Morgunblaðið - 16.12.2007, Side 44

Morgunblaðið - 16.12.2007, Side 44
44 SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ 18. desember 1977: „Sú vel- megun, sem hér ríkir nú og þau peningaráð, sem fólk hef- ur og hafa komið vel í ljós í jólaverzluninni, byggist ekki á því að peningum hafi verið dreift út um þjóðfélagið með því að reka ríkissjóð með greiðsluhalla. Þvert á móti er þessi velmegun til staðar á sama tíma og ríkissjóður er annað árið í röð rekinn án greiðsluhalla og stefnt að fjárlagaafgreiðslu í næstu viku á sama grundvelli. Þessi velmegun byggist heldur ekki á því, að við rekum þjóð- arbúskap okkar með stór- kostlegum viðskiptahalla við útlönd, sem svo er jafnaður með erlendum lántökum. Þvert á móti hefur við- skiptahallinn farið minnkandi á sama tíma og velmegunin hefur vaxið. Þessi miklu penningaráð fólks stafa held- ur ekki af því, að bankakerfið og fjárfestingarlánasjóðir veiti peningum í stríðum straumum út í samfélagið. Þvert á móti er bankakerfið í raun rekið með jöfnuði gagn- vart Seðlabanka.“ . . . . . . . . . . 20. desember 1987: „Jólin eru menningarlegur aflvaki í mörgu tilliti. Í tónlist, leiklist og bókmenntum eru unnin stórvirki í tilefni jólanna eins og dæmin sanna. Kvik- myndahús, sjónvarps- og út- varpsstöðvar fara í sparifötin. Í kirkjunum er efnt til fjöl- sóttra aðventukvölda og um land allt koma tugir þúsunda skólabarna saman og gera sér dagamun. Sá kraftur sem fæðing jóla- barnsins leysir úr læðingi setur þannig magnaðan svip á allt, sem við tökum okkur fyrir hendur þessa síðustu daga, áður en dag tekur að lengja að nýju. Ef við látum boðskapinn, sem tengdur er nafni jólabarnsins, lífi þess og dauða, móta dagfar okkar all- ar stundir, farnast okkur sjálfum ekki aðeins vel held- ur einnig þjóð okkar, hvernig svo sem viðrar í náttúrunni eða við stjórn landsmála.“ . . . . . . . . . . 21. desember 1997: „Vega- kerfið, sem byggt hefur verið upp síðasta aldarfjórðung, hefur haft grundvallarþýð- ingu fyrir atvinnulífið og þjóðlífið allt. Þeir miklu fisk- flutningar, sem nú fara fram á milli byggðarlaga og eru þáttur í þeirri hagræðingu, sem orðið hefur í sjávar- útvegi, væru ekki mögulegir nema vegna þess, að bundið slitlag hefur verið lagt á helztu samgönguleiðir. Þá hefur vegakerfið valdið því, að stór byggðasvæði, sem áður voru aðskilin eru að renna saman í eina heild. Þar má nefna Eyjafjarðarsvæðið, en segja má, að 25 þúsund manna allt að því samfelld byggð sé við Eyjafjörð. Á suðvesturhorni landsins verður það sífellt algengara að fólk, sem býr fyrir austan fjall eða á Suðurnesjum sæki vinnu á höfuðborgarsvæðinu eða öfugt.“ Úr gömlum l e iðurum Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. VAXANDI VERÐBÓLGA Verðbólga er vaxandi beggjavegna Atlantshafsins. Á evru-svæðinu hefur hún ekki verið hærri en nú á síðustu sex árum og nýj- ar verðbólgutölur í Bandaríkjunum í fyrradag áttu þátt í lækkandi hluta- bréfaverði á mörkuðum vestanhafs. Það liggur í augum uppi, að vaxandi verðbólga í helztu viðskiptalöndum okkar mun eiga þátt í að ýta undir verðbólgu hér fremur en að draga úr henni. Og þótt vísbendingar hafi verið um að dregið hafi úr verðbólguþrýst- ingi hér getur það breytzt vegna þró- unar í nálægum löndum. Þessi fram- vinda mála er vísbending um að Seðlabanki Íslands hafi haft rétt fyrir sér í þeirri umdeildu vaxtapólitík, sem bankinn hefur rekið að undanförnu. Á sama tíma og verðbólga fer vax- andi beggja vegna Atlantshafs eru vísbendingar um, sérstaklega í Bandaríkjunum, að það sé að draga úr hagvexti og sumir sérfræðingar hafa um skeið spáð því, að beinn samdrátt- ur sé framundan í bandarísku efna- hagslífi. Yfirleitt hefur slík þróun í Banda- ríkjunum ekki boðað neitt gott í öðr- um löndum. Litið hefur verið á Banda- ríkin sem forystuaflið í efnahagslífi umheimsins og að vöxtur þar mundi ýta undir vöxt annars staðar en sam- dráttur þar mundi leiða af sér sam- drátt annars staðar. Nú eru menn ekki á einu máli um hvort hugsanlegur samdráttur í Bandaríkjunum sé vísbending um al- mennan samdrátt í efnahagsmálum á heimsvísu. Þvert á móti telja sumir að öflugt efnahagslíf Asíu-ríkjanna muni breyta þessu mynztri og að samdrátt- ur vestanhafs hafi ekki endilega sömu áhrif í öðrum löndum og áður. Þetta á eftir að koma í ljós en í því sambandi má heldur ekki gleyma því, að spurn- ingarmerki eru sett við hagvöxtinn í Kína. Jafnvel er talið að hann hafi ekki verið eins mikill og opinberar töl- ur þar í landi hafi bent til og að mikil hækkun hlutabréfa þar kunni að vera bóla, sem eigi eftir að springa með miklum látum. Það eitt er víst, að efnahagslíf heimsins er nú svo inn- byrðis tengt að vandamál á einum stað koma fram með margvíslegum hætti út um allt eins og húsnæðislánakrepp- an í Bandaríkjunum hefur sýnt. Það eru augljóslega ýmiss konar fyrirboðar á ferð víða um heim. Okkar litla efnahagskerfi getur orðið fyrir verulegum óþægindum af þeim sök- um. Þess vegna er nokkuð ljóst, að það er ekkert vit í að slaka á í efnahags- stjórn hér, heldur miklu fremur ástæða til að herða tökin og taka upp aðhaldssamari efnahagspólitík. Það á við um allt atvinnulífið, sem þarf að búa sig undir erfiðari tíma. Það á líka við um fjármálastjórn bæði ríkis og sveitarfélaga. Að baki eru mikil fram- kvæmdaár og fólk hefur vanizt því að hægt væri að leggja í allar þær fram- kvæmdir, sem taldar hafa verið nauð- synlegar. Nú kunna breyttir tímar að vera framundan og vel má vera að nauðsynlegt sé að beita meira aðhaldi í ríkisfjármálum en gert er ráð fyrir í fjárlögum næsta árs. Sveitarfélögin eru um þessar mundir að afgreiða fjárhagsáætlanir sínar fyrir næsta ár og það er ekki fráleitt að ætla, að þau leyfi sér meira en skynsamlegt er miðað við þær efnahagshorfur, sem sýnast blasa við á næstu misserum. Það er athyglisvert hvað stjórn- málamennirnir, hvort sem er á lands- vísu eða í sveitarstjórnum, hafa gert lítið af því að setja opinber fjármál bæði ríkis og sveitarfélaga í þetta al- þjóðlega samhengi. Eru þeir raun- verulega þeirrar skoðunar, að það, sem gerist í öðrum löndum, hafi engin áhrif hér? Trúa þeir því, að vaxandi verðbólga í Evrópu og Bandaríkjun- um hafi engin áhrif hér? Trúa þeir því, að efnahagslegur samdráttur í Banda- ríkjunum hafi engin áhrif hér? Ef svo er má segja, að mikil er þeirra trú. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Á gagnrýnendaþingi Morgunblaðsins síðastliðinn miðvikudag vitnaði Hjálmar Sveinsson útvarpsmaður, sem stýrði umræðum á þinginu, í grein í þýska blaðinu Die Zeit. Greinin fjallaði um gagnrýni og var fyrirsögn hennar eitthvað á þá leið að markaðurinn mundi alltaf komast af án gagnrýnenda. Í greininni kom fram að þetta væri m.a. niðurstaða gagnrýn- enda víðsvegar að úr Evrópu er hittust til að þinga um hlutverk sitt. Hjálmar benti einnig á að þótt gagnrýni væri töluverð í Morgunblaðinu um þessar mundir, ekki síst vegna hefðbundinnar jólabóka- umræðu, væru auglýsingar bókaútgefenda þó alltaf meira áberandi. Hann varpaði fram þeirri spurn- ingu hvort ekki mætti því draga þá ályktun að markaðurinn spjaraði sig sem sagt án gagnrýn- enda, hér á landi sem annars staðar. Undirliggjandi spurning á málþinginu – undir yf- irskriftinni „Rýnt til gagns“ – var hvert hlutverk gagnrýnenda væri í slíku samfélagi? Og hvort gagnrýni væri hugsanlega orðin úrelt? Eða hvort blogg kæmi kannski í staðinn fyrir gagnrýni? Aug- lýsendur eru farnir að nota tilvitnanir úr blogg- síðum samhliða vísunum í gagnrýni í auglýsingum um útgáfu. Niðurstaða fundarins var í meginatrið- um sú að gagnrýni væri bráðnauðsynleg, hana mætti alls ekki leggja niður heldur ætti að efla hana. Ekki einungis í Morgunblaðinu heldur fyrst og fremst í öðrum fjölmiðlum þar sem hún mætti vera meiri. Til fundarins voru boðaðir gagnrýnendur blaðs- ins auk talsmanna allra þeirra menningarstofnana sem blaðið á í reglubundnum samskiptum við. Að þessu sinni voru allir þeir sem áhuga hafa á um- ræðu um gagnrýni og menningu einnig boðnir vel- komnir og var aðsókn að þinginu vonum framar. Þau Pétur Gunnarsson rithöfundur, sem einnig fer fyrir Rithöfundasambandi Íslands um þessar mundir, Margrét Bóasdóttir frá Félagi íslenskra tónlistarmanna, Steinunn Knútsdóttir, leikstjóri og dramatúrg við Borgarleikhúsið, og Unnar Örn Jón- asson Auðarson, myndlistarmaður og kennari við Listaháskóla Íslands, tóku að sér að viðra sjónar- mið ólíkra listgreina í stuttum framsöguerindum auk Fríðu Bjarkar Ingvarsdóttur, yfirmanns menn- ingarritstjórnar Morgunblaðsins. Gagnrýni Morgunblaðinu verðmæt M arkmið menningarritstjórnar Morgunblaðsins er að endur- spegla, bregðast við og varpa ljósi á það samfélag sem blaðið sprettur úr – standa vörð um menningarlífið og íslenska tungu. Þetta er leiðarljósið í daglegri menningar- umfjöllun blaðsins. Reynsla blaðsins er sú að menn- ingarviðburðum fjölgar stöðugt og til marks um það er til að mynda sú staðreynd að dómum eða um- sögnum í blaðinu fækkar ekki á milli ára þótt sá rammi er gagnrýni er markaður hafi verið þrengd- ur umtalsvert. Hann hefur á síðustu árum takmark- ast við viðburði atvinnufólks í faglegu umhverfi. Af og til eru þó gerðar undantekningar gerist þess þörf því listin þrífst að sjálfsögðu víðar en innan hefðbundinna ramma og þá staðreynd verður blað- ið að sjálfsögðu endurspegla eftir mætti. Á síðast- liðnum tveimur árum hefur blaðið látið vinna um 20 til 25 dóma á viku að jafnaði allan ársins hring eða um 1.200 til 1.300 dóma á ári. Gagnrýni hefur því töluvert vægi á síðum Morgunblaðsins og er að sama skapi verðmætt efni sem skapar því sérstöðu á menningarsviðinu. Eins og lesendur Morgunblaðsins hafa ugglaust veitt eftirtekt hefur einnig verið unnið að því und- anfarin misseri að stytta dóma nokkuð. Forsendan fyrir þeirri vinnu er viðleitni til að bregðast við gróskunni í menningarlífinu og jafnfram sú stað- reynd að mun auðveldara að er flétta dóma inn með annarri umfjöllun með þeim hætti. Það er einnig mat blaðsins að með þessum aðgerðum sé hægt að draga úr birtingu dóma sem eru einna helst end- ursögn af viðburði eða útgáfu, en hafa að sama skapi lítið fagurfræðilegt eða hugmyndafræðilegt fram að færa umfram það. Markmiðið er að skerpa á gæðum umsagna, hvetja gagnrýnendur til að vera skorinorðir og hnitmiðaðir í skrifum sínum. Eins og fram kom á málþinginu var þó aldrei ætl- unin að að koma í veg fyrir að langir og ítarlegir dómar yrðu skrifaðir – öðru nær. Markmiðið er að breyta vettvangi dómanna þannig að bæði sé hægt að skrifa mjög stutta dóma ef ekki er ástæða til ann- ars en auka á móti svigrúm fyrir lengri og dýpri umsagnir eftir því sem blaðinu eða gagnrýnendum þykir ástæða til. Það er m.ö.o. verið að draga úr þeim dómum sem skilgreina mætti sem einskonar miðjumoð; draga úr því sem ekki hefur mikið vægi eða þýðingu þegar til lengdar lætur. Með þessum hætti telur Morgunblaðið sig hafa skapað sveigj- anleika sem ætti að þjóna listgreinunum betur og vera lesendum til hægðarauka. Því sem hæst ber á að hampa Í þessu samhengi er vert að geta þess að jafnvel þótt íslenskt menningarlíf sé gróskumikið og framleiðsla þess mikil má ekki gleyma því að ekki heyrir allt sem fyrir landsmenn er borið til stórviðburða. Íslenskir listamenn eru komnir í hóp at- vinnumanna líkt og kollegar þeirra í nágrannalönd- unum. Þeir eru vel menntaðir, vel upplýstir um samhengi sinnar listsköpunar bæði hér heima og erlendis. Um leið er óhætt að gera meiri kröfur til þeirra en áður var gert. Þegar atvinnufólk – til að mynda á tónleikum – vinnur vinnuna sína af fag- mennsku heyrir það ekki til tíðinda lengur á Íslandi. Það er einungis ánægjuleg staðfesting á framþróun tónlistarinnar og þeim trausta grunni sem tekist hefur að byggja listgreininni í menningunni. En í þau tiltölulega fátíðu skipti er tónleikar afhjúpa óvenjulegt listfengi í túlkun og hljóðfæraleik, eða myndlistarmaður kemur fram á sjónarsviðið með framúrskarandi frumlega og vandlega ígrundaða sýningu, er mikilvægt að koma auga á það og gera því skil í gagnrýni með verðskulduðum og vegleg- um hætti. Sú annars ágæta jafnaðarmennska er verið hefur við lýði í hagsmunagæslu íslensks menningarsviðs, er byggist á því að ávallt skuli eitt yfir alla ganga, er ekki vænleg til að geta af sér til- þrifamikla list. Það er ástæða til að hampa því sem hæst ber, jafnvel á tímum hugmyndafræðilegra strauma er gera slíkt mat iðulega erfitt. Að öðrum kosti er hætt við að einungis meðalmennska sem auðvelt er að græða á nái fótfestu í huga fólks. Í þessu samhengi má geta þess að Jakob Frí- mann Magnússon tónlistarmaður gerði mismun- andi forsendur listsköpunar að umtalsefni á mál- þinginu og benti á að gagnrýni hlyti að þurfa að taka mið af því hverjir stæðu að henni. Hans skoðun er sú að gera eigi meiri kröfur ef verið er að eyða al- mannafé, svo sem í þjóðarleikhúsi, hjá sinfóníu- hljómsveit, opinberum söfnum o.s.frv. Þessi krafa er ekki nema sanngjörn, upplýstur gagnrýnandi hlýtur að taka tilliti til þeirra þátta er skapa listinni umgjörð og miða afstöðu sína við það. Til þess að dagblað geti endurspeglað umhverfi sitt þarf stöðug samræða að eiga sér stað. Á hverj- um degi á fjöldi fólks samskipti við menningarrit- stjórn Morgunblaðsins, í flestum tilfellum til að óska eftir kynningu á viðburðum. Margir ræða einnig gagnrýni, enda hefur hún töluvert vægi á síð- um blaðsins. Ljóst er að ekki eru allir þeirra skoð- unar að gagnrýni eigi fyrst og fremst að þjóna list- greinunum, þróun þeirra og framvindu á hverjum tíma. Margir líta svo á gagnrýni sé fyrst og fremst þjónusta við þá einstaklinga eða stofnanir er fremja list. Aðrir líta svo á að gagnrýni eigi að þjóna mark- aðssjónarmiðum og auðvelda þeim er stunda list- sköpun að lifa af list sinni. Þessi viðhorf eiga auðvit- að rétt á sér líkt og hver önnur en það breytir ekki þeirri staðreynd að gagnrýni sú er birtist í Morg- unblaðinu er fyrst og fremst hugsuð sem þjónusta við listgreinarnar. Markmiðið er að þannig veiti gagnrýni það uppbyggilega aðhald er að lokum þjónar einnig einstaklingum og markaðinum. Áhorfendur, lesendur og hlustendur horfnir? Í pistli Péturs Gunnarssonar rithöfundar, sem birtist í fyrsta sinn í Morgunblaðinu í gær, föstudag, skrifar hann á áþekkum nótum og hann gerði á málþingi blaðsins á miðvikudag. „Það verður ekki af íslenskum bók- menntum skafið að upphaf þeirra er glæsilegt“, segir Pétur. „Af hverju urðu þær til? Af hverju liðu þær undir lok? […] Þjóð sem reiðir fram slík lista- verk samfara stjórnarháttum sem að frumleika telj- ast til nokkurrar nýlundu á miðöldum, hún er að sönnu innblásin. En til að sá innblástur fái búning þarf hinn gríðarlega auð kirkju og klaustra sem hef- ur staðið undir allri þessari listiðju og listsköpun. En af hverju hættir það? Því það hættir. Líkt og farartæki sem verður eldsneytislaust, skip sem missir byr. Með afsali sjálfstæðis á 13. öld verða hvörf, auðvitað ekki við undirritun samningsins, það má jafnvel færa rök fyrir því að endalokin sem voru í augsýn hafi hert enn á sköpuninni.“ Pétur lítur síðan til samtímans og spyr: „Andi tímans, hver er hann á okkar tíð? Þetta gríðarlega magn verka sem framleidd eru, þessi ríkulega tján- ing, hvaða andi býr þar að baki?“ Hann vísar til hamslauss magns auglýsinga er fylgja neyslu og só- un tíðarandans og segir síðan: „Magnið er aðals- Laugardagur 15. desember Reykjavíkur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.