð minna lesin. Breytist allt með hækkandi sól á nýju ári og þá er lag að sletta úr klaufunum, óvenju margt mikilvægt of- arlega á baugi um þessar mundir sem hrista þarf upp í og mun farsælla að setja allt slíkt í salt en að orðræðan lendi í glatkistunni. Eins Enn spjall Faldir fjársjóðir Olíumálverk Eyjólfs Eyfells (1886-1979) af Vorsabæjarhjáleigu frá 1906 er hiklaust ein af perlum íslenskrar myndlistar. SJÓNSPEGILL Bragi Ásgeirsson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.